Morgunblaðið - 10.02.1962, Blaðsíða 22
MORGl’N BL AÐlto
Laugardagur 10. febr. 1962
Ofy
KR vann í knattspymu
EUert skorar með skalla
Enska
knattspyrnan
MARKAHÆSTU leikmennimir 1 Eng
iandi eru nú þessir:
1. deild:
Phillips (Ipswich) 29 mörk
Chamley (Blackpool) 27 mörk.
Crawford (Ipswich) 25 mörk
Pace (Sheffield U.) 22 mörk
Tamling (Chelsea) 20 mörk.
Pointer (Bumley) 19 mörk.
Dick (West Ham) 18 mörk.
Charles (Arsenal) 17 mörk.
Kevan ( W. B. A.) 17 mörk.
2. deild:
Thomas (Newcasf i) 32 mörk.
Hunt (Liverpool) 27 mörk.
Cloug'h (Sunderland) 24 mörk.
O’Brien (So-ithampton) 24 mörk.
Peacock (Middlesbrough) 24 mörk.
Curry (Derby) 22 mörk.
Dunmore (L. Orient) 20 mörk.
Allcock (Norwich) 19 mörk.
3. deild:
Holton (Northampton) 27 mörk.
Bly (Peterborough) 24 mörk.
McLaughlin (Shrewsbury) 23 mörk.
Bedford (Q. P. R.) 22 mörk.
Rowley (Shrewsbury) 22 mörk
Atyeo (Bristol City) 21 mark
Hunt (Port Vale 21 mark.
4. deild:
Hunt (Colchester) 33 mörk.
King (Colchester) 28 mörk.
Lord (Crewe) 24 mörk.
Metcalf (Wrexham) 22 mörk.
Burridge (MillWall) 21 mark.
Frizzell (Oldham) 21 mark.
Howfield (Aldershöt) 20 mörk.
Blain (Southport) 19 mörk.
Mikið hefur verið rætt um hver
skuli 9kipa stöðu miðherja í enska
landsliðinu. Hefur verið rætt um Gerry
Hitchens, Ray Crawford, Kevan, Alan
Peacock, Smith og Byme. Fyrr í þess
ari viku voru tilkynnt nöfn þeirra
leikmanna, sem eru á æfingum undir
stjórn Winterbottom. Kom þá í ljós
að nýr leikmaður var þar á meðal,
en sá v*. Barrie Thomas, sem New-
castle keypti nýlega af Scunthorpe
fyrir 40 þús. pund. Mun ætlunin að
reyna Thomas í æfingaleikjum gegn
Wolverhampton og W. B. A. og gera
margir sér vonir um að hann muni
leysa vandamálið um skipan í stöðu
miðherja í landsliðinu.
— á afmælismóti ÍSÍ
INNANHÚSSMÓTINU í knatt-
spyrnu sem haldið var í tilefni
af 50 ára afmæli ÍSÍ lauk í fyrra-
kvöld. Lið KR gekk með sigur
af hólmi og vann þann sigur
verðskuldað.
í úrslitaleiknum mættu KR-
ingar liði Þróttar. Leikurinn var
framan af afar jafn og í fyrri
bolti
i kvöld og
á morgun
ÍSLANDSMÓTIÐ í körfu- )
knattleik hefst í kvöld að Há-
logalandi. Formaður Körfu-
knattleikssambandsins Bogi
Þorsteinsson setur mótið með
ávarpi.
í mótinu taka þátt 31 lið í
7 flokkum karla og kvenna,
alls um 300 manns.
ÍR og KR senda 8 lið hvort
til mótsins, KFR og Á 5 lið,
ÍKF og ÍS 2 lið hvort og Fim-
leikafél. Björk í Hafnarfirði
1 lið.
í kvöld verða tveir leikir
ÍR og Ármann leika í 2. fl.
karla og í mfl. karla leika KR
og Ármann.
Annað kvöld, sunnudag,
verður mótinu haldið áfram.
Þá leika ÍKF og KFR í mfl.
karla og í sama flokki leika
ÍR og stúdentar.
hálfleik aðeins 1 mark skorað.
Vera kann að lið Þróttar hafi
ekki notið sín sem skyldi vegna
þess að það átti næsta leik á
undan og vann hann — og rétt-
inn til úrslitaleiksins gegn KR —
eftir framlengdan leik með 1
marks mun.
