Morgunblaðið - 10.02.1962, Qupperneq 11
Laugardagur 10. febr. 1962
MORGVNBLAÐ1Ð
11
Hjalti Steingrímsson
Hólmavík — Minning
MALNINGARVERKST ÆÐi
ALLT
Á
SAMA
STAÐ
Á málningarverkstæði okkar er einungis 1. flokks bifreiðalökk notuð. Allir
þekkja og treysta merki eins og DITZLER. Blöndum samkvæmt formúlum
PITTSBDRGH PLATE GLASS Co., U.S.A. yfir 1500 liti á allar amerískar,
enskar, transkar og þýzkar bifreiðir með fyllstu nákvæmni. Onnumst einnig
alls konar AUGLÝSINGARMÁLNINGU, og SKILTAMÁLNINGU. Gjörið svo
vel og leytið upplýsinga.
H.F. EGILL VILHJÁLMSSON,
Laugaveg 118 — Sími 2-22-40
HINN 19. desember sl. lézt að
heimili síno á Hólmavík Hjalti
Steingrímsson, 79 ára.
Hann var fæddur .á Hólum í
Steingrímsfirði, 3. maí 1882. For-
eldrar hans voru þau Steingrím-
ur Hjaltason og Kristín Magnús-
dóttir, búandi hjón á Hólum.
Hjalti ólst upp í Hólum en fór
þaðan alfavinn árið 1907, sett-
ist þá að á Hólmavík Og átti heim
ili þar til dauðadags. Stuttu áð-
ur hafði myndast þar vísir að
kauptúni.
Ekki þarf að minna eldra fólk
é hvílíkt hörmungarástand ríkti
hér á landi i kringum 1880 og
lengur. Eins og menn vita ligg-
ur ísland þannig, að það er mið-
stöð allra vályndra veðra og
þegar haf isinn kom að landinu
varð oft líuð um björg. Fyrir
Hjalta var ekki frá miklu að
hverfa í Hólum. Hann ólst upp
í fátækt og átti því lítið þegar
hann fór að heiman. Sumt af
frændliðinu var farið til Amer-
íku en hafísa og harðindaárin
mögnuðu til dáða þá sem eftir
eátu og nokkur dugur var í.
Systkinin höfðu verið sjö en nú
voru þrjú á lífi.
Bræðurni.r, sem upp komust,
voru tveir. Hét hinn Magnús.
Hann haslaði sér völl inni í döl-
unum en Hjalti út við sjóinn.
Má með sanni segja, að saga
þeirra beggja hafi orðið fast-
mótuð. Báðir stóðu þeir vel á
verðinum og héldu sig að því
iífsstarfi er þeir völdu sér sem
ungir menn
Auk þess sem Hjalti var ágæt
ur sjómaður mikinn hluta ævinn-
ar, var hann einnig góður smið-
ur en lagði giörva hönd á margt
fleira. Trésmíði lærði hann á
ísafirði hjá Þorláki Magnússyni.
Landssímastöð var opnuð á
Hólmavík árið 1908. Mun Hjalti
hafa unnið að lagningu símans
ásamt öðrum og varð síðan fyrsti
simastjóri þar og til ársins 1922
að hann sagði starfinu lausu.
Nokkru áðar réðist kauptúnið í
©ð koma upp rafstöð til ljósa.
Mun þar hafa munað vel um
stórhug og dugnað Hjalta og var
hann í stjórn Rafveitufélags
Hólmavíkur 17 ár.
En löngu áður en hér var
komið sögu, hafði Hjalti verið
formaður bæði á áraskipum og
seinna á eigin mótorbátum. For-
mennsku Og sjósókn stundaði
hann alls 32 ár. Hann varð fyrst
ur manna til að koma með vél-
knúinn bit á Húnaflóa. Kom
framtakssemi hans í þeim efn-
um sér oft og tíðum harla vel
fyrir byggðirnar þar. Stranda-
hérað var og er mjög erfitt til
ferðalaga t. d. fyrir héraðslækn-
inn. Meðan hinn ötuli læknir,
Magnús Pétursson, var á Hólma-
vík, fóru þeir Hjalti marga ferð-
ina á m.b. Geir í sjúkravitjanir.
Skipaskcðunarmaður í Stranda
sýslu var hann 20 ár og vita-
vörður á Hólmavík frá því vit-
inn var reistjr þar 1916, til dauða
dags. Nokkur sumur stundaði
Hjalti einnig hvalveiðar á m.b.
