Morgunblaðið - 10.02.1962, Qupperneq 17
Laugardagur 10. febr. 1962
MORGUNBLAÐIÐ
17
- HAFA S. Þ. BRUGÐIZT
— Dómsmál
Hilmar BjÖrgvinsson, háskólanemi:
Framh. af bls. 10.
Eg svara spurningunni neitandi
og mun leitast við að færa nokk-
ur rök fyrir því svari mínu.
Vonir þjóða heimsins um frið
og öryggi eru að miklu leyti
tengdar Sameinuðu þjóðunum.
Þetta á ekki sízt við um smáþjóð-
irnar. í Sameinuðu þjóðunum
eygja þær það afl, sem reynast
mun nægilega öflugt til að
vernda þær fyrir ofbeldi og yf-
írgangi stórþjóðanna.
Hammarskjöld kom á þeirri
nýbreytni að beita herliði Sam-
einuðu þjóðanna í ríkara mæli
en áður, til að tryggja frið og
hnekkja á skrílræði. Með til-
komu f ramkvæmdavalds þessa
styrktist trú manna á Sameinuðu
þjóðunum stórum.
Að undanförnu hefur verið
deilt ákaft á Sameinuðu þjóðirn-
ar og það ekki að ástæðulausu.
Aðgerðir samtakanna í Kongó
hafa reynzt ófullnægjandi og
Góamálið var mikill hnekkir
fyrir þau.
Þrátt fyrir þessa vankanta og
réttmæta gagnrýni megum við
ekki gleyma því, sem unnizt hef-
ur. Eg nefni t.d. árangurinn af
starfi Sameinuðu þjóðanna á
sviði efnahags- og menningar-
mála.
Ástandið í heiminum er nú eins
og svo oft áður, mjög uggvæn-
legt. En hræddur er ég um, að
óbjörgulegt væri um að litast á
jarðarkringlunni, ef Sameinuðu
þjóðanna hefði ekki notið við.
Eg tel það skyldu hvers manns,
að stuðla að því að efla Samein-
uðu þjóðirnar, sem eru þrátt
fyrir vanmátt þeirra í dag ómet-
anlegar.
Þór Whitehead, sölumaður:
svara þessari spurningu á þá leið, '
að SÞ hafa ekki brugðizt neinum j
vonum mínum, því ég hef aldrei
bundið neinar vonir við slík
samtök.
Dómur sögunnar yfir samtök-
ium sem Sameinuðu þjóðunum,
Ihefur verið kveðinn upp fyrir
löngu, þ. e. a. s. þegar Þjóða-
bandalagið sáluga gaf upp önd-
ina. Þjóðabandalagið tryggði
engan frið, hvað þá heimsfrið.
Þetta er einmitt grundvallar-
atriði fyrir stofnun NATO. Sam-
einuðu þjóðirnar, afturganga
Þjóðabandalagsins, hafði mis-
Iheppnazt sem fyrirrennarinn,
iþví var hlATO stofnað og það
eru þau samtök, sem hafa vernd-
að friðinn.
Skrípalerkurinn Sameinuðu-
þjóðirnar hefur vtrið í algleymi
síðustu ár. í þeim leik hafa
Bandaríkin leikið eitt af aðalhlut
verkunum; það virðist stundum
svo, sem utanríkisstefna Banda-
ríkjanna gangi út á það eitt að
verða sér úti um atkvæði hinna
svokölluðu „nýju ríkja“, þótt
auðsjáanlegir hagsmunir þeirra
og alls hins vestræna heims fari
Iþar ekki saman. Á þingum Sam-
einuðu þjóðanna þeysa fram og
gala hátt sjálfkjörnir riddarar
„sjálfsákivörðunarréttar, friðar
og mannúðar" svo sem leiðtog-
ar hinna nýju „lýðræðisríkja" í
Afriku, þeir N’Krumah frá
Ghana og Sekou Touré frá
Guineu o fl. sem ávallt hrópa
hæst um fyrrnefnt. Það ætti því
að vera viðeigandi að samtökin
flyttu aðalstöðvar sínar til ann-
ars hvors þessara landa, þar sem
„sjálfsákvörðunarréttinn" ber
hæst, og leyfa þeim og nágrönn-
um þeirra í Afríku og Asiu að
skeggræða þar um hið sama, og
taka aðrar ákvarðanir um mál-
efni heimsins!
AÖaSfundur
Svifflugfélags íslands verður haldinn í dag, laug_
ardag, kl. 4 e.h. í Breiðfirðingabúð (uppi).
Stjórnin
Framhald af bls. 13.
en þar tekið berum orðum fram,
að kaupendur njóti frá afsals-
degi allra afnota og réttinda hinn
ar seldu eignar. Þá hafi ekki ann
að komið fram, en að Stafnes I
tieldist enn jörð eða býli, þrátt
fyrir skerðingu lands þess við
eignarnámið.
Dómur Hæstaréttar
Meirihluti' Hæstaréttar komst
að nokkuð annarri niðurstöðu.
