Morgunblaðið - 12.05.1960, Qupperneq 2
2
MORGUNBLAÐIÐ
Flmmtudagur 12. maí 1960
Landbúnaðarráðherra Ingólfur Jónsscn gaf Albingi i gær
Yfirlit um hag ræktunarsjóðs
og byggingasjóðs á þessu ári
Rikisstjórnin mun afla fjár, til þess
að sjóðirnir geti gegnt hlutverki sinu
INGÓLFUR Jónsson, landbúnaðarráðherra, gaf í sameinuðu
þingi í gær ýmsar upplýsingar í sambandi við lánveitingar
stofnlánasjóða Búnaðarbankans, en fyrirspurnum um það
efni hafði verið beint til ráðherrans frá þeim Ásgeiri Bjarna-
syni og Páli Þorsteinssyni.
kr. f Framkvæmdabanka fslands
eru ógreiddar afborganir og vext
ir af lánum, sem gjaldfalla fyrir
1. júlí, 12,4 millj. kr. önnur lán,
sem gjaldfalla 1. júlí til 31. des-
ember nem® 8 millj. kr. og rekst-
úrskostnaður 3—4 millj. Loks eru
svo útlán haustið 1960 45 millj.,
sem er vitanlega áætlun,
Með þessu virðist fjárþörf
ræktunarsjóðs vera á þessu
ári 85,4 millj.
Á tekjuáætlun eru tillag ríkis-
sjóðs, 1,6 millj. kr., árgjöld af út-
lánum 19,2 millj. kr., lán frá
Framkvæmdabanka fslands 25
millj., sem gæti eins orðið allt að
30 millj. kr.
Fjórar fyrirspurnir
Fyrirspurnir þær, sem Ingólfur
Jónsson, svaraði, voru á þessa
leið:
1. Hefur byggingarsjóði sveita
bæja verið útvegað fjármagn til
útlána á þessu ári, og ef svo er,
hve mikið?
2. Hvenær verða afgreidd lán
úr sjóðnum út á íbúðarhús þeirra
bænda, sem samkv. reglum bank-
ans gátu fengið fyrstu útborgun
lána á árinu 1959, en hafa ekki
fengið hana ennþá?
3. Verður veðdeild Búnaðar-
bankans útvegað fjármagn til út-
lána á þessu ári, og ef svo er, hve
mikið?
4. Hafa verið gerðar ráðstafan-
ir til þess, að ræktunarsjóður
geti veitt lán út á þær fram-
kvæmdir ársins 1959, sem enn
hafa ekki verið veitt lán út á, og
út á framkvæmdir ársins 1960?
íbúðarlán veitt
í sambandi við aðra fyrirspurn
ina, skýrði Ingólfur fyrst frá því,
að þau lán hefðu verið veitt.
Sama máli gegndi um lánabeiðn-
ir til ræktunarsjóðs vegna fram-
kvæmda 1959, a.m.k. aðrar en
þær, sem borist hefðu síðustu vik
urnar, en um þessar beiðnir væri
spurt í fyrri lið 4. spurningar.
Um seinni lið þeirrar spurningar
væri það að segja, að ekki hefði
enn verið útvegað fé til lána
vegna framkvæmda á þessu ári,
enda kæmu ekki til greina lán-
veitingar á þær framkvæmdir,
fyrr en í haust eða væntanlega í
desembermánuði.
Fjárþörf ræktunarsjóðs
í framhaldi af þessu gaf Ing-
ólfur Jónsson yfirlit um fjárþörf
ræktunarsjóðs á þessu ári, sem
hann kvað fróð-
legt að gera sér
grein fyrir, þótt
ekki -gæti verið
nema um áætl-
un að ræða. —
Greiða þarf
skuld við Seðla-
bankann, bráða-
birgðalán, sem I
reyndar er nú
orðið nær 3 ára
gamalt — sagði
ráðherrann. Það
er 5 millj. kr. Þá
eru framkv.-lán
gjaldfallin fyrir
1. júlí þ.á., sem
nú hafa verið
veitt, 11 millj.
