Morgunblaðið - 10.02.1962, Page 12
12
MORCVNBLÁÐIÐ
Laug^rdagur 10.febr. 1962
Otgefandi: H.'f Arvakur. Reykjavík.
Framkvæmdastjóri: Sigfús Jónsson.
Ritstjórar: Valtýr Stefánsson (áóm.)
Sigurður Bjarnason frá Vigur.
Matthías Johannessen.
Eyjólfur Konráð Jónsson.
Auglýsingar: Arni Garðar Kristinsson.
Ritstjórn: Aðalstræti 6.
Auglýsingar og aígreiðsla: Aðalstræti 6. Sími 22480.
Askriftargjald kr. 55.00 á mánuði innanlands.
1 lausasölu kr. 3.00 eintakið.
SKATTRÁNS-
STEFNAN Á UNDAN-
HALDI
íslenzkur almenningur mun
fagna því, að skattráns-
stefna sú, sem Framsóknar-
flokkurinn hefur átt ríkast-
an þátt 1 að móta er nú á
undanhaldi. Núverandi ríkis-
stjóm beitti sér þegar í upp-
hafi kjörtímabils síns fyrir
stórkostlegum lækkunum á
tekjuskatti, sem m.a. höfðu
það í för með sér að skatt-
greiðendum fækkaði úr rúm-
lega 63 þúsundum niður í 16
þúsund. Þetta þýddi m.a.
það, að hjón með tvö börn
og 90 þúsund kr. nettó
tekjur, urðu skattfrjáls.
Þessi skattalækkun á ein-
staklingum fól í sér mikla
kjarabót fyrir þúsundir fjöl-
skyldna í landinu. — Hinni
skammsýnu skattránsstefnu
Framsóknarmanna hafði ver-
ið vísað á- bug. Núverandi
ríkisstjórn snerist gegn þeirri
stefnu að refsa bæri einstakl-
ingum fyrir að leggja sig
fram um að afla sér tekna
og skapa verðmæti í þágu
þjóðfélagsins.
Kjarninn í skattastefnu
Framsóknarmanna hefur æv-
inlega verið sá að það væri
allt að því óheiðarlegt að
fólk legði sig fram um að
eignast eitthvað, hafa góðar
tekjur og leggja fyrir af
þeim. Þannig hefur fjár-
málastefna Framsóknar-
manna, sem um langt skeið
fóru með fjármálastjórn rík-
isins, átt ríkan þátt í að gefa
eyðslu- og verðbólgustefnu
byr undir vængi.
Það er fyllilega í samræmi
við þessa stefnu, sem Fram-
sóknarmenn berjast nú eins
og ljón gegn því að spari-
fjáreigendur fái hækkaða
vexti af innstæðum sínum
og skapist aukin hvöt til
þess að leggja sparifé sitt í
banka og sparisjóði. En ekk-
ert er nauðsynlegra fyrir
efnahagslegt sjálfstæði þjóð-
arinnar en að einstaklingarn-
ir spari og hafi traust á
gjaldmiðli hennar. Það er
sparnaðurinn, sem skapar
það lánsfé, sem bankamir
hafa til umráða hverju sinni
til útlána.
Núverandi ríkisstjórn hef-
ur nú einnig lagt fram til-
lögur um víðtækar breyting-
ar á skattgreiðslu félaga og
atvinnufyrirtækja. — Fela
þessar tillögur í sér margar
breytingar, sem munu verða
atvinnufyrirtækjunum til
mikilla hagsbóta og eiga þátt
í því að auðvelda endurnýj-
un þeirra og uppbyggingu í
framtíðinni.
Svo er nú komið, að Fram-
sóknarmenn og kommúnistar
standa einir uppi sem for-
mælendur skattránsstefnunn-
ar. Leiðtogar þessara flokka
mæta öllum skynsamlegum
breytingum á skattalöggjöf
með sömu hrópyrðunum:
Það er verið að ívilna hin-
um ríku á kostnað hinna fá-
tæku!
Það er sama, þótt takmark
skattalagabreytinganna sé
einmitt að létta byrðum af
öllum almenningi, um leið
og aðstaða framleiðslutækj-
anna er bætt. Framsóknar-
menn og kommúnistar þrá-
stagast alltaf á þessu gamla
slagorði sínu. En það er
löngu gatslitið orðið. Þjóðin
hefur árum saman stunið
undan ranglátri og heimsku-
legri skattheimtu. Núverandi
ríkisstjóm hefur haft kjark
og manndóm til þess að
segja skilið við skattráns-
stefnuna og marka nýja
stefnu, sem byggir á hóflegri
skattheimtu, en fullnægir þó
tekjuþörfum hins opinbera.
HEIMSÓKN
ADOULA í SÞ
idoula, forsætisráðherra
^ Kongó, heimsótti fyrir
skömmu Sameinuðu þjóðirn-
ar og flutti þar ávarp. —
Einnig ræddi hann við aðal-
framkvæmdastjóra samtak-
anna um vandamál þjóðar
sinnar.
