Morgunblaðið - 05.05.1961, Page 10
10
MORGUNBLAÐIÐ
Föstudagur 5. maí 1961
limmæJi danskra blaða
Kaupmannahöfn, 4. maí.
Einkaskeyti frá Sigurði Líndal.
DÖNSKU blöðin ræða hand-
ritamálið í ritstjórnargrein-
um og fréttum í dag.
OF STUTTUR TÍMI
Berlingske Tidende segir að
þinginu hafi verið settur frest-
ur til 20. maí til að ljúka störf-
um og þessu slegið föstu milli
formanna þingflokkanna og for-
seta þingsins. Stjómarandstaðan
lýsti því þó yfir að tvær hindr-
anir væru á því að unnt
yrði að ljúka störfum á tilsett-
um tíma: Tillaga um fjárhags-
aðstoð við norræna flugfélagið
SAS og tillaga um afhendingu
íslenzku handritanna. Þó álitu
menn að unnt yrði að afgreiða
fyrri tillöguna. Handritatillög-
una taldi stjórnarandstaðan ekki
hægt að afgreiða viðunanlega á
þessum stutta tíma. Áður en til-
lagan yrði afgreidd, verði að
afla upplýsinga, bæði lögfræði-
legra og visindalegra, þannig að
tillagan verði ekki afgreidd að
þessu leyti fyrir 20. maí
MÓTMÆLI VISINDAMANNA
Dagens Nyheder segir í rit-
stjórnargrein m.a.: Mikið verður
að leggja upp úr mótmælum
425 vísindamanna úr öllum
flokkum. Ættu þau næstum að
ráða úrslitum fyrir mennta-
málaráðherra. Honum ber að
gera sér ljóst að hann hafi tap-
að svo í viðureigninni að hann
eigi að draga fljótfærnisfrum-
varp sitt til baka. Eftir þessi
mótmæli geti Islendingar ekki
trúað að hér sé um höfðinglega
þjóðargjöf að ræða. Og afhend-
ing nú mun valda djúpri og
langvarandi beiskju meðal mik-
ils hluta dönsku þjóðarinnar. —
Handritin megi ekki afhenda á
þessum grundvelli. Sá vindur,
sem nú blási á móti Jörgen
Jörgensen, menntamálaráðherra,
verði að stormi ef það verði
gert.
HÖFÐINGIÆG GJÖF
Blaðið Aktuelt segir í rit-
stjórnargrein að með mótmæl-
um vísindamanna sé málið orð-
ið furðulegur Brávallabardagi.
Allir geti tekið þátt í honum,
sem vilji. Segir blaðið að hér
gæti gamaldags þjóðernisstefnu,
sem dregin er fram í tilefni af
þessu heilaga máli. Hafi það
komið fram á fundi Studenter-
foreningen. Danir eru smáþjóð
og heppnir að til eru minni
þjóðir, því gagnvart þeim hreyki
þeir sér hátt. Hugsanlegt er að
spillt sé um sinn tækifæri til
afhendingar handritanna vegna
þeirra aðferða, sem menn hafa
kosið. Ekki vegna mótmæla vís-
indamanna, því rök þeirra eru
léttvæg. Danmörk hefur laga-
legan rétt til handritanna. Af-
hendingin er höfðingleg gjöf og
til eftirbreytni. Spurning er
hvort rétt hefur verið tekið á
málinu. Ef til vill finnst mörg-
um virðingarvottur Dana ekki
koma fram í réttum búningi.
Hér er um að ræða gjöf ein-
stæðs eðlis. Þann dag sem hún
er afhent bér Dönum að hafa
það á tilfinningunni að þeir taki
þátt í gjöfinni.
IIEFÐI VERIÐ SÆMRA . . .
