Morgunblaðið - 02.03.1962, Page 12
12
rMORGUNBLAÐ!Ð
Föstudagur 2. marz 1962
Otgefandi: H.f Arvakur Reykjavík.
Framkvæmdastjóri: Sigfús Jónsson.
Ritstjórar: Valtýr Stefánsson (áftm.)
Sigurður Bjarnason frá Vigur.
Matthías Johannessen.
Eyjólfur Konráð Jónsson.
Auglýsingar: A.rni Garðar Kris.íinsson.
Ritstjórn: Aðalstræti 6.
Augiýsingar og avgreiðsla: Aðalstræti 6. Sími 22480.
Askriftargjald kr. 55.00 á mánuði innanlands.
1 lausasölu kr. 3.00 eintakið.
FISKIÞINGIÐ
OG FRAMTÍÐIN
FMskiþingi er nýlega lokið.'
Það sat skamman tíma
að störfum, aðeins rúmlega
hálfan mánuð, og vann rösk-
lega að viðfangsefnum sín-
um. Tók það þó til meðferð-
ar fjölda þýðingarmikilla
mála, er varða sjávarútveg
og sjósókn í landinu. Það
gerði athyglisverðar ályktan-
ir um fiskiðnað og fiskiðnað-
arskóla, um fiskmat og vöru-
vöndun, um friðxm hrygning-
arsvæða, rannsóknir og fiski-
og síldarleit, um fiskveiði-
landhelgina, rækju- og hum-
arveiðar, fiskirækt, hafrann-
sókna- og fiskileitaskip, hafn
armál o. fl.
Þetta Fiskiþing hefur eins
og öll önnur þing gert marg-
víslegar kröfur á hendur Al-
þingi og ríkisstjórn. En flest-
ar þeirra eru hóflegar og vel
rökstuddar.
Sérstök ástæða er til þess
að taka undir þá skoðun
Fiskiþings, að þjóðarnauð-
syn beri til þess að hefja nú
þegar byggingu á fullkomnu
hafrannsókna- og fiskileitar-
skipi, sem verði búið öllum
fullkomnustu tækjum tilhaf-
rannsókna, fiskileitar og veið
arfæratilrauna, enda verði
skipið rekið undir forystu
fiskideildar Atvinnudeildar
Háskólans.
★
Bygging hafrannsókna- og
fiskileitarskips er tvímæla-
laust eitt mesta nauðsynja-
mál útvegsins og þjóðarinn-
ar í dag. Vísindaleg vinna
og rannsóknir hafa þegar
orðið íslenzkum útvegi að
stórkostlegu gagni og allt
bendir til að í framtíðinni
hljóti fiskveiðar að byggjast
á þeim í stöðugt ríkari mæli.
Ábending Fiskiþings um
nauðsyn skipulegra aðgerða í
hafnarmálum á einnig við
fyllstu rök að styðjast. Hin-
ar ófullkomnu hafnir, sem
útgerðin býr víða um land
við í dag, draga úrframleiðsl
unni og hindra þróun henn-
ar. Þess vegna er ákaflega
þýðingarmikið að áherzla
verði lögð á öflun fjármagns
til þess að fullgera ýmsar
hafnir, sem vel liggja við
miðum og þýðingarmiklar
eru fyrir útgerðina.
Yfirleitt má segja, að fiski-
þingið hafi litið á hagsmuna-
mál útvegsins af raunsæi og
framsýni.
HAFA BANDA-
RÍKIN TEKIÐ
FORYSTUNA?
egar Rússar sendu hina
fyrstu geimfara umhverf
is jörðu í apríl og ágúst sl.,
þótti sýnt að þeir hefðu for-
ystuna í kapphlaupinu um
himingeiminn. Þeir höfðu
hafið undirbúning geimferð-
anna löngu á undan Banda-
ríkjamönnum og varið til
þeirra óhemju fjár.
Bandaríkjamönnum og
mörgum öðrum fannst sem
Rússar hefðu unnið mikils-
verðan leik í taflinu um for-
ystu á sviði heimsmálanna
með hringferðum þeirra Gag-
aríns og Títovs umhverfis
jörðu. Ýmsir fylltust svart-
sýni og töldu, að geimferða-
yfirburðir Rússa hefðu einn-
ig skapað þeim stórbætta
hernaðarlega aðstöðu.
En nú hafa Bandaríkja-
menn kvittað fyrir leik
Rússa. Með hringför Glenns
ofursta þrisvar sinnum kring
um jörðu fyrir skömmu, er
það augljóst að Bandaríkja-
menn standa Rússum ekki að
eins jafnfætis á sviði geim-
rannsókna og geimferða, held
ur jafnvel framar. Rússar
hafa framkvæmt geimfarir
sínar með fyllstu leynd.
