Vísir - 24.12.1930, Page 23
VlSIR
Jólin
og sjómennirnir.
Eg las grein í Vísi fyrir nokkr-
um dögum meíS fyrirsögninni „jól-
in og póstarnir". Sú grein var rit-
tiö af hlýleik og vel eru póstamir
aö. því komnir, aö þeim væri sýnd
opinher viöurkenning fyrir starf
þeirra, sem er mjög þreytandi;
sérstaklega er það erfitt fyrir þá
menn, sem ferðast út um landið í
misjafnri vetrartíö, og hefir marg-
ur dugandi maður týnt lifi í póst-
ferðum á hinum ömurlegu fjall-
vegum. Að þessu sinni fer eg ekki
útí kjör islensku póstanna fyr og
síðar. En mig langar til að rninn-
ast á sjómennina i sambandi viö
jólin og aðrar stórhátíðir. Ný-
lega var minst hér í kirkjunum
hinna látnu sjómanna, sem hurfu
sjónum vorum • með togaranum
„April“. Ætti minningin um hug-
prúða látna bræður, að gefa okk-
ur, sem enn stöndum á ströndinni
og horfum í hilling yfir á eilifðar-
landið, tilefni til umhugsunar.
Sú minning ætti ekki einungis
að vekja samúð og skilning á
kjörum aðstandenda hinna látnu
gjómanna, heldur og líka til þeirra
sjómanna, sem velli hafa haldið i
skammdegismyrkrum á hinum
ókyrru öldum hafsins. Jólin eru í
nánd, hin sameiginlega hátíð krist-
inna manna. Þessi ljóssins hátíð er
öllum kær frá barnæsku til graf-
ar. Og sérstaklega á jólunum lang-
ar vini og ættmenn til að mega
njóta sameiginlegrar gleði, and-
legrar og líkamlegrar hvildar.
Þessar langanir ná efalaust ekki
síst til sjómanna. Enginn veit til
fullnustu tilfinningar og hugrenn-
ingar sjómannanna, sem eru langt
frá heimilum og vinum, úti á haf-
inu einmitt á jólahátíðinni. Óhjá-
kvæmilega verða þeir sjómenn,
•sem vinna á flutninga og farþega-
skípum, að vera fjarri vinum, þótt
stórhátíð sé yfirstandandi. En öðru
máli er að gegna með fiskiskipin ;
og á eg hér aðallega við togarana.
Mig setur hljóða, þegar eg les há-
tiða kveðjur frá skipshöfnunum á
togurunúm víðsvegar kringum
strendur landsins.
Eg spyr sjálfa mig: Þurfa þess-
ír nytsömu menn þjóðfélagsins að
vera útilokaðir frá hátíðagleðinni
og fögnuðinum yfir að mega njóta
hvíldar á sínu eigin heimili með
vinum og skyldmennum? Það er
mjög ólíklegt, að útgerðarfélögin
biðu nokkura hnekki fjárhagslega,
þó að togararnir lægi í höfn á stór-
hátíðum og mér er næst að halda,
að útgerðin hlyti margfalda bless-
«n, ef sjómennirnir fengju þá
hvíld. Samúð og skilningur á
kjörum og tilfinningum einstakl-
ingsins eru þær dýrmætusfu gjaf-
ir. En það vill því miður brenna
við, að rétta viðurkenningu hljóta
menn ekki fyr, en þeir eru lagstir
til sinnar hinstu hvíldar. Hvernig
væri nú að taka upp þá nýung, að
gefa öllum íslensku togurununf
hvild um jól og páska í minningu
um þá menn sem farist hafa af
togurum og nú síðast af „Apríl“.
Það væri vel við eigandi, að taka
þann sið upp á næstu jólurn, því
íið nú er það um seinan að þessu
fiinni. Mundi slík ráðstöfun áreið-
anlega mælast vel fyrir nteðal sjó-
manna og aðstandenda þeirra og
nllra landsmanna. — Guð, sem g'af
okkur hina dýrmætustu jólagjöf,
vill einnig að við gefum öðrum
jólagjafir, en engar gjafir getum
við gefið betri, en sannan mann-
kærleika.
23. des. 193°-
Þ. Þ.
GLEÐILEG JÖL!
Verlunin Ægir,
Öldugötu 29.
Jólaljóð.
Eilífur friður anda mínum svalar,
alvaldur guð er hjarta mínu nærri,
nóttin er heilög, drottinn til vor talar,
töfrandi er geisladýrð frá stjörnu skærri.
