Morgunblaðið - 12.05.1960, Blaðsíða 1
24 síður
t
Welch hótar
blaðamanni M
Er ekka oruggur um menn sína
Grimsby, 11. rrvaí. — Einkaskeyti til Mbl. frá Haraldi J. Hamar.
DENIS WELCH, formaður félags yfirmanna á togurum í
Grimsby, fer til Lundúna í kvöld til að sitja þar fund John
Hare, sjávarútvegsmálaráðherra, og togaraeigenda.
Welch hélt fund með mönnum sínum klukkan 10,30 í
niorgun fyrir luktum dyrum, eins og alltaf áður. Ég var á
vakki utandyra til að fylgjast með, hve margir sæktu fund-
inn, en Welch kom auga á mig út um gluggann og sendi
mann eftir mér út. Þegar ég kom inn, voru um tuttugu skip-
stjórar og stýrimenn samankomnir í litlu fundarherbergi.
Fundurinn var þá að hefjast.
Welch bað mig að tala við
sig í einkaskrifstofu sinni inn
af fundarherberginu, lokaði
dyrunum og var þungur á
brún. Varaði hann mig við að
reyna að veiða eitthvað upp
úr skipstjórunum eftir fund-
inn, því þar væri fjallað um
trúnaðarmál. „Ef þú reynir að
hafa einhverjar upplýsingar
upp úr mínum mönnum, þá
skalt þú ekkert gott hafa af“
sagði hann. „Ég hefi varað
blaðamenn hér í Grimsby við
að reyna þetta og sagt að ég
muni aldrei gefa þeim neinar
upplýsingar framar.“
Sýnir þetta að hann er ekki ör-
uggur um menn sina og að harka
er farin að færast í leikinn, því
Rússar
njósna
Bern, Sviss, 11. maí.
(NTB, ReuterJ
RÍKISSTJÓRNIN
í Sviss hefur vísað
tveim starfmönnum rúss
neska sendiráðsins í
Bern úr landi vegna
njósna. Var þeim fyrir-
skipað að yfirgefa Sviss
„þegar í stað“.
Samkvæmt tilkynn-
ingu ríkisstjórnarinnar
voru mennirnir hand-
teknir í Zíirich í gær-
kvöldi er þeir voru að
ræða við mann sem starf
ar að njósnum fyrir Ráð
stjórnarríkin. Hjá þess-
um manni áttu sendi-
ráðsmennirnir að fá
skýrslu um ratsjárkerfi
svissneska hersins, upp-
lýsingar um skipulag
hersins og um eldflauga-
stöðvar í Vestur-Þýzka-
landi.
Talið er að starfsmað-
ur leyniþjónustunnar
hafi einnig verið hand-
tekinn, þótt það sé ekki
tckið fram í fréttinni.
Ekki hafa nöfn sendi-
ráðsmannanna verið gef
in upp.
þrátt fyrir ítrekaðar tilraunir,
hefur Welch ekki fengið nein
stéttasamtök utan vélstjóra til að
fylkja sér undir verkfallsmerki
sitt. Undanfarna daga hefur
Welch sýnt það að hann byggir
mikið á blöðunum og gerir allt
til að fá stuðning þeirra víð verk
fallshótunina til að styrkja að-
Framh. á bls. 23.
Krúsjeff öfundar ekki
Eisenhower
Moskvu og Washington, 11. ma.
(NTB, Reuter)
NIKITA Krúsjeff, forsætisráð-
herra, sagði í dag að hann kærði
sig ekki um að vera í sporum
Eisenhowers forseta, þegar hann
kemur í heimsókn til Moskvu í
næsta mánuði. Sagði Krúsjeff
þetta við erlenda blaðamenn er
hann mætti á sýningu í Gorki-
almenningsgarðinum í Moskvu,
þar sem sýnt er brak úr banda-
rísku flugvélinni U-2, sem skot-
in var niður fyrir 10 dögum.
Kvaðst Krúsjeff hafa blöskrað
það að Eisenhowér hafi lýst sam-
þykki sínu á njósnafluginu. Að-
spurður hvort hann gerði ráð
fyrir að heimsókn Eisenhowers
yrði frestað, sagðist Krúsjeff
ekkert vilja um það segja á
þessu stigi, málið yrði áreiðan-
lega rætt á „topp“-fundinum í
París, sem hefst hinn 16. þ. rrr.
Þegar Krúsjeff var spurður að
því hvort njósnaflugið hefði
breytt áliti hans á Eisenhower,
svaraði hann: „Það hefur það
auðvitað gert. Ég vissi ekki að
flugið var ekki einungis ákvörð-
un óábyrgs yfirmanns í flug-
hernum. Ég er ábyrgur gjörða
ríkisstjórhar minnar og mér
blöskraði að heyra að forsetinn
hafi samþykkt þetta flug“.
„Munið Pearl Harbour"
Eisenhower forseti sagði á
blaðamannafundi í Washington í
dag að könnunarflug yfir Sovét-
ríkjunum væri nauðsynlegt til að
fyrirbyggja að Bandaríkin yrðu
fyrir öðru áfalli eins og Pearl
Harbour (þegar japanskar flug-
vélar réðust fyrirvaralaust á
flotastöð Bandaríkjanna 7. des.
1941). Forsetinn sagði að sú
leynd, sem hvíldi yfir Sovétríkj-
unum, og það hve erfitt væri að
afla upplýsinga þaðan, væri ein
helzta ástæðan fyrir þeirri
spennu, sem ríkti í heiminum.
