Morgunblaðið - 12.05.1960, Side 11
Fimmtudagur 12. maí 1960
MORCTJNHT AfílÐ
11
100 ára
afmælis Sr. Þor-
vaidar Jakobssonai
minnzt
PATREKSFIRÐI, 8. maí: f dag
var mikið fjölmenni við guðs-
þjónustu í Sauðlauksdalskirkju.
Voru þar og einnig staddir þrír
sóknarprestar auk prófasts pró-
fastsdæmisins, sr. Jóns ísfeld
frá Bíldudal. Fyrir altari þjón-
uðu þeir sr. Grímur Grímsson,
sóknarprestur í Sauðlauksdal og
sr. Tómas Guðmundsson, sókn-
arprestur á Patreksfirði. Séra
Kristján Búason sóknarprestur í
Ólafsfirði, prédikaði, en sr. Jón
Kr. ísfeld prófastur þjónaði eft-
ir prédikun.
Að lokinni guðsþjónustu var sr.
Þorvalds Jakobssonar fyrrver-
andi sóknarprests í Sauðlauksdal
minnzt. En hinn 4. maí sl. voru
100 ár liðin frá fæðingu hans. í
því tilefni voru börn og tengda-
börn mætt ásamt sonarsyni hans
sr. Kristjáni Búasyni, sem minnt
ist afa síns og ömmu af stól.
Ræður fluttu sr. Grímur Gríms
son, sóknarprestur. Snæbjörn
J. Thoroddsen, Kvígindisdal, Jón
Kr. ísfeld prófastur og sonur
sr. Þorvalds, Finnbogi Rútur
Þorvaldsson prófessor, flutti
hann hluta af kveðjuræðu sr.
Þorvalds til sóknarbarna sinna,
er hann kvaddi söfnuði sína fyr-
ir 40 árum.
Börn sr. Þorvalds og Magða-
lenu Jónasdóttur, afhentu Sauð-
lauksdalskirkju að gjöf Guð-
brandarbiblíu — ljósprentaða —
til minningar um foreldra sína.
Fór athöfn þessi fram með hin
um mesta virðuleik, og sýndu
viðstaddir á þann hátt virðingu
sína og þökk til hins liðna heið-
ursfólks.
Að lokinn kirkjuathöfninni var
öllum boðið til kaffidrykkju.
Þorvaldur Jakobsson var
fæddur 4. maí 1860 að ’Staðar-
bakka í Miðfirði og andaðist 8.
maí 1954. Foreldrar hans voru
Jakob Finnbogason, prestur í
Steinnesi og kona hans Þuríður
Þorvaldsdóttir prófasts í Holti
undir Eyjafjöllum. Hann varð
stúdent frá Reykjavík 1881 og
cand. theol. 1883, Honum var
veittur staður í Grunnavík 1883,
síðan Brjánslækur 1884 og loks
Sauðlauksdalur 1896. Auk þess
hafði hann aukaþjónustu í Otrar
dalsprestakalli um 2 ára skeið.
Lausn frá embætti fékk hann
1919. Gerðist hann nokkru síð-
ar kennari við Flensborgarskól-
ann og gegndi því starfi til
ársins 1934. Hann gegndi og
mörgum trúnaðarstörfum fyrir
sýslur þær og hreppsfélög, er
hann dvaldist í. Riddari af Fálka
orðunni varð hann 1935.
Kvæntur var séra Þorvaldur
Magðalenu Jónasdóttur, Jóns-
sonar bónda á Hallbjarnareyri í
Eyrarsveit. Lést hún 1942 83 ára
að aldri eftir 53 ára hjúskap. —
Síðari ár ævi sinnar helgaði sr.
Þorvaldur sig einkum ritstörf-
um. —Trausti.
Sérleyfisferðir í Rangárvallasýslu
Reykjvík — Miílakot:
10 maí — 31. maí, þrjár ferðir í viku: Frá Reykja-
vík —- þriðjudaga, fimmtudaga og laugardaga kl. 14.
Frá Múlakoti sijmu daga kl. 9.
1. jnúí-31. ágúst, fjórar ferðir í viku: Frá Reykja-
vík — mánudaga, þriðjudaga, fimmtudaga og laug-
ardaga kl. 14. — Frá Múlakoti — sunnudaga kl. 17,
þriðjudaga, fimmtudaga, og laugardaga kl. 9.
1. sept. — 31. okt. þrjár ferðir í viku: — Frá Reykja-
vík — mánudaga, fimmtudaga og laugardaga kl. 14.
— Frá Múlakoti — sunnudaga kl. 17, fimmtudaga
og laugardaga kl. 9.
Reykjavík — Hvolsvöllur:
10. maí— 31. okt. ein ferð í viku:
Frá Reykjavík — föstudaga kl. 19,30.
Frá Hvolsvelli — mánudaga kl. 10.
Reykjavík — Landeyjar:
Ein ferð í viku:
Frá Reykjavík — þriðjudaga kl. 11 .
Frá Hallgeirsey — miðvikudaga kl. 8,30.
Reykjavík — Eyjafjöll:
Ein ferð í viku:
Frá Reykjavík — fimmtudaga kl. 11.
Frá Skógum — föstudaga kl. 8.
Kaupfélag Rangæinga.
Peking Review vikurit á ensku og
China Pictorial,
hálfsmánaðarrit á ensku, sænsku, þýzku eða frönsku veita
yður nýjar og ábyggilegar fregnir um uppbyggingu Kína.
Önnur kínversk rit: Women of China 6 bl. á ári, Chinas
Sports 6 bl. á ári, Evergeen 8 bl. á ári og öll á ensku.
Skoðið sýningu á kínverskum ritum í glugga Málarans
í Bankastræti og pautið rit þau sem þér óskið að fá.