Lítið var og um mörkin milli
þessara úrslitaliða framan af síð-
ari hálfleik en þó kom þar að
KR opnaði flóðgáttina og skor-
aði 3 mörk. Þróttur svaraði að-
eins með 1 marki og þau urðu
úrslit leiksins 4—1.
Ekki er vafi á því að lið KR
var bezta lið sem fram kom á
þessu móti, en innanhússknatt-
spyrna stendur ekki hátt hjá
okkur.
Þróttur átti vel skilið annað
sætið. En það hreppti lið félags-
ins ekki fyrr en eftir fram-
lengda baráttu við A-lið Fram
sem lauk með 11—10.
Þar á undan var athyglisverð-
astur leikur KR og Akraness,
sem menn bjuggust við að væri
annar úrslitaleikur mótsins.
Eftir jafnan fyrri hálfleik tók KR
öll völd á vellinum og vann með
6—2. Olli lið Akraness vonbrigð-
um.
Japanir
Sigurvegarar KR
Leikur þeirra var í fyrstu
lotunum spennandi og jafn.
Fyrst í 3. lotu gekk Ingimar
„hreint til verks“. Hann leit-
aði fyrir s§r mjög ákveðið
með vinstri handar höggum
en Bygreaves forðaði sér með
því að klemma sig upp að
honum í hvert sinn sem hann
eygði hættuna. í þessari lotu
hitti Ingimar mótstöðumann-
inn með hægri-vinstri högg-
fléttu sem sýnilega kom flatt
upp á Bygreaves. En Ingo
fylgdi ekki fast eftir. En þrátt
fyrir það fóru að sjást greini
leg þreytumerki á Englend-
ingnum eftir öll þau högg,
þung og létt, sem Svíinn
hafði gefið honum — og hann
vék undan sí og æ, flýði og
flýði.
Bygreaves sótti sig þó í
lokin og kom nokkrum vinstri
handar höggum á Ingo sem
þó ekki höfðu veruleg áhrif.
Bygreaves fann að Ingo tók
illa höggum á skrokkinn og
reyndi að fara þá leið að
honum, en þá tók „gamli
heimsmeistarinn“ af skarið.
Hann „gaf honum 3 hægri
handar högg“ og þrengdi
Jamaikanegranum upp að
köðlunum. Þar var aftur bar
izt í faðmlögum, og undir
lokin tók Bygreaves frum-
kvæðið.
í 5. umferð sást greinilega
að Ingo ætlaði að sigra. Hann
byrjaði vel með höggfléttu,
sem kom illa við kjálka By-
greaves. Bygreaves tók Ingo
í „faðmlög" til að forðast
höggin — og Ingo hætti að
sækja á.
En skömmu síðar varð By-
greaves að þola hörkumikið
högg hægri handar upþ und-
ir höku. Bygreaves var hart
leikinn og hann var ,,groggy“
þegar bjallan hringdi fimmtu
lotu lokið.
En hann átti eftir að ná
sér. í byrjun 6. lotu kom
hann góðu vinstri handar
höggi á Ingo, sem virtist erta
heimsmeistarann fyrrverandi.
Og nú sótti Ingo vel á. Á-
horfendur biðu eftir „Ingo-
vopninu", hægri handarrot-
höggunum. Og þeir biðu ekki
án árangurs. Hægri hönd
Ingimars lenti þrívegis á
negranum og blóðið rann úr
vinstri augabrún hans. Bjall-
an bjargaði honum enn einu
sinni, en hann var ekki upp
á marga fiska esr sjöunda og
síðasta lota hófst.
Hann riðaði í hringnum,
blóðið rann frá skurðinum á
augnabrúninni og næstum
blindaði hans litla skyn. Þeg-
ar þannig hafði gengið í 2
mín. af 7. lotu stöðvaði dóm-
arinn leikinn og lýsti Ingi-
mar sem sigurvegara.
Sigurinn opnar Ingimar aft
ur leið í átt að heimsmeist-
aratitli. Eftir einn sigur eða
tvo til viðbótar getur hann
keppt um heimsmeistaratitil '
á ný.
Svíar fögnuðu auðvitað
ákaft, en leikurinn var í
heimaborg Ingimars, Gauta-
borg.
