Morgunblaðið - 10.02.1962, Page 9
Laugardagur 10. febr. 1962
MOBCXJTSBL 4ÐIÐ
9
•:•-.•.•.•.•:•;.• •;•••• ; •••:■: • •• ••••••• •'•• •:•••:••■•■
Frá setningn Fiskiþings. Davíð Ólafsson, fiskimálastjóri og
Emii Jónsson, sjávarútvegsmálaráðherra.
Janúarvertíöin ein-
kenndist af ógæftum
Landlega liefur nu staðið á aðra viku
JANÚARMÁNUÐUR einkenndist
af miklum ógæftum á vertíðinni
sunnanlands og hafa bátar ekki
getað róið nema nokkra róðra.
Afli hefur því verið minni víð-
asthvar en í janúarmánuði í
fyrra.
Um 300 bátar stunda vertið
frá höfnum frá Hornafirði til
Stykkishólms. Mbl. aflaði sér upp
lýsinga hjá fréttariturum sínum
á nokkrum helztu útgerðarstöð-
unum sunnanlands og fara þær
hér á eftir.
AKRANESI. — Heildarsíld-
veiðin hér hjá hringnótabát-
tinum í janúarmánuði var 18,976
tunnur. Fyrst í janúar og fram
eftir mánuðinum voru bátarnir
13—14, sem stunduðu síldveið-
arnar en í lok mánaðarins hafði
þeim fækkað niður í 10. Sex
daga gaf þeim á síldina í janúar
í ár. Heildarsíldaraflinn í janúar
í fyrra var 30,180 tunnur. Átta
daga gaf þeim á síldina þá.
1 janúarmánuði á þessu ári
hafa átta línubátar farið 47 róðra
og aflað í þeim 212 lestir. Afla-
hæstur var Ásmundur, sem fisk-
aði 41 tonn í 9 róðrum. í janúar
í fyrra stóð verkfall yfir hér hjá
línubátamönnum og fékkst því
enginn fiskur á línu í þeim mán-
uði. — Oddur.
•Á HELLISSANDI. — Gæftir
hafa hér verið mjög slæmar
og hafa bátarnir nú ekki róið í
é aðra viku samfleytt. Hafa bát-
ernir oft og tíðum ekki getað
sótt venjuleg mið vegna veðurs'
eftir að vertið hófst. jafnvel þótt
þeir hafi farið á sjó.
Heildarafli fimm báta í janúar
var 416 % tonn í 71 róðri. Afla-
hæst var Skarðsvík með 120 Vz
lest í 17 róðrum og þá Sæborg
með 76 lestir í 13 róðrum. Hjá
hinum þremur var aflinn 70—75
lestir. — Menn eru nú orðnir leið
ir mjög á þessum veðraham, enda
ekkert hér að starfa þegar
bátarnir komast ekki á sjóinn.
— R. Ó.
★ GRINDAVfK. — 19 bátar
fengu samtals í janúar 605
lestir í 109 róðrum. Á sama tíma
í fyrra fengu einnig 19 bátar
I 850 Vz lest í 125 róðrum. í fyrra
I var Þorkatla hæst með 95 lestir
| í 10 róðrum en nú er Máni hæst-
ur með 64,6 lestir í 9 róðrum.
I Vonin hefur 59,8 lestir í 10 róðr-
I um, Arnfirðingur 50.3 í 9 róðrum,
j Flóaklettur 49,4 lestir í 9 róðrum,
| Þorsteinn 47,5 lestir í 9 róðrum,
Hafrenningur 42,7 lestir í 9 róðr-
um, Sæfaxi 42,1 lest í 6 róðrum
og Guðjón Einarsson 40,8 í 9 róðr
um. Auk þessa hafa þrír minni
bátar fengið samtals 34 y2 lest í
13 róðrum.
Ekki hefur verið róið undan-
farna daga, og voru gæftir yfir-
leitt mjög lélegar í janúar.
