Morgunblaðið - 10.02.1962, Síða 1
24 síður
Engin rússnesk
flugvél sást
Þrátt fyrir hótanir Rússa um
trufluoi á flugleiðum til Berlínar
9. febrúar.
Vestur-Berlín,
VESTURVELDIN héldu í dag
fast við réttindi sín til flug-
samgangna við Vestur-Berlín
með því að láta hervélar sínar
vera á stöðugu fiugi eftir „göng
unum“ til borgarinnar þrátt
fyrir aðvaranir Rússa um að
rússneskar hervélar yrðu á ferð
í þessu svæði fjórar stundir
dag. —
Á miðvikudaginn tilkynntu
Rússar herstjómum Breta,
Bandaríkjamanna og Frakka,'að
þeir ætluðu sér að nota hluta
„ganganna“ þrjár stundir á
fimmtudag og fjórar stundir á
föstudag. Þess vegna væri bezt
fyrir Vesturveldin að stöðva
flugumferð á þessum tíma aust-
Ur til Vestur-Berlínar til þess
að ekki yrði hætta á slysum.
Vesturveldin mótmæltu og
sögðu þetta brot á fjórvelda-
samningnum um Berlín. Flug-
vélar þeirra voru stöðugt í för-
um frá Frankfurt, Hannover og
Hamborg til Berlínar — og aft-
ur til baka — báða dagana. —
Flugmennimir sáu aldrei rúss-
neska flugvél og ekki dró til
tíðinda.
Hins vegar sneri rússneski
hernámsstjórinn í Austur-Berlín,
Dndrej Solovjev, frá hliðinu inn
á bandaríska hernámssvæðið í
Berlín í dag, er bandarískir verð
ir kröfðu hann skilríkja. Rúss-
inn svaraði ekki einu orði, held-
ur sneri við — og var þetta
fyrsta tilraun hans til að fara
inn á bandarrska hemámssvæð-
ið síðan í september. Þá kröfðu
Rússar bandaríska starfsmenn
hernámsstjórnarinnar skilríkja
er þeir héldu inn á rússneska
hernámssvæðið — og tóku
1 Bandarílcjamenn upp sams kon-
ar starfsaðferðir með fyrr-
greindum afleiðingum.
Rússneski hernámsstjórinn vár
á leið til fundar við brezka her-
námsstjórann, en hefði getað
farið beint yfir á brezka her-
námssvæðið — og sneitt hjá því
bandaríska.
Mistök
fSugstjórans
SALISBURY, Suður Rhodesíu, 9.
febrúar. — Það voru mistök flug-
stjórans, sem leiddu til dauða
Hammarskjölds, segir í niður-
stöðu rannsóknarnefndarinnar,
sem S-Rhodesíustjóm setti á lagg
irnar til þess að komast fyrir
orsök slyssins: Flugvélin flaug
of lágt og rakst á trjátoppa. —
Nefndin staðhæfir, að ekkert
hendi til þess að vélin hafi verið
skotin niður.
„OAS-moröingjar“
Parísarbúar sýndu hug sinn til OAS
i verki — almenn þátttaka
/ mótmælaverkfaHi
París, 9. fébrúar.
T U G IR þúsunda Parísarbúa
tóku þátt í klukkustundar verk-
falli til að mótmæla hermdar-
aðgerðum OAS. Þúsundir fóru
um götur miðborgarinnar og
báru mótmælaspjöld, sem á var
letrað m. a. „OAS — morðingj-
ar“. — Samgöngur lömuðust í
mörgum borgarhlutum, skrif-
stofum var lokað, jafnvel
franska útvarpið varð að leika
hljómplötur — og fella niður
aðra dagskrárliði vegna þess að
starfsmenn útvarpsins lögðunið-
ur vinnu.
Það voru verkalýðssamböndin
þrjú, kennarar og stúdentar,
sem boðuðu verkfallið og þátt-
takan varð mun almennari en
Óskað aðgerða
NAT O-ríkjanna?
WASHINGTON, 9. febr. — Banda
ríkjafltjóm hu.gleiðir að fara
|>o3S á leit við Atlantslhaifsráðið,
Flúðu
hungur
MACAO, 9. febrúar. - Þrettán
flóttamenn úr landi kín-
verskra kommúnista hlupu
fyrir borð á fiskiskipi sínu í
dag og komust undan byssu-
kjöftum eins af varðbátum
kommúnista. Leituðu þeir hæl
is hér og sögðust hafa undir-
búið flóttann lengi — því þeir
væru hungraðir. 1
að athugað verði, hvort Atlants
hafsbandalagsríkin vilji ekki
stöðva útflutninig til Kúbu á
sama hártt Og Bandaríkin.
Reutens-fréttastofan heifur eft-
ir góðum heimildum, að fyrst og
fremst eigi þetta við varninig,
sem hægt sé að nota til hernaðar
þarfa, en Bandaríkjastjóm sé
líka umhugað um að Vesturveld
in stöðvi útflutning annarrar
vöru til Kúbu.
Er þetta í samræmi við saim-
þykiktina, sem gerð var á fundi
Ameríkuríkjanna í Punte del
Esto — og miðar að einangrun
Kúbu að svo miklu leyti sean
Vesturveldin geta beitt sér.
Málið hefuir verið rætt við
Stikker, framikvæmdastjóra
NATO, en hann hefur verið á
ferð veetan hafs.
búizt hafði verið við. ESckihafði
lögreglan sig neitt í frammi
þrátt fyrir bann við kröfu-
göngum.
