Tímarit Máls og menningar


Tímarit Máls og menningar - 01.11.1986, Blaðsíða 48

Tímarit Máls og menningar - 01.11.1986, Blaðsíða 48
Tímarit Máls og menningar „afskiptaleysiskenningin", kemur þegar fram í hinu sígilda riti Ariés. Hann setur tilkomu bernskuhugtaksins í beint samband við breytingar á fjöl- skylduskipan er leiddi til hinnar þröngu, borgaralegu kjarnafjölskyldu. Bernskusaga Ariés byggist að sönnu á þróunarsjónarmiði en framsetningin dregur dám af svartsýni höfundar og íhaldssamri samfélagssýn hans: um leið og foreldrar fóru smám saman að skipta sér meira af börnum sínum, einkum menntun þeirra, sættu þau strangari aga bæði heima fyrir og í skóla. Börnin urðu háðari foreldrum sínum og þar með ósjálfstæðari en áður, það var að dómi Ariés gjaldið sem þau urðu að greiða fyrir vaxandi bernskuvit- und samfélagsins. Samanborið við sporgöngumennina er áberandi hve Ariés notfærir sér lítið lýðfræðileg gögn í tölulegu formi. Lýðfræðilegar aðstæður eru samt gildur liður í röksemdafærslu hans. Þannig kemur ungbarnadauðinn í hinu hefðbundna samfélagi fram sem hornsteinn í afskiptaleysiskenningu hans. Afskiptaleysi var óhjákvæmileg afleiðing lýðfræðilegra aðstæðna á þessum tímum ... Fólk gat ekki leyft sér að tengjast náið verum sem eins líklegt þótti að það mundi missa. (Ariés 1962:37) I mörgum ritum um fjölskyldusögu sem birtust á síðasta áratug röktu menn afskiptaleysiskenninguna áfram og dýpkuðu hina lýðfræði-/sálfræðilegu skýringu Ariés. Einna þekktust og umdeildust eru rit Edward Shorters og Lawrence Stones. Báðir aðhyllast afskiptaleysiskenninguna en hafa enda- skipti á orsakasamhengi Ariés (Shorter 1976:203; Stone 1977:651—2): hirðuleysi foreldra um afkvæmin sé fremur orsök en afleiðing ungbarna- dauðans. Með þessu eru foreldrarnir sjálfir gerðir til muna ábyrgari en ella fyrir hlutskipti barnanna. Meðal þess sem höfundarnir hafa til marks um vanrækslu foreldra, ef ekki beinlínis kaldlyndi þeirra, er hve algengt var að ungbörnum væri komið í hendur launaðra „brjóstamæðra" (mercenary wet- nursing), borin út og vafin reifum. I frönskum borgum og bæjum á 18. —19. öld var mjög algengt að ungbörn væru seld í hendur brjóstamæðra, með hrapallegum afleiðingum fyrir lífslíkur þeirra. I ljósi þessa setur Shorter fram eftirfarandi tilgátu: Ef brjóstagjöf skiptir sköpum um líf eða dauða, mætti ef til vill nota hana sem óbeina vísbendingu um þróun móðurástar . . . A þessum tímum urðu mæður að fórna tekjum til að gefa börnum sínum brjóst, og hvort þær gerðu það eða ekki sýnir hve mikils virði heilsa barnanna var þeim. (Shorter 1976:181) 446
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88
Blaðsíða 89
Blaðsíða 90
Blaðsíða 91
Blaðsíða 92
Blaðsíða 93
Blaðsíða 94
Blaðsíða 95
Blaðsíða 96
Blaðsíða 97
Blaðsíða 98
Blaðsíða 99
Blaðsíða 100
Blaðsíða 101
Blaðsíða 102
Blaðsíða 103
Blaðsíða 104
Blaðsíða 105
Blaðsíða 106
Blaðsíða 107
Blaðsíða 108
Blaðsíða 109
Blaðsíða 110
Blaðsíða 111
Blaðsíða 112
Blaðsíða 113
Blaðsíða 114
Blaðsíða 115
Blaðsíða 116
Blaðsíða 117
Blaðsíða 118
Blaðsíða 119
Blaðsíða 120
Blaðsíða 121
Blaðsíða 122
Blaðsíða 123
Blaðsíða 124
Blaðsíða 125
Blaðsíða 126
Blaðsíða 127
Blaðsíða 128
Blaðsíða 129
Blaðsíða 130
Blaðsíða 131
Blaðsíða 132
Blaðsíða 133
Blaðsíða 134
Blaðsíða 135
Blaðsíða 136
Blaðsíða 137
Blaðsíða 138
Blaðsíða 139
Blaðsíða 140

x

Tímarit Máls og menningar

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tímarit Máls og menningar
https://timarit.is/publication/1109

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.