Morgunblaðið - 02.03.1962, Page 17
Föstudagur 2. marz 1962
MORCTrnnf. 4 ÐIÐ
17
Karolína Benediktsdóttir
trá Múla — Minning
J>ANN 16. t>.m. andaðist í sjúkra-
ihúsi í Húsavík Karolína Bene-
diktsdóttir á 91. aldursári, lengst
af kennd við Múla í Aðaldal, hús-
freyja þar frá 1899—1930.
Múli og Grenjaðarstaður eru
einhver kunnustu höfuðból í
Þingeyjarsýslu fyrr á timum,
löngum prestsetur og kirkjustað-
ir og þó svo nálægt hvort öðru,
að ekki er nema lækur einn á
milli landareignanna.
Karolína fæddist að Skinna-
etað 15. júní 1871 og ólst upp í
föðurfhúsum, Skinnastað. Helga-
Stöðum og Grenjaðarstað.
Foreldrar: Sira Benedikt Krist-
Jánsson prófastur á Grenjaðar-
stað og Regina Hansdóttir Sivert-
een fyrri kona hans. Karolína
var elzt barna þcirra, sem voru
9, ellefu ána að aldri, mislinga-
eumarið annálaða 1882, er
4 systkinanna dóu á einu sumri á
aldri 1—6 ára — og tæpum 2
érum seinna dó móðir þeirra
einnig. Þeir atburðir allir voru
átakanlegir og ákafiegt áfall fyr-
Jr séra Benedikt og heimilið. En
síðari kona hans, Asta Þórarins-
dóttir frá Vikingavatni, flutti þó
eð nýju birtu inn í bæinn ekki
löngu síðar, og er nafn frú Ástu
umvafið ljóma í minningu allra,
eem muna hana. Séra Benedikt
var ástsæll mannkostamaður
Karolína í Múla var mikill
gkörungur á heimili. Var mjög á
orði haft meðan hún bjó í Múla
Ihvílík rausn þar væri á öllu og
myndarbragur fyrir innan stokk.
Að heimili hennar og Helga
Jóhannessonar lágu leiðir fjölda
manna, bæði úr nálægð og fjar-
lægð, jafnt venzlamanna og
ennarra og áttu allir þar jafnan
mjög rausnarlegum viðtökum að
fagna. Og aldrei mun gestur hafa
lcomið að húsfreyjunni óviðbú-
jnni, þannig að ekfki væri til í
búri gnægðir fanga hvort sem
var í mat eða drykk jafnvel þó
50 aðkomumenn kæmu í einu öll-
um að óvörum. Og allt fram
undir nítugasta aldursár vár
Karolínu rausnin svo töm og til-
tæk að henni þótti miður, ef hún
gat ekki vikið einhverju að gesti
sínum undan höfðalagi. En hún
var rúmföst síðustu árin.
Heimilisfólk allt að Múla var
ennálað fyrir dugnað og er of
langt upp að teljá dæmi um það.
Heimilið var jafnan stórt og um-
svifamikið og ofan á öll önnur
umsvif bætti Karolína umönnun
fyrir systur sinni sjúkri, Guð-
rúnu, um fjölda ára. Á unga
eldri, var hún mjög efnilegur
unglingur en tók heilabólgu og
missti heyrn og heilsu og lifði upp
frá því bak við heiminn, lengst
í húsum Karolínu og á hennar
vegum. Þau vik, sem því fylgdu,
erfiði og áhyggjur, voru aldrei
á torg borin. En þegar Karolína
flutti frá Múla um 1930 tók
Bjarni bróðir hennar við systur
þeirra og kona hans Þórdís Ás-
geirsdóttir á Húsavík. Þeirra
dæmi allra er þannig að ekki
munu margir ganga í þau spor,
aðrir en þeir einir, sem hafa
bæði þreklyndi og góðvilja til að
bera.
Karolína giftist Helga Jó-
hannessyni búfræðingi frá Birn-
ingsstöðum í Laxárdal 6. júní
1893. Bjuggu þau fyrst að Birn-
ingsstöðum, síðar um 30 ár að
Múla. Þá fluttust þau að Salt-
vík og síðar til Húsavíkur. Helgi
andaðist 1947.
Á Húsavík dvaldi Karolína að-
allega á heimilum barna sinna,
Bjarneyar og Jökuls, unz hún
varð að fara á sjúkrahús fyrir
1—2 árum.
Börn hennar og Helgu eru:
Regina f. 18/5 1896, d. 21/1 ’46.
Benedikt f. 10/11 1899, d. 23/1
1900.
Ásta f. 27/4 1901, hjúkrunar-
kona.
Bjarney f. 13/3 1903, húsfreyja
í Húsavík.
Jökull f. 12/6 1906, bifr.stj.
Húsavík.
Haukur f. 17/11 1908, d. 1935.
Logi d. 15/11 1936, bóndi í
Saltvík.
Karolína var glaðlynd og
gjörvUeg. Að dugnaði hennar og
skörungsskap er áður vikið og
raungæðum.
Þau Helgi byrjuðu búskap á
Birningsstöðum með tvær hendur
tómar, samvalin og einhuga að
vinna hörðum höndum og alráðin
að verða bjargálna. Framan af
árunum viðhöfðu þau svo mikinn
sparnað í öllum greinum að á
orði var haft að Helgi hefði t.d.
klofið eldspýtur og ent stokk-
ella. En í Múla græddist þeim
nokkurt fé og eftir það þurfti
ekki mikla sparsemi við að hafa.
Jörðin var ágæt og hefi ég tæp-
lega séð heyskap sóttan af slíku
ofurkappi og þar og kynntist ég
því þó ekki náið fyr en bæði
hjónin voru komin á sjötugsald-
ur, og hefi ég bó víða séð hendur
standa vel fram úr ermum við
heyskaparstörf.
