Morgunblaðið - 02.03.1962, Side 23
Föstudagur 2. marz 1962
MOrGUNBLAÐIÐ
£3
Reynt að semja við tannlækna um
tannlækningar í skólum
Landsýn eftir KjarvaL
VERIÐ er nú að leita samn-
inga við Tannlæknafélag ís-
lands um tannlækningar í
skólum á gnmdvelli bréfs
þess, sem Geir Hallgrímsson,
borgarstjóri, ritaði Tann-
læknafélaginu fyrir skömmu,
jþar sem farið var fram á við
tannlæknana að ganga til
samstarfs við borgaryfir-
völdin til að leysa þennan
vanda. Komu þessar upplýs-
ingar fram á borgarstjórnar-
fundi í gær.
Skorinorð ályktun.
Alfreð Gíslason, læknir, (K)
kvaddi sér hljóðs. Kvaðst hann
oftar en einu sinni hafa rætt ura
tannlæknaþjónustuna í skólum
©g Langaði nú að ræða mál þetta
eérstaklega. einkum vegna álits-
gerðar Tánnlæknafélagsins, sem
éður hefur birzt í blöðum. Kvað
hann hér um skorinorða ályktun
að ræða og las síðan niðurlag
bennar.
„Við fúlltrúar minnihlutans“,
eagði ræðumaður, „höfum áður
lagt fram tillögur um tannlækna
þjónustu í skólum þar sem lagt
var til, að sérstökum aðila yrði
falið að gera tillögur til úrbóta.
— Ekið á konu
Framh. af bls. 24.
veg, 6g var konan fluitt á slysa-
varðstofuna Og þaðan á Lanid-
6pítalann. Er hún stórslösuð, en
ekki hefur Mbl. telkiist að aifla sér
íiánari upplýsinga um meiðsli
bennar.
Kona, sem stóð við glugga að
Jófríðarstöðuim, sá ti'l ferða kon-
unnar á Kaplaskjólsveigi rétt áð-
ur en slysið varð. Sá hún þá að
tveimur bíluim var ekið á eftir
konunni, en þegar sá fyrri var
kominn framhjá, leit hún augna-
blik af veginum. Augnabliiki síð-
er heyrði hún háan Skell, leit á
veginn aftur, og lá konan þá ut-
®n við veginn, en seinni bíllinn
var horfinn. Gat kionan iítið lýst
bílnum en taldi þó að hér hefði
verið unt litla, dölkika fólkisíbiifreið
®ð ræða.
Lögreglan hóf þegar ýtarlega
leit að bíinum og var leitað alla
nóttina og um miorguninn. í há-
degisútvarpi var lýst aftir vitn-
um í máli þessu, og laust eftir
hádegið gaf ölkumaðurinn sig
fram við rannsóknarlögregluna.
• „Skelfingu lostinn."
Maður þessi greindi frá því að
hann væri validiur að slysinu.
Sagðist hann etoki geta gert sér
grein fyrir öðru en hann hafi
Btöðugt beimt athygli sinni að
a-kstrinum, en konuna sá hann
©kki fyrr en þann mund að
bíllinn ákall á henni. Gizkar
hann á að bíllinn hafi þá verið
® 35—40 km. hraða.
Bíilstjórinn tjáði rannsóknar-
jögreglunni að þetta hefði gerzt
6vo óvænt og skyndilega að hann
hafi orðið skelfingu lostinn og
eina hugsimin, sem að hefði kom
izt, hefði verið að forða sér. Kom
hann bílnum fyrir inni í skúr,
eem hann hafði aðgang að og héit
6Íðan heim.
Bílstjórinn greindi einnig frá
því, að hann hafi ætlað að gefa
sig fram síðar um krvöldið, er
hann hafi verið búinn að jafna
6ig, en segir sig ekki hafa haft
þrek til, er á átti að berða.
Þogar ökumiaðurinn skýrði
föður sínum frá slysinu í gær
morgun, sagði faðir hans að hann
ekyldi gefa sig tafarlaust fram,
6em hann gerði.
Vatnsfeassahlíf bflsins, sem á
bonuna ók, er mikið dælduð og
6tór dæld ofan í vélarhlífina.
Brýn ástæða er til þess að vara
fóLk við að ganga á vinstri vegar
brún, mieð umferðina á eftir sér.
Ganga akal ætíð á hægri vegar-
brún, með umf erðina á móti.
Tannlæknarnir benda nú á. að
nauðsynlegt sé að hefjast strax
handa, og þess vegna taldi ég
rétt að freista þess að fá borg-
•arstjórnina til að gera sarruþykkt
um málið, því að ekki þýðir að
bíða eftir því að tannlæknar
bjóði sig fram fyrir þau sultar-
laun, sem bjóðast."
Alfreð Gíslason lagði til að
skipuð yrði 3ja manna nefnd til
að rannsaka málið. Skyldi borgar
stjóri tilnefna einn, stjórn Heilsu
verndarstöðvarinnar einn og
Tannlæknafélagið einn. Nefnd
þessi ætti síðan að fé sér til ráðu
neytis erlendan sérfræðing, helzt
frá Norðurlöndum.
Geir Hallgrímsson, borgarstjóri,
tók síðan til máls og ræddi fyrst
nokkuð um fundarsköp, en Al-
freð Gíslason hafði ekki lagt
fram tillögur sínar með þeim fyr
irvara, sem fundarsköp borgar-
stjómar gera ráð fyrir. Sagði
borgarstjóri, að þar sem ekkert
nýtt eða brýnt fælist í tillögugerð
borgarfulltrúans, væri eðlilegast
að fresta henni, svo að hún fengi
meðferð í samræmi við fundar-
sköp.
