Vísir - 24.12.1930, Síða 7
VÍSIR
Kirkjuferðir á jólum.
Það fólk, af nútíðarkynslóð-
inni, sem clur aldur sinn i bæj-
um og kauptúnum, þar sem
kirkjur liafa verið reistar, get-
ur varla gert sér hugmynd um
þá erfiðleika, sem því liafa
verið og eru sumstaðar enn
samfara, víða i sveitum lands-
ins, að sækja guðshús að vetr-
inum, ekki sist í skammdeginu.
i sveitmn eru að jafnaði snjóa-
lög miklu meiri en við sjó, veg-
ir víðast engir eftir að íara,
ar, lækir og gil víða á leiðinni,
og viö þetta hætast svo vega-
lengdir, frá sumum hæjum 2ja
tii dja stunda gangur, og oft í
skammdeginu myritur á heirn-
leiðinni frá kirkjunni. Allar
kirkjuierðir voru á fyrri árum
j afniramt gönguferðir. Þegar
eg kom fyrst í sveit, var lirepp-
stjóriun eini maðurinn þar,
sem liafði hest á járnum að
vetrinum, auk mín. En taisverð
Ureyting varð á þessu á mín-
um prestskaparárum, svo aö
siðast voru þau heimili orðin
íá, er ekki liöfðu járnaðan hest
ef á þurfti að lialda. Enginn
átti þá nokkra kápu eða verju
fyrir regni, og á iótunum var
ekki um annað að taia en is-
lenska skó. Ef rigning var,
kornu því allir rneira og minna
votir í kirkjuna og sátu í því
tneðan á niessu stóð; kólnaði
þá mörgum, því allir kotnu
heitir af gangi. Yíðast mun
flestalt fóik hafa íengið ein-
hverjar góðgerðir, helst kaffi,
á kirkjustööum að vetrinum,
og oft kont það fólk, sem lengst
átti, við á einliverjum hæ i
heimleiðinni. I þessar kirkju-
ferðir fóru oft 5—7 stundir, af
hæjum, sem langt áttu að
sækja, og af suniuni meira.
Um skepnur þurfti svo að
liugsa og liirða, hæði áður en
i'arið var að morgninum, og
þegar komið var aftur. En ekk-
ert af þessum erfiðleikmn,
þreytu og voshúð, setti gamla
fólkið fyrir sig. Það liefir tið-
um ekki verið gert mikið úr
trú- og kirkjurækni Islendinga,
en einliverja þrá og dug, ekki
siður lijá konum en körlum,
þarf til þess að fara frá lieim-
ili sinu langar leiðir, oft í
vondri færð, tvisýnu útliti og
skammdegismyrkri, og eiga
hæði fyrir og eftir að gegna,
oft erfiðum heimilisstörfum.
Og aldrei virðist þessi þrá liafa
verið sterkari, aldrei meira
kapjj lagt á að komast í guðs-
liús, en einmitt þegar myrkrið
hjá oss er mest,í sjálfu skamm-
deginu, um jólin. — Ef trúa
mætti sögusögnum, sem út af
þeirri venju liafa spunnist, þá
hefir alt heimilisfólk sópast af
bæjum til kirkju á aðfanga-
dagskvöld jóla, nema þá ein-
hver einn maður, sem látinn
var vera lieima, til að gæta
liúsa og liirða skepnur. Kirkju-
fólkið kom svo ekki heim, fyr
en seinni part nætur, það, sem
langt átti, og er líklegt, að þetta
næturgauf hafi ekki orðið nein
skemtiför, er illa viðraði, og
lieldur hefir jólanóttin verið
ömurleg og einmanaleg fyrir
þann, sem heima sat.
