Morgunblaðið - 12.05.1960, Page 17
Fimmiudagur 12. mal 1960
17
MORGVNBLAÐÍÐ
Með Jóni
Frh. aí bls. 3.
ir hann við, þegar Esjuend-
inn er um Nes, förum við
fram hjá innstu trossunni.
Við miðum líka við Hamra-
hlíðina og Sjómannaskólann,
en það er víst bezt ég segi
þér ekki meira, maður verð-
ur að fara dálítið varlega
með þetta eins og varðskipin.
Ég heyrði ekki vel þessi
síðustu orð, því Ég var að
hugsa um hvernig tímarnir
breytast. Nesstofan sem einu
sinni var miðstöð heilbrigðis-
málanna í landinu, aðsetur
landlæknis og fyrsta lyfja-
búðin, „höggin af steini“ og
önnur virðing eftir því, var
nú ekki orðin annað en mið-
unarstöð fyrir okkur, grá-
sleppukarlana.
Svona breytir tíminn mati
sínu og það á skemmri tíma
en liðin er frá því Nes-
stofa var landlæknisbústaður
(1763).
— Sérðu þennan máv
þarna? kallar Jón Einarsson
allt í einu og bendir á stóran
gráðugan fugl í miðju gerinu.
Hann er að verða kynþroska
þessi, þú sérð hann er enn
grár á vængjunum. Þegar
hann verður tveggja ára
mega þær fara að vara sig.
Þeir eru byrjaðir að draga
netin og Ekki-Jón muldrar í
barm sér um leið og hann
gerir að:
— Þetta er rétt handa kett-
inum, og svo fleygir hann út
hausnum á stórri grásleppu og
svo öðrum og enn einum og
það má sjá að fuglarnir hafa
lengi beðið eftir máltíðinni.
Ekki-Jón og Jón Einarsson
draga inn hverja tross-
una á - fætur annarri,
enda veitir ekki af,
því þær eru 9 í allt. Það er
fátt sagt, en þó gerir Ekki-
Jón eina athugasemd um leið
og hann kastar grásleppu-
haus í mávinn:
— Hún er lúsug þessi, sjáðu
helvítis fiskilúsina, hvemig
hún skriður eftir henni, segir
hann. Það er fleira lúsugt en
maðurinn og hrúturinn.
— Við fengum einu sinni
þrjár skötur í netið, segir Jón
Einarsson.
— Vertu ekki að skrökva
að honum, segir Ekki-Jón.
Þeir eru nógu lygnir samt,
þessir blaðamgnn.
Fyrstu próf
1 gæzlu og umönn-
un vangefinna
HINN 26. apríl luku fyrstu stúlk
urnar prófi, sem lært hafa gæzlu
og umönnun vangefinna hér á
landi, þær Ásta Einarsdóttir frá
Runnum í Borgarfirði og Sigrid
Alette Andersen frá Bergen. Nám
ið hafa þær stundað á Kópavogs
hæli undanfarin 2 ár og er það
bæði bóklegt og verklegt. Verk-
lega námið er meðal annars fólg-
ið í daglegum störfum á hælinu,
enda eru greidd laun sambærileg
við laun starfsstúlkna yfir náms-
tímann. Bóklegar kennslugreinar
eru líkams- og heilsufræði, upp-
eldis- og sálarfræði og hjúkrun-
arfræði.
Kennarar eru Ragnhildur Ingi-
bergsdóttir hælislæknir, sem
kennir líkams- og heilsufræði og
Ásta Björnsdóttir yfirhjúkrunar-
kona, sem kennir bóklega og
verklega hjúkrun. Prófdómari
var Brynjúlfur Dagsson héraðs-
læknir í Kópavogi.
Þetta nám er hliðstætt því námi
sem krafizt er til slíkra starfa á
Norðurlöndum, enda er náms-
fyrirkomulagið sniðið eftir fyr-
irmyndum frá Danmörku og
Noregi.
Ráðgert er, að þrír til fjórir
nemendur geti komist að árlega.
Áður hafa nokkrar íslenzkar
stúlkur lokið sams konar eða svip
uðu námi erlendis.
Þeir karpa um þetta um
stund, en Ekki-Jón verður
að láta í minni pokann. Jón
Einarsson skrökvar aldrei.
Eftir hálfan annan tíma er
aftur siglt að landi. Jón
kveikir sér í sígarettu, Ekki-
Jón leggst fram í stefni og
við Jón Einarsson tölum sam-
an um morgunroðann, Sjó-
mannaskólann og línuveiðar
undan Akranesi. í norðri sjá-
um við Snæfellsjökul, þar
sem hann hillir upp í grá-
myglunni.
