Morgunblaðið - 12.05.1960, Page 8
8
MORGVNBLAÐIÐ
Fimmtudagur 12. maí 1960
Af 20 milli. dala heimild hefur verið tekið
7,8 millj. dala lán
til greidslu skulda
Upplýsingar um gjaldeyrislántökur
gefnar á Alþingi í gœr
í GÆR var á dagskrá Sam-
einaðs Alþingis fyrirspurn
um gjaldeyrislántöku ríkis-
stjórnarinnar frá Eysteini
Jónssyni.
Fyrirspurnin var svohljóðandi:
„Hvað er búið að nota mikið
af heimildum þeim til gjaldeyr-
islántóku, sem ríkisstjórnin afl-
aði sér með efnahagslöggjöfinni
í vetur?
Úr tveim áttum
Gylfi Þ. Gíslason, viðskipta-
málaráðherra, varð fyrir svörum
og upplýsti, að í samrsemi við
„kvóta“ sinn hjá Alþjóðagjald-
eyrissjóðnum og þá samninga,
sem gerðir hefðu
verið við sjóðinn
á sl. vetri, gæti
ísland keypt
gjaldeyri af
sjóðnum f y r i r
samtals 8,4 millj
bandaríska dali.
Af þessari heim-
ild hefðu nú ver
ið n o t a ð i r 2,8
millj. dalir, en það samsvaraði
gúll innborgun íslands í sjóðinn.
Ennfremur skýrði ráðherrann
frá því, að yfirdráttarlánið hjá
Evrópusjóðnum væri 12 millj.
bandarískir dalir — og hefðu
af þeirri upphæð nú verið notaðir
5 millj. dalir.
Bankaskuldir greiddar
Samtals hefðu því verið not
aðar 7,8 milljónir af þeim 20
milljónum bandarískra dala,
sem til ráðstöfunar væru hjá
þessum tveim stofnunum.
Þetta fé hefði eingöngu verið
notað til þess að greiða yfir-
dráttarskuldir íslenzkra banka
við erlenda, en þær liefðu ver-
ið mjög háar ,þegar gengis-
breytingin var framkvæmd.
Gegn miklum lántökum
Eysteinn Jónsson þakkaði fyrir
þessar upplýsingar. Hann kvaðst
vilja nota tækifærið til að vara
ríkisstjórnina enn einu sinni við
miklum gjald-
syrislántökum.
Þó að ráðstaf-
inir hennar í
efnahagsmálun-
am væru hugs-
xðar til jafnvæg
;s, mundu þær
xð öllum líkind-
im leiða af sér
5jafnvægi. Þeg-
ar svo væri komið, mundu gjald
eyrisskuldirnar verða okkur fjöt
ur um fót.
Frekari umræður urðu ekki
um málið.
Flugbrautin
á Raufarliöfn
stælíkuð
RAUFARHÖFN, 11. maí. — Mikil
atvinna hefur verið hér undan-
farið. I gær var hafin stækkun á
flugbrautinni, en ætlunin er að
lengja hana upp í 550—600 m,
svo stærri flugvélar en sjúkra-
flugvélar geti lent á henni. Þá
hefur verið unnið að endurbótum
á Síldarverksmiðjunni og mikil
•vinna í sambandi við það. Afli
hefur verið góður í vor eins og
venjulega. — Undanfarið hefur
verið mikil veðurblíða, eins og
víðast hvar á landinu, og krían
kom óvenjulega snemma í vor,
rétt upp úr mánaðamótum.
Þált. Bjartmars Guðmundssonar o.H.
Vegalog endurskoð-
uð fyrir næsta þing
Lagt hefur verið til að auka jbjóð-
vegakerfið um nær 1200 km
BJARTMAR Guðmundsson og fleiri alþingismenn lögðu í
gær fram á þingi ályktunartillögu um að ríkisstjórninni
verði falið að láta fram fara athugun og endurskoðun á lög-
um um þjóðvegi, sýsluvegi, fjallvegi og hreppavegi — og sé
endurskoðuninni lokið áður en næsta reglulegt Alþingi
kemur saman.
