Morgunblaðið - 05.05.1961, Blaðsíða 17
FBstudagur 3. maf 1961
MORGVNBLAÐIÐ
17
Sumarliði Sveinsson
S0MARIÐ 1913 hélt héðan til
Vesturheims ungur og óvenjulega
efnilegur maður, svarthærður og
hinn fríðasti sýnum, Sumarliði
Sveinsson að nafni. Hann hugð-
ist verða að heiman hálft annað
ár, og það var dugnaður og ein-
Ibeittni æskumannsins, sem trú-
ir á lífið og framtíðina, sem gerði
honum kleift að fara þessa för.
Hann hafði aðallega stundað mál-
arastörf, en hann var svotraust-
vekjandi og aðlaðandi, að honum
var auðvelt að fá vinnu, þótt öðr-
um gengi tregt. Og hann brást
engum. Þótt hann væri aðeins tví
tugur að aldri, hafði honum ver-
ið sýndur ýmis trúnaður, og hann
hafði getið sér hið bezta orð.
Þess má minnast, að hann var
ikjörinn formaður Taflfélags
Reykjavíkur 18 ára gamall, en
félagið var þá tiltölulega fjöl-
mennt og skákáhugi mikill í
bænum. Hann var endurkjörinn
árið eftir, og undir forustu hans
i efndi félagið til fyrsta Skákþings
| íslendinga. Þátttakendur voru 12,
| og sigraði Pétur Zophoníasson
| alla keppinautana nema einn —
l Bumarliða Sveinsson, sem sigr-
j aði hann.' Pétur varð þó fyrsti
j Skákmeistari íslands, þar sem
Sumarliði tapaði skák sinni við
Jón Baldvinsson og gerði auk
| }>ess jafntefli, en hann varð ann-
ar. Einbeittni, rökvís hugsun og
rólyndi færðu honum sigrana við
skákborðið eins og á fleiri svið-
«m um ævina. Hann átti ekki eft-
ir að taka þátt í fleiri skákmót-
um hérlendis né vera í forustu
hér, en hæfileíkar hans urðu þó
íslendingum oft til sóma, og
fengu notið sín.
H Sumarliði hélt fyrst til Winni-
peg, og tók virkan þátt í félags-
lífi fslendinga þar, eins og vænta
mátti. Og svo fór, að örlög hans
urðu landnemans. Hann kynntist
þar Ólöfu Gunnarsdóttur, sem
fædd var vestra, og gengu þau að
eigast 22. apríl 1915. Sveinninn
ungi var nú orðinn eiginmaður
22ja ára gamall og brátt fyrir-
vinna 4ra manna fjölskyldu. Það
má nærri geta, að hann átti ekki
heiman gengt heim aftur, eins og
segja má, því að sá sem fer tví-
tugur að heiman frá mörgum
settingjum og vinum, skilur svo
mikið eftir, að honum nægir ekki
eevin til að flytja þaðan að fullu.
Sumarliði hefur vafalaust reynt
það, hve sár heimþráin getur ver-
ið, því að svO mjög unni hann
móður sinni og systkinum.
Heimilislífið að Smiðjustíg 11
í Reykjavík, þar sem hann fædd-
ist og ólst upp, var til fyrirmynd-
ar að ástríki og umhyggju, glað-
værð og góðlyndi, og að hugsa
heim var að hugsa þangað. Og að
Smiðjustíg 11 skyldi hann einnig
koma aftur, þótt síðar yrði en
hann ætlaði. Hann kom hingað
til lands 1946 eftir 33ja ára fjar-
veru, silfurhærður og virðuleg-
ur, og það fyrsta sem hann gerði,
var að fara á æskustöðvarnar við
Smiðjustíg. Húsið var þar ennþá,
en heimilið góða var horfið. En
systkini hans fögnuðu honum,
hann hafði ekki komið Of seint
héim. Og hann skyldi koma fljótt
aftur, nú gat hann það, og það
gerði hann oft. Hann ætlaði einn-
ig að koma í sumar, en skjótlega
hefur tilhlökkun breytzt í sorg.
En þá ber að minnast hins með
þakklæti, að hann náði því að
tengjast landi sínu aftur lifandi
böndum — honum tókst að fullu
að bæta fyrir það, að honum
dvaldist ytra. Hann átti aftur
heima hér hjá sínu fólki, og það
átti heima hjá honum vestur á
Kyrrahafsströnd.