,,Eg var ekki ánægður með
mina hægri hendi“, sagðd Ingo
eftir keppnina. „Hún þarf að
fá betri þjálfun".
sigurstranglegir
í skíðastökki
lék
JAPANSKI flokkurinn sem
keppa á í göngu og stökki á
heimsmeistaramóti skíðamanna í
norrænum greinum kom til
Warsjá í gær. Vakti flökkurinn
mikla athygli, ekki sízt vegna
litauðgra búninga sinna — Og
þess að sumir skíðamennirnir
báru grímur eins Ok skurðlæknar
hafa, en slíkur er siður kvefaðra
í Japan.
Þeir sögðu þó að kvefið væri
efcki alvarlegt, og mundi ekki
aftra þeirra mönnum.
Það styrkír þessa frétt, að Rúss
ar hafa látið í það skína að þeir
óttist frekar keppni af hálfu Jap-
ana en af hálfu Norðurlandabúa
í sérstöku stökkeppninni.
WlMM
í GÆRDAG mættust þeir í
hnefaleikahringnum Ingimar
Johanson, fyrrum heims-
meistari í þungavigt og Joe
Bygreaves, fyrrum meistari
brezka samveldisins. Keppni
þeirra var að því leyti merki
leg að hefði Ingo borið lægri
hlut, var hans hlutur „í
hringnum“ allur, en þar sem
hann sigraði stefnir hann nú
aftur að því að fá að berj-
ast um heimsmeistaratignina
í fjórða sinn.
50. skjaldarglíman
er á sunnudaginn
sér aö negranum
50. SKJALDARGLÍMA Ármanns
verður háð í íþróttahúsi ÍBR við
Hálogaland, sunnudaginn 11.
febr. nk. kl. 16:00. I þessa afmæl-
isglímu eru alls 13 keppendur
skráðir, 5 frá Glímufélaginu Ár-
manni og 8 frá Ungmennafélagi
Reykjavíkur. Meðal keppenda
eru margir glímumenn og skal
þá fyrst nefna Trausta Ólafsson,
frá Ármanni, sem sigraði í
Skjaldarglímu Ármanns árið
1957. Hilmar Bjamason UMFR,
hefur marga hildi háð undan-
farin ár á glímuvöllum Reykja-
víkur og hefur ýmsan kappann
lagt. Sveinn Guðmundsson Á er
einnig meðal þátttakenda, en hon
um hafa margir spáð glæstri
framtíð sem glímumanni. Er
Sveinn kunnur fyrir drengilega
glímu og skætt öfugt klofbragð.
Af öðrum keppendum mætti
nefna Ólaf Guðlaugsson, Á, Guð-
mund Jónsson, UMFR, sem
lengst allra var drengjameistari,
Hannes Þorkelsson, UMFR og
Guðmund Frey Guðmundsson, Á.
í sambandi við þessa 50. skjald
arglímu verða allir núlifandi
skjaldarhafar viðstaddir, þar eð
þeir verða heiðraðir, en þeir eru
19 að tölu. Heiðurslaunin erú
eftirmynd af Ármannsskildin-
um, sem keppt er um en Eggert
Kristjánsson gefið.
Meðal boðsgesta verða m.a. for-
seti íslands, herra Ásgeir Ás-
geirsson, Benedikt G. Waage,
forseti íþróttasambands íslands
o. fl. Drengjum úr Gagnfræða-
skólanum við Lindargötu verður
boðið að fylgjast með keppninni.
Strætisvagnar Reykjavíkur sjá
um greiðar ferðir inn að Háloga-
landi.
í sambandi við þessa Skjaldar-
glímu verður gefið út vandað rit,
sem ýmsir þekktir menn skrifa í,
svo sem Helgi Hjörvar, rithöf-
undur; Þorsteinn Einarsson, í-
þróttafulltrúi; Ben G. Waage,
forseti ÍSÍ; Kjartan Bergmann
o. fl.
Þjálf araefnum boð
ið til Danmerkur
HANDKNATTLEIKSSAM-
BANDINU hafa borizt boð frá
Dönum og Svíum um að HSÍ
sendi þjálfaraefni í handknatt-
ieik á námskeið danska og
sænska sambandsins. Hsifa Danir
boðið tveimur þjálfaraefnum ís-
lenzkum til þjálfaranámsskeiðs 1
Vejle um mánaðamótin júlí—■
ágúst. Sænska sambandið býður
einum á námskeið í sumar. Nára
skeiðin taka um mánaðartíma.
WAMtMÍ