Vísir - 24.12.1930, Side 10
VÍSIR
Trúarjátning mín.
Albert Einstein.
GLEÐILEG JÖL!
Afialstödin.
n
Undarleg er tilvera vor á þess-
ari jörö. Sérhvert af oss kemur
hingaö sem gestur um stutta
stund, án þess aö vita hvers
vegna, og þó viröist stundum eins
og þaö sé í guölegum tilgangi.
Samt sem áöur er eitt atriði,
sem vér þekkjum frá sjónarmiði
hins daglega lífs, og þaö er það,
aö maður er hér vegna annara
manna, — einkum þeirra, sem
meö brosi sínu og vellíðan vekja
og vemda gleði manns, og einnig
vegna hinna óteljandi sálna, sem
forlögin binda mann viö böndum
samúðarinnar. Margsinnis dag-
lega rennur það upp í hug mín-
um, hve mjög mitt ytra og innra
líf byggist á erfiði mitma lifandi
og látinna meðbræðra, og hversu
alvarlega eg verð að leggja mig
fram til þess, að gefa eins mikið
cg eg þigg. Mín hugarró verður
of.t fyrir óþægilegum árásum af
þeirri tilfinningu, að eg hafi tek-
ið of mikið til Iáns af vinnu ann-
ara.
Eg get ekki litið svo á, að vér
getum haft nokkurt frelsi í heim-
spekilegum skilningi, vegna þess
að vér vinnum ekki að eins fyrir
ytri knýjandi ástæður, heldur
einnig af innanaðkomandi nauð-
syn. Orð Schopenhauer’s þar sem
hann segir: — „Maðurinn getur
vissulega gert það sem hann vill,
en hann getur ekki ákveðið hvað
hann vill“, —- þau orð hafa ávalt
veitt mér huggun, þegar eg hefi
lent í hrakningum lifsins cða
séð aðra verða fyrir harðrétti
þess. Þessi sannfæring getur af
sér stöðugt umburðarlyndi, því að
hún leyfir oss ekki að taka oss
sjálf né aðra um of alvarlega; hún
stefnir í þá átt, að skapa kimnis-
kendan geðblæ.
Að brjóta heilann látlaust yfir
orsök tilveru sinnar éða tilgangi
líísins yfirleitt, virðist mér frá
hlutrænu sjónarmiði mjög barna-
legt. Samt á hver maður einhverj-
ar sérstakar hugsjónir, sem leiða
og stjórna löngun hans og skoð-
un. Þær hugsjónir, sem lyst hafa
mér sífelt og fylt líf mitt fögn-
uði eru: gæskan, fegurðin og
sannleikurinn. Það, að gera þæg-
indi og glaðværð að markmiði
sínu, hefir aldrei fengið neinn
fangstað á mér, og siðgæÖisregl-
ur reistar á slíkum grunni, myndu
aö eins nægja nautgripahjörð.
Lif mitt mundi hafa orðið ótta-
lega tómlegt án kendarinnar um
samvinnu við mér andlega skyld-
ar verur, í eftirsókn hins ónáan-
lega í listum og vísindalegri rann-
sckn. Ætíð síðan eg var barn hefi
eg fyrirlitið hinar venjulegu
hömlur, sem svo oft eru settar á
mannlegan metnað.
Eignarráð, ytri heppni, oflát-
ungsskapur og munaður hefir alla
tið verið andstyggilegt í mínum
augum. Eg hygg að hinir óbrotnu
og liæversku lífshættir séu bestir
fyrír sérhvern mann hvað líkama
og sál snertir.
Hinn ástríðuþrungni áhugi
minn fyrir borgaralegri réttvísi
og borg'aralegri ábyrgð, hefir
stöðugt verið í kynlegri inótsögn
við ómannblendni mína, eða óvilja
til að umgangást mikið menn og
konur.
Eg er einækisskepna, ónothæf í
s?mæki. Eg hefi aldrei óskorað
heilhuga getað tilheyrt landi eða
þjóð, eða vinahóp mínum, eða
jafnvel minni eigin fjölskyldu.
Þessum vináttu og tryggðábönd-
um hefir ávalt verið samfara
oljós fjarstaða, og með aldrinum
hefir tilhneiging mín til einangr-
unar farið sí vaxandi.
Þessi einangrun er stundum
beiskjublandin, en mig iðrar það
samt ekki, þó eg sé fráskilinn
skilningi og samúð annara tnanna.
Eg veit vel, að slíkt er mér
nokkurt tjón, en bætur fyrir þaC
öðlast eg í_ þvi, að vera óháður
venjum, skoðunum og fordómum
annara, og losna með þeim hætti
við þá freisting, að Iáta ininn sál-
arfrið hvíla á þeiin óhrjálega
grundvelli. Hin stjómarfarslega
hugsjón mín er lýðræði. Sérhver
maður ætti að vera virtur sem ein-
staklingur en enginn tignaður.
Það er kaldhæðni forlaganna að
yfir mig skuli hafa verið helt svo
mikilli, en óþarfri og óverðskuld-
aðri, aðdáun og virðingu. En ef
til vill er þessi fagurgali’ sprott-
inn af hinni óuppfyltu ósk fjöld-
ans uin það, að skilja hinar fáu
hugmyndir sem eg hefi boriö
fram.
Mér er það vel ljóst, að til þess
að ná einhverju ákveðnu marki
er það nauðsynlegt, að einhver
einn annist hugsunarstarfið, skipi
fyrir og læri að mestu leyti alla
ábyrgðina. En það á ekki að reka
þá, sem verið er að leiða, þeir
ættu ætíð að hafa leyfi til að
velja leiðtoga sinn. í mínum aug-
um er mannvirðingar aðgreining
þjóöfélagsflokkanna fölsk; í sann-
asta skilningi er mátturinn megin-
stoð þeirra. Og eg er þess full-
viss, að spilling fylgir sérhverju
einveldiskendu ofbeldi, því ofbeld-
ið dregur stöðugt að sér lághneigð-
ir og siöleysi. Tíminn hefir sannað
að nafnkendir harðstjórar hafa
komið sínu fram með tilstyrk
þorpara.
Eyrir þessa sök hefi eg alla tíð
verið eindregið mótfallinn því
stjórnarfyrirkomulagi, sem á sér
stað nú á dögum í Rússlandi og
Ítalíu. Það sem vakið hefir ótrú á
evrópísku lýðræði er ekki grund-
vallarkenning sjálfs lýðræðisins
sem sumir álíta villu eða ráðleysu,
heldur óstöðugleiki hinnar stjórn-
fræðilegu forustu vorrar, og auk
þess óveruleikablærinn á umbót-
Unum. Eg hygg að þér í Banda-
ríkjunum hafið hitt á hina réttu
hugmynd. Þér kjósið forseta til
hæfilega langs tíma, og veitið
honum nægilegt vald til þess að
hann geti réttilega leyst af hönd-
um sin ábyrgðarstörf. Hins vegar
geðjast mér mjög vel hin meiri
umhyggja, sem þýska landstjórn-
in og þýska ríkið ber fyrir ein-
staklingnuin, þegar hann er van-
heill eða atvinnulaus. Þvi það sem
hefir mest gildi í ys og þys líísins
er ekki þjóðin, heldur hið skap-
andi og áhrifanæma einstaklings-
eðli, persónuleikinn — sá sem
framleiðir hið göfga og háleita
meðan almenningurinn dvelur og
dregst áfram í hugsanamóki og
tilfinningasljóleika. — Við þetta
atriði kemur mér í hug eitt hið
alversta afsprengi hópsálarinnar
(herd mind), hin svívirðilega her-
vörn. Sá maður, sem hefir nautn af
hergöngu með hljóðfæraslætti er
neðar en svo að eg geti fyrirlitið
hann. Af einhverjum mistökum
hefir hann öðlast sinn stóra heila
— mænan ein væri yfrið nóg.
