Morgunblaðið - 12.05.1960, Blaðsíða 10
10
MORCVNBLA f>l Ð
Fimmtudagur 12. maí 196C
Erlendur
Magnússon
Kálfatjörn
sjötugur
ÞAÐ var í Tíðagerði, litlum og
landnytjasmáum bæ á Vatns-
leysuströnd, að hjónunum þar,
Magnúsi Magnússyni og Herdísi
Jónsdótfur fæddist sonur hinn
12. maí 1890. Hlaut hann nafnið
Erlendur. Strax hefur þessi
ungi sveinn fengið dýrmætar
vöggugjafir dyggða og marg-
þættra mannkosta. Hann er hið
þriðja barn foreldranna, tvær
systur eldri; sem báðar dóu í
blóma lífsins, nær um tvítugs
aldur. Hafa það að sjálfsöðu ver-
ið þungar raunastundir fyrir
foreldra ungu systkinanna, sem
þá voru eftir tvö. Enn var Er-
lendur á unga aldri er faðir hans
missti heilsuna og að honum
látnum bjó hann með móður
sinni og systur þar til 1915. En
á því ári gekk hann að eiga
Kristínu Gunnarsdóttur frá
Skjaldarkoti. Um þeirra sambúð
má segja: Það var hjónaband
svo gott að af bar. Fimm urðu
þeirra mannvænleg börn auk
eins fóstursonar og eru öll á lífi.
Það er að vonum þungt þeim
sem eftir lifir er leiðir skilja. En
Kristín andaðist 14. janúar 1957.
Um Erlend væri nóg efni í
langa afmælisgrein. En hér verð-
ur farið fljótt yfir sögu. Ekki
var aldurinn hár, þegar ráðizt
var á þann starfsvettvang er
frekar hæfir þeim fullþroskuðu.
Aðeins 12 ára réðist Erlendur
fyrst á skútu, raunar ásamt föð-
ur sínum. Upp frá því stundaði
hann sjóinn meira og minna um
langa tíð. Mikið áræði og átak
var það þegar þau hjón Kristín
og Erlendur eftir 5 ára búskap
á litla býlinu í Tíðagerði og með
5 ung börn, réðust í að flytja og
reisa bú að Kálfatjörn, Áreiðan-
lega voru eignirnar ekki miklar
utan það sem drýgst kunni draga,
bjartsýni, kjarkur og atorka. Hef
ur sannarlega reynt á manndóm
og viljafestu Erlendar þá, það
því fremur, sem kona hans veikt-
ist, einmitt um þetta leyti, svo
snögglega mjög mikið. Hún
komst þó til nokkurrar heilsu
aftur.
Nú eru þá búskaparár Erlend-
ar á Kálfatjörn orðin 40 talsins,
og störf hans því mest við þann
stað bundin. Ég ætla ekki að
hafa mörg orð um athafnir hans
þar. íveruhús, fjós og fjárhús
hefur verið endurbyggt og gripa
húsin raunar aukin stórlega. Já,
og þeir, sem sáu Kálfatjarnar-
túnið fyrir 40 árum síðan og sjá
það aftur í dag, mega sannfær-
ast að hér hefur ekki verið setið
auðum höndum. Og hvað sem
krakkahnokka eða hálffarlama
gamalmenni lægi á, að komast á
hestbak, myndi hvergi bakþúfu
að finna. Já, út á flest má eitt-
hvað setja.
Vegna hæfileika sinna og hald
góðrar sjálfsmenntunar — því
ekki var um langskólagöngu að
ræða — hefir Erlendur ekki
komizt hjá að inna aí höndum
V teikningunni sést vel hvernig hin nýja flugstöðvarbygging verður. — Minni byggingarnar til
iægri eru ekki reistar enn. „Fingurnir“ sjást vel og hvernig flugvélunum verður rennt upp að
þeim. —
Stærsta opinber bygg
ing í Danmörku
Kaupmannahöfn, 30. apríl
í DAG var hin stækkaða og
endurbætta flugstöð í Kast-
rup vígð. Þetta var þó í raun-
inni ekki nema táknræn
vigsla. Mikið vantar á að nýja
ílugstöðvarbyggingin sé full-
gerð. Að vísu verður hún tek-
in í notkun á morgun, þegar
„Dan Viking“, fyrsta DC-8
þotan, sem SAS hefur eignast,
leggur af stað í fyrstu áætl-
unarferðina. Hún á að fljúga
milli Stokkhólms Kaupmanna
hafnar og New York. Þessi
risaþota verður afgreidd frá
nýju flugstöðvarbyggingunni.
