Þjóðmál - 01.06.2014, Page 90

Þjóðmál - 01.06.2014, Page 90
 Þjóðmál SUmAR 2014 89 námsstyrk sem vissi að leggja yrði hart að sér við öflun þekkingar og að hún væri mikils virði, hún lagði sig fram um þekkingaröflun allt sitt líf . Hún var auk þess vel upp alin stúlka í söfnuði meþódista og sú trúarlega tilvitnun sem hún hafði mestar mætur á var eftir John Wesley sem sagði: „Aflið eins mikils og þið getið; sparið eins mikið og þið getið; gefið eins mikið og þið getið .“ Bylting hennar tengdist landsbyggðinni áður en hún sigraði heiminn; þetta var fyrst siðferðileg bylting og síðan efnahagsleg . Margaret Thatcher var gyðja hins dygða ríka lífs . Það hljómar eins og hún hafi verið fremur alvörugefin og fráhrindandi . En hún var alls ekki þannig . Hvernig manneskja var þá Margaret Thatcher út á við og hið innra? Hvers vegna á hún skilið — eins og hún á sannarlega — að vera dáð og virt? Það orðtak er vel þekkt að enginn sé hetja í augum herbergisþjóns síns . Hegel skýrði orðtakið á réttan hátt þegar hann sagði þetta satt, „ekki vegna þess að hetjan er ekki hetja heldur vegna þess að herbergisþjón ninn ER herbergisþjónn“ . Ég er í hópi þeirra sem þjónuðu lafði Thatcher með skrifum og ráðgjöf í áranna rás og í einlægni get ég fullvissað ykkur um að hún er og verður hetja í okkar augum — en mjög sérstök og óvenjuleg hetja . Á hátindi valda sinna var Margaret Thatcher hvort tveggja í senn, skínandi stjarna í mann kynssögunni og venjuleg ensk húsmóðir af millistétt — blanda ef svo má segja af Bismarck [Þýskalandskanslara] og frú Miniver [skáldsögupersóna sem lýsir hvernig ósköp venjuleg ensk húsmóðir tekst á við síðari heimsstyrjöldina] . Hún lét alls staðar að sér kveða . Hún vann nefndir á sitt band með einörðum málflutningi . Hún bjó yfir stjórnsýslulegu þreki sem Blair skorti, sem skýrir hvers vegna margar góðar hugmyndir hans komust aldrei úr hugmyndasmiðjunni, en henni tókst að bylta mörgu með stefnu sinni . Hún nýtti sér einnig kvenlega hlið sína til fulls . Hún var dugleg við að raða púðum, opna og loka gluggum og raða húsgögnum á nýjan hátt . Hún var einnig góður og tillitssamur stjórnandi — hún hafði áhyggjur af heilsu- fari samstarfsmanna sinna, sagði fólki að taka sér frí sem hún gerði aldrei sjálf o .s .frv . — en hún var einnig kröfuhörð . Hún sló aldrei slöku við . Hún vænti þess að þeir sem unnu fyrir hana gerðu svipaðar kröfur til sjálfra sín, leggðu hart að sér og af alúð í þágu skattgreiðenda . Kröfur hennar í garð starfsmanna sinna jukust eftir því sem hærra settir þeir voru . Hún dreifði sparki og kossum á Hún hafði sem dóttir smá-kaupmanns séð á einfaldan raunsannan hátt hvernig frjáls markaður tryggði að varningur frá öllum heimshornum bærist til smábæjar í Lincolnshire . Hún var vinnusöm stúlka á námsstyrk sem vissi að leggja yrði hart að sér við öflun þekkingar og að hún væri mikils virði, hún lagði sig fram um þekkingaröflun allt sitt líf . Hún var auk þess vel upp alin stúlka í söfnuði Meþódista og uppáhaldstrúarlega tilvitnun hennar var eftir John Wesley sem sagði: „Aflið eins mikils og þið getið; sparið eins mikið og þið getið; gefið eins mikið og þið getið .“

x

Þjóðmál

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Þjóðmál
https://timarit.is/publication/1175

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.