Segir í forsendum þess dóms svo
hljóðandi: „Svo sem afsalsbréf-
íð ber með sér, seldi áfrýjandi
(Þorsteinn Guðmundsson) ekki
jörð sína Stiafnnes I í heild held-
ur aðeins sérstaklega tilgreinda
hluta hennar, þ. e. í fyrsta lagi
land nefndrar jarðar „utantúns",
skipt og óskipt, ásamt girðing-
um að undantekinni framan-
greindri eignarnámsspildu; í
öðru lagi sjávarrekarétrtindi á-
frýjanda á jörðinni og í þriðja
lagi húseignir hans á Stafnesi,
sem seldar voru Guðjóni Eyleifs-
syni sér í lagi. Beitarréttsu: á
eignarspildunni er ekki getið með
al hinna seldu eigna, og hefur
stefndu ekki tekizt að sanna, að
þeir hafi með afsalsbréfi eða á
annan hátt orðið eigendur að
honum.“
Þá var það tiekið fram, að á-
frýjandi hefði ásamt öðrum eig-
endum Stafnestorfunnar staðið
að samningi þeim, er utanríkis-
ráðherra f. h. ríkisins tók við
beitarafnotum á Miðnesjörðum
gegn leigugjaldi, en hluti þess
sé sú upphæð, sem deilt sé um
í máli þessu.
Talið var því að Þórstieinn Guð
mundsson ætti rétt til leigu-
gjalda að sínum hluta fyrir beit-
arafnot af eignarnámsspildunni.
Málskostnaður fyrir héraði og
Hæstarétti skyldi niður falla.
Sératkvæöi
Einn Hæstaréttardómari Gizur
Bergsteinsson skilaði sératkvæði
og varð mðurstaða hans sú sama
og fyrir héraðsdómi.
í forsendum að niðurstöðu
hans segir m. a.:
Beitarafnot þau, sem í máli
þessu greinir, urðu, eins og þeim
og allri afstöðu var háttað, ein-
ungis hagnýtt af ábúendum
þeirra jaröa, sem að hinni eignar
numdu landsspildu liggja, eink-
um stefndu. Atvinnu- og sam-
göngumálaráðuneytilð lét jarð-
eigendurna upphaflega halda
beitarafnotunum til að afstýra
því, að eignarnámsbætur hækk-
uðu vegna fyrirsjáanlegrar bú-
,1
SKIP/liUTGCRB BIKISINS
Ms. SKJALDBREIÐ
vestur um land til Akureyrar
hinn 14. þ. m. — Vörumótiaka
í dag til Sveinseyrar, áætlunar-
hafna á Húnaflóa og Skagafjarð-
arhafna og Ólafsfjarðar. — Far-
seðlar seldir á mánudag.
M.s. HEKLA
austur um land í hringferð hinn
15. þ. m. — Vörumóttaka í dag
og á mánudag til Fáskrúðsfjarð-
ar, Reyðarfjarðar, Eskifjarðar,
ííorðfjarðar, Seyðisfjarðar, Rauf-
arhafnar og Húsavíkur. —
Farseðlar seldir á mánudag.
fjárskerðingar ábúenda af völd
um örtraðar Og búsifja. Bætur
þær, sem gerðardómurinn ákvað
og virðast mjög háar, eru aug-
sýnilega miðaðar við örtröð og
búsifjar, er jarðeigendur urðu
fyrir. En áfrýjandi varð eigi fyrir
örtröð og búsifjun vegna niður-
fellingar á beitarafnotunum, þar
sem hann hafði selt jörð sína og
flutzt til Reykjavíkur, áður en
beitarafnotin voru aftekin. í Sam
ræmi við þetta mótmælti hann
því á engan hátt, að kaupend-
ur Stafness I hagnýttu beitar-
afnotin til 1 ágúst 1951 og styrkti
hann kaupendur með þeirri hátt-
semi sinni í þeirri trú, að þeir
mættu hafa bústofn á Stafnesi 1,
er svaraði til beitarafnotanna."
Síðan segir, að niðurfall beit-
arréttindanna hafi ekki valdið
stefnanda tjóni, heldur kaupend-
um Stafness I örtröð og búsifj-
um. Taldi dómarinn, að afsal á-
frýjanda, sem ekki minntist á
beitarréttindin, yrði að skýra
með hliðsjón af aðdraganda af-
salsins, eftirfarandi hegðun á-
frýjanda, atvikum málsins, skýr-
ingarreglum samninga og lög-
rökum. Þessi atriði öll leidu til
þess, að bæturnar skyldu renna
til stefndu, en eigi til áfrýjanda,
sem ekki hefði orðið fyrir örtröð
og óþægilegum búsifjum vegna
aftöku beitarréttindanna.
„6uS geeíi, að ég v<æri feominn
í rúmið, háttaður, sofnaðui;
vaknaður aftur og
farinn að éta" " jl' am
Málningarvörur
Höfum ennbá á lága verðinu allskonar
utan- og innanhússmálningu.
Ódýrast í bænum.
*
Hafnarstræti 19 — Sími 13184
bbbbbbbbbbbbbfcbbbbbbbbbbbbbbbbbbbbbbbbbbÍ
SKAPAHANDFONG
SKÁPASMELLUR
fyrirliggjandi í miklu úrvali
. . Slml 3569?
yggingavorur h.f. Laugaveg 178
b
b
b
b
b
b
b
b
b
b
b
b
NIINIOM
PLASTKÁPUR 975,-—
PLASTJAKKAR 825,—
FROTTÉ SLOPPAR 125,—
VATTERAÐIR SLOPPAR 250,—
DRAGTIR 1200,—
POPLÍNKÁPUR 725,—
TWEEDKÁPUR 785,—
NINON
INGÓLFSSTRÆTI 8
ÚTSALA
TNGÓL FSSTRÆTI 8
ÚTSALA
INGÓLFSSTRÆTI 8
ÚTSALA
I'NÓÓLFSST r Æ T I 8
NINO N
PELSAR m. húfu 1500,—
PELSAR síðir 2000,—
PELSAR stuttir 2800,—
PELSAR stuttir 3500,—
PELSAR síðir 5490,—
PFLSAR síðir 6900,—
PELSAR síðir 11.000,—
NINO N