Morgunblaðið - 10.02.1962, Qupperneq 3
Laugardagur 10. febr. 1962
MORGUNBLAÐIÐ
3
☆
p' * i
ÞAG voru 16 ánægðir menn,
sem voru saman komnir í Ing-
ólfsapóteki síðdegis í gær, og
raunar ekki aS undra, því að
allir taöfðu þeir lokið embætt-
isprófi í læknisfræði í gær og
í fyrradag. Ingólfsapótek hef-
ur síðan 1960 taaft þann sið
að bjóða nýútskrifuðum lækn
um upp á glas af góðu vínx
daginn, sem þeir taka síðasta
prófið. Og að loknu prófi í
réttarlæknisfræði hjá prófes-
sor Níels Dungal í gær, komu
hinir nýútskrifuðu læknar
saman í húsakynnum Ingólfs-
apóteks til þess að fagna unn-
um sigri.
Eins og fyrr getur hefur Ing
ólfsapótek haft þann sið að
bjóða nýútskrifuðum læknum
að lyfta glasi daginn, sem
þeir ljúka síðasta prófinu.
Var þessi siður upp tekinn
1960, er læknastúdent, sem
starfaði í apótekinu, lauk em-
bættisprófi. Bauð Guðni Ól-
Halldór sýnir gestunum lyfjaíager Ingólfsapóteks. Frá vinstri: Halldór Magnússon,
Loftur Magnússon, Þröstur Laxdal, Árni Ólafsson og Halldór Guðnas.. Ljósm. Mbl. Ól.K.M.
Kandidataplássin eru
ekki ndgu mörg í Rvík
76 læknar útskrifuðust frá Háskólanum i gær
afsson, apótekari, þá öllum
hópnum að koma og skoða
apótekið og þiggja veitingar
og hefur þessi siður haldist
síðan.
Halldór Magnússon, fulltrúi
Guðna í fjarveru hans, bauð
hina nýútskrifuðu lækna vel-
komna í gær með nokkrum
orðum, og var þeim síðan
sýnt apótekið.
Það ríkti mikil „stemning“
í hópnum og er læknarnir
voru spurðir hvað nú tæki við
svöruðu þeir:
— Það er nú það, sem eng-
inn veit. Sennilega að slappa
af og hvíla sig í nokkra daga.
— Við erum margir, sem
útskrifuðumst í dag, og kandi-
dataplássin eru alltof fá. Það
eru í mesta lagi 4—5 pláss í
Reykjavík laus og ekki öll
strax. Það er skylda að vinna
samtals 13 mánuði á sjúkra-
húsi og sex mánuði í héraði
áður en við fáum lækninga-
leyfi. Við getum unnið á
sjúkrahúsi erlendis en héraðs-
lækningarnar verðum við að
inna af hendi hér heima. Við
gerum ráð fyrir að sumir okk-
ar fari á spítala erlendis.
— Ætla ekki einhverjir í
sérgrein?
— Það er ennþá allt laust
í reipunum varðandi það. En
flestir munu hafa hug á því.
Hinir nýbökuðu læknar eru
Ágúst Jónsson, Nýja Garði,
Árni Kristinsson Sólvallagötu
29; Árni Ólafsson, Mávahlíð
44; Ásgeir Karlsson, Freyju-
götu 34; Gunnar Gunnlaugs-
son, Kleppsvegi 22; Halldór
Guðnason, Miklubraut 13;
Halldór Jóhannsson, Hverfis-
götu 36, Hafnarfirði; Ingvar
Kjartansson, Miklubraut 58;
Jón Níelsson, Sörlaskjóli 92;
Kristján Baldvinsson, Úthlíð
7; Loftur Magnússon, Baróns-
stíg 61; Ólafur Stephensen,
Skaftahlíð 88; Óli Björn Hann
esson, Nýja Garði; Pedro Riba
Ólafsson, Kleppsvegi 48; Svan
ur Sveinsson, Akurgerði 11;
Þröstur Laxdal, Hátúni 4.
1 gærkvöldi héldu læknarn-
ir síðan inn í Klúbb þar sem
þeir snæddu kvöldverð og
fögnuðu unnum sigri ásamt
eiginkonum sínum, en allir
munu þeir kvæntir utan einn.
— hh.
Halldór Magnússon ávarpar hina nýútskrifuðu Iækna í
Ingólfsapóteki í gær.
,Skrúfudagur' í Vél-
skólanum á mánud.
í RÁÐI er að stofna til tyllidags
í Vélskólanum, er nefnist Skrúfu
dagur 12. febr. ár hvert og verð-
ur hann því á mánudaginn. Til-
efni dagsins er að kynna starf-
semi skólans út á við og jafn-
fram að tengja saman eldri og
yngri nemendur um velferðar-
xnál hans. Er Skrúfudagur í um-
sjá nemenda og formanns skóla-
félagsins.
Dagskrá dagsins að þessu sinni
verður sem hér segir: kl. 10
verður skólinn sýndur boðsgest-
um. Kl. 13.30—16 verður starf-
•emi skólans kynnt vélstjórum
og öðrum, sem áhuga hafa á mál-
efnum hans. Kl. 17 verður há-
tíðafundur í samkomusal skól-
ans og dagskráin eftirfarandi:
1) Formaður skrúfuráðs flytur
ávarp og afhendir skrúfuna ein-
um kennara til eignar 2) vél-
stjóri flytur erindi. 3) ávörp
gesta. 4) skólastjóri flytur ávarp
og afhendir einum nemanda heið-
ursvott.