— Af hverju heldurðu
að rauðmaginn sé svona rauð-
ur, spyr Ég Jón Einarsson.
— Af þaranum, svarar hann
ákveðið. Rauðmaginn er ljós,
þegar hann er ekki leginn.
Svo gengur hann upp og
roðnar af að liggja í þaran-
um.
— Og hvað gérið þið svo
við aflann, spyr Ég.
— Við seljum mest af hon-
um til fisksalanna. Stundum
seljum við frúnum beint úr
vörinni, svarar Jón Einars-
son.
— Og hvað segja frúrnar,
spyr Ég.
— Það er nú misjafnt,
svarar hann, „hvernig fer
grásleppan að þekkja grá-
sleppunetin?“
— Og hverju svarar þú þá,
spyr Ég.
— Hvernig heldurðu sé
hægt að svara þessum kell-
ingum, skýtur Ekki-Jón inn
í og lagar á sér derhúfuna.
— Einu sinni, segir Jón
Einarsson, kom fin frú og
spurði, hvort við hefðum
rauðmaga.
<6- Nei, ég sagðist ekki haía
rauðmaga.
— Hvenær? spurði hún þá.
— Það fer auðvitað eftir
gæftunum, svaraði ég.
Þá horfði hún á mig and-
artak og sagði:
— Gæftunum, já — auð-
vitað, en — eru þeir nú líka
hættir að flytja þær inn, eða
hvað?
Tilkynning
Frá og með 12. maí verða fargjöld með strætisvögn-
um Kópavogs, sem hér segir:
Einstakt fargjaid Kópavogur—Reyjavík kr. 3,75.
Ef keyptir eru 17 farmiðar kosta þeir samtals kr. 50.00.
Innanbæjar í Kópavogi kr. 2.00.
Fargjöld barna:
Einstakt fargjald Kópavogur—Reykjavík kr. 2,00.
Ef keyptir eru 6 farmiðar kosta þeir kr. 10.00.
Innanbæjar kr. 1.00, eða 8 farmiðar kr. 5.00.
Strætisvagnar Kópavögs
Aðeins tveir dagar eftir
Rýmingarsalan stendur sem hæðst
t. d. Hanzkar ótal litir og stærðir, frjálst val
aðeins 30.00 parið.
NÆLON SOKKAR
Mikið úrval með 10 til 20 prósent afslœtti
Hrærivélahlífar mikið úrval aðeins 20.00.
Smávörur
Allskonar smávörur í miklu úrvali.
Allar nýjar REGNHLÍFAR með 20 prósent
afslætti
Viðgerðar Regnhlífar, sem ekki hafa verið sóttar
fyrir föstudagskvöld, verða seldar fyrir viðgerðar-
kostnaði. á I.augardagsmorgun.
Látið ekki þetta einstaka tækifæri fara framhjá
yður. Verzlunin hættir á Laugardag klukkan 12.
Regnhlífabúðin
Laugaveg 19.
(|> MELAVÖLLUR
Bæjarkeppni í knattspymu
Akranes - Reykjavík
í kvöld kl. 8,30.
Dótnari: Haukur Öskarsson.
Línuverðir
Einar H. Hjartarson og Baldur Þórðarson.
MÓTANEFNDIN.
Eigum þessar HONINGs vörur á lager
MACCARONY stengur og bita
SÚPUTENINGA
KJÚKLINGASÚPA
með hrísgrjónum.
SVEPPASÚPA
BÚÐINGAR ROMM
VANILLA
KARAMELLU
SÚKKULAÐI
Eggert Kristjánsson & Co. hi.
Símar 1-14-00.
10 ára
Útflufnings- og innflutningsverzlun
Til sölu að hálfu leyti. Viðkomandi verður að geta
annast stjórn fyrirtækisins. Þeir, sem óska frekari
upplýsinga leggi nöfn sín inn hjá Mbl., fyrir laugard.
14. þ. m. merkt: „Gott boð — 4297“.
WC tæki
nýkomin S og P gerðir.
Hvítar og svartar setur.
A. Johannsson & Smith hf.
Brautarholti 4 — Sími 24244.
Snurpunótabátar
með Marna vélum og Hydrohiskum spilum
til sölu.
Jón Gíslason
Hafnarfirði — Sími 50165
SIWA SAVOY
þvottavélarnar
• Sjóða
• Þvo
• Skola
• Þurrvinda þvott-
• inn. (þeytivinda)
Tökum á móti pönt-
unum. Verðið hag-
stætt.
ÓLAFSSON &
LORANGE
heildverzlun
Klapparstíg 10
Sími 17223.