Með þingsályktunartillögunni
fylgir greinargerð af hálfu flutn-
ingsmanna, sem auk Bjartmars
Guðmundssonar eru þeir Sigurð-
ur Ágústsson, Jón Arnason, Ein-
ar Sigurðsson, Björn Pálsson og
Benedikt Gröndal. Auk þess er
birt sem fylgiskjal umsögn Vega
málastjóra um tillögur þær, sem
gerðar hafa verið á Alþingi nú
tun breytingar á vegalögum.
1 greinargerðinni segir svo:
Fram hafa komið á Alþingi
því, sem nú er senn að ljúka,
margar breytingartillögur við
vegalög Lúta þær allar að því
að leggja til, að vegalög verði
opnuð og vegaspottum í öllum
kjördæmum landsins, nema
RÆykjavíkurkjördæmi og Reykja
neskjördæmi, verði bætt inn á
þjóðvegakerfið. Alls er þar um
allmikla aukningu að ræða við
þjóðvegakerfið, eða 1163,4 km.
Álit vegamálastjóra
Á sinum tíma var öllum þess-
um breytingartillögum vís-
að til samgöngumálanefnda
þingsins, en þær sendu
hins vegar tillögurnar til vega-
málastjóra til umsagnar. Komið
er nú frá honum ýtarlegt álit,
sem gengur í aðalatriðum í þá átt
að leggja til að vegalög verði
ekki opnuð á þessu þingi, þar
sem fjárframlög til þjóðvega séu
svo takmörkuð, að taka muni um
30 ár að fullgera þá þjóðvegi,
sem þegar hafa verið ákveðnir,
með viðlíka fjárframlagi árlega
og verið hefur hin síðustu ár.
Liðin eru nú 5 ár, síðan vega-
lög hafa verið opnuð, og er það
lengri tími en verið hefur áður.
Að undanförnu hafa viðaukar
við þjóðvegakerfið einkum verið
þannig til komnir, víða a. m. k.,
að kaflar sýsluvega hafa verið
teknir inn, en sýsluvegakerfið
hins vegar fært út heima fyrir
að sama skapi.
Ákvæði gömul og úrelt
Eins og nú hagar háttum
Þetta er mynd af de Havilland „Caribou" — hreindýrinu —
flugvél, sem sumir telja að hentug sé til innanlandsflugs hér.
Flugvél af þessari gerð er væntanleg hingað til lands síðar i
Vonir bundnar við flugvélina
Flugmálaráðherrá, Ingólfur
Jónsson, taldi réttmætt að vonir
væru bundnar við ,Caribou“ flug-
vélarnar og væri ákjósanlegt, ef
hægt yrði að reyna slíka vél hér
í nokkrar vikur. Það yrði vissu-
lega mikill sparnaður, ef kom-
ast mætti af með flugbrautir, sem
aðeins væri þriðjungur af lengd-
þeirra, sem nú eru notaðar. A
hinn bóginn kostuðu flugvélar
þessar tugmilljónir og væru svo
nýjar af nálinni, að naumast væri
komin á þær nægileg reynsla.
Ef í ljós kæmi við athugun, að
flugvélin hentaði vel hér og kunn
áttumenn teldu skynsamlegt að
ráðast í kaupin, yrði að sjálf-
sögðu leitazt við að útvega fjár-
magn til að eignast slíka flugvél.
mánuðinum. —
Verði staðsett hér um skeið
t Alþingi r gœr ;
,Caribou' flugvéi
Magnús Jónsson benti á það, að
bandaríski flugherinn hefði
keypt allmargar flugvélar af
„Garibou" gerð og mætti því e. t.
v. ná samkomulagi við varnarlið-
ið um að slík flugvél yrði stað-
sett hér um nokkurt skeið og hún
reynd við islenzkar aðstæður.
reynd bráðlega
Tillaga um að athugað verði, hvort sú
tegund henti ekki innanlandsfluginu bezt
Á FUNDI Sameinaðs þings í vélar þyrftu, er nú væru notað-
...... . ar i innanlandsflugi hérlendis.
gær, fylgdi Sigurvm Einars-
Fleiri kvöddu sér ekki hljóðs
og var tillögunni vísað til at-
hugunar í nefnd.
