Morgunblaðið - 12.05.1960, Qupperneq 24
Íbróttasíðan
er á bls. 22
JHorgMiiMafo íifa
107. tbl. — Fimmtudagur 12. maí 1960
Grasleppuveiðar
Sjá blaðsíðu 3.
Veiðar-
fœra-
fjón?
Akureyri, 11. maí: —
TOGARINN Kaldbakur
kom til Akureyrar sl. sunnu
dag af Nýfundnalandsmið-
um og landaði þar 270 tonn-
um eftir 5 daga veiði á
Ritubanka. Þegar Kaldbak-
ur var að leggja af stað
heim, komu togarinn Ask-
ur og Elliði á miðin, en
færðu sig siðan norðar á
svokallaðann Sundál.
Heyrði skipstjórinn á Kald-
bak, að þeir töluðu um að
70—80 rússnesk fiskiskip
smá og stór, væru á þessum
slóðum og erfitt væri að at-
hafna sig vegna þeirra.
★
Óstaðfestar fregnir í
gær hermdu, að togarinn
Elliði hefði orðið fyrir
miklu veiðafæratjóni á þess
um miðum af völdum
rússneskra veiðiskipa, er
hann kastaði út trolli sínu.
Sigluf jarðarskar ð
fært um mánaða-
mót
SIGLUFIRÐI, 11, maí, — Bæjar-
togarinn Hafliði kom hingað í
morgun með nálega 200 tonn.
Eins og áður hefur verið sagt frá
er uftnið að því að moka Siglu-
fjarðarskarð, og má búast við að
það verði orðið bílfært um næstu
mánaðamót. Hér er nú hlýtt og
gott veður, dálítill þokuslæðing-
ur. — Stefán.
Vorar vel
ÞÚFUM, 11. maí. — Mikil veður-
blíða hefur verið hér undanfarna
daga, hlýindi og lítilsháttar úr-
koma. Gróðri fer vel fram og er
túnvinnsla víða langt komin og
áburðardreifing hafin. Sauð-
burður er að byrja og má segja,
ef þessu heldur áfram, að vel
vori í ár. — Sýslufundur N-ísa-
fjarðarsýslu hefst þann 14. þ.m.
— P.P.
3000 kr tonnið
af járni í fjöru
„HVAÐ eruð þið að gera i
strákar?“ sagði Ól. K. M., II
ljósmyndari blaðsins, og I
tók myndina er hann sá
drengi þessa vera að kíkja
inn um naglagöt á sólbaðs- '
skýli Sundlauganna í góða
veðrinu í gær.
„Ekkert“ var svarið — en
þeir urðu feimnislegir. Og
þegar þeir sáu myndavél-
ina tóku þeir á sprett, eins
og neðri myndin sýnir. —
Já, sólskin og gott veður
hefur margvísleg áhrif á
unga og gamla.
Manni misþyrmt í svefni
oj peningum hans rœnt
Jónas Árnason
RANNSÓKNARLÖGREGL-
AN leitar nú manns eða
manna, er frömdu árás á 66
ára gamlan mann, sem var
sofandi í herbergi sínu. Var
þessi árás gerð á Elías Hólm,
Bergstaðastræti 19, aðfara-
nótt þriðjudagsins.
♦ f svefni
í þessari árás voru Elíasi
veittir miklir áverkar í and-
liti og við röntgenmyndun
kom í Ijós að kjálki hans er
tvíbrotinn.
Elías telur að árásin hafi
verið framin fyrrihluta næt-
ur, þegar hann var í fasta-
svefni. Hann kveðst hafa vakn
að um kl. 1,30 aðfaranótt
þriðjudagsins með þungan
höfuðverk. Hann hafi farið
fram fyrir spegil og þá séð
að hann var allur blóðugur,
bólginn og blár í andliti
Ekki taldi Elías þó ástæðu til
að leita læknis þá um nóttina og
yfirleitt hefur hann sjálfur gert
lítið úr þessu árásarmáli. Það var
ekki fyrr en laust eftir hádegi á
þriðjudaginn sem ættingjar hans
gengu í málið og var rannsóknar-
lögreglan látin vita.