Bandaríkjamenn hafa fram-
kvæmt sínar geimferðir og
hringferðir umhverfis jörðu
fyrir opnum tjöldum. Allur
heimurinn hefur fylgzt með
athöfnum þeirra. Þeir hafa
ekki hikað við að taka þá
áhættu sem þessu er sam-
fara. Rússar þorðu ekki að
taka þá áhættu. Þeir treystu
ekki tækni sinni og þekkingu
til þess að taka hana.
Bandaríkjamenn undirbúa
nú för mannaðs geimfars um
hverfis tunglið á næstu ár-
um. Á árunum 1967—70 gera
þeir ráð fyrir að geta lent
mönnuðu geimfari á tungl-
inu og haft þar nokkra við-
dvöl, en horfið síðan aftur
til jarðar.
Rússar vinna að sjálfsögðu
einnig að undirbúningi slíkra
geimfara, en margt bendir til
þess að Bandaríkjamenn séu
nú í þann mund að fara fram
úr þeim. Hvort svo er mun
reynslan skera úr um á
næstu árum.
IITAN UR HEIMI
Myndir frá Peking. Til vinstri er „Hlið hins heimneska friðar
“, en til hægri mynd úr um- hverfi sumarhallar keisaranna.
Kfnverjar storka
Rússum enn
Nýju Delhi, 14. febrúar
SÚ ^koðun eignast nú æ fleiri
fylgjendur í Indlandi, að ráð-
stefna kommúnistaflokka í Asíu
verði haldin í Hanoi, höfuðborg
Norður-Vietnam, í byrjun apríl.
Ennfremur hefur þessi skoðun
leitt af sér, að talið er, að Kína
sé að búa sig undir ódulbúin
hugsjónafræðileg átök við Sovét-
sambandið.
Áhangendur kommúnista hér
benda á mikilvægi tímans, sem
ráðstefnunni hefur verið valinn:
Hún kæmi rétt á eftir fundi mið-
stjórnar rússneska kommúnista
flokksins, sem á að hefjast 5.
marz og standa fram í miðjan
mánuðinn, cg hún kæmi á und-
an ráðstefnu þeirri um frið Og
afvopnun, sem halda á í MoSkvu
í júlí, að undirlagi sovétstjórn-
arinnar.
Indverskir fulltrúar á fundi
Heimfriðarráðsins í Stofekhólmi
í vetur töiuðu við aftur-
komu sína um árekstra milli
rússnesku og kínversku sendi-
nefndanna. Svo virðist sem
deilan hafi átt rætur sín-
ar að rekja til kröfu Kínverjanna
um, að dagskrá ráðstefnunnar
yrði breytt og meiri áherzla lögð
á hlutverk sjálfstæðishreyfing-
anna og hreyfinganna gegn ný-
lendustefnu, eirukum í Asíu og
Afríku. í rauninni voru Kín-
verjarnir að reyna að þoka til
hliðar stefnumálum Rússanna, af
vopnun og friði.
Kínverjunum virtist gremjast
úrslit atkvæðagreiðslunnar. Þeir
fengu einungis stuðning sex
sendinefndanna á ráðstefnunni:
Austur-Þýzkalands, N-Kóreu,
Nörður-Vietnam, Ytri-Mongólíu,
Albaníu og Indónesíu. Til að
bjarga heiðrinum báru Kínverj-
ar fram gagntillögu um vináttu-
fund Asíuríkja, Afríkuríkja og
Suður- og Mið-Ameríkuríkja. Til
lagan var samþykkt, en staður og
stund fyrir fundinn voru ekki
ákveðin.
Eftir frásögnunum af gangi
málanna á Stokfchólmsfundinum
að dæma virðist afvOpnunarlínan
frá Moskvu hafa orðið ^fyrir
harðri árás af hendi Liu Ning-yi,
áhrifamikils félaga kínverska
kommúnistafloifcksins, sem ásak-
aði fyrirmælendur þeirrar kenn-
ingar, að afvopnun væri eina
leiðin til friðar, um að ætla að
víkja hinum þjóðlegu frelsishreyf
ingum í iöndum Asíu Og Afríku
til hliðar fyrir eigin metorða-
girni. Liu er talinn hafa sagt, að
sú braut væri bæði röng og hættu
ieg.
Sagt er, að kínverska sendi-
nefndin í Stofckhólmi hafi verið
vopnuð 128 síðna bréfi frá Molo-
tov, sem nafi orsakað uppþot á
INDVERSKU
KOSNINGARNAR
rndanleg úrslit eru að vísu
ekki kunn ennþá í ind-
versku kosningunum, en auð
sætt er þó af þeim tölum,
sem þegar eru kunnar, að
Þjóðþingsflokkurinn mun ör-
ugglega halda hreinum meiri
hluta á þingi. Hann mun hins
vegar tapa nokkuð, bæði í
kosningunum til þjóðþingsins
og til einstakra fylkisþinga.
