Þjóðmál - 01.06.2014, Blaðsíða 9
8 Þjóðmál SUmAR 2014
Að átta flokkar hafi boðið fram í
sveitarstjórnarkosningum í Reykjavík 31 .
maí 2014 endurspeglar pólitíska upplausn .
Sjálfstæðisflokkurinn hefur orðið illa úti
vegna hennar . Hans bíður það hlutverk
í höfuðborginni að koma á röð og reglu í
krafti öflugra innviða, skýrrar stefnu og
leiðtoga .
Í aðdraganda borgarstjórnarkosninganna
skorti þessa þrjá þætti hjá Sjálfstæðis flokkn-
um . Halldór Halldórsson, oddviti flokks-
ins, er reyndur sveitarstjórnarmaður en
nýliði í Reykjavík . Hann sigraði í prófkjöri
vegna þess innviðir flokksins í Reykjavík
eru ekki hinir sömu og áður . Flokksstarfið
í Reykjavík er ekki svipur hjá sjón miðað
við það sem áður var . Skömmu fyrir
borgarstjórnarkosningarnar efndi Vörður,
fulltrúaráð sjálfstæðisfélaganna í Reykjavík,
til aðalfundar . Þetta var einkennilegur aðal-
fundartími . Hefði ekki verið skynsamlegra
að boða til hans að kosningum loknum? Að
hefja endurreisnarstarfið á þann hátt frekar
en að loka dyrum á allar breytingar rétt fyrir
kosningar?
Tímasetning aðalfundarins dregur úr lík-
um á að stjórn Varðar leiði endurreisn Sjálf-
stæðisflokksins í Reykjavík . Stjórnar menn
þar hafa kannski óttast að sama gerðist
og í Óðni, launþegafélaginu í Reykja vík,
þar sem öll stjórnin var felld á aðal fundi
fyrir nokkrum vikum og ný kjörin undir
formennsku Eiríks Ingvarssonar . Raunar
er það til marks um deyfðina yfir öllu
innra flokksstarfi í Reykjavík að ekki skuli
hafa orðið neinar umræður um stjórnar-
byltinguna í Óðni .
Kannanir sýndu að Sjálfstæðisflokkurinn
átti ekki miklu fylgi að fagna meðal ungs
fólks í Reykjavík . Heimdallur er vettvangur
ungs flokksfólks í Reykjavík og Samband
ungra sjálfstæðismanna spannar landið allt .
Skyldu ungir sjálfstæðismenn ganga fram
fyrir skjöldu við endurreisn flokksins nú
eins og fyrir 35 árum?
Spurningin er ef til vill út í hött af því
að skilgreining sem leiðir til niðurstöðu í
þessa veru verði talin óþörf . Það sé í raun
ekki þörf á að breyta neinu . Flokkurinn
muni ná sér á strik án þess að stofnað sé
til „naflaskoðunarinnar“ . Þeir hafi haft
rangt fyrir sér sem hvöttu til hennar fyrir
kosn ingarnar . Í umræðum flokksleiðtoga í
sjón varps sal á kosninganóttina gaf Bjarni
Benedikts son, formaður Sjálfstæðisflokks-
ins, þó til kynna að huga þyrfti sérstak lega
að stöðu flokksins í Reykjavík . Leiðs ögn
að ofan skiptir vissulega máli en úrslitum
ræður að virkja fólk á nýjan hátt .
IV .
Frambjóðanda Framsóknarflokksins og flugvallarvina í Reykjavík, Sveinbjörgu
Birnu Sveinbjörnsdóttur, tókst á einum
mán uði að virkja nægilega marga kjósendur
Að átta flokkar hafi boðið fram í sveitar stjórnar-
kosningum í Reykjavík 31 . maí
2014 endurspeglar pólitíska
upplausn . Sjálfstæðisflokkurinn
hefur orðið illa úti vegna
hennar . Hans bíður það
hlutverk í höfuðborginni að
koma á röð og reglu í krafti
öflugra innviða, skýrrar stefnu
og leiðtoga . Í aðdraganda
borgarstjórnarkosninganna skorti
þessa þrjá þætti hjá Sjálfstæðis-
flokkn um . . .