Morgunblaðið - 02.03.1962, Síða 2
2
MORCVTSBLAÐIÐ
Fðstudagur 2. marz 1962
Teikningar að ráðhúsi fyrir árslok
NA /5 hnuitr SV 50 hnútor X SnjóJcomo 9 OSi 7 Skórir K Þrumur Wz, KuUaakíl ^ HihakA H Hm* 1 L*Lmg» 1
"'L' ú'. 7, í vtóiw1 loio jBta.<a)o,oJn . .ioi&í'a'M 7“
A FUNDI borgarstjórnar í
gær skýrði Geir Hallgríms-
son, borgarstjóri, frá því að
allar vonir stæðu nú til þess,
að hægt yrði að leggja fyrir
borgarstjórn fullgerðar teikn
ingar að fyrirhuguðu ráðhúsi
Reykjavíkur fyrir lok þessa
árs. Þá kom það einnig fram
á fundinum, að hinir fjórir
arkitektar, sem vinna að
teikningum að húsinu, eru
nú allir sammála um frum-
uppdrætti að útliti þess og
gerð, og komst einn borgar-
fulltrúa svo að orði, að sú
staðreynd væri ein út af fyr-
ir sig nokkur trygging þess,
að um hentuga lausn væri
að ræða.
Umræðurnar í horgarstjórn
spunnust út af tillögu, sem
Þórður Björnsson, horgar-
fulltrúi Framsóknarflokksins,
hafði flutt, en hann dró til-
lögu sína til haka að fengn-
um upplýsingum borgar-
stjóra.
Geir Hallgrímsson borgarstjóri
rifjaði nokkuð upp sögu ráðhús-
málsins í ræðu, sem hann flutti
á fundinum. Minnti hann fyrst
á, að hinn 29. des. 1955 hefði ver-
ið samþykkt með atkvæðum allra
15 borgarfulltrúa að reisa ráð-
hús Reykjavíkurborgar í norður-
enda Tjarnarinnar og 5 manna
nefnd kosin til að undirbúa og
hrinda í framkvæmd byggingu
þess. Fyrri hluta ársins 1956 hefði
nefndin svo unnið að því að afla
upplýsinga um það, hvaða starf-
semi borgarinnar væri heppilegt
að reka þar og hvaða borgar-
Stofnunum skyldi ætlað þar að-
setur. Þá var einnig samþykkt
innan ráðhúsnefndarinnar að
efna til hugmyndasamkeppni um
teikningu að ráðhúsinu, og var
síðan hafinn undirbúningur að út
boði slíkrar samkeppni, lýsing á
úfcboðsskilmálum o. fl.
• Arkitektar höfnuðu
samkomulagi um hug-
myndasamkeppni
Um svipað leyti hófust við-
ræður við Arkitektafélag íslands
um tilhögun samkeppninnar, sem
stóðu í nær 1 ár. En þegar á
reyndi kom í ljós, að ekki mundi
nást samkomulag við félagið, þar
sem það reyndist ófáanlegt til að
hvika frá því skilyrði, að 1 arki-
tekt, sem starfað hafði í ráðhús-
nefndinni, yrði útilokaður frá
þátttöku í samkeppninni. Varð
því að ráði að bjóða 8 arkitekt-
um að taka verkið að sér, 6 þeirra
tóku því boði, 2 þeirra eru fallnir
frá, en lengst af hafa 4 þeirra
unnið að teikningunum. Hafa
þeir gert marga tillöguuppdrætti,
sem lagðir hafa verið fyrir ráð-
húsnefnd. Einkum hefur verið
unnið við tvo tillöguuppdrætti,
og nú nýlega hefur ráðhúsnefnd
samkvæmt einróma áliti arkitekt
anna og framkvæmdastjóra nefnd
arinnar falið arkitektunum 4
og framkvæmdastjóranum að
vinna áfram á grundvelli annars
þeirra. Arkitektar þessir eru þeir
Gísli Halldórsson, Einar Sveins-
son, Halldór H. Jónsson og Sig-
valdi Thordarson, en fram-
kvæmdastjóri ráðhúsnefndarinn-
ar er Þór Sandholt. Þegar þessari
úrvinnslu er lokið verða teikn-
ingarnar enn á ný lagðar fyrir
ráðhúsnefnd, sem tekur þá
ákvörðun um, hvort senda skuli
uppdrættina til borgarráðs og
borgarstjórnar til samþykktar.