Vélstjórum og konum þeirra
er sérstaklega boðið að taka þátt
í hátíðafundinum. Allar verk-
legar deildir verða starfræktar
kl. 13.30—16 og gefst þá gott
tækifæri til að kynnast þeirri
hlið á starfsemi skólans.
Æskulýðsguðs-
þjónusta í Hafnarf
HAFNARFIRÐI — í fyrramálið
kl. 11 verður þriðja æskulýðs-
guðsþjónusta skáta og séra Garð
ars Þorsteinssonar í Þjóðkirkj-
unni. Tvær hinar fyrri á vetrin-
um hafa inælzt mjög vel fyrir og
kirkjan fullsetin í bæði skiptin.
Guðsþjónustuhaldið er með
þeim hætti, að skátar flytja ýmsa
liði við messugjörðina. Þeir hafa
einn þátt sérstaklega og flytja þá
ávarp eða frásögn. Þá les skáti
guðsspjallið pistilinn og flytur
guðsspjallið, pistilinn og flytur
ávarp. Þá fer fram lestur úr Bibli
unni milli prestsins og safnaðar-
ins, en kaflarnir eru á blöðum,
sem úthlutað verður.
Eins og fyrr er guðsþjónusta
þessi sérstaklega ætluð ungling-
um og skólafólki Er æskufólkið
beðið að nafa með sér sálmabók.
Slæmar sprengjur
LONDON, 9. febrúar — Aðaknál
gagn Ráðstjórnarinnar, Pravda,
segir í dag, að ákvörðun Breta Oig
Bandarikjamanna um að hefja
kjarnorkusprengingar að nýju sé
alvarleg ógnun við heimsfriðinn.
Þetta sé gert til þess að magna
kalda stríðið og kjarnorkukapp-
hlaupið svonefnda.
ifnarfjarðarkir1’
Ósæmileg blaðamennska
t kommúnistamálgagninu i
gær er fjallað um Sölumiðstöð
hraðfrystihúsanna og sölufélag
þess í Bandaríkjunum, Cold-
water. Þar segir m.a. að gera
megi því skóna, „að eftir ís-
lenzkum mælikvarða sé hér og
hafi verið að gerast efni í ó-
venjulega umfangsmikinn glæpa
reyfara“.
Síðan er talað um forstjóra
Coldwater, sem „aðalskúrk“,
fjölyrt um „rjúkandi glæpa-
reyfara" og annað í þeim dúr.
Að sjálfsögðu er hér um að
ræða alveg ósæmandi blaða-
mennsku og einhverjar hrotta-
fengnustu aðdróttanir, sem um
geíur.
Málefnalegar umneður
Morgunblaðið skýrði á sínum
tíma frá því, að deilur væru
innan Sölumiðstöðvar hraðfrysti
húsanna. Báðir sölustjórar Cold-
waters í Bandaríkjunum hefðu
gefið stjórn SH ítarlega skýrslu
um rekstur þess fyrirtækis og
talið að í óefni stefndi, einkum
að því er varðaði rekstur verk-
smiðju félagsins í Nanticoke.
Eftir þessar ádeilur hefði for-
stjóri Coldwater, Jón Gunnars-
son, sagt sölustjórunum upp
starfi. Morgunblaðið bætti því
við, að eðlilegt væri að stjóm
SH gerði opinberlega grein fyr-
ir þessum málum. Önnur blöð
hafa síðan skýrt frá þessum
ágreiningi og yfirleitt rætt mál-
ið á sæmandi hátt. En Þjóðvilj-
inn grípur til glæpabrigzla.
Segja má, að ekki sé óeðli-
legt, að stjóm SH vilji fyrst
gera félagsmönnum grein fyrir
málefnum samtakanna, enda
verður haldinn aukafundur SH í
næstu viku. Vafalaust verða
samtökin svo við þeirri áskorun
að skýra opinberlega frá þess-
um málum að þeim fundi af-
loknum. Þangað til eru dylgjur
ósæmandi öðrum en kommún-
istamálgagninu. Hitt er svo allt
annað mál, að vafalaust má
gagnrýna ýmislegt hjá SH eins
og fleirum og e.tv. hafa óeðli-
lega mikil störf og völd verið
falin Jóni Gunnarssyni, þótt
enginn neiti því að hann sé harð-
duglegur maður, sem unnið hef-
ur brautryðjandastörf við að
útvega markaði fyrir íslenzkar
afurðir.
Fólitísk rannsðkn
Á samat hátt og skrif komm-
únistamálgangsins eru ósæm-
andi, eins og málin horfa við i
dag, er einnig tillaga þeirra um
að skipa pólitíska rannsóknar-
nefnd til höfuðs SH í hæsta
máta óeðlileg. Samtökin eiga að
sjálfsögðu sjálf að fjalla um á-
greiningsefni sín, og ef um ein-
hver afbrot væri að ræða, þá
eru það málefni dómstólanna, en
ekki pólitískrar nefndar. Auð-
vitað mundi það æra óstöðug-
an, ef stöðugt ætti að skipa
pólitískar rannsóknarnefndir, ef
ágreiningur væri milli stjórn-
enda atvinnufélaga um rekstur
þeirra. Það segir sig sjálft, að
fyrir kommúnistum vakir ekki
að koma á umbótum í fisksölu-
málum, heldur að reyna að
stofna til ófriðar. — Afstaða
kommúnista breytir þó engu nm
nauðsyn þess, að Sölumiðstöð
hraðfrystihúsanna geri opinbera
grein fyrir málefnum þeim,
sem nú eru mjög rædd meðal
almennings, enda hlýtur það
fyrst og fremst að vera í hag
samtakanna sjálfra, að hið rétta
komi í Ijós, svo að menn þurfi
ekki að vera með neinar get-
sakir. —