Kommúnistar tengdu verkfall-
ið atburðunum í gærkvöldi,
sögðu það líka mótmæli gegn
afskiptum lögreglunnar af úti-
fundum, en í gær kom til átaka,
sem leiddu til þess að átta biðu
bana, þar af ein kona og 16 ára
unglingur. Átökin í gærkveldi
eru sögð þau mestu, sem átt
hafa sér stað í París síðan 1934.
í dag bárust fregnir um að
OAS hefði numið á brott 19
ára gamlan frænda Debré,
forsætisráðherra, son Marc
Stórkosdegor
myndir iró
Tiros IV
WASHINGTON, 9. febrúar. -
Tiros IV hefur þegar reynzt
betur en vísindamennirnir
þorðu að vona. Fyrsta sólar-
hringinn sendi henn myndir,
sem þykja taka öllu fram, sem
fyrri veðurhnettirnir hafa
sent áður. Sögðu vísindamenn,
að myndirnar væru stórkost
legar — og mundu örugglega
hjálpa veðurfræðingum mjög
mikið við veðurspár. í dag
voru myndir af skýjamyndun
um yfir N-Ameríku notaðar
við veðurathuganir Og veður-
Ispár. Myndirnar gáfu og góða
heildarmynd af snjóalögum í
N-Ameríku. Þá er gert ráð
fyrir að góðar myndir fáist af
hafísbreiðunum á norðurslóð-
um — og verða allar upplýs-
ingar um ísinn sendar sæfar-
endum jafnharðan og þær ber
ast.
Schwartz, prófessors, sem þekkt
ur er af andstöðu sinni við OAS.
Róstusamt var í Alsír í dag,
OAS-menn felldu nokkra Serki
— og ekkert útlit er fyrir að
ógnaröldinni linni þar.
ÞESSI mynd var tekin af 16
nýútskrifuðu læknunum frá
Háskóla ísl. í Ingólfsapóteki
í gær. Talið frá vinstri: Ólafur
Stephensen, Ingvar Kjartans-
son, Svanur Sveinsson, Ásgeir
Karlsson, Þröstur Laxdal, Jón
Níelsson, Ágúst Jónsson, Árni
Ólafsson, Kristján Baldvins-
son, Halldór Jóhannsson, Loft
ur Magnússon, Pedro Riba
Ólafsson, Óli Bjöm Hannes-
son, Gunnar Gunnlaugsson,
Árni Kristinsson og Halldór
Guðnason. SJÁ BLS! 3. —
(Ljósm. Mbl. Ól. K. M.)
"
Spánn vill í Efna-
hagsbandalagið
BRUSSEL, 9. febrúar. — Spánn
óskaði í dag formlega eftir við-
ræðum um upptöku í Efnahags-
bandalag Evrópu. Þetta var kunn
gert samtímis í Madrid og
Brussel, en í bréfi Castiella, utan-
rikisráðherra Spánar, til de Mur
ville, utanríkisráðherra Frakka
og form&nns ráðherranefndar
Efmahagsbandalagsins, óskar
Spánn að tengjast bandalaginu
með það fyrir augum að öðlaat
með tímanum fulla aðild.
í tilkynningu Efnahagsbanda-
lagsins segir í þessu sambandi,
Atfoula hélt
vongóður
heirn
GENF, 9. febr. — Adoula, forsæt
isráðherra stjórnarinnar í Leo-
poldville, héilt í dag heimleiðis
og hafði skamma viðkomu 1
Genf. Sagði hann í viðtali við
blaðamenn, að mikils árangurs
væri að vænta af Bandarilkja-
förinni. Hann hefði skýrt af-
stöðu Kongóstjórnar fyrir full-
trúum stórveldanna oig á vett-
vangi SÞ. Sagðist hann vænta
þess, að Sovétstjómin gerði sér
ljósari hugmyndir um ástandið
í Kongó eftir viðræðurnar við
Zorin. Adoula bætti því við, að
hann hefði hvatt Zorin til þéss
að fá stjórn sína til að greiða
hennar hluta í koetnaði SÞ í
Kongó
að ekki geti orðið um fulla aðild
að ræða fyrr en Spánn hafi sam-
ræmt efnahagsmál sín aðstæð-
um innan Efnahagsbandalagsins;
Grikkir eru þeir einu, sem
tengzt hafa Efnahagsbanda-
laginu nú þegar, en Tyrkir,
Svíar, Austurríkismenn Og Sviss-
lendingar hafa farið fram á auka
aðild — og Bretar og Danir hafa
óskað fullra aðildar. Allar eru
mntökubeiðnirnar enn á umræðu
stigi.
375
fórust
SAARBRUCKEN, 9. febrúar —
Nú er tala þeirra, sem létust í
námuslysinu stóra, komin upp í
305. Enn eru 10 ófundnir en full
víst er talið, að þeir hafi látizt
— svo að talan fer sennilega upp
í 315. — Yfir 36 millj. króna hafa
þegar safnazt til stuðnings fjöl-
skyldum, sem þarna misstu fyrir
vinnu sína. — Á morgun verður
námumannanna minnzt viða um
Þýzkaland — og kirkjuklukkum
verður hringt í 10 mín. til minn-
ingar um þá, sem fórust.
Jamaika sjálfstæð
LONDON, 9. febr. — Samkomu-
lag hefur náðst með brezku stjóm
inni og fulltrúuim Jamaika um
stjórnarskrá fyrir eyjuna Og hlýt
ur hún sjálfstæði hinn 6. ágúst