Tímarit Máls og menningar


Tímarit Máls og menningar - 01.06.1993, Blaðsíða 85

Tímarit Máls og menningar - 01.06.1993, Blaðsíða 85
fiskamir breytast í skiptum vöku og draums í kindur og jarma sína leið á eftir hinum hugsununum í hjörðinni. Og í stóran hring fljúga Lóur hinna gömlu á frímerkjum, eins og dýra- hringur um sanda og jökla. Ó þær eru svo fallegar Lóumar og öllum sárt um þær gefið, þær bera í sér þrána, bera hana neðan úr byggð hingað upp, sunnan úr hlýjum heimi hingað upp, innan úr heitu fólki hingað upp. Hér er engin sveitfesti en nóg mannréttindi, nóg pláss fyrir hjarðir allra, og gott að hugsa í endalausan sandinn. Þennan sand sem var sprengdur í kraftmyllu eld-opanna. Þetta er fjölsáinn sandur, í honum óteljandi sandbækur. Sandurinn gerir gott og glepur sýn, því úr honum rísa missýningar innsta sem ysta eðlis. Hann nær inn í innstu æðar og ystu æsar. Smalar dagsins fara umhverfis sandinn í áttatíu heimum. Sandurinn er stór eins og tilfinningin, en hugsunin sem yfir hann fer aðeins kmmrna- stígur. Ferðamaður segir sögu I. Uppi á hálendinu Áður en ég lagði í þessa ferð drakk ég mikið við ókomnum þorsta. Vissi að yfir mikla sanda væri að fara. Er með vænan ásauð minn í gáleysi, óvitandi að sumt það sem í hann hefur komist telst til undarlegra grasa. Veröldin sýnist svo ámælislaus. Er bara á leið með úttroðinn sauð minn í kvíar í inndölum í byggð, trúi á hulda og yfirskyggða dali en óttast ekki illa útilegumenn, því ég veit ég er í sögu sem skaðar ekki hetjuna svo teljandi sé. Með mína sauðahjörð að smala hugsunum mínum eins og aðrir frjálsir landsmenn hér uppi í tómu hálendinu. Er í einni af langferðum mínum um hálendið. Hjarðir mínar rekast ekki á hjarðir vina minna hér í víðáttunni, en ég finn fyrir þeim. Og líka hjörðum hinna. Er eins og aðrir á fjöllum að leita gæða að fita með hjörðina mína. — Gakktu hjörðin mín þangað sem grasið er þungað af krafti, gakktu þangað. Setja má hjörðina sína á sandbeit og taka úr mal sínum haka að leita að gulli að stækka sig með. Sumir hitta á gullæð, og æðarnar hitta suma. TMM 1993:2 83
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88
Blaðsíða 89
Blaðsíða 90
Blaðsíða 91
Blaðsíða 92
Blaðsíða 93
Blaðsíða 94
Blaðsíða 95
Blaðsíða 96
Blaðsíða 97
Blaðsíða 98
Blaðsíða 99
Blaðsíða 100
Blaðsíða 101
Blaðsíða 102
Blaðsíða 103
Blaðsíða 104
Blaðsíða 105
Blaðsíða 106
Blaðsíða 107
Blaðsíða 108
Blaðsíða 109
Blaðsíða 110
Blaðsíða 111
Blaðsíða 112
Blaðsíða 113
Blaðsíða 114
Blaðsíða 115
Blaðsíða 116

x

Tímarit Máls og menningar

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tímarit Máls og menningar
https://timarit.is/publication/1109

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.