Birtir í huga, burt er rökkursgríma,
berst ég í leiðslu gegnurn rúm og tíma.
GLEÐILEG JÓL
og farsælt nýtt ár.
Versl. Iijöt og Fiskur.
MQOOOOOOOOOQQOOQQQQOoooqr
GLEÐILEG JÓL!
X
X
X
x Verslunin SNÓT,
Vesturgötu 17.
X
X
X
X
rjOOOQOOOOOOOOOOOOOOOOíXJtín,
Konnngur lífsins.
Nú klingja allar klukkur ótt,
því komin helg er jólanótt.
Þá fæddist okkur frelsis barn,
sem færði ljós um eyði hjarn.
Og engla raddir óma dátt
um alheims geiminn bjarta hátt.
„Um frið á himni, frið á jörð,
um frelsi á drottins barna hjörð.“
Sú fagra bjarta frelsis sól,
hér færist norður yfir pól.
Og fyllir hjarta og huga manns
með helgri minning lausnarans.
Því minnumst þess að meistarinn
var mesti friðar leiðtoginn.
Ljósið sannleiks, lífsins sól,
læknir allra, frelsi og slcjól.
Því helgum jólahátíð vér
t hjarta og sannleik Jesú, þér.
Þú kongur ljóssins, líf og skjól,
— lífsins bjarta frelsis sól.
17. des. 1930.
S. J. ísfjörð.
ðttist ekki.
„Sjá eg boða yður mikinn fögn-
uð.“ Góður guð gefi, að þessi boð-
skapur, sem var boðaður fyrir
meir en nítján öldum hinum fá-
tæku fjárhirðum á Betlehemsvöll-
um, mætti nú einnig ná til vor
nú á þessari jólahátíð, svo að vér
í anda og sannleika gætum skilið,
hvílíkur þessi boðskapur er. Þá
mundi myrkur hversdags efa-
semdanna og áhyggjur og sorgir
hverfa úr hugum vorum og hjört-
um. Þessi orð eru töluð til vor
allra, þau eru líka töluð til yðar,
sem nú á þessum jólum eruð sorg-
um þjáð af margvislegum kross-
burði þessa lífs. Óttist ekki, oss
er öllum gefin af guði föður sú hin
mikla himneska jólagjöf í frelsara
vorum Jesús Kristi. Fögnum nú
og verutn glaðir og syngjum með
þljúgu barna sinni: „Son guðs
ertu með sanni, sonur guðs, Jesú
minn“, o. s. frv.
í Jesú nafni nú
þín biðja börnin fremur:
Blessa árið, sem kemur,
allra þörf uppfylt þú.
Einþór B. Jónsson.
Guðlegar tnyndir birtast sálarsjónum,
svífandi englaskari um geiminn líður,
stjörnurnar gullnu glampa á hvítum snjónum,
gistir í fjárhúskofa Jesús bliður.
Hirðarnir vaka, hljóð er næturstundin,
himnarnir opnast, Messías er. fundinn.
Sé ég hann ganga mitt á meðal lýðsins,
mannvininn hreina og kraftaverkin sýna,
í grasgarði liða sviða sálarstriðsins,
svo birtist krossinn, fórnardauði og pina.
Þorstinn hann brendi, þyrnar enni stungu,
þó gat hann boðað náð með sinni tungu.
Starfið hans var að hugga, gefa og græða
og gráta með þeim, er sorgir liðu og pinu,
fyrir þá lét hann hjartablóð sitt blæða,
brautir þeim lagði að föðurhúsi sínu.
En frelsarinn góði, friðarboði jarðar
fjötraður var i svikavefi Marðar.
Enn þá við njótum guðssonarins góða,
gistir hann enn i vorum lágu hreysum,
ástgjafir sínar okkur til að bjóða
ef við af herðum syndabagga leysum.
Hann er oss nærri, hjálp i nauðum kifsins,
huggarinn meina, sigurvissa lífsins.
Jólin við köllum hátíð hátíðanna,
hugtakið fagra ber hið sanna merki,
þá styttist bandið milli guðs og manna,
mjög sést þess vottur, bæði í orði og verki.
Nú segja allir: Nú má engum gleyma,
núna finst öllum best að vera heima.
Samúðin vaknar, sorgaröldur lækka,
sigur hins góða fyllir hugi manna,
góðverkin fjölga, gleðibrosin stækka,
gleymist nú strit og mæða dagsins anna.
