Tímarit Máls og menningar


Tímarit Máls og menningar - 01.06.1993, Blaðsíða 61

Tímarit Máls og menningar - 01.06.1993, Blaðsíða 61
varpa mættu ljósi á það sem var vitað áður. Að skilja þá hluti þannig að ég geti skapað. (154-155) Hér er það skáldið sem talar: sá sem vill spá í þar sem heimildunum sleppir, að skilja til að geta skapað. Til þess að skilja þarf maður að upplifa eitthvað, og því segir Ásmundur: Hann var að vissu leyti sáttur við þessa sendiför sem varð ekki umflúin. Og kannski gat hann lært eitthvað sem honum mundi nýtast sem efniviður, þó síðar væri, við það að koma ofan úr hæðum háleitrar fegurðarsóknar, og fara í ormagarðinn aft- ur, með nýjum hætti. (43) Hann vill læra eitthvað, eða skilja, til þess að geta ort. Og það er einmitt þetta sem hann gerir þegar hann segir lesandanum frá upplifun sinni, með þeirri frásögn öðlast hann nýjan skilning á reynslu sinni, vinnur sig útúr erfiðleikunum og getur því skapað að nýju. Og þarna eru þriðju rökin fyrir Ásmundi sem sögumanni: Ásmundur hefur engan annan möguleika útúr ógöngum sínum en skáldskapinn. Nóttina eftir sjálfsmorð Sól- veigar sitja þeir saman séra Stefán og Ás- mundur og presturinn hugsar áður en hann gerir sína árangurslausu tilraun til að hug- hreysta Ásmund: Kannski hefur mér aldrei fallið við hann þó ég hafi dáðst að honum. Kannski. Ég hef ekki hugsað það fyrr. Ekki fyrr en núna þegar mig tekur sárt til hans, og óbeitin horfin. Núna þegar töfrar hans eru rofnir, töfrastafurinn brotinn. Og hann finnurekki sjálfur ennþá skáldið í sér, fyrir voðaverki dómarans. Skáldskapurinn verðurhans líkn þegar hann hefur gengið í myrkrinu, án þess að finna bjarma í ljósi. Þá mun skáldskap- urinn lýsa honum. Kannski. Hann hugsaði já það er satt. (211) Ég er sammála þessari kenningu séra Stef- áns að skáldskapurinn sé hið eina sem getur hjálpað Ásmundi úr þeirri sálarkreppu sem hann er í; að skáldskapurinn muni lýsa hon- um, hjálpa honum til þess að skilja og sætt- ast við voðaverk dómarans. í síðasta kafla skáldsögunnar situr Ás- mundur aftur í stórborginni. í þessum kafla gerir hann upp við fortíðina. Hann situr á vertshúsi í þungum þönkum einsog í byrjun sögunnar og allt bendir til þess að skáld- skapurinn sé að endurfæðast innra með honum — að hann sé að finna skáldið í sjálfum sér, einsog Stefán prestur orðaði það. Þar stendur: Skiptur maður. Klofinn. Meir var hann þar, fjarri; óraQær. Nei hann sat á bakka við kyrran straum með stráum og sinu sem biðu gulhvít vorsins hinumegin; áin rann íkvísl- um. (261) [Hann] þóttist nema háttslungna tónasmíð vakna óvænt innra með sér, og tónaboð staðarins víkja. (262) Vorið er komið, áin fléttast saman úr mörg- um röddum og tónasmíð skapast af mörg- um tónum — skáldskapurinn er að fæðast: Og málverkið á gaflinum breytist; hann sér inní sál listamannsins; það sem hann dreymdi um að segja, það sem hann ætlaði; erindin sem bmnnu inni á báli hins fjötraða sársauka. Nú rotnar þessi bandingi síns tíma í mold meðal orma. Þú situr andspænis misheppnuðu verki hans löngu síðar, og yrkir það sem þarf til að ljúka upp þessari glatkistu geðs hans, leysa þaðan dulsmál, leyndarmál sálar sem logaði af þrá í launhelgum, og hrópaði á líknandi skilning svo yrði líft (...) og þögn þín þéttist; þar vakna lágir tónar dimmir, og skipast í vef; vefjast fléttur, stef vakna að TMM 1993:2 59
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88
Blaðsíða 89
Blaðsíða 90
Blaðsíða 91
Blaðsíða 92
Blaðsíða 93
Blaðsíða 94
Blaðsíða 95
Blaðsíða 96
Blaðsíða 97
Blaðsíða 98
Blaðsíða 99
Blaðsíða 100
Blaðsíða 101
Blaðsíða 102
Blaðsíða 103
Blaðsíða 104
Blaðsíða 105
Blaðsíða 106
Blaðsíða 107
Blaðsíða 108
Blaðsíða 109
Blaðsíða 110
Blaðsíða 111
Blaðsíða 112
Blaðsíða 113
Blaðsíða 114
Blaðsíða 115
Blaðsíða 116

x

Tímarit Máls og menningar

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tímarit Máls og menningar
https://timarit.is/publication/1109

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.