En annars verður nýja bygg-
ingin ekki notuð fyrr en í
fyrsta lagi um miðjan maí. Ef
til vill dregst það lengur.
Þarna er mikið ógert. Veldur
því ekki hvað sízt skortur á
verkamönnum.
Nýtt tímabil.
Verða flugvélarnar því
fyrst um sinn afgreiddar frá
gömlu flugstöðvarbygging-
IMýja flugstoðin á Kastrup
unni, þrátt fyrir hina hátíð-
legu vígslu í dag. Hún fór.
fram í afgreiðslusal nýju bygg
ingarinnar. Margt manna var
þar saman komið. Voru kon-
ungshjónin þarna viðstödd.
Kai Lindberg samgöngumála-
ráðherra hélt vígsluræðuna.
Að því búnu var gengið út á
svæðið framan við bygging-
una. Konungur klippti þar í
sundur rauða snúru. 1 hvítur
og 9 rauðir loftbelgir hófust í
loft upp. Um leið renndi „Dan
Viking“ sér að flugstöðvar-
byggingunni. Konungur mælti
nokkur orð og sagði m. a„ að
með þessum viðburði hefjist
nýtt tímabil í samgöngum
Dana.
Stærsta opinbera bygg-
ingin.
Nýja flugstöðvarbyggingin
er stærsta opinbera bygging-
in í Danmörku. Hún er 160
m löng, 67 m breið og 13 m
há. Þarf eins mikið eldsneyti
til að hita hana upp og bæ með
5000 íbúum.
Á götuhæðinni er hinn mikli
afgreiðslusalur. Á fyrstu hæð
er m. a. biðsalur fyrir fram-
haldsfarþega. Rúmar hann
1.000 manns á móts við 350
í gömlu byggingunni. í kjall-
aranum eru snyrtiherbergi.
salerni og baðherbergi. Þar
eru líka hvíldarherbergi, þar
sem fólk getur sofið, meðan
beðið er eftir flugvélum. Á 2.
hæð eru stórar svalir fyrir
almenning. Getur fólk, sem
þarna er, séð flugvélarnar
koma og fara.
24 flugvélar afgreiddar
í einu.
Farþegar sem ætla út á flug
völl, ganga úr afgreiðslusaln-
um upp á 1. hæð og koma þar
inn í hina svokölluðu „fingra“
sem eru nýjung í Kastrup.
Vekja þeir ekki hvað sízt eft-
irtekt. Þessir „fingur'* eru
yfirbyggð göng, sem gerð hafa
verið frá flugstöðvarbygging-
unni út á flugvöllinn. Geta
farþegarnir því gengið inn-
an dyra út að flugvélunum.
„Fingurnir“ eru tveir, hver
þeirra h. u. b. 300 m að lengd.
Eru 12 flugvélastæði við
hvern þeirra. Hægt er að af-
greiða þarna 24 flugvélar í
einu.
Stæði þotanna verða við
enda „fíngranna“. Farþegar,
sem skipta um þotur í Kast-
rup, eiga því alllanga göngu-
för fyrir höndum. Fyrst verð;
þeir að fara frá flugstæðini
upp stiga, svo gegnum 300 m
löng göng, því næst kemur
dálítill spölur í flugstöðvar-
byggingunni, og loks verða
farþegarnir að fara aftur gegn
um göngin út að flugvélinni.
Þetta getur orðið nálega 3/4
km.
Flugbrautirnar hafa sem
kunnugt er verið lengdar, til
þess að þotur geti notað þær.
Svæðið framan við flugstöðv
arbygginguna nýju er 168.00(
fermetrar eða sjö sinnun
stærra en Ráðhústorgið i
Kaupmannahöfn. Flugvöllur-
inn er 6.8 milljónir fermetra
á stærð.
