Þjóðmál - 01.06.2014, Síða 83
82 Þjóðmál SUmAR 2014
Þegar ég vann að gagnaöflun vegna bók ar minnar um Reagan, Thatcher og páf ann
rakst ég á þetta óviljandi lof um járn frúna í
skjölum sovéska stjórnmálaráðsins; frásögn
frá 1986 af fundi Gorbatsjovs og Alexanders
Natta, aðalritara Kommúnistaflokks Ítalíu:
A . NATTA: Þá liggur einnig ljóst fyrir
að við, kommúnistarnir, höfum annað-
hvort ofmetið eða vanmetið gang mála
í vel ferðar ríkinu, við höfum staðið vörð
um ástand sem nú fyrst er augljóst að
við hefðum ekki átt að verja . Vegna þessa
hefur skrifræðiskerfið bólgnað út, kerfi
sem starfar aðeins í eigin þágu . Það er
forvitnilegt að sjá hve margt líkist stöðu
mála hjá ykkur og þú kennir hana við
stöðnun .
M . S . GORBATSJOV: Parkinsonslög-
mál ið gildir alls staðar…
A . NATTA: Öll skrifræðisþróun hvetur
kerfið til að gæta eigin hagsmuna og
láta hagsmuni borgaranna lönd og leið .
Ég held að einmitt þess vegna eigi krafa
hægri manna um endur-einka væð ingu
svona mikinn hljómgrunn á Vestur lönd-
um .
Þetta var ástæðan fyrir því að Thatcher
ögraði Sovétmönnum meira efna hags-
lega en Reagan gerði . Áskorunin var
þessi: Annaðhvort grípið þið til umbóta
eða dragist enn frekar aftur úr vestrænum
kapítalistaríkjum . Samanburðurinn milli
uppgangsins í Bretlandi eftir efnahagsstjórn
í áratug í anda frjáls markaðshagkerfis
og stöðugrar efnahagslegrar stöðnunar í
Sovét ríkjunum, eftir ríkisafskiptastefnu
komm únista í sjötíu ár, var einfaldlega svo
himin hrópandi að ekki var unnt að líta
fram hjá honum . Þegar svo Gorbatsjov
inn leiddi perestroikuna eyðilagði hún hið
kommúníska kerfi sem henni var ætlað að
bjarga . Það má þakka Gorbatsjov fyrir að
beita ekki ofbeldi til að viðhalda sovéska
valdakerfinu . Hann var hins vegar í raun
ekki virkur upphafsmaður eða gerandi
þegar kom að upprætingu kommúnismans .
Hann barst frekar með straumnum en að
stjórna honum, hann var svar við Thatcher,
Reagan og stefnu þeirra sem leiddi til keppni
í her- og efnahagsmálum . Án Reagans og
Thatcher hefði enginn Gorbatsjov komið til
sögunnar .
Við hrun ríkishagkerfis Sovétríkjanna og
fylgiríkja þeirra árið 1989 blasti við sviðin
jörð áætlunarbúskapar ríkisins og þá leituðu
nýju lýðræðisríkin fyrirmyndar í líkani
Thatcher . Hún, Reagan og Jóhannes Páll II
páfi voru öll hetjur í augum Evrópuþjóðanna
sem losnuðu úr fjötrum kommúnismans .
Efnahagsmálaráðherrar hinna nýfrjálsu
þjóða, svo sem Leszek Balcerowic í Póllandi,
Vaclav Klaus í Tékkóslóvakíu og Mart Laar í
Eistlandi, sneru sér hins vegar til Thatcher í
leit að fyrirmynd til að reisa efnahag þjóða
Þ að má þakka Gorbatsjovfyrir að beita ekki ofbeldi
til að viðhalda sovéska valda-
kerfinu . Hann var hins vegar í
raun ekki virkur upphafsmaður
eða gerandi þegar kom að upp-
rætingu kommúnismans . Hann
barst frekar með straumnum en
að stjórna honum, hann var
svar við Thatcher, Reagan og
stefnu þeirra sem leiddi til
keppni í her- og efnahagsmálum .
Án Reagans og Thatcher hefði
enginn Gorbatsjov komið til
sögunnar .