Félagsbréf - 01.12.1962, Blaðsíða 48

Félagsbréf - 01.12.1962, Blaðsíða 48
44 FÉLAGSBRÉF Eden; þar er kominn innvirðulegur falshljóm- ur í allt saman. Hvorki í East of Eden né The Winter of Our Discontent tekst hon- um að magna sögum sínum þjóðfélagslegt baksvið neitt í líkingu við Þrúgur reiðinnar þótt viðleitni gæti í þá átt. Þrúgur reiðinnar var amerískt öreiga-epos. The Winter of Our Discontent er amerískur heimsÓ9Ómi. Sagan segir af afdönkuðum peningamanni sem um sinn hefur verið í auraleysi og niðurlægingu; með því að leggja af heiðarleikann og taka upp siði samfélags- ins (svíkja vini sína tvo í tryggðum) tekst honum að brjótast til auðs á ný. Raunar fær þetta svo á hann, einkum þegar sonur hans leikur sams konar leik, að honum liggur við sjálfsmorði; hættir þó við það og situr að fengnu fé til að „annað ljós slokkni ekki,“ það er sú von sem bundin er dóttur hans. Það er sem sagt hið ríka (og nýrika) nútíðar-samfélag sem Steinbeck tekur hér til meðferðar, samfélag sem peningar og ytri velgengni er allt, heiðarleiki óþekktur og hlá- legur þar sem hann kann að finnast. En ádeila hans er engu galli blandin og þvf síður eitri, sagan er þreytuleg, uppgefin. Þessi uppgjöf birtist kannski bezt í lýsingu söguhetjunnar, Ethan Allen Hawleys: hún er sneydd harmgildi vegna þess hve hún er fátækleg, frasaborin. Ferill hans er kannski dapurlegur, og það er þessi dapurleiki sem hefur ósviknast bragð í sögunni; en átök hennar snerta mann ekki, sögulausnin er sízt sannfærandi og maður leiðir hana hjá sér. Þannig endar vegur natúralistans Stein- becks í dapurlegum þreytutón í samtiðarlýs- ingunni; í persónusköpuninni í svikinni dul- hyggju sem á að vera von verksins. Sænska akademian er stundum seinheppin í verðlaunaveitingum sínum. Nóbelsverðlaun Hemingways voru nánast minnisvarði um forna frægð hans og áhrifavald, ekki stað- festing á varanlegu gildi sjálfra verka hans eða vottur þess að þau væru að hefjast til nýrra áhrifa. 1 enn ríkari mæli gildir þetta um John Steinbeck. Vel má hann vera „verð- ur“ nóbelslaunanna. En þau komu þá bara tuttugu árum of seint. Ó.J Kvikmyndir: 79 af stöðinni. ó að nokkrar stuttar kvikmyndir hafi á undanförnum árum verið gerðar hér- lendis með íslenzku leikfólki, hefur vafalaust verið brotið blað í sögu áslenzkrar kvik- myndagerðar með Sjötíu og niu af stöðinni. Með henni er í miklu meira ráðizt en áður og markið sett hærra, enda meira fjármagn á bak við. Samt megum við ekki vera of óþolinmóð og óbilgjörn, þó að margar at- rennur mistakist enn um skeið við að skapa frambærilega íslenzka kvikmynd til sýning- ar í kvikmyndahúsum heimsins. Sjötíu og níu af stöðinni hefði orðið heil- steyptari mynd, ef ýmsum endurtekningum og útúrdúrum hefði verið sleppt, en öðrum atriðum aftur á móti gerð fyllri skil, en til þess hefði sennilega þurft enn meira fjár- magn og meiri tíma og yfirlegu. Kynningin á myndinni og upphafsatriðin eru ágæt og þannig hefði myndin átt að halda áfram, en því miður bregzt það víðast hvar nema í atriðunum á bílstöðinni, sem eru prýðileg og sverja sig í ætt við ítalskan neó-realisma. En Reykjavík kemur okkur þyngslalega fyrir sjónir, enda er oftast ekið um hana að næturlagi, göturnar auðar og yfirgefnar. Eins er um fólkið, það ræðist lítið við og lætur sig enn minna uppi. Þetta á kannski að sýna norrænan þegjandahátt, þar sem innri spenna talar sínu máli, en maður verð- ur hennar næsta lítið var. Spennan, sem í bókinni er einkum fólgin t stíl höfundarins, nýtur sín ekki hér. Kannskt er söguþráðurinn of ber og nakinn til þess.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72

x

Félagsbréf

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Félagsbréf
https://timarit.is/publication/1060

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.