Morgunblaðið - 12.05.1960, Blaðsíða 4
4
MORCUNBLAÐIÐ
Fimmtudagur 12. maí 1960
Hafnarf jörður
Til leigu er 2ja herb. íbúð
í Miðbænum til 1. okt. n.k.
Fyrirspurnir sendist í póst
hólf 711, Hafnarfirði, fyrir
15. maí.
2 systur óska eftir 2ja herbergja íbúð. Hring- ið í síma 24160.
Húseigendur! Vantar 2—3 herb. íbúð nú þegar. Húshjálp kemur til greina. Uppl. í síma 12802. —
Húsnæði 2 herb. með aðg. að eldhúsi til leigu fyrir einhleypt, reglusamt fólk. Uppl. í síma 17826 frá kl. 6-—8 í dag. —
2 skrifstofuskrifborð til sölu, annað tvöfalt. Sími 14600 og eftir kl. 7 í kvöld og næstu kvöld 33274.
Saumur á gamla verðinu í pökkum 4” og 2’’ og IVz” ódúkkað 2” og 2Vz", dúkk- aður. Fæst í Þakpappaverk smiðjunni, Silfurtúni. — Sími 50001.
Verkstæðispláss til Ieigu Stærð 65 ferm. Tilboð send ist Mbl., fyrir sunnudag,. merkt: „3312“.
Ung barnlaus hjón óska eftir 2—3 herb. íbúð. Vinna bæði úti. Upplýsing- ar í síma 17307.
Tek að mér að skafa og lakka útihurð ir. — Sími 33281.
Stúlka vön saumaskap óskast. — SKÓGERÐIN h.f/ Rauðarárstíg 31. Sími 11092
Herbergi óskast Vantar herbergi með eld- unarplássi sem fyrst fyrir einhleypan, eldri mann. — Fyrirframgreiðsla. Uppl. í síma 14005.
Nýleg harmonikka til sölu að Brekkustíg 8. —
Barnavagn til sölu Sem nýr Silver-Cross barnavagn til sölu. — Upp lýsingar öldugötu 9, 3. hæð. —
Ungur og reglusamur maður óskar eftir einhverri hreinlegri vinnu. Ýmislegt gæti komið til greina. Uppi. í síma 36154.
íbúð 2—5 herbergja íbúð óskast til leigu. — Uppiýsingar í síma 34251.
í dag er fimmtudagur 12. maí,
133. dagur ársins.
Árdegisflæði kl. 05:54.
Síðdegisflæði kl. 18:17.
Slysavarðstofan er opin allan sólar-
hringinn. — Læknavörður L,.R. (fyrir
vitjanir), er á sama stað kl. 18—8. —
Sími 15030.
Vikuna 7.—13. maí er næturvörður í
Vesturbæjar-apóteki, en sunnudaginn
8. mai í Austurbæjar-apóteki.
Vikuna 7.—13. maí er næturlæknir í
Hafnarfirði Kristján Jóhannesson, sími
50056.
Holtsapótek og Garðsapótek eru opin
alla virka daga kl. 9—7 og á sunnudög-
um kl. 1—4.
Ljósastofa Hvítabandsins Fornhaga
8 er opin fyrir börn og fullorðna alla
virka daga kl. 2—5 e.h.
I.O.O.F. 5 = 1425128*^ = Spkv.
Aðgát skal höfð í nærveru sál-
ar. — Einar Benediktsson.
Sál lífvera er einnig og fjöldi í senn,
eins og tunglið, sem speglast í mörg-
um vötnum. —-
— Ur Upanishads.
Mig dreymir um eina alveldis sál,
um anda sem gjérir steina að brauði.
— Einar Ben.
Úti kyrrt er allt og hljótt,
ekki kvik á nokkru strái;
vindar sofa sætt og rótt,
sjávaröldur kúra í dái;
víður himinn, lögur, láð
ljóma, sunnugeislum stráð.
• Gengið •
Sölugengi
1 Sterlingspund ......... kr. 106,98
1 Bandaríkjadollar ....... — 38.10
1 Kanadadollar .......... — 39,25
100 Norskar krónur ......... — 534,25
100 Danskar krónur ......... — 551,80
100 Sænskar krónur.......... — 736,70
100 finnsk mörk ............ — 11,90
100 Franskir Frankar ....... — 776.30
10C Belgískir frankar ...... — 76,42
100 Svissneskir frankar .... — 878,70
100 Gyllini ................ — 1010,30
100 Tékkneskar krónur ...... — 528.45
100 Vestur-þýzk mörk ....... — 913.65
1000 J-irur ................. — 61,38
100 Pesetar ............... — 63,50
100 Austurr. schillingar ... — 146,40
Ungleg brosa grös á grund,
gróður prýðir laut og bala;
blómleg skreyta birkilund
blöðin græn í hlíöum dala;
fífill undir fögrum hól
faðminn breiðir móti sól.