Ath. Verðið hækkar um ca. 50% eftir 1. júlí 1960.
Kínversk rit Pósthólf 1272, Reykjavík
Gjörið svo vel að senda undirrituðum eftirtalin
kínversk rit og fylgir greiðsla í ávísun:
árg
Peking Review, vikurit verð kr.
China Pictorial á —
Women of China —
Chinas Sports —
Evergreen —
85,00
95,00
18,00
18,00
22,00
Nafn: ........
Heimilisfang:
Reykjavík 1960.
Itfauðungaruppboð
verður haldið að Síðumúla 20, hér í bænum, föstudaginn
20. maí n.k. kl. 1,30 e. h., eftir kröfu tollstjórans í Reykja
vík, bæjargjaldkerans í Reykjavík o. fl. Seldar verða eftir
taldar bifreiðar: R-218, R-262, R-424, R-480, R-535,
R-958, R-999, R-1020, R-1025, R-1553, R-1217, R-1555,
R-1634," R-1775, R-1961, R-2042, R-2260, R-2407, R-2605,
R-2704, R-2940, R-3050, R-3111, R-3379, R-3512, R-3609,
R-3788, R-4021, R-4113, R-4380, R-4433, R-4803, R-4884,
R-4892, R-4949, R-5022, R-5248, R-5750, R-5756,
R-5834, R-5890, R-5931, R-5947, R-5954, R-6004, R-6306,
R-6486, R-6688, R-6943, R-7094, R-7459, R-7711, R-7951,
R-8032, R-8135, R-8139, R-8183, R-8513, R-8544, R-8596,
R-8647, R-8843, R-8788, R-9504, R-9693, R-9857, R-10124,
R-10135, R-10162, R-10249, R-10316, R-10319, R-10381,
R-10565, R-10647, R-10748, R-10868, R-10915, R-10969,
R-11183, G-1239, X-1183, óskrásett Chrysler-bifreið, 2 loft
pressur og jarðýta. — Greiðsla fari fram við hamshögg.
Borgarfógetinn í Reykjavík.
Hallo - Halló
Vefnaðarvöru-skyndisalan á Laufásvegin-
um er í fullum gangi. Ódýr gardínuefni.
Tvíbreitt gardínufóður 150 cm. breitt 10/—
meterinn. Ennfremur allskonar metravara,
barna og herrabuxur. Herra og barna-
peysur.. Herra-vinnuskyrtur frá 65/—: og
m. m. fleira.
V efnaðarvöru-skYndisalan
Laufásvegi 58.
Iðnaðarhús
Höfum til söiu iðnaðarhús, sem er í byggingu í Holtunum.
I. hæð er fullgerð stærð 300 ferm. Byggingarleyfi fyrir
3 hæðum ofaná ásamt öllum teikningum er fyrir hendi.
Grunnflöt 1. og 2 hæðar má stækka upp í ca. 450 ferm.
MÁLFLUTNINGS- OG FASTEIGNASTOFA
Sigurður Reynir Pétursson, hrl.
Agnar Gústafsson, hdl.
Björn Pétursson: Fasteignaviðskipti
Austurstræti 14, II. — Símar 2-26-70 og 1-94-78
Glæsilegt raðhús
til sölu við Hvassaleiti. í húsinu eru 2 samliggjandi stórar
stofur, skrifstofuherbergi, 4 svefnherbergi, skáli, eldhús
með borðkrók o. fl. Grunnflötur um 200 ferm. Mjög
skemmtileg innrét.ting. Tvennar svalir. Uppsteyptur bíl-
skúr fylgir. Húsið selst fokhelt með járni á þaki.
FASTEIGNA & VERÐBRÉFASALAN,
Suðurgötu 4. Símar: 13294 og 14314.
íbúð til sölu
Til sölu er næstum ný giæsiieg hæð við Rauðalæk, sem
er 5 herbergi, eldhús, bað, skáli og ytri forstofa auk sam-
eignar í kjallara. Sér inngangur. Bílskúrsréttur. Hagstætt
verð og góðir greiðsluskilmálar. Tvennar svalir.
FASTEIGNA & VERÐBRÉFASALAN,
Suðurgötu 4. Símar: 13294 og 14314.
Góð íbúð til sölu
Við Álfheima er til sölu góð íbúðarhæð, sem er 117 ferm.,
4 herbergi, eldhús, bað og skáli. í kjallara hússins fylgir
auk þess rúmgott íbúðarherbergi, sérstök geymsla og
eignarhluti í sameign, þar á meðal nýtízku þvottavélum.
íbúðinni fylgir góð geymsla í risi. íbúðin er næstum ný
og í bezta standi. Hagstætt verð.
FASTEIGNA & VERÐBRÉFASALAN,
Suðurgötu 4. Símar: 13294 og 14314.
íbúðir til sölu
Tjl sölu eru góðar 3ja og 4ra herbergja íbúðir á hæðum
í fjölbýlishúsi við Stóragerði í Háaleitishverfi Hverri
íbúð fýlgir auk þess sér herbergi í kjallara hússins auk
venjulegrar sameignar í kjallara. íbúðirnar eru seldar
fokheldar, með fullgerðri miðstöð, húsið múhúðað og mál-
að að utan, öll sameign inni í húsinu múrhúðuð, allar
útidyrahurðir fyigja. Hægt er að fá íbúðirnar lengra
komnar. Bílskúrsréttindi fylgja. Mjög fagurt útsýni. Hag-
stætt verð Lán kr. 50 þús. á 2. veðrétti fylgir.
FASTEIGNA & VERÐBRÉFASALAN,
Suðurgötu 4. Símar: 13294 og 14314.