Morgunblaðið - 10.02.1962, Qupperneq 2
2
MORGVNBLAÐIÐ
Laugardagur 10. febr. 1962
Mjófkurmagnið jókst
um 7,75 % á sl. ári
INNVEGIÐ mjólkurmagn hjá |
Mjólkursamlögunum nam
81.797.922 kg. á s. 1. ári og var
5.883.194 kg. meira en árið áður
samkv. skýrslu Framleiðsluráðs
landbúnaðarins. Hafði mjólkur-
magnið aukizt um 7.75%. Skipt-
ist þetta á 14 mjólkurbú. Mest
magn fór í mjólkurbú Flóamanna
32.800,450 kg., samlagið á Akur-
eyri 15.351.003 kg., í Borgarnesi
7.759.804 kg. og í Reykjavík
6.869.637 kg.
Flugvél F.Í. veður-
teppt í Glasgow
FLUGVBL Flugfélags íslandis á
leið frá KajupmanaialhöÆn til
Reyikjavíkur með viðkomu í
Glasgow í Skotlandi hefur verið
teppt í Skotlandi síðan í fyxra
dag Oig var óvíst talið að hún
kæani í gæikrvöldd. Hefur veður
verið óhagstætt á leiðinni og spá
in fyrir fsland slæm. I>ar við
bættist að flugvélin var flullsieit
in farþegum, svo ekki var hægt
að taka aukabirgðir af benzíni.
Mjólkin skiptist þannig í gæða
flokka samkv. skýrslu Mjólkur-
eftirlitsins: í I og II flokk fóru
79.763.147 kg. eða 97.81%, í III
flokk fóru 1.680,938 kg eða 206%,
í IV flokk fóru 101.258 kg eða
0.12%.
Af mjólkinni var selt sem ný-
mjólk 36.526.674,35 ltr., seldur
rjómi 996.576,35 ltr., framleitt
smjör 1.339.316 kg, skyr 1.877.366
kg mjólkurostur 563.577,2 kg,
mysuostur 40.128 kg, nýmjólkur-
duft 42.200 kg. undanrennuduft
726.795 kg, undanrenna í kasein
ltr. 11.085.813, mjólk í niðursuðu
ltr. 95,928 og framleiddur fóður-
ostur 14.615 kg.
Tilraunir
LONDON, 9. febrúar. — Haft er
eftir áreiðanlegum heimildum, að
brezka stjórnin Og sú banda-
ríska hafi sett kjamorkutilraun-
irnar efstar á dagskrá utanríkis-
ráðherrafundarins, sem þeir hafa
beðið Rússa að taka þátt í.
76 árekstrum fleira í
janúar en í fyrra
í janúarmánuði hefur oft
verið mjög hált á götunum í
Reykjavík, enda mjög mikið
um árekstra. Skv. skýrslum
götulögreglunnar urðu 208
árekstrar á götunum í janúar,
en ekki nema 132 á sama tíma
í fyrra, enda ekki nærri eins
hættulegt færi þá.
Langtíðustu orsakir slys-
anna eru of stutt bil milli bif-
reiða og umferðaréttur ekki
virtur, eins og reyndar skýrsl
ur frá öllu sl. ári sýna. 6 sinn
um var ekið á mannlausa bif-
reið í mánuðinum og 13 sinn-
um á nálæga hluti, 6 börn
urðu fyrir bifreiðum, 5 karl-
menn og 1 kona. 3 hjólreiða-
menn slösuðust, 2 ökumenn
bifreiða og 1 slasaður farþegi.
Kortið sýnir að flestir árekstrar í janúarmánuði urðu
kl. 1—2 á daginn.
Skákin
EIN skák ver tefld í Stokkhólmi
I gær, en annars er föstudagur
frídagur hjá skákmönnumnn.
Geller og Bolbochan leiddu sam
an hesta sína, í ólokinni biðskáK
þeirra og vann Geller.
Bilek vann biðskákina við Gli-
goric.
Flesta daga
gengið á reka
LÁTRUM, 8. febr. — Hér er og
hefur verið að undanförnu nær
samfellt illveður og má því segja
að betra sé nú að vera bóndi en
sjómaður, því heita má að aldrei
gefi á sjó.
Flesta daga er gengið á fjörur
og hugað að reka, þegar átt er
þannig að hans mætti vænta. —
Ekkert hefur þó fundizt nýverið.
— í>órður.
íslendingar kvöddu
Hótel Cosmopolit
HOTEL Cosmopolit, hið mikla
„íslendingahótel“, við Kongens
Nytorv, hætti starfsemi sinni um
síðustu mánaðarmót, sem kunn
ugt er. Síðasta daginin var haldið
kveðjuhóf í hótelinu og þangað
m.a. boðið þeim af eldri áhöfn
um á flugvélum Flugfélags ís-
lands, sem væru á ferðinni, en
starfsfólk Flugfélagsins hefur
jafnan gist á Hotel Cosmopolit í
s.l. 13 ár og hafði afgreiðslumað
ur félagsins aðsetur þar fyrst, á
meðan félagið var að koma sér
fyrir í Höfn. Aðrir íslendingar
hafa einnig mjög mikið notið þar
gistingar.