Munu borgarráð og borgarstjórn
þá fjalla um málið qg taka á-
kvörðun um, hvort sótt skuli um
byggingarleyfi fyrir ráðhúsi
Reykjavíkur á grundvelli þess-
ara uppdrátta. Væri rétt, að fram
færi almenn sýning á uppdrátt-
unum fyrir borgarbúa áður en
endanleg ákvörðun verður tek-
in í málinu.
Að lokum skýrði borgarstjóri
frá þvi, að ráðhúsnefnd hefði
látið framkvæma rannsóknir á
byggingarstæði fyrir ráðhúsið og
hefðu m. a. farið fram jarðvegs-
rannsóknir á vegum vitamála-
skrifstofunnar.
• Eangt í land?
Þórður Björnsson (F) fylgdi
tillögu sinni úr hlaði og rakti
gang ráðhússmálsins á svipaðan
hátt og skýrt er frá í frásögninni
af ræðu borgarstjóra hér að fram
an. Virtist hann þó einkum á-
telja þá leynd, sem verið hefði
yfir störfum nefndarinnar, því að
þrátt fyrir margítrekaðan tillögu
flutning sinn um málið hefði ekki
verið hægt að fá neinar upplýs-
ingar um störf hennar eða fá
lagðar fram í borgarstjóm upp-
drætti, sem nefndin hefur látið
gera. Ef svo héldi áfram sem nú
horfði, virtist sér langt 1 land,
að ráðhús Reykjavíkur verði
byggt og borgarstjóm fái að sjá
teikningar að húsinu.
• Teikningar lagðar fram
á þessu ári
Geir Hallgrimsson borgarstj.
tók nú aftur til máls og kvað
það álit sitt, að ekki væri í það
horfandi, þótt undirbúningur
undir byggingu slíkrar byggingar
sem ráðhúss tæki nokkum tíma,
því að þar þyrfti vel til að vanda,
og mest væri um vert, að vel
tækist til að lokum. >á kvað hann
ÞB óþarflega svartsýnan um
gang málsins, því að fuil ástæða
væri til að ætla, að teikningar að
ráðhúsinu gætu legið fyrir fyrir
lok þessa árs.
• Vel þarf að vanda
Guðm. Vigfússon (K) sagðist
telja það algjört neyðarúrræði að
fela ákveðnum arkitektum að
Kvöldvaka
Hraunprýði á
simmidag
NÆSTKOMANDI sunnudag
heldur Slysavarnardeildin Hraun
prýði sína árlegu kvöldvöku í
Bæjarbíói. Verður vel til hennar
vandað og munu flestir finna þar
eitthvað við sitt hæfi. Hafnfirð-
ingar þekikja orðið vel þessa ár-
legtu Skemmtun, sem er nú orð-
inn fastur liður í skemmitana-
lífi bæjarbúa. >eir munu því
fylla hús hjá þeim Hraunprýðis-
konum rik. sunnudag og njóta þar
góðrar skemmtunar og um leið
styrkja gott málefni.
Brann til grunna
UM hálf áttaleytið í gærkvöldi
var slökkviliðið kvatt að skúr
inni í Blesugróf, þar sem harð-
fiskvinnsla rnun hafa verið til
húsa. Var skúrinn alelda er að
var komið og brann hann til
grunna, og eyðilagðist.
IxAGT hefur verið fram á Al-
þingi frurruvarp frá ríkiisstjórn-
inni þess efnis, að heimilt eé að
semja um sameiginlega inn-
heimfcu á beinum Sköttum til
rikissjóðs og útsvörum og fast-
eignagjöldum, en athuganir hafa
leitt í ljós, að lækka megi veru-
lega kostnað við inriheimfcuna i
Rvík, verði þessi háttur upp tek-
inn.
Bæði til hagræffis og spamaffar.
í greinargerðinni segir svo:
Undanfarið hefur farið fram
athugun á vegum fjármálaráðu-
neytisins hvort sameining inn-
teikna húsið, og að réttara hefði
verið að efna til hugmyndasam-
keppni um teikningu að því.
Þá kvað GV það álit sitt, að
vel þyrfti að vanda til alls und-
irbúnings að byggingu ráðhúss-
ins, en undirbúningur þess hefði
tafizt af óviðráðanlegum ástæð-
um, m. a. vegna fráfalls tveggja
arkitekta, sem unnið hefðu að
teikningum, og veikinda.
Alfreff Gíslason (K) kvaðst per
sónulega þakklátur fyrir, hve
hægt hefði miðað í þessu máli.