Þetta eru samtals 45,8 millj.
sem virðast vera nokkuð ör-
uggar tekjur, en til þess að
ná jöfnuði vantar þá 39,6
millj. kr., sem þarf að útvega
fyrir haustið. Og fyrir haustið
mun ræktunarsjóði verða út-
veguð þessi upphæð effa sem
næst því. *
Með þessu kvaðst ráðherrann
telja annarri og fjórðu spurningu
svarað.
Hagur hyggingasjóðsins
Þá vék Ingólfur Jónsson að 1.
spurningunni og upplýsti, að
byggingasjóði sveitabæja hefði
ekki enn verið útvegað fjármagn
til þess að lána út á framkvæmd-
ir þessa árs. Útvegað hefði verið
fé, til þess að unnt yrði að Ijúka
útlánum út á það, sem gjaldfall-
ið var frá fyrra ári. En vitanlega
þyrfti að útvega byggingarsjóðn-
um fjármagn til eðlilegrar starf-
Framh. á bls. 23
S'NAIShnútar / SV 50 hnútar )£ Snjókoma 9 06 i mrn X/ Slúrir K Þrumur Wtiz, Zs*. KuUatkil Hitas/n/ H Hml 1 L* Ltzai\
18 stig
i innsveitum
HLÝJA loftið frá Evrópu
streymir enn hægt yfir ís-
land. Yfir sjónum kólnar það
og rakinn þéttist, svo að þoka
breiðist yfir sjóinn, en í inn-
sveitum brýzt sólin í gegn, svo
að hitinn stígur mjög á dag-
inn.
í gær mældist 18 stiga hiti
kl. 15, bæði í Síðumúla og á
Egilsstöðum, en á Hornbjargs-
vita var aðeins 3 st. hiti kl. 12.
Veðurhorfur kl.
kvöldi:
22 í gær-
SV-mið: A-stinningskaldi,
allhvass eða hvass með morgn
inum, þokuloft. SV-land til
SA-lands og Faxaflóamið til
SA-miða: Hægviðri, þokuloft.
Fyrirlestror
hja KFUM
AÐ ALFRAMK VÆMDARST J ÓRI
Norska lútherska heimatrúboðs-
ins, séra Torvald Öberg, hefur
verið á þriggja mánaða fyrir-
lestrarferð í Bandaríkjunum.
Hann er nú á leið heim til Nor-
egs og dvelst hér á landi tvo
daga. Mun hann tala á samkomu
í húsi K.F.U.M. og K. í kvöld og
annað kvöld. Séra Torvald Öberg
er kunnur ræðumaður í heima-
landi. Áður en hann var ráðinn
aðalframkvæmdarstjóri var hann
skólastjóri við Biblíuskóla félags
ins í Osló, en allmargir íslend-
ingar hafa verið í þeim skóla.
i*
Nær hálf milljón Kiljan
bóka prentuð í Rússlandi
//
i
Land Ijóðskáldanna" hlýtur kynn-
ingu i Austurvegi
RÚSSAR virðast nú leggja
æ meiri áherzlu á að auka
hin svonefndu „menningar-
tengsl“ við ísland. Virðast
þeir ekkert til spara í þessu
skyni. í fréttatilkynningu frá
rússneska sendiráðinu er
skýrt frá því nýlega, að á síð-
ustu 10 árum hafi 70 rúss-
neskir Jistamenn og rithöf-
undar heimsótt ísland. — A
sama tíma hefur yfir 100 Is-
lendingum verið boðið í
kynnisferðir um Sovétríkin.
Þá hefur verið aukin útgáfa á
þýddum íslenzkum bókum í
Dagskrá Alþingis
SAMEINAÐ Alþingi og báðar þing-
deildir koma saman til funda í dag
eftir hádegi og eru þessi mál á dag-
skrá:
Sameinað þing: 1. Fyrirspurn: Al-
þýðuskólar. 2. Kosning 4 manna nefnd
ar sarnkv. 14. gr. B.XII. 1 fjárlögum
fyrir árið 1960 til þess að skipta fjár-
veitingu til skálda, rithöfunda og lista-
manna. 3. Kosning 5 manna nefndar til
að skipta fjárveitingu til atvinnu- og
framleiðsluaukningar, að viðhafðri
hlutfallskosningu, samkv. 20. gr. Ut
XXIII í fjárlögum fyrir árið 1960.