Ilvenær þessi venja liefir
lagst niður, veit eg ekki, en
sjálfsagt er langt siðan, og lief-
ir líklega orðið smátt og smátt,
þó munu stöku sveitaprestar,
einkum þar sem þéttbýlt er,
liafa við og við lialdið kvöld-
söng á aðfangadagskvöld, þeg-
ar hjart var af tungli og stilia
í veðri. —
Þó eg væri prestur í liálfan
fjói'ða tug ára, liefi eg aldrei
fiutt ræðu í kirkju á aðfanga-
dagskvöld, og ekki man eg nú
tii, að prestar í nágrenni við
mig geröu það, að mxnsta kosti
ekki að jafnaði. — Eg hefi
sjálfur litið svo á, að viðsjái’-
vei’t og ekki áliættuiaust gæti
vei’ið að draga fólk að kirkju,
ef til viil um langar leiðir, að
kvöldi tii í skammdegi vetrar-
ins, og hins vegar fanst mér
varia sanngjarnt, að húast við
þvi, að fuilorðna fólkið, eink-
um karlmenn, er líklegastir
væru til að sækja kvöldsöng,
og sem ekki kærnu heim fyr
en í vöku-Iok, mundu aftur
sækja kirkju á jóladaginn; en
það sem rnestu réð, var sú
skoðun mín, að jólakvöldið á
fyrst og fremst að vera heim-
ilisliátíð, og þá ekki sist heim-
ilislxátið fyrir hörnin; en til
þess að þessi lielgasta kvöld-
stund kristinna manna geti
verið það, þarf helst alt íólkið
í liinum litla heimi sveitalieim-
ilanna að vera til staðar. Oðru
máli er að gegna með þetta í
kaupstöðum, þar sem varla er
steinsnar til kirkjunnar; þar
getur fólk bæði veitt sér þá
ánægju að ganga í guðs liús, og
svo lialdið heimilishátíðina á
eftir, með hörnum sinum og
fólki á hehnilinu.
Frá þvi eg fyrst man eítir,
var svolitið jólatré á lieimili
foreldra minna; voru þau hú-
in til úr spýtum og ski’eytt
lyngi, sem vafið var utan um
stofn og greinar; þessum sið
liélt eg, eftir að eg kom í sveit
og til þessa, án þess að nokk-
urt ár hafi fallið úr, og sjálfur
liefi eg enga jólanótt verið ann-
arstaðar en á heimili mínu. En
nú hefi eg sagt lieldur mikið.
Eg man nú eftir einu jóla-
kvöldi, sem eg af nýjungagirni
harnsins mat annað jólatré
meira en það, sem lieima var.
Þetta var á jólunum 1869; eg
var þá 9 ára gamall. Fékk eg
þá í fyrsta sinn að fara á kvöld-
söngfram að Görðum. Jörð var
þá auð, kolamyrkur háðar leið-
ir ,en hægð á veði'i. Úr Firðin-
um fór óvanalega margt til
kirkju þetta kvöld; það hafði
sem sé kvisast, að spila ætti á
liarmoniku með söngnum í
kirkjunni þá um kvöldið. Sá,
sem það gerði, var Ólafur Ól-
afsson söðlasmiður frá Sveins-
stöðum, er þá var nýfluttur að
norðan í Fjörðinn, og hjó þar
í liúsi því á mölinni, er Guð-
mundur sál. Halldórsson hjó
siðar i um rnörg ár, Ólafur sál.
var mesti snyrtimaður, piýðis-
vel að sér,og rnargt til lista lagt.