Þennan hernaðarhetjuskap, þetta
tiifinningalausa oíbeldi, ]ietta
bannsetta orðagjálfur um föður-
landsást — en hvað eg fyrirlít
>OOÖOOaOOOOÍ«««XÍOOO»OOÖOO<
GLEÐILEG JÓLt
Marteinn Einarsson & Co.
KOQQOOOOQCXXXXXXMOOOQOOOC
GLEÐILEG JÓL!
Matarverslun
Tómasar Jónssonar.
það alt af heilum hug. StyrjÖld er
siðlaus og andstyggileg, pg held-
ur hefði eg látið tæta mig sundur
ögn fyrir ögn en gerast þáttak-
andi í slíku ódæði.. Slíka smán á
að afmá sein allra fyrst af mann-
eðlinu. Og svo mikla trú hefi eg
á mannlegu eðli, að eg held að
þennan ósóma hefði fyrir löngu
mátt vera búið að þurka burt af
því, ef heilbrigð skynsemi þjóð-
anna hefði ekki verið afvegaleidd
eftir nótum, með skólum og skrif-
um í fjárhagslegum og stjórnmála-
legum tilgangi.
Hin fegursta reynsla sem vér
fáum hlotið er í djúpum hins dul-
arfulla. Þar er uppspretta sannra
lista og vísinda. Sá, sem ekki þekk-
ir þær hræringar sálarinnar, sem
þessi reynsla frainkallar, og sá,
sem ekki lengur fær numið staðar
til að undrast, verða frá sér num-
inn og fyllast lotning, hann er lif-
andi dauður, augu hans eru lokuð.
Þessi innsýn i leyndardóina lífs-
ins hefir, þó hún sé óttabundin,
vakið trúna til tilveru sinnar. Að
vita að það, sem fyrir oss er
órannsakanlegt, er í raun og veru
til, og opinberar sig í hinni æðstu
speki og sönnustu fegurð, sem
hinir sljóu hæfileikar vorir fá að-
eins gripiö í ófullkominni mynd
— að vita þetta, að eiga þessa
þekking, þessa tilfinning, er brenni-
punktur hinnar sönnu guðrækni
í þessum skilningi, aðeins i þess-
um skilningi, tilheyri eg flokki hinna
einlæglega trúræknu manna. Eg
get ekki hugsað mér þann guð,
sem launar og hegnir oss, verum
sköpunar sinnar, þar eð tilgangnr
hennar lagar sig eftir vorum til-
gangi — þann guð, sem í stuttu
máli sagt er aðeins hugsmíði
inannlegs ófullkomleika. — Eg
get heldur ekki trúað því, að
einstaklingurinn lifi áfrarn, þegar
líkaminn ér dauður, enda þótt
óstyrkar sálir ali með sér slíkar
hugsanir af ótta eða athlægisverðri
eigingirni. Mér nægir sú hugsun,
að leyndardómur meðvitundarlífs-
ins endurtekur sig gegnúm alla
eilífðina, mér nægir að íhuga hina
undursamlegu byggingu alheims-
ins, sem vér skynjum svo óljóst,
og reyna í allri auðmýkt að skilja,
]jÓ ekki væri nema óendanlega lít-
ið brot þeirrar visku, sem opin-
berast í náttúrunni. —
Þ. J. þýddi.
Verslun Páls Hallbjörnssonar,
Laugaveg 62.
æ
æ
æ
æ
æ
æ
GLEÐILEGRA JÓLA
óska eg öllum minum viðskiftavinum.
Ásg. G. Gunnlaugsson & Co.
æ
æ
æ
æ
æ
æ
æ
æ
æ
æ
GLEÐILEG JÖLl
MANCHESTER.
lææææææææææææææææææææææææ
GLEÐILEG JÓLl
Halldór R. Gunnarsson.
^æææææææææææ
æææ^
GLEÐILEG JÓLl
SÖLUTURNINN
(Einar Þorsteinsson).
GLEÐILEG JÓLI
Sportvöruhús Reykjavíkur.
æ
æ
æ
æ
GLEÐILEG JÓLl
VERSLUNIN BRYNJA.