Geir. Var harm oft fengsæll en
slíkur veiðiskapur mikil nýlunda
þar um slóðir. Auk þess, sem
nú hefur verið nefnt, fékkst hann
einnig mikið við bókband á vetr-
um, einkum seinni hluta ævinn-
ar. Fiskimatsmaður var hann í
fleiri ár.
Þótt mér sé málið skylt, tel ég
að hvert það starf, sem Hjalti
gekk að hafi verið vel og traust-
lega af hendi leyst. Hann var
hinn mesti hirðu- og smekkmað-
ur en líka kappsfullur. Hann var
þrekmaðar og sístarfandi. Jafn-
an var hann glaður og reifur,
þægilegur í viðmóti og hinn
bezti félagi en hafði einnig mik-
inn myndugleika. Hann gaf sig
ekki mikið að venjulegum sveit-
arstjórnarmálum enda vart hugs
anlegt að hann hefði getað bætt
slíku á sig ásamt öllum þeim
margháttuðu framkvæmdum,
sem hann hafði með höndum. í
skoðunum var hann ákveðinn
sjálfstæðismaður en deildi þó
ekki mjög um þá hluti við vini
sína, en mat mikils dugnað og
áræðni einstakiingsins.
En hver var arfurinn sem
þessi sonur tók við. Af verald-
legum munum var það aðeins ein
iöð. Hana sýndi hann mér einu
sinni. En „foreldrarnir gáfu hon
um bænir sínar og blessunarorð,
gott mannorð, iðjusemi, reglu-
semi og sparsemi". Og hvar
lærðu þessir menn að lesa og
sknfa? Auðvitað á heimilunum.
1 annað hús var ekki að venda
með þá hluti. Engin skólaganga,
en þó hraðlæs, vel reiknandi og
listaskrifari. — Hjalti var ákveð
inn í að rífa sig upp úr öllum
eymdarskap og honum tókst það.
Oft varð honum hugsað til eymd
aráranna, þegar hann var að al-
ast upp og hafísinn lá við land-
ið en hungurvofan við hvers
manns dyr. Þegar aðeins eitt
skip á ári komst til einhverrar
hafnar á Norðurlandi Og svo lok-
aði ísinn öliu aftur. En með nýrri
öld komu nyjar vonir og loks fó.r
að rofa til Hann lét ekki á sér
standa en var jafnan í fylkingar-
brjósti og opinn fyrir öllum þarf
legum nýjungum, ötull og fram-
sýnn. Nú er þessi kempulegi og
glaðlyndi maður horfinn til feðra
sinna, síðastur af systkinunum
sjö.
Kona Hjalta var Sigurlína
Tómasdóttir, ættuð úr Arnar-
firði. Hún unni manni sínum
mjög mikið og kunni vel að meta
hæfileika hans. Hún var lítt
mannblendin og þótti ekki við
allra skap en hin bezta húsmóð-
ir. Þau áttu eina dóttur barna,
sem þeitir Fanney. Maður henn-
ar er Þórður Guðmundsson og
eru þau búsett á Hólmavík.
Þeirra böm eru þrjú, tvö uppkom
in, Ásthildur, lærð hjúkrunar-
kona og Hjalti Ingimundur,
stúdent og Guðmundur nú á
Reykjaskóla.
Hjalti unni listum og fagur-
fræði. Hann mun einna fyrstur
hafa kunnað að meta hæfileika
Tryggva Magnússonar, hins
snjalla teiknara og keypt fyrstu
myndir hans, en þeir voru sveit
ungar. Einkum síðustu ár ævinn-
ar safnaði Hjalti gömlum bók-
um og mun hafa orðið allvel á-
gengt. Nú voru tímarnir breytt-
ir frá því að hann var ungur
og öll orkan fór í það eitt að hafa
í sig og á. Nú skyldi kvöldstund-
in notuð, að loknu miklu dags-
verki, til þess að auka þann arf,
er hann hafði hlotið frá fátækum
foreldrum en aldrei haft tæki-
færi til að sinna fyrr en nú. Sjálf
ur hafði hann aldrei hlotið háar
einkunnir í skóla en þrátt fyrir
það lifir arfleifðin frá foreldr-
unum.. Þau gáfu honum bænir
sínar og blessunarorð og ættar-
tölur raktar til konunga og jafn-
vel guða. Og þannig hefur arfur-
inn oft verið. Aðeins þessar
gömlu og skítugu ættartölur á-
samt forrisögum, riddarasögum,
þjóðsögum og víkivökum, edd-
um og rúnaþulum. Nú gafst loks
ins tóm tii að grúska dálítið í
þessu öllu og fara um það bæt-
andi hendi íyrir kæra afkomend-
ur.