Efri deild: Ferskfiskeftirlit, frv. 2.
umr.
Neðri deild: 1. Símahappdrætti
Styrktarfélags lamaðra og fatlaðra,
frv. 1. umr. 2. Sjúkrahúsalög, frv. 2.
umr. 3. Verzlunarstaður við Arnaraes-
vog, frv. 2. umr. 4. Dragnótaveioar í
fiskveiðilandhelgi, frv. 5. Landnám,
ræstum og byggingar í sveitum, frv.
2. umr. 6. Verkfall opinberra starfs-
manna, frv. 7. Aburðarverksmiðja, irv.
2. umr. 8. Tolls^rá frv. 9. Tolisérá,
frv.
Viðbrögð stjórnarandstæðinga
i fiskverðsmálinu sanna að
Viðreisnarstefnan
mun sigra
HÉR í blaðinu hefur verið
skýrt frá því, að útvegsmenn
og vinnslustöðvar fiskafurða
hafi náð samkomulagi sín á
milli um fiskverð.
Eins og kunnugt er gerði rík
isstjórnin ráð fyrir því, að út-
fiytjendur greiddu sérstakah
útflutningsskatt, sem rynni til
greiðslu á skuldum útflutn-
ingssjóðs, en félli niður, þegar
þeim væri lokið.
Heppilegast var talið fyrir
útveginn að losna sem fyrst
við þessar greiðslur og því
gert ráð fyrir, að skatturinn
yrði 5%, og mundi hann þá
væntanlega alveg geta fallið
niður í árslok.
Utvegsmenn og fiskkaupend
ur æsktu þess hins vegar, að
skatturinn yrði 2%%, þótt
hann stæði þá fram á næsta
ár, m. a. vegna þess að veru-
leg verðlækkun hefði orðið á
fiskimjöli, sem rýrði hag út-
vegsins í ár frá því, sem ráð
var fyrir gert.
Á þetta gat rikisstjórnin
fallizt, en hefur jafnframt lýst
því skýrt yfir, að engin breyt-
ing verði á því, að skatturinn
haldi áfram, þar til skuldir út-
flutningssjóðs séu að fullu
greiddar, enda skiptir 1 sjálfu
sér minnstu, hvort þær greið-
ast mánuðinum fyrr eða
seinna.
Stjórnarandstæðingar þrá-
stagast á því, að með þessari
tilhögun sé fengin staðfesting
á þeim staðhæfingum þeirra
að undanfömu, að viðreisnin
sé að hrynja!
Er það vissulega ánægjulegt
að andstæðingar hins frjáls-
lega efnahagskerfis skuli enga
vísbendingu betri geta séð um
það, að viðreisnarstefnunni sé
hætt. Með því undirstrika þeir
í rauninni þá staðreynd, að hin
nýja stefna er orðin að veru-
leika og er styrkari en bjart-
sýnustu menn þorðu að vona.
Hitt má segja að sé rauna-
legt, að tíma Alþingis sé eytt
í endaleysis þvælu Eysteins
Jónssonar og Einars Olgeirs-
sonar um þetta augljósa mál.
Rússlandi. Vinsælastur íslenzkra
rithöfunda í Rússlandi er Halldór
Kiljan Laxness og nemur upplag
bóka hans á rússnesk'u samtals
473 þúsundum. Aðrar íslenzkar
bækur, sem komið hafa út í Rúss
landi eru “Á leið til unnustunn-
ar“ eftir Þórberg Þórðarson, „Úr
fortíð íslendinga" eftir Einar
Olgeirsson og „fslenzkar nútíma-
bókmenntir“ eftir Kristin Andrés
son.
