Tímarit Máls og menningar


Tímarit Máls og menningar - 01.11.1986, Blaðsíða 108

Tímarit Máls og menningar - 01.11.1986, Blaðsíða 108
Tímarit Máls og menningar vélrænum hreyfingum, en augu afgreiðslumannanna voru hætt að sjá okkur. Fjölskyldan handan götunnar mataðist við opinn gluggann, en nú litu þau aldrei í áttina til okkar. Holduga stúlkan var að bíða eftir elskhuga sínum — hann kom einn daginn í hermannabúningi. Hann'var gjörbreyttur með stuttklippt hárið og kraginn á búningn- um huldi sólbrúnan hálsinn. Við sáum þau standa stundarkorn saman úti við gluggann, en þau virtust ekki hafa margt að segja hvort öðru. Svo kom hann ekki oftar. Smám saman hættum við að vera við gluggann, okkur fannst að við ættum ekki að sitja þar. Heimur okkar þrengdist og náði ekki út fyrir þann hluta herbergisins, sem rúmið var í. Þar lágum við þessar dimmu ágústnætur og heyrðum öll hljóðin sem bárust að utan. Við bæði heyrðum og skynjuðum í taugunum hvernig þau breyttust frá einni stund til annarrar. Eina nóttina gerði lögreglan skyndileit í hverfinu: við heyrðum köll og fótatak hlaupandi manna niðri á götunni. Svo var hleypt af tveim skotum. Við urðum ekki hrædd, en okkur varð hverft við — við færðum okkur nær hvort öðru, vöfðum okkur þétt hvort um annað. Undarleg orð voru hvísluð í myrkrinu. Þannig höfðum við ekki verið hvort við annað í mörg ár. Svo var það einn daginn að hóteleigandinn stöðvaði mig á leið niður stigann. Hann vildi vita hvenær við færum. Hann útskýrði á sinni óburðugu þýsku að nú mættu útlendingar ekki lengur búa á hótelunum. Að vísu væri hótelið hans lítið og því vissi hann ekki hvenær komið yrði til hans. En við værum einu útlendingarnir sem byggjum hjá honum. Svo til að eiga ekkert á hættu . . . Eg fór aftur upp stigann. „Nú megum við ekki vera hér lengur," sagði ég við Winní. „París vill ekki sjá okkur.“ „Þá förum við suðureftir," sagði Winní. „Við ætlum ekki að fara heim. Við förum upp í Pýreneafjöll eins og við ákváðum. Þeir geta þó ekki bannað okkur það?“ „Já,“ sagði ég, „það skulum við gera. Við skulum fara strax yfir á hinn bakkann og panta farmiða.“ Við drifum okkur af stað. Við héldum áfram að tala um þetta og töluðum bæði hratt og ákaft. Við töluðum líka um það niðri á götunni og bæði í neðanjarðarlestinni og uppi á torginu við óperuna. En við fundum að nú hafði þögnin líka breiðst yfir á hægri fljóts- 506
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88
Blaðsíða 89
Blaðsíða 90
Blaðsíða 91
Blaðsíða 92
Blaðsíða 93
Blaðsíða 94
Blaðsíða 95
Blaðsíða 96
Blaðsíða 97
Blaðsíða 98
Blaðsíða 99
Blaðsíða 100
Blaðsíða 101
Blaðsíða 102
Blaðsíða 103
Blaðsíða 104
Blaðsíða 105
Blaðsíða 106
Blaðsíða 107
Blaðsíða 108
Blaðsíða 109
Blaðsíða 110
Blaðsíða 111
Blaðsíða 112
Blaðsíða 113
Blaðsíða 114
Blaðsíða 115
Blaðsíða 116
Blaðsíða 117
Blaðsíða 118
Blaðsíða 119
Blaðsíða 120
Blaðsíða 121
Blaðsíða 122
Blaðsíða 123
Blaðsíða 124
Blaðsíða 125
Blaðsíða 126
Blaðsíða 127
Blaðsíða 128
Blaðsíða 129
Blaðsíða 130
Blaðsíða 131
Blaðsíða 132
Blaðsíða 133
Blaðsíða 134
Blaðsíða 135
Blaðsíða 136
Blaðsíða 137
Blaðsíða 138
Blaðsíða 139
Blaðsíða 140

x

Tímarit Máls og menningar

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tímarit Máls og menningar
https://timarit.is/publication/1109

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.