Hjalti hetur markað mörg og
góð spor á lífsleiðinni. Fyrir
kjark hans og störf ber að þakka.
Hann hefur hlotið háar einkunn-
ir í skóla lífsins.
„Þeir, sem fremst á frárri skeið
faldana drifnu skáru,
eiga sporin alia leið
eftir á hverri báru.“
Farðu heill, kæri vinur og
frændi og hafðu þökk fyrir allt.
Skrifað í janúar 1962
Guðbrandur Magnússon
F élagslíl
Skiðaferðir um helgina.
Laugardaginn kl. 2 og 6 p. h.
(ÍR kl. 7.).
Sunnudaginn kl. 9 og 1 e. h.
Afgreiðsla hjá BSR.
Mullersmótið verður haldið við
Skíðaskálann á sunnudaginn
kemur. Nafnakall við Skíðaskál-
ann kl. 11 f. h. Keppendur mætið
stundvíslega.
Skíðaráð Reykjavíkur.
Heimsmeistarakeppnin í bridge
hefst í dag í New York. Þátttak-
endur í keppninni, sem fer fram
í BARBIZO-PLAZA Hótelinu,
eru fjórir, þ.e. Ítalía. Bandaríkin,
Argentína og England. Keppnin
mun standa yfir í 9 daga og
verða spiluð 144 spil í hverjum
leik.
Keppendur eru þessir:
ÍTALÍA. D’Alelio, Chiaradia,
Avarelli, Belladonna Forquet og
Garrozzo. Fyrirliði er A. Per-
roux.
ARGENTÍNA: Attaguile, Ja-
ques, Calvente, Rocdhi, Berisso
og Cabanne.
BANDARÍKIN: Coon, Murray,
Key, Nail, Matihe og Porten. Fyr-
irliði er John Gerber.
ENGLAND: Gardener, Rose,
Konstam, Rodrigue, Priday og
Truscott. Fyrirliði «r Louis
Tarlo.
Kerfi þau, sem notuð verða í
þessari heimsmeistarakeppni eru
mörg og mjög mismunandi. Ital-
arnir nota Neapolitan Club-kerf-
ið, nema Avarelli og Belladonna,
sem nota Roman Club-kerfið.
Argentínumennirnir nota flest-
ir Goren-kerfið með smávægi-
legum breytingum.
Bandaríkjanmenirnir nota
Standard American-sagnkerfið,
ef hægt er að tala um eiginlegt
sagnkerfi.
Englendingarnir nota allir
Acol-sagnkerfið, en þeir Rose og
Gardener þó með nokkrum
breytingum.
Ekki er hægt að neita því, að
allt bendir til, að ítalarnir muni
sigra og verða heimsmeistarar í
5. sinn. Þessir spilarar hafa spil-
að saman í 6 ár og náð ótrúleg-
um árangri, m ,a. unnið heims-
meistaratitiiinn fjórum sinnum í
röð. Öryggi þeirra og prúð fram-
koma hefur ávallt unnið hylli
áhorfenda og þar að auki hafa
þeir fyrirliða, sem aðrar þjóðir
öfunda þá mjög af.
England hefur sjaldan eða aldr
ei sent sterkari sveit á heims-
meistarakeppni og er reiknað
með að þeir lendi í öðru sæti.
Bandaríkin senda að þessu
sinni lítt þekkta spilara til
keppni, og er ekki reiknað með
að þeir endurheimti titilinn.
Argentína sigraði í keppni
Suður-Ameríkuríkjanna og vann
þannig rétt til þátttöku. Margir
hafa bent á, að áhugi fyrir
bridge hafi aukizt mjög í Suður-
Ameríku og vel geti verið að
sveit þessi sé góð og muni ef til
vill koma á óvart.
Guðiaugur [inaisson
málfluti.ingsskrifstofa
Freyjugötu 37 — Símj 19740.
VERIÐ VAMDLAT
VELJIÐ
FORD
Consul 315 bifreiðir
fyrirliggjandi
'fbrcC
U M B O Ð I Ð
Kr. Kristjánsson h.f.
Suðurlandsbraut 2
Sími 35300