Morgunblaðið - 05.05.1961, Side 15
Föstudagur 5. maí 1961
UORGVNBLAÐID
15
X—SIG 1/IC 9658
fretta er ástæðan fyrir því, að SIGNAL.
inniheldur munnskolunarefni í hverju
rauðu striki.
IMýja rafstöðin
á Akureyri
Akureyri 27. apríl.
f DAG var fréttamönnum boðið
eð vera viðstaddir, er hin nýja
toppstöð, sem jafnframt er vara-
rafstöð fyrir Laxárvirkjunina,
var tekin í notkun. Hér er um
að ræða 2000 kw. diesel-rafstöð,
sem staðsett er í húsakynnum
é Oddeyrartanga. Þarna eru
staðsettar tvær vélasamstæður,
eem hvor um sig hefur 1440 hest-
öfl. Eru diesel-vélarnar af G.M.-
gerð, með sambyggðum rafal,
og mun rafstöð þessi veita orku-
veitusvæði Laxárvirkjunarinnar
mikið öryggi, þar sem hún mun
fcæði koma að notum sem topp-
etöð, þegar álagið er mest, og
einnig gerir hún mikið gagn, ef
©rkuverið við Laxá verður vatns-
lítið, eða línan þaðan bilar í
yeðraham.
Verkfræðingur Rafveitu Akur-
éyrar, Knútur Otterstedt, sýndi
fréttamönnum stöðina og skýrði
nokkuð frá gerð hennar. Hann
gat þess, að vélarnar væru
ikeyptar frá Englandi, og hefðu
þær verið notaðar þar um 19000
tíma, en síðan gerðar upp. Ails
mun stöðin nú kosta um 5,5
milljðnir, en ýmsu er enn ólok-
ið, og er búizt við, að heildar-
ikostnaðurinn verði um 5,,7 til
6,8 milljónir. Auk stjórnar Lax-
érvirkjunarinnar voru viðstadd-
ir verkfræðingar frá Raforku-
málastjórninni og nokkrir aðrir
gestir. Uppsetningu vélanna hafa
þeir annazt Albert Sölvason og
Jón Albertsson, og er einkar
emekklega og haganlega frá öllu
gengið.
Fréttam. Mbl. notaði tækifær-
ið og ræddi litla stund við Eirík
Briem rafveitustjóra um álit
han* á þessum framkvæmdum,
Og fleiri framkvæmdum á sviði
raforkumála hér norðanlands.
— Ég tel, segir Eiríkur Briem,
»ð stóraukið öryggi hafi skapazt
Karimannasandalar
m. leður- og gúmmísólum —
léttir og þægilegir, gott verð.
Kvenstrigaskór
með hæl og flatbotnaðir.
Barnasandalar
og töfflur.
^píamn&suGýi
Sími 17345.
hér við komu hinna nýju véla,
og að ekki þurfi framar að verða
hér rafmagnslaust, þótt ein-
hverjár truflanir verði í orku-
verinu við Laxá. A. m. k. er þó
alltaf hægt með þessum vélum
að halda uppi allríflegri raf-
magnsskömmtun, þannig að
ekkert hverfi þurfi að vera
straumlaust langan tíma í einu.
Um mannvirki þau, sem tekin
voru í notkun við Mývatnsósa
á s. 1. hausti, er það að segja,
að af þeim varð það gagn á
s. 1. vetri, sem til var ætlazt,
og enda þótt veturinn væri ó-
venju mildur, þá mundi nokkr-
Verkfræðingar skoð'a stjórnborð rafstöðvarinnar.
um sinnum hafa gætt raf-
magnsskorts hér, ef þau hefðu
ekki verið til staðar, því að nokkr
um sinnum þurfti til þeirra að
grípa.
Um framtíðina get ég ekki
mikið sagt, en eitthvað verður
þó að gera í vifkjunarmálum
hér, og það fljótlega. Laxárvirkj-
unin er nú svo til fullnýtt, eða
verður það mjög fljótlega. Nú
þegar hafa verið gerðar mæl-
ingar og ýmsar frumáætlanir, og
beinast liggur við að gera nýja
virkjun við Laxá, því að enn er
þar mikil orka óbeizluð. Hitt er
svo annað mál, að ef til ein-
hvers konar stóriðnaðar kæmi,
þá þarf miklu steerri virkjun,
en til þess að slík virkjun geti
á nokkurn hátt borið sig, þarf
hún að vera mjög stór. Margt
er enn ógert hjá okkur í raf-
magnsmálum, en allt, sem að
þeim lýtur, er mjög kostnaðar-
samt. Við höfum ekki ótakmark-
að fé, en áfram mun haldið að
rafvæða landið, eftir því sem
fjárhagurinn leyfir á hverjum
tíma.
St. E. Sig.
Nýtt tannkrem með munnskol-
unarefni í hverju rauðu striki
Signal er fremra öllu öðru tannkremi.
bví aðeins það gerir tennur vðar skínandi hvítar
og gefur vður hressandi munnbragð.
Sérhvert gott tannkrem hreinsar
tennurnar, ■ en hið nýja SIGNAL
gerir miklu meira!
Hvert og eitt hinna rauðu strika
SIGNALS inniheldur Hexa-
Chlorophene. Samtímis því,
?ífem hreinsunarefni SIGNALS
gætir og verndar tennur yðar,
blandast þetta kröftuga rotvarn-
arefni munnvatninu og drepur
sóttkveikjur um leið og það
hreinsar munninn.
lega með SIGNAL og njótið
Burstið því tennur yðar reglulega
þar með bezta fáanlega tann-
kremsins, sem inniheldur hvort-
tveggja í senn, ríkulegt magn
hreinsunar- og rotvarnarefna.
Látið alla fjölskyldu yðar nota
þetta nýja undra-tannkrem, með
munnskolunarefni í hverju rauðu
striki. Byrjið að nota SIGNAL
strax í dag.
l