Tímarit Máls og menningar


Tímarit Máls og menningar - 01.09.1998, Side 150

Tímarit Máls og menningar - 01.09.1998, Side 150
RITDÓMAR gréti að fara heim til Arnos og sækja ást- arbréf sem hún hafði skrifað honum og vill ekki að komist í hendurnar á eigin- manninum. Margrét verður við þessari beiðni og fer heirn til Arnos að sækja bréfin. Þegar hún kemur út, sér hún mann sem fylgist með henni. Þetta er ljósmyndari að nafni Hans, sem segist hafa verið kunningi Arnos og er mjög ágengur og frekur. Kemur í ljós að hann er frekar óstöðugur á geði og er um tíma grunaður um að hafa verið valdur að dauða Arnos. í gegnum þessa leit er fylgja Margrét- ar til staðar. Fylgjan er sýnileg í fuglsham, sambland af uglu og hrafni og heitir Bokki. Hann varar Margréti við hættum, þótt hún hlusti ekki alltaf. Hann reynir að stýra henni inn á brautir samhljóma alheimsins en hún skilur ekki alltaf hvað hann er að fara og sér ekki það sem hann er að reyna að benda henni á. Það er Bokki sem leiðir Margréti og Arno sam- an en hún veit það ekki fýrr en löngu seinna. Af einhverjum undarlegum ástæðum virðist hún ekki spyrja Bokka um þau mál sem snerta hana hvað mest, jafnvel þótt hún viti að hann hafi að minnsta kosti tveggja heima sýn. Það er Margrét sem segir söguna, yfirleitt í fyrstu persónu, nema í þeim tveimur köflum sem hún á ástarfundi; í fyrra skiptið með Arno, í seinna skiptið með Romy, sem hafði verið ástkona Arnos. Margrét er að segja ófæddu barni sínu þessa sögu og ávarpar það öðru hverju. Inn á milli koma kaflar þar sem sagt er frá líðan tveggja sögupersóna; Eiríks og Hans. Frásögnin af líðan þeirra er sögð í þriðju persónu, án þess að sjáanlegur til- gangur sé með henni. Ástarsorg Eiríks, sem Margrét kynnist ekki neitt, birtist eins og kafli úr annarri sögu. Það sama má segja með bagalegt sálarástand Hans. Jafnvel þótt Margrét kynnist honum upp að því marki að verða hrædd við hann og hann sé um tíma grunaður um morðið á Arno, kemur hann lesandanum og sam- hengi sögunnar frekar lítið við. Miklu minna en, til dæmis, Soffia eða Romy hefðu gert. Þær snerta báðar líf Margrét- ar mun meira. Hún virðist kynnast þeim. Á einum stað segir Margrét: „Lífið samanstendur af smáatriðum. Minn- ingar mínar byggjast á þeim. Ég man ekki effir neinum heildarmyndum úr barnæsku minni, ég man brot af tilver- unni. Ljós og skugga, ekki eftir því sem ljósið féll á eða því sem varpaði skugga. Ég er samt ekkert sérstaklega eftir- tektarsöm, þó þú gætir haldið að svo væri. Ég á það til að horfa á eitthvað og gleyma stund og stað, búa til mína eigin útgáfu af umheiminum." Sagan sem Margrét segir barni sínu, er trú þessari yfirlýsingu. Hún raðar saman brotum; myndum eins og hún hafi fremur verið áhorfandi en þátttakandi í atburða- rásinni. Hún virðist ekki tengjast fólki náið og í minningunni er allt fremur óljóst og draumkennt, eins og ekkert snerti hana. Á köflum er eins og Margrét sé alls ekkert hluti af þeirri sögu sem hún er að segja. Þegar Arno er myrtur, snýst hann einn hring um leið og hann hnígur niður og lesandinn sér umhverfið með hans deyjandi augum. Svo eru það kafl- arnir um Hans og Eirík og að auki kaflar sem eru minningar Bokka frá því áður en hann dó. Frásögnin brotakennd og óljós, en í hvert sinn heldur lesandinn að sagan ætli nú loksins að fara að taka ein- hverja stefnu. Svo er þó ekki. Persóna Margrétar er fremur dauf og óáhugaverð. Hún ávarpar barn sitt á ein- um stað og segir: „Ég vil helst hafa reglu á hlutunum. Ég týni engu, ég laga til einu sinni í viku, líf mitt er í föstum skorðum. Ég þarf á því að halda, því ég er líka ótta- legur sveimhugi og ef ég hefði ekki ver- aldlegu hlutina á hreinu myndi ég missa allt út úr höndunum á mér.“ Enda virkar sagan þannig á mann að það er eins og Margrét sé miklu frekar að brjóta saman þvott og raða með tommustokk inn í skáp en að hún sé að segja sögu; eins og 148 www.mm.is TMM 1998:3
Side 1
Side 2
Side 3
Side 4
Side 5
Side 6
Side 7
Side 8
Side 9
Side 10
Side 11
Side 12
Side 13
Side 14
Side 15
Side 16
Side 17
Side 18
Side 19
Side 20
Side 21
Side 22
Side 23
Side 24
Side 25
Side 26
Side 27
Side 28
Side 29
Side 30
Side 31
Side 32
Side 33
Side 34
Side 35
Side 36
Side 37
Side 38
Side 39
Side 40
Side 41
Side 42
Side 43
Side 44
Side 45
Side 46
Side 47
Side 48
Side 49
Side 50
Side 51
Side 52
Side 53
Side 54
Side 55
Side 56
Side 57
Side 58
Side 59
Side 60
Side 61
Side 62
Side 63
Side 64
Side 65
Side 66
Side 67
Side 68
Side 69
Side 70
Side 71
Side 72
Side 73
Side 74
Side 75
Side 76
Side 77
Side 78
Side 79
Side 80
Side 81
Side 82
Side 83
Side 84
Side 85
Side 86
Side 87
Side 88
Side 89
Side 90
Side 91
Side 92
Side 93
Side 94
Side 95
Side 96
Side 97
Side 98
Side 99
Side 100
Side 101
Side 102
Side 103
Side 104
Side 105
Side 106
Side 107
Side 108
Side 109
Side 110
Side 111
Side 112
Side 113
Side 114
Side 115
Side 116
Side 117
Side 118
Side 119
Side 120
Side 121
Side 122
Side 123
Side 124
Side 125
Side 126
Side 127
Side 128
Side 129
Side 130
Side 131
Side 132
Side 133
Side 134
Side 135
Side 136
Side 137
Side 138
Side 139
Side 140
Side 141
Side 142
Side 143
Side 144
Side 145
Side 146
Side 147
Side 148
Side 149
Side 150
Side 151
Side 152
Side 153
Side 154
Side 155
Side 156
Side 157
Side 158
Side 159
Side 160
Side 161
Side 162
Side 163
Side 164

x

Tímarit Máls og menningar

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tímarit Máls og menningar
https://timarit.is/publication/1109

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.