★ ÞORLÁKS HÖFN. — Þrír
bátar voru tilbúnir að hefja
róðra í byrjun janúar. en vegna
ógæfta var ekki hægt að byrja
fyrr en 6. janúar. Síðan hafa
ógæftir verið miklar. mesti róðra
fjöldi báta 11 róðrar í janúar.
Afli bátanna er þessi: Þorlákur
II 54 lestir í 11 róðrum, Friðrík
Sigurðsson 43 lestir i 11 róðrum,
Klængur 40 lestir í 9 róðrum,
Viktóría 40 lestir í 7 róðrum,
Faxi 22 lestir í sex róðrum.
Landlega hefur nú verið í 9
daga samfleytt og vond spá fram
undan. í janúar í fyrra var
ekkert róið vegna þess, að ekki
var samið við sjómenn fyrr en 25.
jan. og róðrar hófust ekki fyrr en
í febrúar. — Næstu daga bætast
3 bátar við, Páll Jónsson, ísleifur
og Þorlákur. — Unnið er að því
að útvega bát í stað Viktoríu þar
sem hún verður ekki tilbúin fyrr
en í fyrsta lagi á síðari hluta
vertíðar. Þá hefur Meitill h.f.
vonir um þrjá báta til viðbótar,
en ekki er endanlega búið að
semja um það. Róa þá 11 bátar
hér fyrir utan Viktoríu.
— M. B.
Á Vestmannaeyjum, 2. febrúar.
Veðráttan hefir verið hér
með eindæmum slæm það sem af
er þessari vertíð og ógæftir því
miklar. Hér er nú foráttubrim
og veðurofsinn breytist sífellt
allt frá suðaustri til vesturs.
Bátarnir hér gátu ekki byrjað
róðra fyrr en 6. janúar, þótt
nokkrir væru tilbúnir til róðra
um áramótin. Ógæftir hömluðu
því. Yfir höfuð voru bátar nú
fyrr búnir til veiða en oft áður.
Er síðast var róið héðan, fyrir 10
dögum, vou bátarnir orðnir sem
næst 50, sem teknir voru að
stunda línuveiðar. Það er því
næsta stuttur tími, sem bátar
hafa getað róið í janúarmánuði.
Aflabrögð hafa verið eftir at-
vikum. hjá sumum allgóð eða allt
upp í 155—16 lestir í róðri er bezt
hefir gengið. Heildaraflinn í
mánuðinum var um 1800 lestir
'hér í Eyjum.
Menn eru hér leiðir yfir gæfta-
leysi og þykir leitt að ganga um
atvinnulausir.
— Björn.
★ KEFLAVÍK. — f janúarmán '
uði stunduðu 25 bátar línu-
veiðar frá Keflavík, fóru þeir alls
198 róðra og öfluðu 1133 lestir
eða um 6 lestir að meðaltali í
xóðri. Aflahæstur í janúar er
Bjarmi, með 103 lestir í 13 róðr-
um.
20 bátar stunduðu síldveiðar í
Janúar og öfluðu 19320 tunnur.
Um þessi mánaðamót hafa 11
þeirra hætt síldveiðum og tekið
línu en 9 þeirra ætla að Teyna (
við síidina áfram þegar veður
leyfir.
í janúar í fyrra voru 27 bátar (
með linu og fóru þeir þá 245
róðra og öfluðu 1507 lestir og
var meðalafli mjög svipaður, eða .
um 6 lestir í róðri. — Þá var
Guðfinnur hæstur með 98 lestir
í 14 róðrum. Um miðjan janúar
í fyrra hættu 8 bátar línuveiðum
og fóru á síld framí miðjan febr.
í janúar komu 30 stór flutn-
ingaskip til Keflavíkur og tóku
til útflutnings 4900 lestir af fiski,
síld, fiskimjöli og Öðrum fisk-
afurðum.
ic Flutningur um Keflavíkur-
höfn árið 1961: Á árinu var
Iandað í Keflavíkurhöfn 50 þús.
tonnum af fiski, þar með talin 19
þúsund tonn af síld, þetta afla-
magn er um 8,5% af heildarafla
landsmanna. Aflamagnið hefur
aukizt um nær 50% frá árinu
áður.