♦ Kverkatak
Þá þegar veittu lögreglumenn-
irnir því eftirtekt, að á hálsi hans
voru för er bentu ótvirætt til
þess, að Elías hefði verið tekinn
feikna kverkataki. Var hann færð
ur í læknavarðstofuna og gert að
meiðslum hans. En gamli mað-
urinn var þrátt fyrir allt enn vel
ferðafær, því hann hafði labbað
út af slysavarðstofunni og heim
til sín, meðan verið var að fá úr
því skorið hvað röntgenmyndin
hefði leitt í ljós.
♦ Stuldur
Við rannsókn málsins hefur
komið fram, að á borði við legu-
bekkinn voru í tveim peninga-
veskjum á þriðja þúsund krónur
£ peningum. Þeim var báðum
stolið.
Á mánudagskvöldið hafði kunn
ingi Elíasar setið hjá honum, og
hann farið frá honum laust eft-
ir kl. 11. Árásarmennirnir virð-
ast því hafa komið einhverntíma
á tímabilinu frá kl. 11,15 til kl.
1,30 aðfaranótt þriðjudagsins.
Ekki segist Elías gruna einn eða
neinn. Hann hafði þó bent á tvo
pilta, án þess að bera þá
sökum, en þeir gátu sannað að
þeir voru víðs fjarri og höfðu
ekki komið til Elíasar. En sjálfur
segir Elías, sem fyrr segir, að á
sig hafi verið ráðizt í svefni og
árásarmennirnir hljóti að hafa
verið minnst tveir að verki.
Vegna kjálkabrotsins verður
Elías að ganga undir uppskurð
Hitaveita á
Akranesi ?
FLUTT hefur verið á Al-
þingi breytingartillaga við
þingsályktunartillögu um
jarðboranir í Krýsuvík og
á Reykjanesi. Er hún þess
efnis, að ríkisstjórnin láti
einnig fram fara borun eft-
ir heitu vatni að Leirá í
Borgarfirði, svo fljótt sem
auðið er, með tilliti til hita-
veitu til Akraness. Það eru
þeir þingmennirnir Daníel
Ágústínusson og Jón Árna-
son, sem breytingartillög-
una flytja.
Óilokksbundinn sem
siendur
UNDANFARNA daga hafa menn
rætt um það sín á milli á göt-
um og gatnamótum, að Jónas
Arnason fyrrum alþingismaður
kommúnista, hafi dregið sig út
úr stjórnmálum, sé ekKi lengur
í flokknum.
í gær hringdi Mbl. til Jónasar
Arnasonar, en hann heíur verið
kennari í Melaskóianum i vetur,
og spurði hann hvað hæft væri í
þessum fregnum.
Jónas kvaðst vilja svara þess-
ari fyrirspurn Mbl. með þessum
orðum: Sem stendur er ég alger-
lega óflokksbundinn. Frekar
ræddi Jónas ekki þetta mál.
Síðast sat Jónas á þingi fyrir
kommúnista fyrir rúmu ári síð-
an, þá sem varamaður flokks
síns
Tillagan um auknar
krabbameinsvarnir
samþykkt einróma
ALÞINGI hefur nú samþykkt tillögu þeirra Sigurðar Bjarnasonar,
Benedikts Gröndals, Þórarins Þórarinssonar og Alfreðs Gíslasonar
Iæknis um auknar krabbameinsvarnir. Fékk allsherjarnefnd Sam-
einaðs þings tillöguna til meðferðar. Sendi hún hana til umsagnar
landlæknis og Krabbameinsfélags íslands. Lögðu báðir þessir að-
iiar til að hún yrði samþykkt.
Framsögumaður allsherjarnefndar var Benedikt Gröndal. —
Samþykkti Alþingi síðan tillöguna með samhljóða atkvæðum mið-
vikudaginn 4. maí.