Horfur á lausn Kongó-
vandamálsins eru nú bjartari
en oftast áður. Til samkomu-
lags hefur dregið milli
Tsjombe, leiðtoga Katanga-
manna, og landsstjórnarinnar
í Leopoldville. Adoula hefur
nú einnig losað sig við Giz-
enga, flugumann kommún-
ista, úr ríkisstjórn sinni. En
hgnn var þá orðinn sannur
að sök um ýmis konar svik-
ræði gagnvart stjórn lands-
ins. Var auðsætt að Rússar
ætluðu að nota hann sem
handbendi sitt til þess að
hindra að sættir tækjust
milli hinna stríðandi afla í
landinu. Þegar svo var kom-
ið, að Adoula hafði vikið
Gizenga úr stjórn sinni,
heimtuðu Rússar fund í Ör-
yggisráðinu um Kongómál-
ið. En af þeim fundi varð
ekki. Stjórn Kongó mótmælti
honum og mikill meirihluti
SEM kunnugt er var mikill
viöbúnaður í Frakklandi og
Alsír á mánudagiinn, þegar
de Gaulle flutti útvarps og
sjónvarpsræðu sína. Meðfylgj-
andi mynd var tekin snemma
á mánudag í Algeirsborg, þeg-
ar hermenn voru að byrja að
hópast inn í borgina í bryn-
vörðum bifreiðum.
Krúsjeff við bezfu heilsu
Moskvu 8. febr. (AP).
— ÉG ER sannfærður um
að Krúsjeff er við góða
heilsu. Ég veit ekkert um
stjórnmálaástandið, en for-
sætisráðherrann kennir sér
einskis meins.
Þetta sagði sendifulltrúi
Brazilíu í Sovétríkjunum Ro-
þeirra þjóða, sem sæti eiga
í Öryggisráðinu, voru því
mótfallnar að það tæki mál-
ið fyrir.
Adoula, forsætisráðherra,
hefur haldið á máli þjóðar
sinnar af festu og dugnaði.
Undir forystu hans hefur
verið lagður grundvöllur að
samkomulagi milli Leopold-
villestjórnarinnar og Kat-
angamanna. Áhrifum komm-
únista hefur verið eytt og
horfur á sameiningu lands-
ins stóraukizt.
FIMMTA LÝÐ-
VELDIÐ í HÆTTU
Átökin, sem urðu í París í
fyrradag, sýna greini-
lega að mikil hætta vofir
ennþá yfir fimmta lýðveld-
inu. Alsírmálið heldur áfram
að kljúfa og sundra frönsku
þjóðinni. De Gaulle heldur
hinsvegar beint að settu
marki. Hann hefur ákveðið
að leysa þetta mikla vanda-
mál, hvað sem það kostar.
Og hann er áreiðanlega eini
franski stjórnmálaleiðtoginn,
sem getur gert það. En and-
staðan gegn honum er stöð-
ugt að magnast í sjálfu
Frakklandi. Hinar blóðugu
óeirðir á götum Parísar eru
enn ein sönnun þeirrar upp-
lausnar og óvissu, sem ríkir
í frönskum stjórnmálum. —
De Gaulle er hinn sterki
maður Frakklands. Hann
bjargaði landinu frá blóð-
ugri byltingu á örlaga-
stundu. En nú er spurningin
aðeins sú, hvort honum muni
takast að bera fram til sig-
urs þá hiklausu stefnu, sem
hann hefur markað í Alsír-
málinu og áreiðanlega bygg-
ist á óhjákvæmilegri nauð-
syn, eða hvort öfgaöflunum
muni takast að efna til nýrr-
ar byltingar, sem að öllum
líkindum mundi hafa í för
með sér hrun fimmta lýð-
veldisins. Vinir Frakklands
og frönsku þjóðarinnar
hljóta að vona að de Gaulle
takist að leysa Alsírvanda-
málið og binda endi á hin
sorglegu mannvíg, sem þar
hafa stöðugt verið unnin sl.
sjö ár.
berto L. Assumpaco de Araujo
brosandi við fréttamenn, er
hann kom til Moskvu í dag
frá S.-Rússlandi, þar sem
hann hefur dvalizt nokkra
daga.
Sendifulltrúinn hefur um-
sjón með opnun sendiráðs
Brazilíu í Moskvu, en nýlega
ákváðu Sovétríkin og Brazilía
að skiptast á sendiherrum.
Á miðvikudaginn átti sendi
fulltrúinn klukkustundar við-
ræður við Krúsjeff í húsi hans
við Svartahafið. Var hann
fyrsti erlendi sendimaðurinn,
sem Krúsjeff tók á móti í
hálfan mánuð.
Sendifulltrúinn sagði, að
forsætisráðherrann hefði hleg
ið að orðrómnum, sem gengið
hefur um að honum hafi verið
sýnt banatilræði.,
■— Hann gekk með mér um
garð sinn og sýndi mér sund-
laugina, sem hann sagðist
synda í á hverjum morgni,
hélt sendifulltrúinn áfram. —
Ég hef heyrt það sagt, að
Krúsjeff hafi fengið skot í
þindina, en það er ekki rétt.
Hann gekk með mér á milli
trjánna léttur á fæti, gekk
upp stiga og virtist liggja
mjög vel á honum.
Krúsjeff og sendifulltrúi
Brazilíu ræddu um samband-
ið milli landanna, en eins og<
áður er sagt hafa þau ákveðið^
að skiptast á sendiherrum.
Krúsjeff — hann gekk milli
trjánna léttur á fæti.