. t Systkini Sumarliða á lífi eru
þau Július Sveinsson, trésmiður,
Guðríður Sveinsdóttir, gift Bergi
Sturlaugssyni, húsgagnabólstr-
ara og Karólína Sveinsdóttir, gift
Ásgeiri Ásgeirssyni, skrifstofu-
•tjóra, en svo vill til, að þau Ás-
geir og Ólöf, kona Sumarliða,
eru systrabörn. Börn þeirra og
barnabörn ásamt stórum hÓDÍ
vina hér á landi syrgja með þeim
góðan dreng.
Sumarliði flutti ásamt fjöl-
skyldu sinni frá Winnipeg til
San Francisco árið 1919. Bjuggu
þau þar í nær 10 ár, og rak Sum-
arliði þar málningarverkstæði
fyrir bíla. En 36 ára gamall snýr
hann sér að fasteignasölu eftir
að hann hafði aflað sér tilskil-
innar þekkingar á því sviði og
flytzt búferlum til Long Beach
í Kaliforníu. Þar bjó hann til
dauðadags, varð þekktur og nýt-
ur borgari og vel efnum búinn.
Hann varð ekki aðeins forseti
stéttarfélags síns í borginni,
heldur og umdæmisstjóri. En síð-
asta trúnaðarstaðan, sem hann
tók að sér, var formennska ís-
lendingafélagsins í Los Angeles.
Þannig var hann aftur orðinn for-
maður íslenzks félags, eins og
þegar hann fór héðan tvítugur.
Heimili þeirra Ólafar og Sumar
liða var ávallt opið Islendingum,
enda bæði með afbrigðum gest-
risin. Margar stórveizlur voru
haldnar á hinu fagra heimili
þeirra í Long Beach af einhverju
íslenzku tilefni, og margan ís-
lendinginn studdi Sumarliði með
ráðum og dáð, svo að þeir minn-
ast hans ævinlega með þakklæti
og virðingu. Fulltrúar fslands í
hinum miklu alheims fegurðar-
samkeppnum, sem árlega eru
haldnar í Long Beach, bjuggu
ætíð á heimili þeirra hjóna, og
frú Ólöf hefur ávallt verið eins
konar „verndari" þeirra og séð
um þær í keppninni, en þeim
hjónum var mjög annt um það,
að hlutur fslands væri sem mest-
ur á þessari hátíð, enda oft sér-
stakt tækifæri til góðrar land-
kynningar í sambandi við hana.
Sumarliði Sveinsson kynnti
land sitt og þjóð, hvar sem hann
fór, með mesta sóma með fram-
komu sinni, ljúfmennsku og virðu
leik. Hann starfaði einnig um
áratugi að beinni landkynningu
með fyrirlestrum, en hann var
mjög vel máli farinn. Hann sómdi
sér alls staðar vel, höfðinglegur
Og fyrirmannlegur, svo að hann
vakti athygli á mannfundum og
gæddur var hann ógleymanleg-
um persónustörfum. Eg hef aldrei
heyrt hina ólíkustu menn tala
jafnlíkt um nokkurn mann. Hon-
um báru allir vel söguna.
Sumarliði var gæfumaður bæði
í þeim skilningi, að honum var
það svo eiginlegt að vera öðrum
til gæfu, og að lífið var honum
einnig gjöfult á margan hátt.
Hann naut ástúðlegs uppeldis.
Hann naut vináttu, vinsælda og
trausts í ríkum mæli alla ævi.
Hann fann snemma lífsförunaut
sinn, glæsilega og gáfaða konu,
sem unni honum öllu ofar. Þau
eignuðust falleg börn, sem hefur
vegnað vel í lífinu. Hann naut
frábærrar heilsu allt sitt líf, unz
hann kenndi válegs sjúkdóms um
síðustu áramót. En þá var dauð-
inn honum mildari en svo mörg-
um, er hann sækir heim með
þeim hætti.
Hann var jarðsettur 29. marz
sl. í Sunnyside Mausoleum í
Long Beach að viðstöddu miklu
fjölmenni. Yfir hinztu hvílu Sum
arliða Sveinssonar vestur á
Kyrrahafsströnd var sungið: Go-
ing home.
Minning hans er geymd, björt
og hlý, austan hafs og vestan.
Sveinn Ásgeirsson.
t
EFTIRFARANDI grein birtist þ.
