Tímarit Máls og menningar


Tímarit Máls og menningar - 01.06.1993, Blaðsíða 103

Tímarit Máls og menningar - 01.06.1993, Blaðsíða 103
strendur í gegnum reynslu höfundarins af þess- um stöðum, í gegnumminninguna. Hann sjálfur kemst hins vegar að því að moldin þegir, líkleg- ast á áhrifamestan hátt þegar hann gistir eina nótt undir malarkambi norður á Tjörnesi og vonast eftir því að raddir komi til hans, raddir fortíðarinnar, draugar hennar, já aðeins eitthvað úr brunni þjóðar og náttúru svo hið liðna verði gætt tungu, jafnvel svo sjálft ómálga landið fái mál sem suði í eyrum hans og huga, en það kemur ekkert. Heila nótt liggur hann í tjaldi sínu „Kjarvalsnaut“ og hlustar og sofnar að endingu en ekkert kemur, hann líkt og lemur í sífellu á glerrúðu en kemst ekki inn, hún honum lokuð. Kannski tjáirþessi minningasagaokkurbetur en mörg önnur listaverk seinni ára að þessi „beini“ aðgangur að fyrri samfélagsmynd eða öllu heldur sá aðgangur sem getur miðlað veru- leika hennar ,,umbúðalaust“ er ekki mögulegur. Það var fremur merkilegt en eðlilegt í fyrr- greindum ritum þeirra Þorsteins og Hannesar að þétt, heilsteypt mynd þessa veruleika skyldi ná að koma þar fram, rétt eins og hann væri full- komlega sjálfsagður þáttur í heimsmynd okkar. Thor miðlar hins vegar skynjun okkar flestra sem einkennist af ósk um að fá aðgang að sögunni en sem fjarar út þegar við verðum að játa að við vitum að þessi aðgangur er ekki mögulegur og að við höfum í raun og veru aldrei trúað því að svo væri. Það er varla að við trúum að þessi aðgangur hafi einhveija sérstaka merk- ingu og ef það er merking, þá erum við viss um að við höfum búið hana til sjálf eða þá að hún var búin til af einhverjum öðrum. Þetta er hin sorglega en þó eðlilega niðurstaða sem kemur út þegar reikningsdæmi þess samfélags sem við búum í hefur verið reiknað til enda. Thor veit ósköp vel af þessu, enda hnita lokastef bókar- innar sig um þá hugsun að forfeður og ættingjar eru einungis til í minningu þeirra sem þekktu þá, fyrir öðrum eru þeir bókstafurinn einn. Sá garður sem að endingu tekur við mönnunum er því þögull nema að minnið gefi þeim röddum sem þar heyrast einhvern hljóm. Kristján B. Jónasson Hin heilaga fjölskylda Ólafur Gunnarsson: Tröllakirkja. Forlagið 1992.279 bls. Vögguþula spænska skáldsins Federico Garcia Lorca hefur í snilldarþýðingu Magnúsar As- geirssonar orðið ástsælli með íslensku þjóðinni en annar sambærilegur erlendur kveðskapur. Ástæður þessa eru að nokkxu augljósar. Kvæðið er fallegt, harmrænt og hljómmikið í senn, en kannski hefur mest stuðlað að vinsældum kvæðisins hér á landi að í búningi Magnúsar hefur það fengið skýr einkenni og svipmót ís- lenskra þjóðkvæða. I þeim þjóðkvæðum okkar sem voru lesin fyrir börn fyrir svefninn áður fyrr, var gjarnan teflt saman bamslegu sakleysi og harmrænum örlögum með svipuðum hætti og í Vögguþulu Garcia Lorca. Leikið er með andstæðurnar milli öryggis barnsins, sem kúrir í skjóli værðarvoða, og háskans sem umlykur Stóra-Faxa, hestinn úti í ánni. Þegar nánar er að gáð er kannski ekki undar- TRÖLLA KI RKJA TMM 1993:2 101
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88
Blaðsíða 89
Blaðsíða 90
Blaðsíða 91
Blaðsíða 92
Blaðsíða 93
Blaðsíða 94
Blaðsíða 95
Blaðsíða 96
Blaðsíða 97
Blaðsíða 98
Blaðsíða 99
Blaðsíða 100
Blaðsíða 101
Blaðsíða 102
Blaðsíða 103
Blaðsíða 104
Blaðsíða 105
Blaðsíða 106
Blaðsíða 107
Blaðsíða 108
Blaðsíða 109
Blaðsíða 110
Blaðsíða 111
Blaðsíða 112
Blaðsíða 113
Blaðsíða 114
Blaðsíða 115
Blaðsíða 116

x

Tímarit Máls og menningar

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tímarit Máls og menningar
https://timarit.is/publication/1109

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.