55 bátar munu stunda veiðar
frá Keflayík á árinu 1962 og |
koma í höfnina um 70—105 bátar J
daglega, og eru þá smábátar ekki ,
taldir með. Mjög mikil þrengsli
eru í höfninni, því bátar fara ört
stækkandi og hafa á síðustu ár-
um stækkað um 30% árlega.
Sérstaklega eru þrengslin mikil
þegar Sandgerðis- og Grindavík-
ur hafnir lokast.
Á Á árinu 1961 komu 344 stór
flutningaskip til Keflavíkur
og er það 38 skipum fleira en árið
áður.
! Skip þessi fluttu til Keflavíkur
um 151 þúsund tonn af vörum,
i olíu, salt, timbur, sement og fl. |
I Olía til Keflavíkurflugvallar |
er langstærsti liðurinn í þessum
aðflutningi.
| Útflutningur á fiskafurðum
nam 33500 tonnum, að útflutn- j
| ingsverðmæti 360 milljón krónur, j
sem er 12% af heildar útflutn- '
ingi landsmanna á fiskafurðum.
1 Útflutningurinn skiptist þannig j
eftir tegundum: (Samsvarandi
j tölur fyrir árið 1960, í svigum).
Hraðfr. fisk-
ur og síld 10046 tonn (12657)
Saltfiskur 5515 — (6418)
Skreið .. 1032 — (878)
, Fisk- og síld-
armjöl .. 7510 — (4534)
Lýsi .... 1079 — (556)
Ýmislegt 1505 — (1214)
Salthrogn 10952 tunnur (10771)
Saltsíld .. 34468 — (26876)
Á saltsíld veiddri á árinu 1961
er ennþá ófarið talsvert mikið
magn, sem reiknað verður til út-
flutnings á þessu ári.
Afli, sem landað er í Keflavík-
INEýr kraftmeiri
VOLVO
1962
Ný gerð af vél B 18 75 og 90 ha.
12 volta rafkerfi
Asymmenetrisk ljós
Öflugri hemlar
Diskahemlar á AMAZON SPORT
Öflugri tengsli
Stærri miðstöð
Nýtt litaúrval
V e r ð :
PV 544 Favorit kr. 159.500,00
Amazon 75 hp. — 195.000,00
Amazon 90 hp — 205.000,00
Innifalið í verðinu er:
* Miðstöð
* Þvottataiki fyrir framrúðu
* Aurhlífar
* Öryggisbelti
Biðjið um myndalista.
Cunnar Ásgeírsson hf.
Suourlandsbraut 16. Sími 35200
ÞAÐ
ERU ALLTAF
FLEIRI
sem sannfærast að það er hagkvæmt
að hringja í síma 13407 ef rafmagns-
tæki eða raflagnir eru í ólagi.
INGÓLF ABRAHAMSEN
Vesturgöíu 21
urhöfn hefur farið vaxandi með
hverju ári og útflutningsmagnið
einnig aukizt verulega og horfúr
eru á að enn verði aukning á
árinu 1962.
— Ilelgi S.
HÖFN, Hornafirði — Hornafjarð
arbátar fóru aðeins 65 sjóferðir í
janúarmiánuði. Heildarafli í mán
uðinum varð 380 lestir af slægð
um fiski með haus. Mestan afLa
hefur Gissur hviti 83,4 lestir ' 11
sjóiferðbm. Næstir eru Ólafur
Tryggvason með 75.6 lestir í 13
sjóferðum og Sigruifari 51,2 lestir
í 9 sjóferðum. Hér hafa alltaf
verið sífelldar ógæftir og ekk-
ert róið í viku. — Gunnar.
Kennsla
LÆRIÐ ENSKU í ENGLANDI
á hagkvæman og fljótlegan
hátt í þægilegu hóteli við sjávar-
síðuna. 5 Vz st. kennsla daglega.
Frá «2.50 á dag (eða «150 á 1Z
vikum), allt innifalið. Engin ald-
urstakmörk. Alltaf opið. (Dover
20 km, London 100).
The Regency, Ramsgate,
Engiand.