Þjóðmál - 01.06.2014, Page 73

Þjóðmál - 01.06.2014, Page 73
72 Þjóðmál SUmAR 2014 Hefði Margaret Thatcher ekki fallið frá fyrr á þessu ári [2013] hefði hún orðið 88 ára í dag . Það skýrir margt sem tengist henni . Hún fæddist árið 1926, á miðjum áratug sem var Bretum efnahagslega erfiður . Bandaríkjamenn og Evrópuþjóðirnar náðu sér að verulegu leyti eftir heimsstyrjöldina 1914–1918 á þriðja áratugnum . Bretum tókst það hins vegar ekki (undir forystu Winstons Churchills sem fjármálaráðherra) vegna þess að gengi pundsins var skráð of hátt sem dró úr hagvexti og stuðlaði að miklu atvinnuleysi . Fjórði áratugurinn var Bretum mun hagstæðari þótt hið gagn- stæða ætti við um flestar aðrar framfara- þjóð ir . Endurreisn og nútímavæðing breska hagkerfisins náðist með því að sýna aðgæslu í ríkisfjármálum og styðja við atvinnulífið . Ríkisvaldið var íhaldssamt og það innleiddi verndartolla gegn því að atvinnu fyrirtæki tækju höndum saman til að auðvelda þeim bestu að ná árangri . Þessi þróun frekari ríkis afskipta, undir stjórn bæði Íhalds- og Verka mannaflokksins, hélt áfram á árum síðari heims styrjaldarinnar — og síðan í tíð stjórnar Verkamannaflokksins undir forsæti Clements Attlees . Ríkisstjórnir Íhalds- flokksins á árunum 1951–1974 sættu sig að mestu við miðstýrt hagkerfi enda væri það óhjákvæmilegt . Þótt hinum ráðandi stétt um þætti almenn skynsemi mæla með að haldið yrði áfram á sömu braut ríkis - John O’Sullivan Í minningu frú Thatcher Hinn 13. október 2013, þegar 88 ár voru liðin frá fæðingu Margaretar Thatcher, forsætisráðherra Bretlands (d. 8. apríl 2013), flutti John O’Sullivan minningarfyrirlestur um hana í Háskóla Íslands á vegum Rannsóknarseturs um nýsköpun og hagvöxt (RNH) og birtist hann hér í íslenskri þýðingu. John O’Sullivan er breskur álitsgjafi og dálkahöfundur. Á níunda ára­ tugnum var hann meðal helstu ræðuritara Thatcher og var handgenginn henni allt til dauða dags. Hann er höfundur bókarinnar The President, the Pope, and the Prime Minister (nóvember 2006) þar sem fjallað er um Ronald Reagan Banda ríkjaforseta, Jóhannes Pál páfa II og Margaret Thatcher og hve mót andi áhrif þau höfðu á samtíð sína og framvindu mann­ kynssögunnar.

x

Þjóðmál

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Þjóðmál
https://timarit.is/publication/1175

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.