Morgunblaðið - 12.05.1960, Síða 23
Fimmtudagur 12. maí 1960
MORGUIVBLAÐIÐ
23
— Ræktunars]óbur
Frh. af bls. 2
semi sinnar og æskilegt væri að
geta hækkað byggingalánin upp
fyrir 75 þús. kr. Áætlun um fjár
þörf byggingasjóðsins væri ann-
ars á þessa leið:
Gert er ráð fyrir, sagði ráð-
herrann síðar, að greiða skuld
við Seðlabankann, sem nú er að
verða þriggja ára gömul, 7,5
millj. kr., skuld við sparisjóðs-
deild Búnaðarbankans, 1 millj.
kr., lánsumsóknir fyrir 1959 5,3
millj., sem búið er að lána og til
viðbótar 5 millj., sem gjaldfalla
hinn 31. des., það er vegna húsa,
sem þegar eru í smíðum. Þetta
eru samtals 10,3 millj. kr. Vextir
og afborganir lána 7 millj., rekst-
urskostnaður 1,5—2 millj. og á-
ætluð lán haustið 1960 eru 10
millj.
Fjárþörfin er því, ef gera á
skil á skuldum við Seðlabank
ann, sparisjóðsdeild Búnaðar-
bankans og standa í skilum
við Framkvæmdabankann,
37,8 millj. kr.
Tillag ríkissjóðs er ekki mik-
ið, aðeins 2,5 miiy. kr., og ár-
gjöld eldri lána aðeins 4.5 millj.
eða 7 millj. kr. alls. Það sem
vantar á, til þess að byggingar-
sjóðurinn geti þá fullnægt því,
sem óskað er eftir, eru 30,8 millj.
Þessa fjár hefur ekki enn verið
aflað, en mun verða aflað fyrir
haustið, svo sjóðurinn geti starf-
að á líkan hátt og áður.
Ekki kvaðst Ingólfur Jónsson
á þessu stigi málsins segja neitt
um það, hvernig þessa fjár yrði
aflað, en nægilegt ætti að vera
fyrir menn að vita, að ríkisstjórn
in ætlaði sér að útvega þetta fé.
Veðdeild Búnaðarbankans efld
Að lokum svaraði landbúnaðar
ráðherra svo 3. spurningunni og
sagði að ekki hefði enn verið út-
vegað fé handa Veðdeild Búnað-
arbankans. Hún hefði haft ákaf-
lega lítið fjármagn til útlána á
undanförnum árum og væri mjög
æskilegt að Búnaðarþing hefði
samþykkt ályktun um þetta í
vetur og á Álþingi væri nú til
meðferðar tillaga frá Sjálfstæð-
ismönnum um að reynt yrði að
ráða bót á þessu máli til fram-
búðar. Hefði ríkisstjórnin einnig
fullan hug á að svo mætti verða.
Ásgeir Bjarnason þakkaði fyr-
ir upplýsingarnar og kvað nú
miklu máli skipta, hvernig kom-
ið yrði til móts við þá, sem í
byggingar hyggðust ráðast í
næstu framtíð. Uggur í bændum
væri nú með mesta móti. Þá
spurðist Á. Bj. fyrir um það,
hvort ríkisstjórnin væri nokkuð
farin að vinna að málum Veð-
deildar Búnaðarbankans í sam-
ræmi við ályktun Búnaðarþings.
Kenningar Framsóknarmanna
Ingólfur Jónsson ítrekaði það,
að ríkisstjórnin mundi útvega
ræktunarsjóði og byggingasjóði
fé. Þetta væri síður en svo í
fyrsta skipti, sem fjárskortur
gerði vart við sig. Erfiðleikar
bænda hefðu komið gleggst fram
við síðastliðin áramót, en það
væri í samræmi við kenningar
Framsóknarmanna að halda því
fram að slæmur fjárhagur
bænda að undanförnu væri nú-
verandi stjórn að kenna. Það
væri ekki stórt spor að stíga, að
jafnast á við það sem Framsókn-
armenn hefðu gert í þessum efn-
um. Þó að bændur ættu nú sem
áður í ýmsum erfiðleikum væri
vissúlega misjafnt, hversu svart-
sýnir þeir væru á framtíðina.
Spurningu Á. Bj. svaraði I. J. á
þá leið, að ríkisstjórnin hefði
ekki tekið afstöðu til ályktunar-
innar.