Um mentun og menningu var
þá lítið í Firðinum. Eg var þá
kunnugur á flestum heimilum
þai’, og vissi eg livergi af nein-
um bókakosti nema hjá Árna
Hildibrandssyni járnsmið, föð-
ur þeirra Kristinar og Helgu
móðurÁrna Jónssonar timbur-
sala. Eru þær systur báðar liér
á lifi, háaldraðar, en furðu ern-
ar ,og svo var eitthvað af hók-
um til hjá móðurbróður konu
minnar, Árna J. Matthiesen og
fáum heimilum öðrum. Skóli
var þá enginn i Firðinum, fyr
en eftir 1870, að faðir minn
hafði skóla á heimili sínu, fékk
lil lians kennara Oddgeir Guð-
mundsson frá Litlahrauni, er
þá var nýlega útslcrifaður af
prestaskólanum, og var síðast
prestur i Vestmannaeyjum, og
andaðist þar fyrir nokkuruiu
árum. Tók faðir minn nokkur
hörn i skólann, auk okkar svst-
kinanna, sem þá voru fjögur
hin elstu komin á námsár. Með
Ólafi söðlasnlið kom sveita-
menningin ofan á sjávarhakk-
ann þar í Firðinum, og svo
mun víðar hafa átt sér stað, að
lians líkar hafa borið með sér
ofan á ströndina menningu
sveitanna, sem þar liefir orðið
upphaf meiri menningarhrags
á ýmsan liátt. Það eru ýmsir,
sem gert hafa heldur lítið úr
liinni svonefndu sveitamenn-
ingu, menningu þeirri liinni
fornu, sem lifað hefir fram til
l'jalla og dala í skjóli einveru
og fjarlægðar frá hávaða lifs
og glaumi, en auðvelt mundi að
sýna og sanna, að fólksflutn-
ingur frá betri sveitaheimilum
til hæja og kaupstaða við sjó,
er meira en litið andvæg'i gegn
straumum þeim ýmsum, er
þangað liggja úr öðrum áttum,
sem fáir munu á fyrri árum
liafa húist við að hingað
niundu leita, og á sinn drjúga
þátt í að styrkja hæði þjóðerni
og tungu einmitt á þeim slóð-
um sem reynslan liefir áður
sýnt oss,að þessu er mest hætta
húin af útlendum áhrifum. En
eg sný mér nú aftur, eftir þenn-
an krók, til nafna mins sál. og
kennara söðlasmiðs. Eitt af þvi
sem honum var til lista lagt,
var það, að liann var ágætur
söngmaður, og komu þar sam-
an á lieimili lians, er þetta fór
að verða hljóðbært, noklcurir
yngri menn til að læra söng.
Orgel var þá ekkert til i Firð-
inurn, en ólafur átti afarmikla
harmoniku með vist 3 nótna-
röðum. Hafði aldrei annað eins
liljóðfæri sést fyr á þeim slóð-
um. Það var vist ekki síst löng-
unin til að hlusta á hljóðin |
þessari miklu harmoníku, og
svo vonin um venju fremur
hetri söng, margraddaðan, sem
studdi að því, að óvanalega
margt fólk fór til kirkju að
Görðum þetta áminsta að-
fangadagskvöld, þrátt fyrir
myrkur og lileytu. Og mér er
óliætt að segja, að fólkið varð
elcki fyrir neinum vonbrigðum,
og allir fóru ánægðir heim aft-
ur. Og nú var jólatréð og jóla-
fögnuðurinn lieima framund-
an.
En meðan eg var að fara úr
volu eftir ferðina, var mér sagt
að Zimsen, verslunarstjóri
Knudtsons-verslunar þar .í
Firðinum, mætur maður og
forgöngumaður þar uni alt,
sem til gagns og framfara
liorfði, öll þau ár, sem hann
dvaldi þar, liefði gert þau boð
að eg kæmi á jólatré heima hjá
þeim góðu lijónum þá um
kvöldið. Svo góðu boði mátti
eg ekki og gat ekki neitað, þótt
mig langaði til að vera heima.
Eg fór því auðvitað, liafði
niestu ánægju af, sá þar miklu
tillcomumeirá jólatré en heima,
og kom heim með alla vasa
fulla af gjöfum og sælgæti. Og
þetta er eina jólakvöldið, sem
eg liefi ekki verið á heimili
mínu og liorft á jólatréð þar.
Ó. Ó. f. H.
(ír^b
GLEÐILEG JÓL!
Farsælt nýtt ár!
Verslunin Merkjasteinn.
GLEÐILEGRA JÓLA OG NÝÁRS
óska eg öllum mínum viðskiflavinum.
Sig. Ólafsson, rakari.
æ
..............................................
GLEÐILEGRA JÓLA
wmm
óskum við okkar viðskiftavinum.
Bræðurnir Ormsson.
llllllllllllllllllllllllIIIIIIIIIIIIIIIIIillllllEIIiBllllllllllllllllllliIIIHIIIIIll
|IIIII1IIIIIIII1IIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIII!IIIEKIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIII
GLEÐILEG JÓL!
S. JÓHANNESDÓTTIR.
Illlllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllilllllllllllllll!