Ljóðormur - 01.06.1990, Blaðsíða 20
18 Heinz Czechowsld
Bjórdrykkja í rigningu
Sennilega, það er ógjömingur, sagði hún, og
fysn hans beið skipbrot.
Því gengu þau undir regnhlíf um göturnar
en gleðin vildi ekki lifna með þeim
framar.
Svo þau ákváðu að fara á knæpu.
Breyta til, hugsaði hann, einfaldlega breyta til,
hugsa
um eitthvað annað.
París til dæmis: kannski dugar kort til að
hugsa sig þangað, borgarkort
póstkort.
En það rigndi líka í París.
Það var janúar og veitingastaðurinn „Le Pub“ í Rue
Soufflot bauð upp á 120 tegundir
af bjór.
í bakherberginu glumdi í hljómsveit.
Var hún hér?
Var hún þar?
Franz Gíslason þýddi.
Heinz Czechowski fæddist I Dresden 7. febrúar 1935; gaf út fyrstu
ljóðabók sína Nachmitlag eines Liebespaares 1962. Síðar komu út
ljóðabækumar Wasserfahrt (1967) og Schafe und Steme (1974).
Czechowski hefúr einnig gefið úr ritgerðasöfn og prósarit, t.a.m.
ferðaminningar frá París, svo og Ijóðasöfn af ýmsu tagi. Hann býr
núna í Leipzig. — Ljóðin hér að ffaman eru öll tekin úr úrvali ljóða
eftir Czechowski sem upprunalega kom út undir heitinu Ich, beispi-
elsweise hjá Reclam-forlaginu í Leipzig 1982.