Eysteinn Jónsson stóð upp og
bar nokkurt blak af Framsókn-
armönnum vegna ádeilna I. J. og
urðu því í lokin stutt orðaskipli
milli þeirra um það hvor flokk-
urinn hefði betur unnið að mal-
um bænda.
Gísli Guðmundsson, sem ekki
kvaðst fullkomlega hafa náð
einu atriði í upplýsingum land-
búnaðarráðherra fékk það end-
urtekið. — Fleirí. kvöddu sér
ekki hljóðs.
Nú eru aðeins eftir þrjár sýningar á hinum vinsæla gamanleik,
„IIjónaspil“, sem Þjóðleikhúsið sýnir í 15. sinn á föstudags-
kvöld. Aðsókn að leiknum hefur verið góð, enda er leikurinn
léttur og skemmtilegur. Myndin er af Rúrik Haraldssyni og
Bessa Bjarnasyni í hlutverkum hinna kostulegu skrifara.
Asfaltblanda
Framh. af bls, 22.
urkenningu alþjóðasambandsins
á þessu yfirborðslagi, eða í það
minnsta að alþjóðasambandið
geri sér ljósa þá staðreynd að
þetta efni sé til, og því þurfi að
semja ný lög, sem byggð eru á
vitneskjunni um hið nýja efni.
Nýja heimsmetið notað
Umsóknin um viðurkenningu
hins nýja yfirborðslags verður
send alþjóða frjálsíþróttasam-
bandinu um leið og óskað
er eftir staðfestingu þess á
hinu nýja - heimsmeti John
Thomas, 2.17 í hástökki, en er
Thomas náði þessu stökki á
Penn-leikjunum notaði hann
uppstökksstað, sem lagður var
yfirborði úr asfalts- og togleð-
urssamsetningu. Það má því
segja að viðurkenning heims-
metsins verði um leið viðurkenn
ing á hinu nýja efni.
„Ég er sannfærður um að
bandaríska frjálsíþróttasamband
ið mun viðurkenna hið nýja
met John Thomas, sem amerískt
met í hástökki, en ég get ekki
spáð um hvað alþjóðasambandið
mun gera, eftir að fram hafa
farið umræður um hið nýja yfir-
borðslag, sem um þessar mundir
er allsstaðar notað við lagningu
uppstökksstaða og atrennu-
brauta á íþróttavöllum í Banda-
ríkjunum. En eins og kunnugt
er, er þetta yfirborðslag þannig
samsett, að á því má nota venju-
lega broddaskó. Það er skoðun
okkar að alþjóðasambandið verði
að taka ákvarðanir um þetta“.
Og Charles Starke, fram-
kvæmdastjóri íþrótta- og
skemmtigarða New York-borgar,
sagði að hann myndi ekki bíða
eftir ákvörðun alþjóðasambands
ins viðvíkjandi hinu togleðurs-
kenda asfalti, heldur láta leggja
atrennubrautir og uppstökks-
staði úr hinu nýja efni á
íþróttavöllum í New York,
Downing Stadium og Randalls
Island.
Ætla ekki að bíða
Bandaríkjamenn ætla þó ekki
að bíða eftir ákvörðun alþjóða
frjálsíþróttasambandsins eða
dómi þess um hið nýja efni og
í viðtali við íþróttafréttaritara
fyrir skömmu lét formaður
bandaríska frjálsiþróttasam-
bandsins, Pinky Sober, hafa
eftir sér eftirfarandi:
—■ Grimsby
Frh. af bls. 1.
stöðu sína, svo það síðasta sem
hann gerði væri að vísa blaða-
mönnum á bug. Þetta háttalag
hans sýnir því að Welch er ekki
allt of öruggur um sjálfan sig á
Lundúnafundinum á morgun,
sem sennilega verður mjög ör
lagaríkur í deilunni við brezku
ríkisstjómina.
Stutt yfirlýsing var gefin út
eftir fundinn hjá Denis Welch og
segir þar að fundurinn lýsi ein-
róma stuðningi við verkfallshót-
unina. Reiknað er með að sams-
konar yfirlýsing verði gefin út
eftir fund vélstjóra hér á morg-
un.
Söluhæstur
Reykjavikurtogarinn J[ón Þor-
láksson landaði í Grimsby í nótt
og er ekki vitað um að fleiri ís-
lenzkir togarar landi hér í bráð.