Hann kvaðst enn ætla á „topp“-
fundinn og fara fram gagn-
kvæmt eftirlit úr lofti við Krús-
jeff forsætisráðherra, til að
þurfa ekki lengur að eiga á
hættu skyndiárás. Þá sagðist for-
setinn hafa í hyggju að fara til
Moskvu í næsta mánuði, þrátt
fyrir njósnaflugið. Sagðist hann
ekki álíta að útlit hefði breytzt
að ráði vegna atburðarins og
kvaðst vonast eftir árangri í um-
ræðum um helztu málin sem þar
verða rædd, þ. e. afvopnun,
Berlín, Þýzkaland og sambúð
austurs og vesturs.
Ekki mynd af U-2
Forsetinn sagði ástæðu til að
ætla að U-2 flugvélin, sem flaug
yfir Rússland 1. maí sl., hafi ekki
verið skotin niður úr mikilli
hæð, eins og Krúsjeff heldur
fram. Sagðist Eisenhower enn-
Kennedy sigrnr
í V. Virginíu
Oharleston, Vestur-Virginíu
11. maí (NTB-Reuter).
LÍKURNAR fyrir því að John
Kennedy, öldungardeildarþing-
maður Massachusetts, sem er að-
eins 42 áira, verði forsetaefni
Demókrata við forsetakosningarn
ar í haust, fóru mjög vaxandi
eftir að úrslit urðu kunn í Vest-
ur-Virginíuríki, þar sem pi'óf-
kosningar fóru fram í gær.
Úrslit voru þau að Kennedy
hafði fengið 173,113 atkvæði, en
flokksbróðir hans Hubert Hump-
hrey öldungardeildarþingmaður
aðeins 108.893, þegar búið var að
telja atkvæði á 2.059 af 2.750 kjör
stöðum.
Er þetta svo mikið áfall fyrir
Humphrey, að hann tilkynnti:
„Ég er ekki lengur í framboði
við kjör forsetaefnis"
fremur álita að ljósmyndir þær
sem sýndar eru af flakinu, séu
ekki af flaki U-2 vélar. Gaf
hann ekki nánari skýringar á
þessari staðhæfingu sinni.
í dag hélt Gromyko, utanríkis-
ráðherra, blaðamannafund, þar
sem mættir voru um 500 blaða-
menn, rússneskir og vestrænir.
Sagði hann að Rússar mundu
neita ósk Eisenhowers um gagn-
kvæmt eftirlit úr lofti, ef sú ósk
yrði lögð fram á „topp“-fundin-
um í París. Hélt Gromyko því
fram að slíkt eftirlit væri sniðið
eftir hernaðarþörfum Bandaríkj-
anna, og sagði: „Að sjálfsögðu
munu Sovétríkin ekki sam-
þykkja gagnkvæmt eftirlit úr
Framh. á bls. 2.
John D. Rocke-
feller lótinn
Tucson, Arizona, 11. maí
(NTB-Reuter).
BANDARÍSKI olíukóngurinn og
mannvinurinn John D. Rocke-
feller lézt í dag 86 ára gamall,
eftir margra mánaða veikindi.
John D. Rockefellir var faðir
Nelsons Rockefeller, ríkisstjóra
New Vprk, og var álitinn ríkasti
maður heimsins.
MYND þessi var, að sögn
rússneska blaðsins Pravda,
tekin úr bandarísku njósna
flugvélinni yfir flugvelli í
Ráðstjórnarríkjunum.
Flugslys
BREMEN, Vestur-Þýzkalandi, 11-
maí (Reuter): — Sprengjuflug-
vél frá brezka flughernum a£
gerðinni Canberra hrapaði á
þriðjudagskvöld til jarðar nálægt
Cloppenburg, 65 kílómetrum fyr
ir suð-vestan Bremen. Þriggja
manna áhöfn var á vélinni, og
fórust allir.
Um 560
diepnir d dri
París, 11. maí (Reuter).
ALSÍRSKIR ofbeldlmenn f
Frakklandi hafa drepið þar 2.792
manns og sært 7.019 frá því upp-
reisn Serkja hófst í Alsír fyrir
fimm árum.
77 hvítir borgarar hafa verið
drepnir og 486 særðir, 36 lögreglu
menn og hermenn drepnir og 249
særðir og 2.679 Serkir drepnir
og 6.284 særðir.
Ágreiningi milli alsírsku þjóð-
ernishreyfinganna tveggja, þjóð-
lega frelsisflokksins og alsírska
þjóðernissinna flokksins er kennt
um hve margir Serkir hafa fallið.
I landhelgi Brefa
Bruges, Belgíu 11, maí. Reuter.
BELGISKIR fiskimenn ætla að
senda togara til veiða í landhelgi
Breta samkvæmt 300 ára gamalli
heimild..
Dagblaðið Le Soir skýrir svo
frá að lítill togari með 4 manna
áhöfn muni innan fárra daga
halda til veiða í brezkri land-
helgi. Verði hann með sérstakt
leyfi borgarstjórnarinnar í Bruð-
es, en hafi auk þess meðferðis
25.000 franka (ca. 20.000 kr.),
sem eigi að nota af báturinn verð-
urinn verður tekinn af landhelg-
isgæzlunni, sem ekki viðurkenn-
ir kröfu Belga, en þær eru byggð-
ar á samningi frá árinu 1666,
undirrituðum af Charles II., sem
bjó um tíma í útlegð í Bruges.
Samkvæmt samningnum er Belg-
um heimilt að senda allt að 50
togara á ári til veiða í brezkri
landhelgi.
*>