í fréttum frá rússneska sendi
ráðinu er þess einnig getið fyrir
nokkru að nýlega hafi komið út
út í Moskvu bók, sem ber heitið
„Nútímaljóð frá Norðurlöndum
og eru í henni allmörg íslenzk
ljóð í rússneskri þýðingu. Rúss
neska skáldið Evgeni Dolma-
tovskí ritar formála að bók þess
ari og minnist íslands sérstak
lega, en hann kallar það „land
ljóðskáldanna“. Hann ræður
sovézkum lesendum sérstaklega
til að kynna sér verk eftirtalinna
íslenzkra ljóðskálda: Halldórs
Kiljan Laxness, Jóhannesar úr
Kötlum, Þorbergs Þórðarsonar
(Seltjarnarnesið er lítið og lágt)
Ólafs Jóh. Sigurðssonar og Sig-
urðar Sigurðssonar frá Arnar-
holti.
Krúsjeff
Framh. af bls. 1
lofti. Lofthelgi Sovétríkjanna er
og verður vandlega lokuð“.
Eins og innbrotsþjófur
Hann sagði að Tyrkland, Pak-
istan og Noregur væru samsek
í árásinni 1. maí, og ættu að taka
málið til athugunar áður en þeir
veita annarri slíkri flugvél að
nota flugvelli þeirra. Utanríkis-
ráðherrann bar á móti ásökun-
um Bandaríkjanna um að rúss-
neskar flugvélar 'hafi rekið
njósnir yfir bandarískum land-
svæðum og löndum Atlantshafs-
bandalagsins, og kvað slíkt
brjóta í bága við stefnu Sovét-
ríkjanna. Spurði hann blaða-
mennina hvort þeim fyndist
ekki tilraunir Bandaríkjanna til
að afsaka njósnaflugið svipaðar
því og þegar innbrotsþjófur er
staðinn að verki og afsakar sig
með því að engin önnur leið hafi
verið til að komast inn í lokað
húsið.
Slæmí ástand í pósl-
samgöngum við Eyjar
VESTMANNAEYJUM, 11. maí:
Mikillar og vaxandi óánægju gæt
ir með póstsamgöngur viff Eyj-
ar. Sem dæmi um hve áistandið i
þessum efnum er slæmt má
nefna, að síðustu 4 daga hafa eng
in blöð borizt hingað, þrátt fyrir
að flognar væru 3 ferðir sl. sunnu
dag og Esja færi frá Reykjavík
á mánudagskvöld og kæmi hing-
að á þriðjudag. Flogið var i dag
og kom þá loksins hluti blaða-
póstsins — svo lítill að ekki var
hægt að afgreiða hann til kaup-
enda í dag.
Flugfélag Islands áætlaði að
fljúga til Eyja kl. 8 sl. mánudags
kvöld og tók þá allan póstinn
snemma um morgunihn. Ferðin
féll niður og lét Flugfélagið und-
ir höfuð leggjast að skila póst-
inum aftur á Pósthúsið í Reykja-
vík, og komst hann þar af leið
andi ekki með Esju um kvöldið.
I dag heldur sagan svo áfram.
Þá eru flognar tvær ferðir til
Eyja, og mun önnur flugvélin
hafa farið tóm, en hin tók aðeins
9 póstpoka af 20, sem voru í
vörzlum Flugfélagsins. Er nú
ekki lengur fært til Eyja í dag til
að fara þriðju ferðina. Póststjórn
in mun hafa gert ráðstafanir til
þess í dag, að ná í mótorbát í
Reykjavík, sem fer til Eyja, en
hann er ef til vill farinn, svo
óvíst er að pósturinn komist fyrr
en í vikulokin. Una Vestmann-
eyingar þessu illa sem von er
— á þessum tímum góðra sam-
gangna. — Bj. Guðm.
Mbl. reyndi í gærkvöldi að
nú sambandi við forráðamenn
Flugfélags Islands, ef þeir óskuðu
að birta athugasemd við ofan-
ritaða frétt, en tókst ekki að ná
í rétta aðila.