Tveir brezkir togarar lönduðu
hér einnig af Islandsmiðum, en
með mun minni afla, og var Jón
Þorláksson söluhæstur með 7.763
sterlingspund fýrir um 2.400 kitt
(153 lestir), en þar af voru rúm-
lega 100 kitt (6% lest) ónýt. Ann
ar brezki togarinn af íslandsmið-
um seldi fyrir 7.225 sterlings-
pund, hinn fyrir 3.749 sterlings-
pund, og einn frá Hvítahafi fyrir
6.531 sterlingspund.
Fiskurinn ekki góður
Ég talaði við marga fiskkaup-
menn á markaðinum í morgun,
og sögðu þeir að Bretarnir hafi
haft heldur betri fisk en Jón Þor
láksson, og skipstjórinn, Sigurð-
ur Kristjánsson kenndi því um,
að ísinn, sem fenginn var í Hull í
síðustu löndun, hafi ekki verið
nógu góður.
Nokkrir menn vöruðu skip-
verja á Jóni Þorlákssyni við að
fara í land í kvöld, því þeir gætu
lent í illdeilum á bjórstofunum,
en ég held að ástæðulaust sé að
óttast slíkt. Jón Þorláksson fer
hins vegar fyrir kvöldið heim-
leiðis, en hann hefur ekki komið
í íslenzka höfn í meira en mánuð.
Hugheilar þakkir til allra þeirra er glöddu mig með
heimsóknum, gjöfum, blómum og skeytum á, 50 ára
afmæli mínu 4. maí. — Guð blessi ykkur öll.
Sigurjóna Guðrún Jóhannesdóttir, Ásgarði 4
Innilegt þakklæti færi ég ættingjum og vinum er
glöddu mig með heimsóknum, gjöfum, skeytum og blóm-
um á 50 ára afmæli mínú 5. maí s.l.
Jóhann Hjörleifsson.
G eymsluhúsnœði
Ca. 100 til 200 ferm. óskast til leigu nú þegar.
Æskilegt að það væri á götuhæð — Tilboð sendist
afgr. Mbl. fyrir laugardag, merkt: „Húsgögn.—4295“
STÚLKA óskast
að Þórscafé frá 10—6, annan hvern dag.
Upplýsingar kl. 2—4 á skrifstofunni.
Móðir mín
SIGRtJN BERGMANN
andaðist aðfaranótt 6. þ. m Jarðarförin fer fram frá Dóm-
kirkjunni föstudaginn 13. þ. m. kl. IV2.
Ingibjörg Bergmann Björnsdóttir.
Systir okkar
KRISTlN pétursdóttir
lézt í Landakotsspítala aðfaranótt 11. mal. ,
Hólmfríður Pétursdóttir,
Valborg Pétursdóttir, Guðjón Pétursson.
Útför móður okkar
ÓLAFlU ÁSBJARNARDÓTTUR
fer fram laugard. 14. maí og hefst með bæn á heimili
hennar Garðhúsum í Grindavík kl. 1,30 e. h.
Ferð verður frá B.S.Í. Reykjavík kl. 11,30 f.h.
Börnin.
Móðir mín
MARlA ÁSMUNDSDÓTTIR
frá Borgarnesi,
verður jarðsungin að Borg á Mýrum laugardaginn 14. maí
kl. 2 e. h.
Jórunn Þorsteinsdóttir.
Kveðjuathöfn um
SIGURÐ SIGURÐSSON
frá Rauðafelli,
fer fram frá Dómkirkjunni föstudaginn 13. maí kl. 10,30
f.h. Athöfninni verður útvarpað. Jarðsett verður að
Eyvindarhólum laugard. 14. maí kl. 2 e.h.
Aðstandendur.
Innilegar þakkir fyrir auðsýnda samúð og vináttu við
andlát og jarðarför
JÓHÖNNU VILBORGAR JÓNSDÓTTUR
Efra-Langholti.
Vandamenn.
Alúðar þakkir og guðs blessunar biðjum við öllum
þeim er auðsýndu okkur samúð og vinarhug við fráfall
og jarðarför hjartkærs föður okkar, tengdaföður, afa
og langafa,
JÓNS GUÐMUNDAR KARVELSSONAR
frá Bolungarvík
Rósa Jónsdóttir, Magnús Guðbrandsson
Dagbjört Jónsdóttir, Gissur Jónsson
Ólafur Þórðarson og barnabörn