Þess má að lokum geta, að
nokkuð var um flugvélategund
þessa rætt á Alþingi fyrir rúmu
ári. Þá hafði minni reynzla
af henni fengizt og voru skoðan-
ir skiptar um það, hversu hent-
ugt mundi vera að kaupa slíka
son úr hlaði ályktunartillögu
um að ríkisstjórnin láti at-
huga, hvort de Havilland
„Caribou“ flugvélar, sem
smíðaðar eru í Kanada, muni
ekki henta öðrum flugvélum
betur til innanlandsflugs hér.
Þurfa stutta flugbraut
Þær mætti nota til margvís-
legra fluttninga, m. a. gætu þær
flutt 20—30 farþega, og væri4
meginkostur þeirra sá, að þær
þyrftu ekki nema um 150 m langa
flugbraut þegar skilyrði væru
góð og kæmust af með 400—540
m langar brautir við hin erfið-
ustu skilyrði, í stað allt að 1200
m langia brauta, sem þær flug-
manna og viðskiptum, er hvert
byggðarlag svo að segja dæmt úr
leik, sem ekki hefur sæmilegt
vegasamband, svo og einstök býli.
í fjölmörgum byggðarlögum er
ástandið að þessu leyti enn al-
gerlega óviðunandi að meira og
minna leyti, jafnvel sums stað-
ar þar, sem þó eru sæmilegir ak-
vegir um aðalbyggðirnar. Ur
þessu verður að bæta, og til þess
eru ýmis ráð.
Þjóðvegakerfið verður að færa
eitthvað út frá því, sem nú er,
og fjárframlög til þjóðvega er
óhjákvæmilegt að auka á næstu
árum, jafnvel afla lána til að
hraða þar einstökum vegalagning
um. Fjárráð sýsluveganna verður
og að auka í miklum mæli, einn-
ig fjárráð hreppavega. Akvæði
um sýsluvegi og sýsluvegasjóði
eru gömul og úrelt og tekjur
þeirra nú af fasteignum heima
fyrir og framlög úr ríkissjóði á
móti í engu samræmi við þörf
eða það, sem upphaflega var,
þegar lög þessi voru sett.
Þörf á miklum umbótum
Hin síðari ár hefur lítið sem
ekkert verið hægt að vinna að
nýlagningu sýsluvega, nema þá
helzt fyrir lánsfé. Tekjur þeirra
hafa farið í að halda akfærum
þeim köflum, sem komnir eru
og flestir gerðir af vanefnum.
Hvar sem litið er á vegi, blasir
við pörf á miklum umbótum.
Endurskoðun sú, sem þings-
ályktunartillaga þessi leggur
til að fram fari á vegum
ríkisstjórnarinnar, er nauðsynleg
og ætti að geta leitt til mikillar
úrlausnar í vandamáli, og henni
þyrfti að hraða svo mikið, að
mái þetta gæti fengið afgreiðslu
á næsta reglulegu Alþingi.
Smíði hófst fyrir þrem árum
Allmikil reynsla hefði þegar
fengizt af „Caribou“ flugvélunum
og virtust þær yfirleitt gefast
heldur betur, en lofað var af verk
smiðjunni, þegar framleiðsla
var hafin fyrir u. þ. b. þrem
árum. Æskilegt væri að fá sem
fyrst úr því skorið, hvert nota-
gildi „Caribou“ flugvélanna væri
hér.
