Morgunblaðið - 02.03.1962, Síða 1
24 síður
49. árgangur
51. tbl. — Föstudagur 2. marz 1962
Prentsmiðja Morgunblaðsins
95 manns fórust
í flugslysi á Long Island
New York, 1. marz —
f MORGTJN fórust 95 manns í
flugslysi, er farþegaþota ef gerð-
inni Boeing 707 steyptist til jarð-
ar 5 km frá Idlewild flugvellinum
í New York.
Flugvélin hafði nýlega hafið
sig til flugs af flugvellinum er
spreniging varð í vélinni og hún
steyptist niður í Jamaica Bay.
Allt slökkvilið New York borg-
ar kom þegar á vettvang, en allir
sem í vélinni voru, 87 farþegar
og átta manna áhöfn, voru látnir,
er að var kjomið.
Vélin átti að fara til Los
Angeles og Ohieago, en síðustu
viku hefur innanlandsflug í
Bandaríkjunum legið niðri að
mestu vegna þoku og rigningar.
í dag var fyrsti sólardagurinn
þar í langan tíma og flugskilyrði
hin beztu.
Sprengingin í vélinni var gífur-
lega öflug og skulfu hús í 5—600
m fjarlægð, Þykkt svart reyk-
ský steig hátt í loft upp og hrak
úr vélinni þeyttist í allar áttir.
Þráskák
Krúsjeffs
og Vestur
veldanna
París, 1 marz — AP—NTB
-— Reuter.
KRÚSJEFF, forsaetisráðherra So-
vétrikjan.na, hefur enn á ný ítrek
að tillögu sína um, að afvopn-
unarráðstefna í Genf verði hafin
með leiðtogafundi. Hann hefur
hafnað tillögu de Gaulle, Frakk-
landsforseta um að kjarnorku-
veldin fjögur komi fyrst saman
til funda -— og harmar Krúsjeff
að Vesturveldin skuli sífellt slá
hendi gegn tillögum hans.
Sovézki forsætisráðherrann
rikrifaði þeim de Gaulle Frakk-
landsforseta, John Diefenbaker,
forsætisráðherra Kanada og Tage
Erlander, forsætisráðherra Svía,
i dag og eru ofangreind sjónar-
mið meginefni þeirra bréfa. Hann
þakkar jafnframt Erlander góðar
undirtektir hans við tillöguna um
leiðtogafund — en Erlander hafði
6varað Krúsjeff, að hann væri
reiðubúinn að koma til slíks
fundar, «f meirihluti aðildarríkj-
anna að ráðstefnunni — þar á
meðal kjarnorkuveldin öll, sam-
þykktu að hann yrði haldinn.
Sjónarvottar sögðu, að vélin
hefði verið logandi er hún steypt-
ist lóðrétt í flóann.
• Önnur flugvél, sem hóf sig til
flugs rétt á eftir þeirri, sem fórst,
tilkynnti þegar um slysið og allt
brunalið borgarinnar, hjúkrunar
lið, hundruð lögreglumanna og
leynilögreglumanna þustu á vett-
vang. Þegar síðast fréttist höfðu
björgunarmenn náð fimm líkum
en óhugsandi var talið. að nokk-
ur væri með lífsmarki. Áhöfn vél
arinnar var öll frá Kaliforníu.
Talsmenn flugvallarins segja,
að vélin hafi ekki sent frá sér
neyðarmerki áður en slysið varð.
Vél þessi, sem var í eigu
American Airlines, var ný og
endurbætt gerð af þotunni Bo-
eing 707.
Öllum veröi gert tært
að standa á eigin fótum
Nýskipan félags- oq framfærsðumála í Reykjavlk
BORGARSTJÓRN Reykja-
víkur samþykkti á fundi sín-
um í gær með samhljóða at-
kvæðum allra borgarfulltrúa
tillögur um nýtt skipulag fé-
lags- og framfærslumála í
borginni. Verða öll þessi mál
Geir Hallgrímsson, borgarstjóri.
nú sameinuð undir einni
stofnun, skrifstofu félags-
og framfærslumála, en
fram til þessa hefur skipulag
þeirra ekki verið í svo föst-
um skorðum sem nauðsyn
ber til. Samkvæmt þeirri
verkaskiptingu, sem gert er
ráð fyrir í hinni nýju skipan,
skiptist starfsemi skrifstof-
unnar í 4 deildir, sem fari
með: framfærslumál, félags-
mál, húsnæðismál og inn-
heimtu, en þar að auki verð-
ur svo almenn skrifstofa,
sem annast mun ýmis sam-
eiginleg verkefni. — Starfs-
menn skrifstofunnar verða
14, en til samanburðar má
geta þess, að árið 1958 unnu
18 menn á vegum borgarinn-
ar að þeim málum, sem nú
eru sett undir skrifstofuna,
svo að samfara aukinni hag-
kvæmni verður hér um
sparnað að ræða frá því sem
þá var. — Ein merkasta ný-
breytnin í þessari skipan er
tvímælalaust stofnun félags-
máladeildarinnar, sem mun
vinna að því að koma í veg
Alit að 100
snjóflóði I
manns farast í
Andesfjöllum
Lima, Peru, 1. marz — AP —
TAL.IÐ er að allt að því hundrað
manns hafi týnt lífi í snjóflóði
er varð í Andesfjöllum í gær-
kveldi. Mikill hluti bæjarins
Comchucos, sem liggur í 3000 m
hæð, mun hafa grafizt undir flóð-
inu, en í þessum bæ bjuggu um
3000 manns.