Eldsneytisgeymar fylltú
á 15 mín.
Eldsneytisleiðsla hefur ver-
ið lögð frá olíu- og benzín.
eyjunni „Prövesten“ til olíu-
og benzíngeyma á flugvellin-
um. Þaðan verður eldsneytim;
dælt í flugvélarnar. Er hægt
að fylla eldsnéytisgeyma stórr
ar þotu á 15 mínútum, þótt
þeir rúmi 80.000 lítra.
Tuttugu blaðamenn eru
boðnir í fyrstu áætlunarferð
„Dan Vikings" á morgun. —
Annars verður þessi viðburð-
ur ekki haldinn hátíðlegur.
Meira verður um dýrðir, þeg-
ar SA'S sendir fyrstu DC-þotu
í fyrstu áætlunarferðina til
Los Angeles. Verður það 3.
júní nk. Er gert ráð fyrir, að
þrjár skandinaviskar prins-
essur, ein frá hverju landi,
fari með þessari flugvél. Mar-
grét ríkiserfingi Dana verð-
ur ein þeirra.
Loks má nefna, að SAS-
gistihúsið mikla á Vesturbrú
mun verða tekið i notkun 15.
júní nk. Kosta þar herbergi
handa einum 42—175 d. kr. og
handa tveimur 85—250 d kr.
Samt sem áður munu öll her-
bergin vera pöntuð frá byrj-
un júlí til septemberloka.
Páll Jónsson.
mjög mörg störf fyrir hveit sína
og samfélag. í hreppsnefnd var
hann nær 40 ár, þar
með oddviti um skeið. For-
maður Búnaðarfélags Vatns-
leysustrandarhrepps. — í
stjórn Mjólkurfélags Reykja-
víkur og fulltrúi hreppsins þar.
Fulltrúi í Stéttarfélagi bænda frá
stofnun þess og í sóknarnefnd
og safnaðarfulltrúi um fjölda ára.
Sjálfsagt er margt enn ótalið, en
þetta ætti að nægja til að sýna
að honum hefur verið treyst til
margs og hefur líka sízt brugðist
því trausti. En geta má nærri
að í þessi mörgu störf hefur
verið fórnað miklum tíma og
fyrirhöfn.
Góði vinur, ég þekkti heimili
þitt af eigin raun og ef ég ekki
lít á hlutina eitthvað allt öðru
vísi en allir aðrir, þá held ég,
að allir sem hjá ykkur Kálfa-
tjarnarhjónunum hafa verið,
lengri eða skemmri tíma hafi
mátt bera heimili ykkar hinn
fegursta vitnisburð.
Þú hlýtur að fá margar vin-
arkveðjur í dag og ég og allir
biðja guð að blessa þér förina á
áttunda tuginn.
J. H.
F e r m i n g
á Siglufirði og Patreksfirði
Ferming í Siglufjarðarkirkju
Sunnudaginn 15. maí
(Prestur: Séra Ragnar Fjalar Lárusson)
S t ú 1 k u r :
Anna S. Arnadóttir, Túngötu 27
Auður S. Olafsdóttir, Túngötu 9
Guðbjörg O. Björnsdóttir, Suðurgötu 2
Guðlaug J. Aðalsteinsd., Hvann.br. 51
Guðrún B. Jóhannesdóttir, Hólaveg 9
Hugljúf H. Sigurðardóttir, Hólaveg 31
Jóhanna S. Eiríksdóttir, Þormóðsg. 23
Margrét O. Eyjólfsdóttir, Grundarg. 10
Olöf H. Ragnarsdóttir, Lindargötu 26B
Sigríður A. Þórðardóttir, Laugarv. 35
Soffía A. Friðgeirsdóttir, Hlíðarv. 34
Sólveig Jónsdóttir, Laugarveg 10