28. marz á ritstjórnarsíðu dag-
blaðs í Long Beach, Kaliforníu:
Við fráfall Sumarliða Sveins-
sonar hefur Long Beach misst
einn fyrsta borgarann, sem fram
fylgdi í verki hugsjón hinnar
„alþjóðlegu borgar“ og þeim vin
áttuboðskap, sem hún er tákn
um.
Sumárliði, sem vár fslendingur
að ætt, og var fasteignasali hér
í 31 ár, var dæmi um borgara,
eins og þeir bezt gerast, einkenni,
sem oft verður vart við hjá þeim,
sem nýlega eru seztir hér að og
sem vel kunna að meta réttindi
og möguleika lands þess, sem
þeir hafa gert að sínu öðru föð-
urlandi. Hann var fyrrverandi
forseti Long Beach Exchange
Club og fyrrverandi svæðisstjóri
Exchange Clubs, stjórnarmeðlim-
ur í Félagi fasteignasala í Long
Bach og í hinu trúfræðilega
kirkjufélagi.
Sumarliði mun ekki einungis
verða í minnum hafður vegna
framlag hans til borgara- og við-
skiptalífs bæjarfélagsins. Hin al-
þjóðlega fegurðarsamkeppni okk-
ar í Long Beach var annað og
meira fyrir hann en tíu daga
viðburður. Hann og kona hans,
Ólöf, framfylgdu árið um kring
boðskapnum um vináttu milli
allra þjóða, með því að bjóða
árlega fulltrúa íslands velkom-
inn á heimili sitt.
Allir hinir ungu gestir, sem
valdir hafa verið til þátttöku í
hinni alþjóðlegu fegurðarsam-
keppni hafa, í lengri eða skemmri
tíma, notið hinnar einstöku og
frábæru gestrisni, sem var aðals-
merki þeirra hjóna, Sumarliða
og Ólafar.
Og þegar gestirnir sneru aft-
ur til íslands, voru þeir boðberar
velvildar milli borgar okkar og
þjóðar í fjarlægu landi.
Læknakosning
Vegna fráfalls Gunnars J. Cortes, læknis,
þurfa allir samlagsmenn sem höfðu hann að heimil-
islækni, að velja sér nýjan lækni hið fyrsta. Menn
snúi sér til afgreiðslu samlagsins í Tryggvagötu 28
og hafi með sér samlagsbók sína.
Sjúkrasamlag Reykjavíkur
Bílar frá Þýzkalandi
Getum útvegað leyfishöfum notaðar bifreiðir frá
Þýzkalandi. Bílarnir eru valdir o<? eru aðeins L
flokks bílar í boði.
Bilamíðstöðin Vagn
Amtmannsstíg 2 C — Símar: 16289 og 23757
l\l iðstöðvaref ni
',?k
m
PIPUR
FITTINGS
OFNKRANAR
y2“ á kr. 66.45
RENNILOKUR
VENTILSTOPP-
HANAR
-I ?
t-
%
HELGI MAGiSSOI & CO.
Hafnarstræti 19 — Sími 13184 og 17227
Lögtak
Eftir krðfu tollstjórans í Reykjavík og að undan-
gengnum úrskurðd verða lögtökin látin fram fara án
frekari fyrirvara, á kostnað gjaldenda en ábyrgð
ríkissjóðs, að átta dögum liðnurr 'rá birtingu þess-
arar auglýsingar, fyrir eftirtö.. n gjöldum:
Skoðunargjald af skipum fyrir ári< 1961 áföllnum og
ógreiddum skemmtanaskatti og miðagjaldi, gjöld-
um af innlendum tollvörutegundum og matvælaeftir-
litsgjaldi, söluskatti 1. ársfjórðungs 1961, vangreidd-
um söluskatti og útflutningssjóðsgjaldi eldri ára,
gjaldföllnum skráningargjöldum og iðgjöldum at-
vinnurekenda og atvinnuleysistryggingagjaldi af lög
skráðum sjómönnum, bifreiðaskatti, skoðunargjaldi
af bifreiðum og tryggingariðgjöldum ökumanna bif-
reiða fyrir árði 1960, svo og gjaldföllnum fyrirfram-
greiðslum upp í þinggjöld ársins 1961.
Borgarfógetinn í Reykjavík, 4. maí 1961
Kr. Kristjánsson