Það væri sín skoðun, að heilla-
ríkast yæri, að ráðhúsnefndin
starfaði sem minnst, og væri von
andi, að þessi dráttur yrði til
þess, að borgarstjórn sæi sig um
hönd og samþykkti aðra staðsetn
ingu ráðhússins heldur en þá,
sem þegar hefði verið samþykkt.
Á FUNDI borgarstjórnar í
gær upplýsti Geir Hallgríms-
son, borgarstjóri, að í undir-
búningi væri heildaráætlun
um að fullgera allar götur í
Reykjavík. Gerði borgar-
stjóri ráð fyrir, að áætlun
þessi yrði fullgerð og lögð
fyrir borgarstjóm á fundi
ekki síðar en eftir 5 vikur.
Upplýsingar þessar gaf borgar-
stjóri við umræður um fyrir-
spum frá Guffmundi J. Guff-
mundssyni (K), sem hljóðaði
þannig:
„Hvað veldur því, að í áætlun
borgarverkfræðings um gatna-
gerðarframkvæmdir á yfirstand-
andi ári er ekki gert ráð fyrir
malbikun jafnilla kominna gatna
og mikilla umferðaræða sem
Kaplaskjólsvegar og Laugarnes-
vegar?“
Bráðkvaddur
í GÆRMORGUN bar svo við að
roskinn maður varð bráðkvadd-
ur undir stýri bils síns við Lækj-
artorg. Ók maðurinn suður Lækj
artorg fyrir framan stjórnarráð-
ið en nam staðar á rauðu ljósi
við Bankastræti. Þegar græna
ljósið kviknaði ók maðurinn ekki
af stað og var þá farið að huga
að honum. Kom í ljós að mað-
urinn var meðvitundarlaus. —
Sjúkrabíll var sóttur og var mað-
urinn fluttur á slysavarðstofuna
en var látinn er þangað kom. —
Hann var 51 árs að aldri.
heimtu á beirauim skötfcum til rík-
issjóðs og útsvörum og fasfceigna-
gjöilduim í Rvík. myndi eigi geta
haft verulegan sparnað í för með
sér. Var þá og haft í huga að
endurskipulagðar yrðu aðferðir
við innheimtu og bókhald. At-
hugun þessi hefur leitt í ljós, að
með þessu móti myndi mega
lækka verulega kostnað við inn-
heimtuna og hlutfaliislega enn
meir, ef ýmis önnur gjöld, sem
sérinnheimtu hlíta, yrðu inn-
heirnt ásamt ofangreindum gjöld-
um.
Auk hins beina sparnaðar, sem
sameiginleg gjadiheimta heifur í
för með sér, er þetta fyrkkcmu-
KALT heimskautaloft nær nú
yfir allt kortsvæðið og er því
kaldara sem það er skemmra
kömið frá heimkynnum sínum.
Hér á landi var frostið 4—6 stig
Fyrirspurn þessari svaraði borg
arstjóri á þá leið, að í áætlun
borgarverkfræðings um fram-
kvæmdir í ár væru auðvitað að-
eins fáar þeirra gatna, sem þyrfti
að fullgera, en nú væri unnið
að heildaráætlun um að malbika
og steinsteypa allar götur bæjar-
ins og kæmu þær framkvæmdir
í kjölfar hitaveituframkvæmd-
anna, sem þegar hefur verið
tryggt allt fjármagn til.
Borgarstjóri sagði, að það væri
vissulega rétt, að íbúarnir við
Laugarnesveg, sem væri ein af
elztu götum bæjarins, væru vel
að malbikun komnir, en þrjár
ástæður lægju til þess, að ekki
væri skynsamlegt að malbika
þessa götu í sumar. I fyrsta lagi
Bingó fyrir sjó-
slysasjóðinn
KEFLAVÍK. — Söfnun í sjó-
slysasjóðinn er nú að hefjast á
Suðurnesjum og verður næstu
daga leitað til almennings um
framlög. 1 kvöld gengst Ung-
mennafélag Keflavíkur fyrir
bingókvöldi í húsi sínu og verð-
ur öllum ágóða varið til söfn-
unarinnar. Á þessu bingókvöldi
verða góðir vinningar, svo sem
svefnherbergishúsgögn og margt
fleira. Verð^ spjöldin seld á kr.
50 til að tryggja sem mest fram
lag til sjóðsins, og þarf ekki að
efa að almenn þátttaka verður,
þar sem um er að ræða söfnun
í sjóslysasjóðinn. — Helgi S.
lag til mikils hagræðis fyrir þá,
sem innheimtuna hafa með hönd
um og launagreiðendur, sem lög-
um samkvæmt ber að starada skil
á gjöldum starfsmanna sinna.