Þegar Helgi og Karolína fluttu
frá Múla 1930 og síra Helgi Hjálm
| arsson og hans fólk frá Grenjað-
arstað rétt á undan urðu mikil
skörð eftir, er þeir stóru bændur
fóru frá stórstöðunum í Aðaldal,
þó menn kæmu að sjálfsögðu í
manna stað og 12 býla byggðar-
hverfi standi nú í landareignum
Múla og Grenjaðarstaðar.
Þau Múlahjón bjúggu skamma
hríð í Saltvík og munu naumast
hafa fest rót í nýrri jörð eftir að
þau yfirgáfu dalinn, enda varla
! að vænta þar sem fótur var þá
farinn að þyngjast.
Gamli Múlabær er nú jafnaður
við jörðu og önnur hús risin. Þil
hans gnæfa ekki lengur yfir
stórri sveit og húsfreyjan á bæn-
um fagnar ekki framar gestum
í dyrum úti. Þó vakir það enn í
minni, sem var og hét á stórbýl-
| unurn við Staði, og gerði garðana
fræga.
I Bjartmar Guðmundsson.
5 T U D I O Gestur Einarsson
Laufásvegi 18 sími 24-0-28
MYNDATÖKUR í ljósmynda-
stofunni. — Myndatökur i heimahúsum.
Passamyndir tilbúnar daginn eftir.
Kaupum hreinar
léreftstuskur
PRENTSMIÐJA
JintipttM&ijww'
Stöðuskipti
hjá s.í.s. I
í GREIN, sem birtist hér í Mbl.
á þriðjudag um sextugsafmæli
S.Í.S. voru taldir upp fram-
kvæmdastjórar þess. Var þar
stuðzt við síðustu fáanlega
skýrslu Sambandsins, en síðan
hafa orðið þær breytingar, að
Agnar Tryggvason, sem veitti
skrifstofunni i Hamborg forstöðu,
er kominn til íslands og býr sig
undir að taka við framkvæmda-
stjórastarfi í landbúnaðarafurða-
deild útflutningsdeildar, er Helgi
Pétursson lætur af því starfi fyr-
ir aldurs sakir. Við starfi Agnárs
tekur Harry Frederiksen, sem -
áður var frkvstj. iðnaðardeildar,
en frkvstj. þar nú er Helgi Bergs.
— Þá hafa skrifstofurnar í Kaup-
mannahöfn og New York verið
lagðar niður.
<S>------------------—
Þorkell V. Ottesen
FÆDDUR 8. JANÚAR 1905 — DÁINN 19. FEBRÚAR 1962
EKKI verður sagt að fréttin um
andlát vinar míns Ottesen kæmi
mér á óvart. Og þó. Hann hafði
átt við vanheilsu að stríða, en
svo virtist sem. einstök lífsgleði
hans hefði leikið á manninn með
ljáinn. En skyndilega var Otte-
sen horfinn af leiksviði lífsins.
Einhver litríkpsta persónan á
hinu afmarkaða sviði Akureyrar,
og einn geðþekkasti maður, sem
ég hef haft kynni af.
Sem uppalningur í Prentverki
Odds Björnssonar, og læri-
sveinn Þorkels Valdemars Otte-
sen, hlotnaðist mér sú náðargjöf
að kynnast honum og af honum
nema prent- og lífsins list.
Margar á ég minningar frá
þessum árum, og munu þær seint
fyrnast.
Sízt vildi ég án þeirra vera.
Hans skemmtilega greind, og
óbilandi kímnigáfa, varð mér,
óþroskuðum unglingnum, hollt
vegarnesti á refilstigum mann-
lífsins.
Enginn kom að tómum kof-
anum hjá Ottesen. Gilti einu um
hvað var rætt, öllu gerði hann
skemmtileg skil.
Má það merkilegt heita, þá
tekið er tillit til hans fáu tóm-
stunda. Kom þar fram eiginleiki
hans til að greina kjarnann frá
hisminu.
Það er skarð fyrir ‘skildi í
POB, þá Ottesen er fallinn. Hann
var óaðskiljanlegur hluti af öllu
prentverki á Akureyri og mun
það honum verðugur* minnis-
varði, þá ár líða.
Valdi minn. Ekki veit ég
hvernig þakka skal, en hlakka
til endurfunda. H. T,
Garðeigendur athugib
Nú er rétti tíminn til að klippa tré og bera á garð-
ana fyrir vonð.
Pétur Axelsson (áður Heide)
Sími: 3 74 61.
Einbýlishús
Til sölu á fallegum staS í Vesturbænum í Kópavogi
6 herbergja einbýlishús, á 2 hæðum. Allt fullfrá-
gengið. Mjög vandaðar og fallegar innréttingar.
MÁLFLUTNINGS- OG FASTEIGNASTOFA
Sigurður Reynir Pétursson, hrl.
Agnar Gústafsson, hdl.
Björn Pétursson, fasteignaviðskipti.
Austurstræti 14 — Símar 17994 — 22870.
Verksmáðfuútsalan Laugavegi 66
- Ódyrt
Einlitar slæður kr. 35. — Vinnuskyrtur kr. 109. — Barna gallar kr. 165. — Barnaföt kr. 12. — Dömunáttföt frá kr. 120.
— Garðbuxur frá kr. 65. — Sokkabandabelti, nælonteygju k r. 140. — Undirpils frá kr. 34. — Ullarkembuteppi kr. 134.
■— Herrafrakkar ullargaberdine kr. 490.
DAGLEGA NYJAR VORUR
Odýrt -
Verl:sinið£uútsaEan Laugavegi 66