Tvær flugáhafnir voru stadd-
ar í Kaupmannahöfn þennan dag,
áhöfnin af Vicountvél, sem var
í áætlunarflugi, og áhöfn undir
forustu Jóhannesar Snorrasonar
flugstjóra, sem var á leið til
Zurich, til að sækja Cloudimaster
flugvélina, er þar hafði verið í
klössun.
Blaðið hafði í gær samlband
við Jóhannes Snorrason, flug-
stjóra, sem sagði að hótelið hefði
alltaf verið eins og annað heim-
ili íslenzku flugmannanna í
Höfn. Hefði hótelstjórinn, Sören
Böge, og allt starfsfólk hiótels-
ins ávallt verið íslendingum mjög
innan handar og vinsamlegt og
mundu þeir allir sakna þess að
geta ékki búið þar lengur.
í veizlunni flutti Jóhannes
kveðjur og þakkir fyrir hönd ís-
lenka flugfólksins. Ekki er enn
ákveðið á hvaða hótel flugáhafnir
FÍ flytja sig nú, sennilega ann
að hvort á Grand Hotel eða
Imperial.
i Þúsundir kennara og stúdenta i
1 söfnuðust saman við Maison
de la Mutualite í París á
þriðjudaginn til þess að mót-
mæla hermdarverkum OAS —
og hermenn slógu hring um
mannsöfi uðinn. Inni í bygg-
ingunni fluttu Sorbonne- pró-
fessorar og leiöíogar kennar-
anna æsihgarfullar ræður og
múgurinn tók undir með
hvatningarhrépum um ein-
arða andstöðu gegn OAS.
Lán til Perú
WASHINGTON, 9. febrúar. —
Bandaríkin hafa veitt Peru sex
milljón dullara lán til atvinnu-
bóta fyrir 30þús. atvinmulausa
v enn.
Albanir mótmæla
London, 8. febr. (NTB)
S T J Ó R N Albaníu hefur mót-
mælt því við aðrar A-Evrópu-
þjóðir, sem eru meðlimir Varsjár
bandalagsins, að henni var ekki
boðið að taka þátt í síðasta
fundi bandalagsríkjanna, sem
haldinn var í Prag 30. jan. til
1 febr.
Neita viðtöku
Fregnir frá Albaníu herma, að
stjórnin hafi gert tilraun til að
koma mótmælaorðsendingu á
f.... C ,,, " TrlfC l—J rvl _
lands, Tékkóslóvakíu, Rúmeníu,
Búlgaríu og Ungverjalands í
Tirana. Sendifulltrúar ríkjanna
sögðu, að þeim væri innihald
orðsendingarinnar kunnugt og
neituðu að taka við henni.
Tékkneska sendiróðið, sem
gætir hagsmuna Sovétríkjanna í
Albaníu eftir að þau rufu stjórn-
málasamband við landið, neitaði
einnig, að sögn albönsku frétta-
stofunnar, að taka við orðsend-
ingunni og senda hana til
Moskvu.
Mikill
ávinningur
WASHINGTON, 9. febrúar —
Rússar bættu verulega að-
stöðu sína á sviði kjarnorku-
mála með tilraununum miklu
í haust, sagði Foster, helzti af-
vopnunarmálasérfræðingur
Kennedys í dag.
Russell hótar
LONDON, 9. febr. — Bertrand
Russel hefur rifcað Macimálllan
bréf þar sem hótað er aðgerðum
samtakanna gegn kjarnorku-
sprengjum, ef Bretar hefja
sprengingar á ný. Russeíl, sem er
89 ára, er formaður samtakanna.
Gæta hagsmuna
Argentínu
HAVANA, 9. febr. — Svissneska
sendiráðið á Kúbu mun taka að
sér að gæta hagsmuma Argentínu
á eyjunni eftir að stjórnmálasam
bandinu við Castro-stjómina hef
ur verið slitið. Svisslendingar
gæta og hagsmuna Bandaríkj-
anna á Kúbu.
KLUKKAN 11 í gær var
suðvestan hvassviðri eða
stormur og él yfir hafinu hér
fyrir vestan og suðaustan
land allt til Grænlands og
upp undir strendur Kanada.
Milli kuldaskilanna milli ís-
lands og Bretlandseyja og
hitaskilanna yfir Englandi og
upp með vesturströnd Nor-
egs er hlýtt rakt loft. Hita-
skilin yfir Englandi eru
skörp. — Kl. 5 í gærmorgun
var þannig 25 stiga frost í
London, en 8—10 stiga hiti
á írlandi.
Veðurhorfur kl. 22 í gær-
kvöldi:
Suðvesturland til Vestíjarða
og miðin: Hvass vestan storm-
ur með köflum, éljagangur.
Norðurland og miðin: SV- og
síðar V átt, hvassviðri eða
stormur með köflum, él, eink-
um vestantil. Norðaustur-
land, Austfirðir og miðin:
V-átt, sumsstaðar allhvass eða
hvass, léttskýjað. Suðaustur-
land og miðin: Vestanátt,
hvasst með köflum él vesfcan
tu.
Horfur á sunnudag: Suðlæg
átt, él um vestanvert landið.