Morgunblaðið - 02.07.1961, Side 15

Morgunblaðið - 02.07.1961, Side 15
Sunnudagur 2. 'Júlí 1961 MORGUNBLAÐIÐ 15 Allar þessar stúlkur eru stöð- ugt í fréttunum, og þá ósjaldan í sambandi við hugsanlega biðla. Sá sem fær einhverja þeirra, fær líka gott kvonfang, því hver um sig er hlutgeng í drottningar- stöðu. En það er bara ekki svo mikið af lausum tilvonandi kon- ungum lengur. Konstantín BRUNABÖTAFÉLAG ÍSLANDS Uúsí smíðum H úsbyggjendur Dragið ekki að brunatryggja hús yðar eftir að bygging er hafin Umboðsmenn um land allt. Skrifstofur: Laugavegi 105 Sími 24425. í fréttunum Grikkjaprins Og Haraldur prins í Noregi eru nálega þeir einu. Stúlkurnar eru, talið frá vinstri að ofan: Isabella í Frakklandi, hin 29 ára gamla dóttir greifans af París, arftaka konunganna í Frakk- landi. er sögð eiga góðan vin, sem er flugmaður. María Beatrice af Savoy er 18 ára. Fjölskylda hennar varð skelfingu lostin fyrir skömmu, er fréttist um að hún hefði átt stefnumót með syni borgaralegs bankastjóra. Margrét prinsessa í Svíþjóð er 26 ára gömul. Konungurinn afi hennar varS ekkert hrifinn af því þegar hún varð ástfangin af píanóleikaranum Douglas Home. Desirée í Svíþjóð er 23 ára. Hún var sögð ástfangin af ungum manni Greger Lewenhaupt, en það fór út um þúfur. Irena Hollandsprinsessa er 21 árs. Blöðin sögðu einu sinni að hún liti Boudouin Belgíukonung hýru auga og nú Konstantin Grikkjaprins. Konstantin Grikkjaprins, sem sagt er að geti valið hverja þeirra sem er. Alexandra af Kent. Hún er 24 ára gömul, og síðan Margrét gifti sig er hún hægri hönd Elízabetar drottningar sem opinber fulltrúi krúnunnar. Anna, í Fraifcklandi, er 22 ára gömul. Hugsanlegt hjónaband hennar Og Simeons af Búlgaríu, sem er grízk-kaþólskrar trúar fann ekki náð fyrir augum páf- ans. Maria Gabriella af Savoy er 21 árs gömul. Hún vildi ekki keisarann í Iran, þegar hann stóð til boða. Hún er stundum kölluð „dularfulla prinsessan". Margrét, erfðaprinsessa í Dan- mörku er 21 árs gömul. Hún hef- ur ekki verið orðuð við neinn, hvorki tiginn né ótiginn. Sophie Grikklandsprinsessa er 22 ára gömul og hefur lengi ver- ið nefnd sem væntanleg brúður Haraldar Noregsprins. Hún þykir kát og er vinsæl hvar sem hún fer. Beatrix Hollandsprinsessa er 28 ára gömul og erfðaprinsessa. Hún er sögð ástfangin af Bob Steensma, hollenzkum stúdent. Skv. stjórnarskránni er hugsan- legt að hún geti átt hann. Gömlu Hollywoodkempurnar týna nú ört tölunni. Tyrone Power, Clark Gable Og nú síðast Jeff Chandler, sem var þeirra yngstur, 42 ára að aldri. Chandler sem byrjaði leiklistarferil sinn á sviði og fór að leika í kvikmynd- um eftir stríð, var undanfarin ár einn af þeim leikurum, sem mest dró áhorfendur í kvikmyndahús- in. Skemmd á hryggnum og mæn unni dró hann til dauða, eftir nokkurra mánaða veikindi. í haust vildi hann ekki hætta við að leika erfitt atriði í kvikmynd inni í frumskógum Fiíippseyja, þrátt fyrir mjög miklar kvalir og sú neitun kostaði hann lífið. Hér er leikarinn, ásamt fjórðu konu sinni, Marjorie Hoshelle, sem hann var skilinn við, en ekki vék frá honum í banalegunni. Með þeim eru dætur leikarans tvær frá fyrri hjónaböndum, Jamie, 14 ára og Dana, 11 ára.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.