Þjóðþingsflokkurinn er
hinn gamli sjálfstæðisflokkur
Ghandis og samstarfsmanna
hans. Hann stendur því á
gömlum merg og nýtur jafn-
framt mikilla vinsælda Nehr-
us, núverandi forsætisráð-
herra. Yfirgnæfandi meiri
hluti Indverja lítur á Nehru
sem sinn mikla þjóðarleið-
toga. Einn nánasti samstarfs
maður hans, Krishna Menon,
er hins vegar miklu umdeild
ari persónuleiki. Hörð sókn
var að þessu sinni gerð gegn
Menon í kjördæmi hans í
Norður-Bombay. Andstaðan
gegn honum sprettur fyrst og
fremst af því að hann hefur
þótt um of hliðhollur Rúss-
um í starfi sínu sem aðal-
fulltrúi Indlands hjá Sam-
einuðu þjóðunum. Svo virð-
ist þó sem Krishna Menon
muni ganga með sigur af
hólmi.
Það er mjög þýðingarmik-
ið fyrir hinn frjálsa heim, að
öflugur og þróttmikill lýð-
ræðisflokkur fer með völd í
Indlandi. Enda þótt Nehru og
stjórn hans hafi hallazt að
hlutleysisstefnu, er hann þó
mikill andstæðingur hins al-
þjóðlega kommúnisma og út-
þenslustefnu hans. — Hinn
frjálsi heimur verður að
treysta á Indland sem útvörð
í austri gegn ofbeldissókn
kínverskra kommúnista vest-
ur á bóginn.
þingi fcommúnistaflokks Ráð-
stjórnarríkjanna í nóvember síð-
astliðnum, og hafi sendinefndin
hótað að koma af stað opinberum
umræðum um deilurnar innan
rússneska kommúnistaflokksins,
ef Krúsjeff blakaði við Molotov.
Búist er við, að Kínverjar
muni nota fyrirhugaða ráðstefnu
í Hanoi til að kynna stefnu sína
Og brjóta niður andstöðu gegn
afstöðu Pekingstjórnarinnar. Hér
er lítill efi um, að aðalhvata-
menn ráðstefnunnar séu í Peking,
en val Norður-Vietnam til að
hýsa ráðstefnuna sé herbragð til
að komast hjá andstöðu þeirri,
sem myndi verða gegn slíkri ráð-
stefnu í Peking af hendi komm-
únistafloikkanna í Asíu, sem hafa
verið lítið hrifnir af aðgerðum
Kínverja upp á síðkastið Og leitað
innblásturs í Moskvu.
Trúin á, að Kínverjar standi
að baki ráðstefnunni hefur ekki
minnkað við síðustu fréttir frá
Hanoi, um að Nörður-Vietnam
hafi tekið upp hlutleysisstefnu í
deilunni milli Kína ög Rússlands.
Tíunda febrúar síðastliðinn sagði
blað stjórnarinnar í Hanoi,
„Nhandan“: „Við álitum, að
grundvöllur alþjóðlegrar eining-
ar sé einnig meðal ríkjanna í hin
um sósíalistísku herbúðum, Og
hún hlýtur að byggjast á einingu
milli Sovétríkjanna og Kína.
Við munum styrkja bönd okkar
við Sovétríkin, Kína og önnur
sósíálistísk lönd og leggja þannig
fram okkar skerf til alþjóðlegrar
einingar".
Hið yfirlýsta hlutleysi hins
kommúnistíska Vietnam er álitið
gera það enn hæfara til að þjóna
markmiði Pekingstjórnarinnar.
Greinin er einnig talin benda
til þess, að bilið milli Moskvu
Og Peking sé breiðara en almennt
hefur verið álitið hér.
Observer — öll réttindi áskilin.
Japanskir
í Keflavík
FULLTRÚAR japanska flug
félagsins Japan Airlines
voru á ferð hér fyrir helg-
ina. Þeirra á meðal voru
yfirflugstjóri félagsins og
skrifstofustjóri þess í Kaup
mannahöfn. Erindið var að
kanna allar aðstæður á
Keflavíkurflugvelli, því fé-
lagið hefur hug á að hafa
Keflavíkurflugvelli sem
varavöll á flugleiðinni
Tokyo — Anchorage —
Kaupmannahöfn. Voru þeir
í fyllsta máta ánægðir og
er því þess að vænta að
japansfcar flugvélar fari að
venja komur sínar til Is-
lands.