Sama gildir þá gjaldendur, sem
greiða gjöld sín beint. Þeim er
mjög til hagræðis að geta greitt
þau á einum stað, í flestum tiil-
vikium með jöfnum mánaðarleg-
um greiðslum.
Með frv. þessu er farið fram
á heimild Alþingis til þess að
unnt sé að koma gjaldheimt-
unni í það horf, sem hér að
framan er rakið. Er ætlunin að
hefjast fýrst handa í Reykjavík,
en búast má við að þetta fyrir-
komiuilag verði upp tekið víðar
á landinu, ef vel tökst til í
Reykjavík.
á láglendi um hádegið í gær, en
norður undan var kaldara. Nokk-
uð fyrir sunnan land er frostlaust,
og allra syðst á kortinu er 8 tii
10 stiga hitL
værl verið að gera akfæra götu
fyrir vestan fiskiðjuver Júpíters
og Mars, og gæti sú gata tekið
við umferðinni af Laugarnes-
vegi meðan verið væri að full*
gera hann. í öðru lagi þyrfti að
endurnýja holræsi í Laugarnes-
vegi vegna meiri atvinnurekstrar,
og loks væri gert ráð fyrir aff
ljúka hitaveitu í Laugarnes-
hverfi á þessu ári »g sjálfsagt
væri að iáta hitaveitufrám-
kvæmdina ganga fyrir, svo að
ekki þyrfti að brjóta upp nýja
götu.
Um Kaplaskjólsveg sagði borg
arstjóri, að þar væru nú einnig
fyrirhugaðar hitaveitufram-
kvæmdir og verið væri að undir-
búa byggð norðan Kaplaskjóls-
vegar. Ekki væri þvl eðlilegt að
malbika götunna í ár, en hins
vegar væri ætlunin að ganga frá
Hofsvallagötu i sumar og tæki
hún þá mikið af þeirri umferð,
sem nú væri um Kaplaskjólsveg.
Öll þessi mál verða hins vegar
betur rædd, þegar heildaráætlun
um gatnagerðina liggur fyrir, og
ekkert er eðlilegra en að okkur
sýnist nokkuð sitt hverjum um
það, hvaða akbraut eigi fyrst að
fullgera.
Guffmundur J. Guffmundsson
tók aftur til máls, og sagði, að
sér kæmu svörin ekki á ðvart og
bætti því við, að hann gæti viður-
kennt röksemdir borgarstjóra
fyrir því að fullgera hitaveituna
áður en gengið væri frá götun-
um.
Fiiðrik vann
German
STOKKHÓLMI, 1. marz: — Frið-
rik Ólafsson vann German í 20.
umferð. German féll á tíma í von
lausri stöðu. Uhlmann vann
Bilek. Er það fyrsti sigur Uhl-
manns síðan í 14. umferð. Benkö
vann Aaron.
Jafntefli varð hjá Fischer og
Filip, Bolbochan og Bisquier og
Geller og Gligoric. Biðskákir
urðu hjá Teschner og Portish
(Portish hefur peð yfir), Petro-
sjan og Schweber (Petrosjan
vinnur), Stein og Yanofsky og
Kortsnoj og Pomar (Kortsnoj
hefur betri stöðu, en hugsanlegt
er að tefla verði skákina aftur
vegna bilunar á klukku). Korts-
noj gaf biðskák sína við Fischer
úr 19. umferð án frekari tafl-
mennsku.
SÍÐUSTU FRÉTTIB
Biðskák Friðriks og Yanof-
sky úr 20. umferff varff jafn-
tefli. German vann Cuellar,
Stein vann Yanofsky, Petrosjan
vann Schweber, Kortsnoj vann
Pomar, en jafntefli varff hjá
Gligoric og Petrosjan. Biðskák
Stein og Gligoric úr 18. umferff
er enn óiokið.
Staffa efstu manna: Fischer
15, Petrosjan og Geller 13,
Filip IZYí, Gligoric 12 og biff,
Kortsnoj og Portish 12, Benkö
VÍYt, Stein 11 og biff, Uhlmann
og Pomar 11 og Bolbochan og
Friðrik Ólafsson 10.
Sameiginleg innheimta
opinberra gjalda
í undirbuningi er beildardætlun urn
Fullgerðar götur
í Reykjavík