Tillagan er svohljóðandi:
„Alþingi ályktar að skora á
ríkisstjórnina að beita sér fyrir
því í samráði við Krabbameins-
félag íslands og heilbrigðisyfir-
völd landsins, að krabbameins-
varnir verði efldar svo sem
frekast má verða. í þeim til-
gangi verði m. a. lögð áherzla a;
a. að efla allar rannsóknir,
sem nauðsynlegar eru við grein-
ingu á krabbameini;
b. að auka stuðning við öflun
fullkomnustu tækja til rann-
sókna og lækninga á krabba-
meini;
c. að bæta aðstöðu leitar-
stöðvar Krabbameinsfélags is-
lands og athuga, hvort tiltæki-
legt sé að stofna leitarstöðvar
utan Reykjavíkur;
d. að aukin verði almenn
fræðslustarfsemi um sjúkdóm-
inn“.
Kirkjubœjarklaustri, 11. maí.
AUSTUR á Mýrdalssandi, á
Dynskógafjöru, eru menn að
starfi. Þarna austur á sand-
auðninni ríkir venjulega
þögnin ein, nema þegar sjór-
inn er reiður, en það er liann
oft á þessum slóðum, og lem-
ur hann þá svartan sandinn
hvítum hrammi. Þá drinur
brimið við sendna strönd
með þungum, rámum rómi.
Þarna sést aldrei líf nema
þegar einmana mávur flögr-
ar yfir brimlöðrinu í fjöru-
borðinu í leit að einhverju
æti.
Grimmileg málaferli
En nú er þarna allt í einu risið
upp stærðar heimili, eins og ör-
nefni benda til að verið hafi á
þessum slóðum í gamla daga.
Húsbóndinn er einn Klausturs-
bræðra, Bergur Lárusson, og hús-
freyjan er kona hans, frú Ágústa
Jónsdóttir. Þau hafa 8 vinnu-
menn ,sem allir eru önnum kafn-
ir við að grafa, að vísu ekki gull,
en gulls ígildi. Með jarðýtu, gröfu
og margs konar fleiri tólum, eru
þeir að grafa upp járn, því þarna
liggja 4000—5000 tonn af hrá-
járni undir 5 metra þykku lagi af
Mýrdaissandi. Þessu járni var
kastað þarna út fyrir 20 árum af
stórskinínu Persier, sem strand-
! fjöru á útmánuðum
i„-0. var dregið út, en
járnið sat eftir í stórum byngjum.
Örlitlu var bjargað áður en út af
því hófust hin grimmustu mála- .
ferli, sem á sínum tíma voru girni
legt fréttaefni blaðanna. Þá mátti
sjá í hinu fámenna og friðsæla
þorpi, Vík í Mýrdal, klóka og
lærða lögfræðinga ganga þar um
stígana með brúnar skjalatöskur,
bólgnar af réttarskjölum. Þeir
voru að takast á frammi fyrir
dómaranum um björgunarréttinn
á járninu á Dynskógafjöru. Síðan
féll dómiur, og allt var kyrrt í
mörg ár.
Til rnikils að vinna.
Svo féll gengi krónunnar og
jórnið steig í verði, að því talið
er allt upp í 3000 kr. tonnið. Má
af því marka hvílík verðmæti eru
grafin þarna á Dynskógafjöru og
til hve mikils er að vinna, ef ein
hverju verður bjargað. En þeir,
sem þekkja til hér eystra við sjó-
inn á söndunum, vita að það er
ekkert áhlaupaverk, og ef það
tekst ekki með skaftfellskri út-
sjón og atorku, þá er það ekki
hægt.
Vongóðir
Þegar siðast fréttist af þeim
félögum á Dynskógafjöru um
hádegisbilið í dag voru þeir
vongóðir og í bezta skapi. Þeir
voru að vísu ekki komnir
alveg niður á járnið, en þeir
héldiu að þeir ættu ekki mikið
eftir að hreinsa ofan af einni
hrúgunni. Nú eru þeir ef til
vill byrjaðir að skipa járn-
stykkjunum upp á bílana og
flytja þau vestur yfir Múla-
kvísl. — Fréttaritari.