Þjóðmál - 01.06.2014, Síða 41
40 Þjóðmál SUmAR 2014
smokra sér aftur inn í kennisetninguna
eftir fyrri skipbrot . Og nú án nauðsynlegrar
tengingar við raunveruleikann . Hann
segir ennfremur að „Hugmyndafræði deyr
aldrei, þær umbreytast og endurfæðast í
nýrri mynd rétt um það bil sem talið er
að þær hafi endanlega verið grafnar“ (bls .
11) . Brýningarmenn sjálfshaturs hafa haft
erindi sem erfiði, því að þótt almenningur
gangi ekki um götur með hnútasvipuna
á bakinu hefur sektarkenndin tekið sér
bólfestu í huga hans eins og frásögn
Sigurðar Boga og rétthugsunarorðræðan
öll ber með sér .
En lítum þá á „kenningu“ Brynjars
sem Ögmundi var svo í mun að afneita .
Feill Brynjars er að álíta að vinstrisinnuð
frétta mennska sé uppspretta dugleysis
vinstri manna . En sú þöggun sem frétta-
víg lína vinstri manna gegn vestrænum áhrifum í
þriðja heims ríkjum sem viðheldur jafnframt kalda-
stríðs átökum síðnýlendutímans .
flutningurinn stendur fyrir er aðeins
afsprengi hugmyndafræði sem hefur verið
að grafa um sig um nokkurt skeið . Hvernig
varð hún til? Jú, hún kviknaði um svipað
leyti sem áróðrinum um sektarkenndina var
þröngvað upp á Vesturlandabúa . Hún kom
inn bakdyramegin og á uppruna í skorti á
vinnuafli til að reisa við stríðshrjáð lönd
Evrópu . Fólk frá Norður-Afríku og þegnar
fyrrum nýlendna flykktust til Frakklands,
Bretlands, Hollands og hvert sem vinnu
var að fá . Upphaflega var hugmyndin sú
að þeir sneru aftur heim, en reyndin varð
að þörfin fyrir vinnuafl varð sífellt meiri og
að endingu fylgdu fjölskyldurnar, sem setið
höfðu heima, á eftir verkamönnunum .
Nýjungagjarnir hippar og vinstri menn
féllu fyrir „annarleika“ þessa fólks; lit-
skrúðugum fatnaði, framandi matargerð
og menningu . Í krafti jafngildishugmynda
skaut fljótlega nafnið fjölmenning upp
kollinum . Eftir því sem innflytjendum
fjölgaði var meiri áhersla lögð á sérstöðu
hvers hóps fyrir sig og að sama skapi
dregið úr kröfum varðandi aðlögun þeirra
að menningu þjóðanna sem fyrir bjuggu .
Nú er svo komið að innflytjendavandamál
eru að vaxa flestum vestrænum þjóðum
yfir höfuð . Vandinn er mestur þar sem
múslimar eiga í hlut enda gera þeir, í krafti
fjöldans, nú orðið víða kröfur um að frum-
byggjarnir aðlagi sig að háttum þeirra .
Nákvæm lega hvenær vinstri menn slógust í
för með baráttu múslima gegn vestrænum
gildum er erfitt að segja, en Bruckner rekur
það til breskra trotskýista innan SWP
(Socialist Workers Party) . Þeir hafi áttað
sig á óreiðuaflinu sem býr í trúarlegum
krafti múslima og séð sér færi að nýta það
í baráttu fyrir sameiginlegum málstað, þ .e .
gegn markaðsfrelsi vest ræns kapítalisma .
Trotskýistar vinna sam kvæmt gamal-
reyndri aðferðafræði sem felst í að koma
sér fyrir í herbúðum óvinarins og vinna
Nú er svo komið að inn-flytjenda v andamál eru að
vaxa flestum vestrænum þjóðum
yfir höfuð . Vandinn er mestur þar
sem múslimar eiga í hlut enda gera
þeir, í krafti fjöldans, nú orðið víða
kröfur um að frumbyggjarnir aðlagi
sig að háttum þeirra . Nákvæmlega
hvenær vinstri menn slógust í
för með baráttu múslima gegn
vestrænum gildum er erfitt að segja,
en Bruckner rekur það til breskra
trotskýista innan SWP (Socialist
Workers Party) . . .