Morgunblaðið - 02.07.1961, Page 1
24 síður
lönaðar-
menn
sömdu
í gær
NOKKRU eftir hádegi í gær
dag undirrituðu sveinafélög
járniðnaðarhópsins annars
vegar og meistarafélög járn-
iðnaðarhópsins hins vegar
nýjan kjarasamning sín á
milli. Er hér um að ræða fé-
lög blikksmiða, bifvélavirkja,
járniðnaðarmanna og skipa-
smiða. Þegar blaðið fór í
prentun í gær voru vinnu-
veitendur enn á fundi með
félögum byggingariðnaðar-
manna og rafvirkjum. Munu
allar horfur hafa verið á að
^ Moore, aðmíráll, og Willis, hershöfðingi, könnuðu liðið á Keflavíkurflugvelli í gær. _______________ (Ljósm. Mbl.: Markús)
ekki væri langt í samkomu-
lag hjá þessum aðilum, svo
að reikna má með, að öll
iðnaðarmanafélögin taki upp
vinnu eftir helgina. Sátta-
fundir höfðu staðið nær sam-
fellt allt frá því kl. 4 á föstu-
dag. Samkomuiagið er undir-
ritað með fyrirvara um sam-
Frh. á bls. 2
BANDARISKI flotinn tók
við yfirstjórn varnarliðsins á
Keflavíkurflugvelli í gær. —
Breyting þessi hefur verið í
undirbúningi um skeið og
mun hrottflutningi banda-
ríska flughersins, sem annazt
hefur varnir landsins á und-
anförnum árum, verða lokið
innan tveggja mánaða.
Það var Robert B. Moore, að-
míráll, sem tók við yfirherstjórn
varnarliðsins af Benjamin G.
Willis við hátíðlega athöfn á
Keflavíkurflugvelli skömmu fyr-
ir hádegi í gær. Willis hefur
gengt starfinu um tveggja ára
skeið, Ofursti að tign. Héðan fór
hann hershöfðingi, því um leið
Og hann fékk Moore aðmírál
stjórnina í hendur var honum
veitt hershöfðingjatign.
HerDð tveggja þjóöa til Kuwait
r + \ *
— Ovissa rlkjandi uan áform ðraks - stjórnar
KUWAIT og LONDON, 1. júlí.
— (ReuterJ —
TIL Kuwait komu i dag
brczkar orrustuþotur, herlið
og skriðdrekar, samkvæmt
beiðni Abdullah al Salim as
Sabbah, fursta, sem í gær
óskaði eftir vernd Breta og
fleiri aðila gegn ógnunum
íraks um að innlima fursta-
dæmið.
Brezka herliðið komið
Um 850 manna heriið var flutt
í liand úr 22,000 lesta fiugvéla-
móðurskipinu Bullwark, sem á-
samt öðru brezku herskipi hefur
varpað aikkarum úti fyrir Kuw-
ait. Flutti skipið einnig skrið-
dreka, sam skipað hefur verið á
land. Loks er lent í'Kuwait sveit
af Hawker Hunter orrustuþotum.
Uggvænlegt við landamærin
í Kiairo var haft eftir kuwaitsk
Frh. á bls. 23
Gaitskell, leiðtogi brezku
stjórnarandstöðunnar gerði
á opinberum fundi í Bristol
í dag tillögu um, að Samein-
uðu þjóðirnar sendi öryggis
sveit til Kuwait, til þess að
draga úr viðsjám þar. Lýsti
Gaitskell að öðru leyti fylgi
við aðgerðir brezku stjórn-
arinnar í málinu.
Seint í gær bárust fyrstu
fregnir' um að herlið frá
Saudi-Arabíu væri einnig
komið til Kuwait.
Veður var sæmilegt á flugvell-
inum við athöfnina í gær. Dálítill
kaldi, en þurrt veður. Margt
manna var viðstatt m. a. ráðherr-
ar og fuiltrúar NATO-ríkjanna
hér.
Athöfnin hófst með því að sveit
ir flughers Og flota gengu fylktu
liði inn á opið svæði framan við
flugvallarhótelið. Fór mikill
lúðraflokkur fyrir og lék her-
göngulög.
Síðan birtust þeir Moore að-
míráll og Willis hershöfðingi og
könnuðu liðið. Willis hershöfð-
ingi, flutti ræðu og þakkaði mönn
um sínum fyrir góða þjónustu Og
framkomu. Minnti hann á til-
gang varnarsamtaka vestrænna
þjóða og sagði það væri trúa sín,
að einungis með því að vera vel
á verði yrði komizt hjá átökum:
„Við erum alltaf reiðubúnir og
þess vegna vonum við, að ekki
komi til átaka, að við þurfum
ekki að berjast. Á þessum grund-
velli eru varnarsamtök lýðræðis-
þjóðanna byggð“, sagði hann.
Moore, aðmíráll, tók því næst
til máls og sagði, að varðstöðin
á íslandi væri „einstaklega“ mik-
ilvæg varnarkerfi NATO-þjóð-
anna, lífsnauðsynleg vörnum
þeirra. Og þar eð bandaríski
sjóheri.nn væri ábyrgur fyrir
hinu „fljúgandi" ratsjárkerfi
yfir þessum hluta N.-Atlantshafs
ins, hefði það fallið í skaut hans
að taka við yfirstjórn varnarliðs-
ins hér.
Hann sagði, að sáttmáli Atlants
hafsbandalagsins væri einn sá
styttsti og ljósasti af öllum al-
þjóðasáttmálum og þar lýstu öll
aðildarríkin það sitt höfuðmark-
mið að vernda frelsi, sameigin-
legar erfðir og menningu þjóða
sinna, sem grundvölluð væri á
lýðræði, frelsi einstaklingsins,
lögum og rétti. Síðasta hluta
ræðunnar flutti hann á íslenzku
Frh. á bls. 23
Ur.i 30 farast í flugslysi
BUENOS AIRES, 1. júlí (Reut-
er). — Talið er að um 30 manns
hafi látið lífið, þegar argentínsk
farþegafiugvél fórst hér í dag.
Ellefu var bjargað úr flaki henn
Brezka
22,000 lesta berskipið Bulwark, liggur nú við akkeri fyrir utan Kuwait, en þangað flutti það lið brezkra hermanna,
ar og farið með þá í sjúkrahús.
Flugvélinni hlekktist á skaimtmit
frá fluigvelliinum í hvössu veðri
í gærkvöldi og boim upp eldur í
henni. — Samkvæmt upplýsing-
um eigenda fliugvélarinnar, Com-
pania Transcontinental, var hún
að koimia fná Cordoba í Mið-
Argentíniu með um 35 faæþega
og fimrn manna áhöfn.
í desembeir mánuði síðastliðn-
um fóirust 34 Sairþegair með
argentínskri flugvél um 60 miliur
norðvestur af Buenos Aires.
Lesbók
Morgunblaðsins
fylgir blaðinu ekki í dag né um
næstu helgar.