Unnur B. Pálsdóttir, Suðurgötu 18
Þyri S. Hólm, Hvanneyrarbraut 17
Drengli :
Albert S. Rútsson, Þormóðsgötu 23
Birgir Vilhelmsson, Hvanneyrarbr. 26
Gylfi V. Ægisson, Túngötu 36
Halldór Vilhjálmsson, Hlíðarveg 4
Ingvar B. Björnsson, Hverfisgötu 28
Jens Þórisson, Gránugötu 25
Jón Gunnlaugsson, Lækjargötu 6
Jón Orn Snorrason, Túngötu 25
Jóhann P. Halldórsson, Suðurgötu 61
Jóhann Skarphéðinsson, Lindarg. 11
Konráð K. Baldvinsson, Hvann.br. 68
Magnús E. B. Jónasson, Grundarg. 6
Sigurður Helgason, Suðurgötu 41B
Omar Ingimundarsson, Hafnargötu 10
Sigurður Jónsson, Hvanneyrarbr. 28B
Skarphéðinn Guðmundsson, Hávegjr 26
Stefán G. Jóhannsson, Lækjargötu 9
Þórleifur J. Haraldsson, Hólavegi 18
Þórarinn Guðbjartsson, Hafnargötu 10
Sunnudaginn 22. maí
S t ú 1 k u r :
Anna G. Guðbrandsdóttir, Hlíðarv. 3C
Agústa I. Pétursdóttir, Suðurgötu 22
Dröfn Pétursdóttir, Hverfisgötu 19
Elín A. Gestsdóttir, Steinaflötum
Guðfinna A. Jóhannesdóttir, Hávegi 3
Guðfinna Oskarsdóttir, Suðurgötu 68
Ingibjörg Kristjánsdóttir, Hólav. 69
Jóhanna D. Jónsdóttir, Laugarveg 44
Jóhanna Rögnvaldsdóttir, Suðurgötu 51
Nanna B. Sigurðardóttir, Suðurgötu 51
Olína S. Björnsdóttir, Hlíðarvegi 3
Olöf Guðmundsdóttir, Hvann.br. 72
Sigríður Magnúsdóttir, Túngötu 27
Þórkatla Sigurbjörnsdóttir, Laugarv. 23
Drengir :
Agúst E. Vilhelmsson, Hávegi 5
Björn M. Björnsson, Hlíðarvegi 7B
Björn I. Sigurbjörnsson, Grundarg. 6
Eyþór Þorsteinsson, Eyrargötu 14
Freysteinn Jóhannesson, Hverfisgötu 4
Guðbrandur S. Gústafsson, Fossv. 20
Halldór V. Kristjánsson, Hvann.br. 21B
Jón H. Pálsson, Norðurgötu 5
Jón H. Sigurbjörnsson, Laugarv. 23
Karl J. Lilliendahl, Hverfisgötu 7
Kristinn H. Eldjárnsson, Hvann.br. 21
Níels Friðfinnsson, Vetrarbraut 6
Oskar S. Arnason, Norðurgötu 7
Oli Hertervig, Laugarveg 32
Sigurður Hafliðason, Lindargötu 16
Sigurmar K. Albertsson, Hvann.br. 23B
Stefán Jónasson, Kirkjust. 9
Viktor Þ. Þorkelsson, Suðurgötu 24B
Ferming í Patreksfjarðarkirkju
Sunnudaginn 15. maí.
(Prestur: Séra Tómas Guðmuudsson)
S t ú 1 k u r :
Aldís Jónsdóttir
Auður Kristinsdóttir
Asgerður Agústsdóttir
Bryndís Friðþjófsdóttir
Brynhildur Bjarnadóttir
Elín Herdís Þorkelsdóttir
Friðgerður Friðgeirsdóttir
Hrafnhildur Guðmundsdóttir
María Olga Traustadóttir
Sigríður Gísladóttir
Sigríður Mikaelsdóttir
Sigþrúður Ingimundardóttir
Þórunn Helga Sveinbjarnardóttir.
Drengir:
Eiður Bragason
Friðrik Haraldsson
Halldór Gunnarsson
Helgi Sæmundsson
Hreinn Kjartansson
Jóhann Svavarsson
Jón Arason
Jón Björn Gíslason
Kristinn Jóhannes Guðjónsson
Sigurður Jóhannsson