Folitiken segir í ritstjórnar-
grein: Lagalegur réttur Dana til
handritanna er ótvíræður. Það
er grundvöllurinn fyrir því að
gefa Háskóla íslands hlutdeild í
fjársjóðnum, sem eru honum
mikils virði. Hugsanlegt er að
ekki líti allir íslendingar þetta
sem gjöf. En það er ekki sjónar-
mið fyrirsvarsmanna, sem hafa
sagzt þiggja gjöfina í þeim
anda, sem hún væri gefin. Ef
hér er um höfðinglegan virð-
ingarvott að ræða, beri vísinda-
og lögfræðilegum rökum að
þagna. Vísindamönnunum hefði
verið sæmra að sitja ekki að-
gerðarlausir þegar þær viðræð-
ur hófust, sem hlutu að leiða til
einhliða virðingarvotts af Dana
hálfu, ef þeir vilja ekki taka
þátt í honum. Háskólinn getur
ekki haldið því fram að Jörg-
ensen hafi unnið að málinu án
aðstoðar sérfræðinga. Ósæmilegt
væri að svo komnu máli að taka
allt tilboðið til baka. Ef hand-
ritamálið á ekki að enda í öng-
þveiti, eins og hætta virðist
vera á, ber að hætta að tala um
afhendingu eða ekki afhendingu
og spyrja hvort við höfum efni
á þessári norrænu vináttusönn-
un eða ekki. Hvorki vísinda-
menn né þjóðaratkvæðagreiðsla
getur réttlætt að gjöfin verði
tekin aftur. Synjun nú yrði ör-
lagaríkari en allt annað.
faið þér me6
kjörvjm hjá
•Sióurþórjónsson &Co.
HAFNARSTR. V
BEZT AÐ AUGLÝSA
I MORGUNBLAÐINU
MYND þessa tók ljósmyndari
blaðsins í Sjálfstæðishúsinu í
gær. Þar voru þá til sýnis
munir þeir, sem verða á 77.
listmunauppboði Sigurðar
Benediktssonar. Munirnir
verða til sýnis í dag frá kl.
10—4, en uppboðið hefst kl. 5.
Á uppboðinu verða að þessu
sinni málverk og dýrir málm
ar og er málverk það, sem
myndin er af eftir Ásgrím
Jónsson og heitir „Sumar í
Húsafellsskógi“ máluð 1926.
Þrjár aðrar myndir eftir Ás-
grím verða á uppboðinu.
Á öðrum munum má nefna
5 myndir eftir Kjarval, ein
þeirra er, „Nóttin blá“, máluð
um 1923, „Móðir listamanns-
ins“ eftir Mugg, blómamynd
eftir Kristínu Jónsdóttur
„Hús“ eftir Þorvald Skúlason
og margar fleiri eftir yngri og
eldri málara.
Hinar heimsþekktu Bairnswear
dömupeysur
nýkomnar. — Nýtízku snið og íitlr
Fást í:
£okkaMm
Laugavegi 42
21 SALAN
S K I P H O LT 2 1
PARTA & BÍLASALAN - sími 12975
Nýkomnir gearkassar, vélar (diesel) kúplings-
pressur, startar, dinamoar, drif o- fl. í margar
gerðir amerískra bifreiða.
Einnig tökum við í umboðssölu hverskonar notaða og nýja bíla-
hluti, sem þér kunnið að hafa til sölu. — Komið með bílana á
bílasölu okkar, þar sem veitt er góð þjónusta.
í Skipholti 21 eru réttingarverkstæði, bílamálun og almennt
bílaverkstæði. — Sæla Café við hlið 21 sölunnar.
Við auglýsum og seljum bílana. — Sími 12915.
ONNUMST INNKAU
AXMINISTER-gólfteppi
skrifborð
kommóður
barnarúm (3 gerðir)
sófasett
svefnherbergissett
hvíldarstóll
HANSA-vörur
svefnsófar
svefnbekkir
borðstofuskápar
HUSQVARNA-vörur
þurrkhettur
ísabella-nylonsokkar
náttföt (baby doll)
undirföt
KRINOL nylon svampskjört
magabelti
brjóstahaldarar
apaskinnsjakkar
fermingarkápur
MOORLEY STYLE peysur
barna regnkápur — gallar
barna náttföt
ALLT LANDIO
terelene buxur
dömu- og herraskór
herrafrakkar
myndavélar
veiðistengur
úr og klukkur
ritvélar
gítarar — harmonikkur
hljómplötur
ATSON-leðurvörur
BÆKUR til fermingagjafa
o. m. fl.
pcsft-
verzlun
pósthólf
058
sími
33755
»CR0H5T|NH
HRIIMGID - SKRIFIÐ EFTIR VERÐI - MVMIl'U - SKVRIMGIIIY1