Kemur hingað bráðlega
1 framhaldi af þessu skýrði
Sigurvin Einarsson frá því, að
fyrir atbeina flugmálastjóra
mundi innan skamms gefast tæki
færi til að athuga allítarlega flug-
kosti „Caribou" flugvélanna, en
ein slík flugvél mundi staldra
við hér á landi um sólarhrings-
skeið einhvern tíma milli 20. og
23. maí. Mundi verða reynt að
fá þá dvöl framlengda ef hægt
væri.
flugvél hingað til lands. Verður
fróðlegt að fylgjast með, hver
niðurstaðan verður að þessu
sinní.
Gunnar Friðriksson
kosinn forseti SVFÍ
TÍUNDA landsþingi Slysavarha-
félags íslands lauk í gærkveldi,
eftir að hafa setið á rökstólum
síðan á sunnudaginn var. Síðasta
málið, sem þingið gekk frá var
að venju kosning stjórnar og
trúnaðarmanna. Forseti félagsins
Guðbjartur Ólafsson, lýsti því
yfir, að hann mundi nú ekki fram
ar gefa kost á sér til þess að
veita félaginu forstöðu. Lét þing
ið á eftirminnilegan hátt í ljós
þakklæti til hans fyrir brigðu-
Iaust starf í þágu félagsins og sí
vakandi árvekni og veivilja á
undanförnum árum.
Síðan var gengið til stjórnar-
kjörs.
Gunnar Friðriksson, fram-
kvæmdastjóri var kjörinn forseti
Slysavarnafélags íslands. Hafði
hann undanfarið gegnt formanns
störfum i byggingarnefnd Slysa-
varnahússins, og sýnt afburða
dugnað í því starfi. Hann var
kjörinn mótatkvæðalaust, og
mátti fremur kalla að um hyll-
ingu væri að ræða en kosningu,
því þingheimur allur reis úr sæt
um og fagnaði hinum nýja for-
seta.
Stjórn Slysavarnafélags íslands
næstu 2 ár skipa því: Forsetí
Gunnar Friðriksson, framkvstj.;
féhirðir Árni Árnason, kaupmað-
ur. — Meðstjórnendur eru: Gróa
Pétursdóttir, frú; Rannveig Vig-
fúsdóttir, frú; Friðrik Ólafsson,
skólastjóri; Ólafur Þórðarson,
skipstjóri, og Baldur Jónsson,
framkvæmdastjóri. — Varameð-
stjórnendur eru: Árni Sigurjóns-
son; Ingibjörg Pétursdóttir, frú;
Jón Oddgeir Jónsson; Sigurjón
Einarsson og Geir Ólafsson.
Meðstjórnendur fyrir lands-
fjórðunga eru. Fyrir Sunnlend-
ingafjórðung: Frú Sigríður Magn
úsdóttir, Vestmannaeyjum. Fyrir
Vestfirðingafjórðung: Þórður
Jónsson, Látrum. Fyrir Norðlend
ingafjórðung: Júlíus Hafstein,
fyrrverandi sýslumaður, Reykja-
vík. Fyrir Austfirðingafjórðung:
Árni Vilhjálmsson, erindreki,
Reykjavík.
Varameðstjórnendur fyrir
landsfjórðungana eru: — Fyrir
Sunnlendingafjórðung: Bergur
Arinbjarnarson, Akranesi. Fyrir
Vestfirðingafjórðung: Arngrím-
ur Fr. Bjarnason, ísafirði. Fyrir
Norðlendingafjórðung: Egill
Júlíusson, Dalvík. Fyrir Austfirð
ingafjórðung: Þórunn Jakobsdótt
ir, frú, Norðfirði.
Endurskoðendur félagsins fyr-
ir næsta kjörtímabil, voru kosn-
ir: Þorsteinn Árnason og Sigur-
jón Sigurbjörnsson. Varaendur-
skoðandi Jón Jónsson.