Skólavarðan - 01.12.2002, Blaðsíða 21

Skólavarðan - 01.12.2002, Blaðsíða 21
SP5 La Rosaleda Calle Echegaray 78, Tor- revieja 70 fm raðhús á tveim hæðum inni í bænum Torrevieja. Sól- baðssvalir eru ofan á öllu hús- inu. Á neðri hæð er eldhús, þvottahús/geymsla með þvotta- vél, ísskápur og frystiskápur. Á leið inn í stofu er gestasnyrt- ing, stofan er rúmgóð og í framhaldi af henni er sólstofa sem gott er að nota til að borða í eða sitja þegar heitt er. Úti er flísalagður einkagarður. Í framhaldi af honum er sameiginlegur garður. Á annarri hæð hússins eru tvö svefnherbergi með skápum, þar er einnig baðherbergi með baðkeri. Frá efri hæðinni er stigi sem ligg- ur upp á þak og er þar góð sólbaðsaðstaða og víðsýnt. Svefnpláss er fyrir fjóra en auðveldlega getur einn sofið í stofunni. Lín á rúm fylgir. Staðsetning hússins er mjög góð, öll þjónusta í göngufæri. Aðgangur er að sundlaug sem er hinum megin við götuna í öðrum garði. Verðflokkur II. Verð kr. 45.000. Punktar 72. Leigutími: 4/6 til 27/8. SP6 Miraflores Playa Flamenca Íbúðin er 70 fm á jarðhæð í sex íbúða húsi og er á afgirtu svæði Miraflores IV. Tvær sundlaugar tilheyra svæðinu. Í íbúðinni eru tvö svefnherbergi, baðherbergi, eldhús með stór- um ísskáp með frysti og upp- þvottavél. Í stofu er gengið út á stóra verönd þar sem er þvottahús. Í stofu er sjónvarp og svefnsófi. Svefnpláss er fyrir 6-8 í tveim svefnherbergjum og stofu og fylgir lín á rúm. Göngufæri er niður á strönd, u.þ.b 13 mínútna gangur. Stutt er á matvörumarkaðinn Mercadonna og tvo stóra veitingastaði. Golfvellir eru í næsta ná- grenni. Verðflokkur III. Verð kr. 50.000. Punktar 80. Leigutími: 4/6 til 27/8. SP2 Los Balones Gullfalleg 70 fm íbúð í nýju raðhúsi fyrir sunnan Torrevi- eja í Los Balones. Stutt er í alla þjónustu. Íbúðin skiptist í tvö svefnherbergi, eldhús, baðher- bergi og stofu. Svefnpláss er fyrir 6-8 í tveim svefnherbergj- um og í svefnsófa í stofu, lín á rúm fylgir. Í garðinum er sundlaug sem íbúar hafa aðgang að og góð aðstaða til sólbaða. Verðflokkur II. Verð kr. 45.000. Punktar 80. Leigutími: 4/6 til 27/8. SP7 Los Altos Mansana 5, no. 10 Húsið er 70 fm parhús og skiptist í tvö svefnherbergi, eldhús, baðherbergi og stofu. Það er fullbúið húsgögnum. Svefnaðstaða er fyrir fjóra í tveimur svefnherbergjum. Lín á rúm fylgir. Í íbúðinni er allur almennur húsbúnaður. Í eldhúsi eru eldhúsáhöld og tæki ásamt samlokugrilli og brauðrist. Í stofu er sjónvarp og hljómflutningstæki. Einnig er rúmgóð flísalögð lóð og glerskáli á verönd. Athugið að húsið stendur við umferðargötu. Verðflokkur II. Verð kr. 45.000. Punktar 72. Leigutími: 4/6 til 27/8. SP8 Los Altos, Torrevieja Miramar, hús nr. 128 - Lilly - Húsið er u.þ.b. 50 fm, fyrir fjóra gesti í rúmum og einn í svefnsófa í stofu. Þar eru tvö svefnherbergi, baðherbergi með baðkari og sturtu, stofa með svefnsófa og eldhúskrók- ur. Uppi á þaki eru stórar sval- ir með húsgögnum. Góð hellulögð u.þ.b. 50 fm verönd með sól- húsgögnum er í kringum húsið. Þvottavél er í eldhúsinu. Í húsinu er borðbúnaður fyrir sex og fylgir lín á rúm. Í húsinu eru þrjár loft- og tvær borðviftur, sjónvarp, útvarp og geislaspilari og kolagrill. Aðgangur er að tveimur sameiginlegum sundlaugum. Verðflokkur I. Verð kr. 40.000. Punktar 66. Leigutími: 4/6 til 27/8. ORLOFSSJÓÐUR Kennarasambands Íslands Úthlutun or lofshúsa á Spáni 25

x

Skólavarðan

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Skólavarðan
https://timarit.is/publication/1179

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.