Fuglinn býr er fyrrum svaf
fjarri byggð í skorum kletta,
vetrarblundi vakinn af
víða þreytir flugið létta;
hátt í lofti hörpu slær,
heilsar vori röddin skær.
Helgi Hálfdánarson: Vorblíða.
Lárétt: — 1 sveitar — 6 hátið —
7 matur — 10 á — 11 sjá — 12 nið
— 14 einkennisstafir — 15 vatns-
ins — 18 óslétt.
Lóðrétt: — 1 skip — 2 fitl —
3 létust — 4 raddar — 5 úði —
8 þeysir — 9 stækkuðu — 13 sjór
— 16 ósamstæðir — 17 skamm-
stöfun.
A LAUGARDAGINN lcggur
Karlakórinn Fóstbræður upp í
söngferðalag um Norðurlönd.
Með honum í förinni verð-
ur Sigurður Björnsson, sem
nú er í röð okkar beztu
söngvara.
Sigurður Björnsson er fædd-
ur 19. marz 1932 í Hafnarfirði,
sonur Björns Árnasonar, bif-
reiðastjóra í Hafnarfirði og
konu hans Guðfinnu Sigurðar-
dóttur. Sigurður lagði stund
á fiðlunám við Tónlistarskól-
ann í Reykjavík og lærði jafn-
framt söng hjá Guðmundi Jóns
syni. Er farið var að kenna
söng í Tónlistarskólanum
lærði Sigurður þar hjá Primo
Montanari og Kristni Halls-
syni og útskrifaðist frá skól-
anum með söng sem aðalnáms-
grein vorið 1956. Haustið eftir
fór hann utan til náms í Mún-
chen, og þar hefur kennari
hans verið Gerhard Húsch.
— Hefurðiu verið á tónlist
arskóla í Mún^hen eða í einka
tímum?
— í skóla, — Staatliche
Hochschule fúr Musik, nefnist
hann og þar hef ég sótt tíma í
söng, píanóleik, hljómfræði,
óperusögu, Ijoðasögu og al-
mennri músik sögu.
— Leggurðu eingöngu stund
á ljóðatónlist?
— Nei, einnig óratoríum
söng og óperur Mozarts og
óperur í Belcanto stil.
— Væri ekki vænlegra að
vera óperusöngvari upp á
ítalskan máta að því er við
kemur atvinnumöguleikum?
— Jú, eflaust er það, en
bæði er það að mér leiðist
fremur ítalskur óperusöngnr
og svo er rödd mín ekki eins
heppileg fyrir slíkan söng og
óratoríumsöng. Alla vega sam-
ræmist það illa að syngja
hvort tveggja.
En það er mjög erfitt að
koma fram sem nýr og óþekkt-
ur söngvari, því að oftast er
það að menn fá fyrst nafn
eftir að hafa sungið í óperum.
— Hvað hyggstu vera lengi
undir handarjaðri Húsch?
— Það er ekki gott að segja.
Ég hef verið á þýzkum styrk
si. ár og er ég að vona að hann
verði framlengdur um eitt ár
enn.
— Hefurðu sungið opinber-
Iega úti nýlega?
— Já, ég er nú að koma frá '
Bilbao á Spáni, en þangað fór
ég með Gerhard Húsch og söng
í Mattheusarpassíunni eftir
Bach og Sköpuninni eftir
Haydn. Er ég ráðinn til að
syngja þar aftur um næsbu
páska.
í vetur söng ég með Brúckn-
er Rúggeberg í Hamborg og
þegar til Múnchen kemur mun
ég halda þar hljómleika á veg-
um skólans.
— Hvað verður þegar námi
er lokið? Kemurðu heim?
— Ætli það — hér verður
ekkert fyrir mig að gera —
nema syngja við jarðarfarir.
— Þá er eins gott að fara á
sjóinn.
JÚMBÖ
Saga barnanna
— Manstu eftir kvöldinu, þegar við
fylgdum herra Leó til krárinnar
„Svarta skipsins"? Á meðan við bið-
um fyrir utan, var hr. Leó að tala við
gamla sjóræningjaforingjann.
— Þegar ég var lítill, sagði Bola-
bítur skipstjóri, átti ég hvorki föður
né móður. Ég gekk aldrei í skóla —
og þess vegna varð ég bara að gerast
sjóræningi, þegar ég- varð stór. Nú
iðrast ég og vil fá hjálp þína.
— Hérna er kort, sem sýnir, hvar
fjársjóður minn er falinn. Farðu nú
og sæktu hann. Peningana vil ég gefa
munaðarlausum börnum. Þá geta þau
gengið í skóla og lært eitthvað — og
þurfa ekki að gerast sjóræningjar.
Jakob blaðamaður
Eftir Peter Hoffman
— Ég get ekki .. hrevft mig ....
get ekki ___
Á meðan, í veitingavagni lestar-
innar. —•
— Áttu við að þú ætlir loksins að
hætta að borða?
—- Já, það er kominn tími til að
fara að heimsækja farþegana, sér-
staklega einn þeirra!