Félagsbréf - 01.12.1962, Blaðsíða 51

Félagsbréf - 01.12.1962, Blaðsíða 51
FÉLAGSBRÉF 47 hina raunsæju hlið verksins, en sá skilning- ur á að vísu fullan rétt á sér, og sviðsetning Gísla hefur heillegan og í meginatriðum sannfærandi svip. Birgir Brynjólfsson og Guðrún Ásmundsdóttir leika unga fólkið í leiknum og leystu bæði vanda sinn vel; einkum Birgir, en þetta mun bezta verk hans til þessa. Þrjózkuuppreisn Láka túlkaði hann vel, miður kannski sinnaskiptin til einlægni. Leikur Guðrúnar var hófsamlegur og einlægur; en vandséð er á hvers reikn- ing hið veikbyggða næturatriði skrifast, höf- undar, eða þeirra Guðrúnar og Birgis að ein- hverju leyti. Helga Valtýsdóttir leikur Áróru spákonu af allmikilli rögg, en mér virtist skilningur hennar á hlutverkinu nokkuð brigð- ull. Hún leggur ofmikla áherzlu á grófleik- ann í fari Áróru, og fyrir vikið fá töfrar þessarar konu ekki notið sín. Verst lék þetta eldhúsatriði þeirra Stígs skógara (Steindór Hjörleifsson), þar varð skopið alltof gróft, en bezt virtist mér Helgu takast upp í næturatriðinu með Finnbirni (Gísli Hall- dórsson). Má vera að það sé raunsæisskiln- ingur leikstjórans sem hér kemur fram: áherzlan er öll á ömurleik þess mannlífs sem hér segir frá. En þó það sé vissulega ömur- legt og fátæklegt býr það einnig með sínum hætti yfir frumstæðum þokka, bæði spákon- an og allt umhverfi hennar, og sú hlið verks- ins virðist mér vanrækt um of. Þungamiðjan í húsi spákonunnar er þrátt fyrir allt faðir hennar, Jónatan skipstjóri, og í lýsingu hans eru gleggst mót raunsæis og táknvísi f leiknum. Brynjólfur Jóhannes- son túlkaði þetta hlutverk af næmum og innlifuðum skilningi þannig að báðir þættir þess komust til skila; það er ekki hans sök að lokaatriðið fékk ekki notið sín. Leikritið hefst með Jónatan og því lýkur með honum, saga hans er baksvið og forsenda þess sem gerist í leiknum. Hart í bak er ekki þjóð- félagslegt verk í eiginlegum skilningi, en í lýsingu Jónatans opnast því ný vfdd sem er órofa hluti iþess: sýn til þjóðfélagsins sem er í hæsta máta tímaborin. — Á þetta var tæpast lögð næg áherzla í leik- stjórninni, og lokaatriðinu, þar sem Jónatan stígur út úr raunsæisramma verksins og tal- ar beint til áhorfenda, var á einhvem hátt gloprað niður í sýningunni. En það er ein- mitt þessi þjóðfélagssýn sem er ný í verki Jökuls Jakobssonar og að sínu leyti vænleg kjölfesta komandi verkum. Hér hefur einkum verið rætt um van- kanta leikrits og sýningar. Því er kannski vert að ítreka að lokum að leikrit Jökuls þolir þessa gagnrýni mætavel, að sýning Leikfélagsins á Hart í bak má vera ærið fagnaðarefni f því leikritahallæri sem hér hefur ríkt um sinn. Með þvf bætist íslenzkri leikritagerð álitlegur liðsmaður — svo sem væntanlega mun birtast betur í komandi verkum hans. Ó. J. Bréf: „íslandsför Mastiffs'*. egar ég var að búa þýðingu mína á „Islands/ör Mastiffs“ til prentunar í fyrrahaust, hafði ég ekki aðrar upplýsingar um myndina af Katrínu Þorvaldsdóttur og Sigríði Jónsdóttur en þær, sem ég fann í sérprentaðri ritgerð um þessa ferð eftir teikn- arann, frú Blackburn, og getið er í athuga- semdunum, sem sé að Sigríður hefði verið ung frænka Katrínar. Nú hefur Steingrímur Jónsson rafmagns- stjóri tjáð mér, að það hafi verið móðir sín, Sigríður Jónsdóttir, sem fyrir myndinni sat ásamt frú Katrínu, og skulu hér til fróð- leiks rakin helztu æviatriði hennar, sam- kvæmt frásögn Steingríms. SigriöuT Jónsdóttir var fædd 9. nóv. 1856 í Miðhúsum í Sveinsstaðahreppi í Austur- Húnavatnssýslu. Faðir hennar var Jón Jóns- son, timburmaður á Tjörn á Skagaströnd, f. 18. ágúst 1808 í Ytri-Villingadal í Eyja- firði, sonur Jóns vefara á Grund í Þorvalds-
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72

x

Félagsbréf

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Félagsbréf
https://timarit.is/publication/1060

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.