Félagsbréf - 01.12.1962, Blaðsíða 49

Félagsbréf - 01.12.1962, Blaðsíða 49
FÉLAGSBRÉF 45 Ekki svo að skilja, að einfaldleiki útiloki mikil átök, þvert á móti getur einfaldleiki verið styrkur átakamikils harmleiks. En í myndina vantar efnisfyllingu til að vel hefði mátt takast. Við fáum of lítið að vita um fólkið. Það gefur ekki nóg í skyn um líf sitt og innri baráttu til að það verði okkur verulega nákomið. f atriðinu úr sveitinni, þegar Ragnar kem- ur á bernskustöðvamar með vini sínum hefði verið tækifæri til að sýna sveitalífið sem andstæðu við borgarlífið, eins og Ragnari kemur það fyrir sjónir. En sá þáttur er mjög liflaus. Engar skepnur sjást kringum bæinn og allt er þar í hálfgerðri niðurníðslu, þar sem sveitalífið hefði átt að birtast honum sem iðandi blómstrandi líf. Meira að segja sjást þar hvergi lifandi fuglar, þó að þeir séu á fuglaveiðum. í bókinni er Gógó persónuleiki í upplausn, sem tregar líf sitt og leitar athvarfs frá ásókn einmanaleika í drykkjuskap og nautnalífi. Hún er lífsþreytt og taugaspennt heimskona, sem kann sér ekkert hóf. Gógó myndarinnar er aftur á móti ung kona, hrífandi og einlæg. Það skín út úr öllu fasi hennar. Þarna skapast tvískinnungur sem erfitt er að koma heim og saman. Elskendurnir hafa lítið að segja hvort öðru og vekja ekki grun hjá áhorfandanum um djúpar tilfinningar og sálarstríð. Áhorfand- anum er ekki gefið undir fótinn að neitt sé að gerast í lífi konunnar út yfir það venju- lega: að einn elskhugi taki við af öðrum. Þarna vantar þróun og stígandi tíl að ná verulegum tökum á áhorfandanum. Þetta skapar allt mikla kyrrstöðu í mynd- inni sem mikill bílaakstur og endurteknar ást- arsenur geta engu um þokað. Hefði t.d. myndin ekki grætt á því ef áhorfandanum hefði verið gefið eilítið hugboð um hvers vegna þessari útlifuðu heimskonu fer að þykja vænna um Ragnar en alla hina? Þ U L A Dimmur er dagurinn, dapur hugurinn, napur vindurinn, nístandi smjúgandi. N»r kemur vclin fljúgandi að sunnan, sunnan? Hún, sem á að vera með þetta, l>etta eina rétta, aem sálin biður viður meinum. Steingrímur Sigurðsson. Þannig mætti lengi halda áfram að bolla- leggja, auka inn í myndina og fella annað úr þangað til maður væri búinn að gera allt aðra kvikmynd í huganum. Og það er ágætt. Með því er maður orðinn virkur áhorfandi. Og þá er í sjálfu sér auka- atriði hvort myndin sé eitthvað gölluð. En ekki má 'heldur einblína um of á gallana svo að kostirnir gleymist. Og mætti þar nefna lokaatriðið þegar Gógó og Guðmundur heyra í útvarpinu um lát Ragnars. En það er margþvælt atriði í kvikmyndum að sýna svipbrigði á fólki við voveifleg tíð- indi, en hér sjáum við aðeins bílinn nema staðar i auðninni og snúa síðan við. Það er snjöll og frumleg hugmynd, sem talar sínu máli og þar hefði myndinni átt að ljúka, en ekki fyrir framan hús frú Faxen. Þessa mynd ættu sem flestir að sjá því hún sýnir okkur umhverfi sem við þekkjum öll en sjáum þó ekki nærri nógu vel. Hér er tækifæri til að reyna að skerpa sjón sína á nánasta umhverfi sitt og þjóðlíf. Agnar ÞórZarson.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72

x

Félagsbréf

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Félagsbréf
https://timarit.is/publication/1060

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.