Mikið regn hefur verið á þess-
um slóðum í nokikurn tíma og er
það otrsötk flóðsiins. í þessum
sama bæ, sem er um 425 km norð
ur af Lima, fórust mörg hundruð
manna árið 1942 er mikiil jarð-
skjálfti varð á þessu svæði.
Þetta er hinsvegar annað mann
skæða snjófióðið á árinu á þess-
um slóðum — er þess skemmst
að minnast er hátt í fjögur þús-
und manns létu lífið í snjóflóð-
inu, sem varð í Huancaras-fjalli
í janúar sl.
fyrir, að fólk verði fram-
færsluþurfi, en verði í þess
stað aðstoðað við að standa
á eigin fótum. Þegar Geir
Hallgrímsson, borgarstjóri,
gerði grein fyrir hinni nýju
skipan félags- og fram-
færslumálanna á borgar-
stjórnarfundinum í gær
sagði hann það von sína, að
stofnun þessarar deildar yrði
til þess, að bein framfærsla
yrði smám saman minna at-
riði og þróunin gengi í þá
átt, að ýmiss konar tímabund
in aðstoð yrði aðalatriðið.
Frh. á bls. 23.
Mynd þessa fékk Morgun-
blaðið simsenda frá New
York í gær af flugslysinu
mikla á Long Island. Mynd-
in er tekin rétt eftir að
slysið varð og sést hvemig
logar « orakinu og reyksúla
stígur þar upp, sem flugvél-
arbúkurinn er undir.
Þetta er með mestu flug-
slysum í Bandaríkjunum
og hafa aldrei farizt svo
margir þar með einni véL
Tvö ný bólu-
sóttartilfelli
Cardiff, 1. marz. (NTB)
FUNDIZT hafa tvö ný bólu-
sóttartilfelli í Wales — nán-
ar tiltekið í námahéraðinu í
Rhonda-dal í Suður-Wales.
Þá eru tilfelli þar orðin sex
og grunur leikur á um hið
sjöunda.
Nýju sjúklingarnir eru lækn-
ir nokkur og fjögurra ára dreng
ur, en sjöunda tilfellið er móðir
drengsins. í þessu héraði búa
um 130 þúsund manns og hefur
þar nú verið fyrirskipuð alls-
herjarbólusetning.
milljónir manna
hylltu Glenn i IMew York
New York, 1. marz. — AP-NTB
JOHN GLENN, ofursti, kom til
New York-borgar í dag og höfðu
borgarbúar undirbúið glæsilegar
móttökur. Um þrjár milljónir
manna hylltu hann, en hið hörmu
lega flugslys, sem varð á Long
Island aðeins klukkustund áður
en geimfarinn kom til borgarinn-
ar, hafði mjög sett svip sinn á
borgina og mannfjöldann. Engu
að síður mun einum Bandaríkja-
manni sjaldan eða aldrei hafa
verið fagnað svo almennt síðan
Charles Lindberg flaug yfir
Atlantshafið fyrir 35 árum.
Borgarstjóri New York-borgar,
Robert Wagner, stóð fyrir opin-
berri móttöku í ráðhúsinu og var
þar sérstakur gestur, auk Glenns,
borgarstjórinn í Perth í Ástralíu.
en borgarar þar höfðu öll ljós
tendruð nóttina, sem geimfar
Glenns fór þar yfir. Síðar var
haldið miðdegisverðarboð á
Waldórf Astoria til heiðurs
Glenn og sátu það um 2000 gestir.
Fimm þrepa
eldflaug
Washington, 1. marz. — AP-NTB
í NÓTT sendu bandarískir vis-
indamenn á loft fimm þrepa eld-
flaug í því skyni að rannsaka
hver áhrif afturkoma til jarðar-
innar kann að hafa á tunglfara í
framtíðinni. Eldflaugin fór í 200
km. fjarlægð frá jörðu en með
síðasta þrepi hennar var verið að
gera nýja tilraun til þess að auka
ferð geimfars á leiðinni aftur til
jarðar. Tilraun þessi heppnaðist
í alla staði ágætlega.