Þjóðmál - 01.06.2014, Síða 69
68 Þjóðmál SUmAR 2014
þessa tillögu og er skemmst frá því að segja
að Miller stóð sig eins og hetja, sópaði til
sín verðlaunum fyrir skólaleikrit sín og út-
skrifaðist með BA-gráðu í leikritagerð árið
1938 . Í skóla þessum kynntist hann fyrstu
eiginkonu sinni, Mary .
Vegna góðrar frammistöðu í háskóla átti
Miller ekki í vandræðum með að fá vinnu
við leikrita gerð hjá „The Federal Theater
Project“ . Skrifaði Miller leikrit þar dag langt,
en á kvöldin samdi hann uppá eigin spýtur .
Félagsskapur þessi lagði upp laupana árið
1940 og fékk Miller þá vinnu næstu árin
við að semja handrit að útvarpsþáttum . Þá
var hann fenginn til þess að vinna handrit
að heimildarkvikmynd nokkurri um stríðið
og af því varð til bókin Situation Normal
sem þykir ágæt heimild um hermannalíf í
Bandaríkjunum .
Árið 1945 fékk Miller loks frumsýnt eftir
sig leikrit . Það var níunda leikrit hans, The
Man Who Had All the Luck, sem fékk hrak-
lega útreið á Broadway og gekk einungis
í fjóra daga . Sneri Miller sér þá að skáld-
sagnagerð og samdi skáldsöguna Focus
sem fjallar um gyðingahatur og þótti hin
merkasta bók á sínum tíma og fékk mikla
umfjöllun í blöðum .
Um þær mundir byrjaði Miller að semja
raunsæislegt leikrit í anda Ibsens . Allir synir
mínir (All My Sons) nefndi hann það og
sló í gegn á Broadway árið 1947 . Miller
varð frægur maður og verðlaunahöfundur
(Drama Critic Award) . Tveimur árum síðar
var svo Sölumaður deyr (Death of a Sales
man) frumsýndur og fékk Miller þá aftur
verðlaun leiklistargagnrýnenda, svo og
Pulitzer-verðlaunin .
Fimm árum síðar var The Crucible (Eldraunin / Í deiglunni) frum sýnt við
mikla athygli . Verkið það gerist í bænum
Salem, Massachusetts, árið 1692 og
fjallar um frægar nornaveiðar með beinni
skírskotun til uppgangs McCarthys í Banda-
ríkjunum á þeim árum . Miller segir:
Á skólaárum mínum hafði ég lesið mikið
um nornaréttarhöldin í Salem . Þegar
McCarthy kom til skjalanna rifjaðist allur
sá lestur upp fyrir mér, því að margar
fleygustu setningar McCarthys voru eins
og stolnar útúr munni nornaveiðaranna í
Salem . Þeir karlar stóðu upp á mannamót-
um og sögðu: Við vitum um alla þá sem
eru sekir, en rétti tíminn til að fletta ofanaf
þeim er ekki kominn ennþá! Þetta varð til
að skapa spennu í bænum, því auðvitað
vissu þeir ekki neitt, en þeir vildu láta
líta svo út sem ekkert færi framhjá þeim .
McCarthy beitti sömu aðferðum — að
koma inn sektartilfinningu hjá fólki og skapa
öryggisleysi og sá tortryggni . Í kjölfarið fór
veiklundað fólk að ímynda sér ýmsa fjar-
stæðu og setja eitt og annað í samhengi sem
átti sér enga stoð í veruleikanum . Á slíkum
forsendum var fólk brennt á báli í Salem .
Seinna var Arthur Miller kallaður fyrir
óamerísku nefndina svokölluðu . Í þeim
yfirheyrslum munu hafa verið lesnir upp
kaflar úr fyrrnefndu samtali Matthíasar
Johannessen til vitnis um að enginn væri
Miller nú kommúnist inn . En hvað var það
sem gaf óamerísku nefndinni höggstað á
honum? Miller segir:
Ég hafði gefið út margar yfirlýsingar um
eitt og annað og verið viðloðandi í ýmsum
samtökum í 15 ár, en ég held ekki að þeir
hefðu farið að skipta sér af mér, ef ég hefði
ekki kvænst Marilyn . Þeir höfðu nóg tilefni
til að vega að mér áður, ef þeir hefðu haft
einhvern áhuga á því . Sjáðu til, þessir menn
höfðu verið á forsíðum dagblaða í mörg ár,
en fólk var farið að missa athyglina og málið
að verða innblaðsmatur . Þegar ég kvæntist
Marilyn gripu þeir náttúrlega upplagt tæki-
færi að komast á forsíðurnar aftur . Þetta voru
slungnir náungar, þeir stíluðu yfirheyrslur
uppá ákveðna daga sem þeir héldu að lítið