Allir í friði af eining vilja mætast,
éilífðarþrár og helgir draumar rætast.
Afmælisfögnuð enginn veitti slíkan,
allir fá sama rétt að veisluborði,
frelsarinn gerði ei fátækan né ríkan,
friðinn hann bauð og kærleikann í orði.
Ólík þó sýnist ytri kjörin vera
enginn veit hverjir þyngstu raunir bera.
Gott er að mega ganga í veislusalinn,
gleði að njóta meðal bræðra sinna,
þar sem að enginn öðrum meiri er talinn,
alstaðar má hið sama hugtak finna.
Fögnuður lífs og friður sé með yður,
fagnandi í drottins nafni sérhver biður.
Líður að kveldi, leiftur himins skína,
ljós eru tendruð, skíði brenna á arni,
faðir vor sendu frið í sálu mína,
fögnuð og ástúð hverju þínu bami.
Enginn má verða úti um blessuð jólin,
öllum sé boðuð guðleg náðarsólin.
Guðrún Jóhannsdóttir
frá Brautarholti.
Skemti-
fundup!:
verður haldinn í húsi félagsins, fyrir eldri flokkana,
laugardaginn 27. desember 1930 kl. 9 e. h.
Góð fjögra manna hljómsveit spilar frá kl. ÍVA.
(Salirnir skreyttir).
Skemtifundup
yngri flokkanna verður haldinn sunnudaginn 28. des*
ember 1930 kl. 5 e. h. — Margt til skemtunar
---------- og dans á eftir.
Skemtinef ndin.
Ath. — Vitjið aðgöngumiða tímanlega í verslun Hall-
dórs Sigurðssonar úrsmiðs.
scooonoooeoooooooGoooooooo
GLEÐILEG JÓL!
Guðni Einarsson
og Einar.
XJQOOOOOOOOOOOOOQOOOOOOOOl
JOOOCOOOOOOíÍtXXXÍGOOOQOOOOÍ
GLEÐILEG JÓLl
Sigurður Kjartansson.
; OOQQÖOOOOOOOOOCCÖOOCOOQOI
KAUPSKAPUF
1
Sem nýtt tveggja manna
rúm til sölu á skóvinnustof-
unni, Laugaveg 63. (632
Dömukjólar og kápur. Fal-
legt úrval. Versl. Ámunda
Árnasonar. (599
Gardínutau og afmældar gar-
dínur, með tækifærisverði,
Versl. Ámunda Árnasonar.
(598
Smokingföt og yfirfrakki til
sölu með tækifærisverði. G.
Bjarnason og Fjeldsted. (614
Ágætur „Narag“ miðstöðvar-
ofn nr. 3 til sölu mjög ódýrt,
ennfremur vaskur. Bragagötu
29 A, uppi. (434
Besta jólagjöfin er fallegt og
vandað úr (armbands). Nýjar vör-
ur teknar upp daglega. — Jóhann
Búason, úrsm., Freyjugötu 9.
Sími 2239. (424
Telpukápur, margar tegund-
ir. Allar stærðir. Versl. Ámunda
Árnasonar. (597
Silkisokkar í mörgum litum,
sterkir og fallegir. — Verð 2.75
og 3.75. — Stefán Gunnarsson,
Skóverslun, Austurstræti 12.
(1019
p VINNA |
Grammófónviðgerðir.
Gerum við grammófóna
fljótt og vel. örninn, Lauga-
vegi 20. Sími 1161. (536
f
HÚSNÆÐI
l
2—3 herbergi og eldhús ósk-
ast sem allra fyrst. Uppl. í sima
1436. . (635
Húsið nr. 72 við Bergslaða-
stræti fæst til leigu, nú þegar
eða 1. janúar n.k. Uppl. gefur
Sveinn M. Sveinsson. Simar 56
og 224. (634
^"tapað-fundið
Kven-rúskinnshanski hefir
tapast. Skilist á Óðinsgötu 7.
(637
Peningabudda tapaðist frá
Ársæli Árnasyni að versl. Visi.
Skilist Hverfisgötu 66 A. (633
TILKYNNING
Oddur Sigurgeirsson, Höfn,
óskar öllum gömlum borgur-
um gleðilegra jóla. (636
Athugið líftryggingarskilyrði i
„Statsanstalten" áður en þér
tryggið yður annarstaðar. Vest-
urgötu 19. Sími: 718. O. P.
Blöndal. (38
FÉLAGSPRENTSMIÐJAN.