Tannlæknar fengust ekki.
Geir Hallgrímsson vitnaði til
þess, að þegar lægi fyrir vilja-
yfirlýsing borgarstjórnar frá því
í haust, sem allir borgarfulltrúar
höfðu verið sammála um og væri
rétt að ganga út frá henni.
Sú einfalda staðreynd blasti
við, að naegilegir starfskraftar
hefðu ekfki fengizt til að sinna
tannlækningum í skólum,
og hið eina, sem komið hefur
fram síðan ályktunin var gerð í
haust, væri greinargerð fræðslu-
nefndar Tannlæknafélagsins.
Þegar hún var birt hefði hann
strax tekið málið til athugunar.
„Þá skrifaði ég strax Tann-
læknafélaginu,“ s'agði borgar-
stjóri, „og spurðist fyrir um,
hvernig tannlæknar gætu komið
til liðs við borgaryfirvöldin.
Fundur var síðan haldinn með
fræðslunefnd Tannlæknafé’lags-
ins borgarlækni og fræðslustjóra.
Tveir ungir læknar buðust þá
til, með samiþykki Tannlæknafé-
lagsins, að gera athugun og til-
lögur í málinu.“
Borgarstjóri kvaðst þegar hafa
lýst þvi yfir, að hann hefði áhuga
á tilboði þessu og að hafa nána
samvinnu við Tannlæknafélagið,
og einnig varð að ráði að fá er-
lendan sérfræðing til starfa.
Tannlæknafélagið var sérstak-
lega beðið að útbúa áætlun um,
hvernig rannsókn skyldi hagað.
Borgarstjóri sagði, að tillögur
Alfreðs Gíslasonar breyttu engu
um gang mála. Að þeim væri nú
þegar unnið af fullum krafti.
Hann kvaðst sérstaklega hafa
beint því til Tannlæknafélags-
ins, að félagið gengist fyrir því,
að nægilegur vinnukraftur feng-
ist, og hefðu tannlæknar sjálfir
verið beðnir að gera tillögur um
kjörin. Sérstaklega hefði verið
leitað eftir því, að tannlæknar
fengjust til bess að skipta á mi'lli
sín tannviðgerðum 7 og 8 ára
bama og það jafnvel gegn venju
legum taxta. En svar hefði enn
ekki fengizt við þeirri málaleit-
an.
Borgin styrkir tannviðgerðir
Meginatriði þessa máls kvað
borgarstjóri vera það, að því mið
ur væri ékki hægt að láta í té í
skólunum nægilega tannlækna-
þjónustu, því að starfsliðið vant-
aði. En hvaða úrræði væru þá
vænlegust? Það þyrfti a.m.k. 12
eða jafnvel 15—20 tannlækna til
að fullnægja þörfinni með 36
klst. vinnu á viku. Meðan tann-
lækningarnar voru í skólum
síðustu árin hefði fólk haft þá
fölsku öryggiskennd, að þar væri
um fullnægjandi tannviðgerðir
að ræða, en því miður hefði svo
ekki verið, því að ekki hefðu
fengizt nægilega margir tann-
læknar.
Borgarfulltrúar yrðu að horf-
ast í augu við þessa staðreynd,
en vegna hennar hefði stjórn
Heilsuvemdarstöðvarinnar bent
á þá leið, að uppörva foreldra
til að láta gera við tennur
barna sinna hjá tannlæknum
fjölskyldunnar og borgaryfir-
völdin samþykkt að styrkja
tannviðgerðirnar. Reynsla sú,
sem af þessu hefði fengizt, væri
sú, að þetta væri betra en að
hafa örfáa tannlækna, sem ekki
kæmust yfir verkefnin, þótt all-
ir væru sammáía um að bezt
væri að hafa allar tannviðgerðir
í skólunum.
Borgarstjóri sagði, að mjög
margir hefðu notfært sér þessa
aðstoð bæjarins, en það hefði
þó háð nokkuð, að tannlæknar
hefðu ekki fengizt til að taka
aðeins við helmingi greiðslunn-
ar hjá viðskiptavinimum og inn-
heimta hinn helminginn hjá
borginni, heldur hefðu þeir
krafið um alla greiðsluna, en
fólk síðan orðið að fá endur-
greiðslu.
„Ég hef ekki nema gott um
það að segja að' vakið sé máls
á þessu“, sagði borgarstjóri, „en
ég hefði vænzt jákvæðari til-
lagna frá Alfreð Gíslasyni
lækni. Ég leyfi mér að skora á
hann að koma fram með tillög-
ur, sem að gagni mega verða
og betur henta en aðferðir þær,
sem nú eru hafðar og er ég að
sjálfsögðu til viðtals um allar
úrbætur“.
Leiðrétting á grein
fiskimálastjóra
I G R E I N Davíðs Ólafssonar,
fiskimálastjóra, „Sjávarútvegur-
inn 1961“, sem birt var í Morg-
unblaðinu í gær, urðu þau mis-
tök, að á tveimur stöðum féllu
niður línur, svo að merking
brenglaðist. Fyrri niðurfellingin
varð í lok fyrsta kafla, sem átti
að hljóða svo:
Augljóst var eftir þær
kauphækkanir, sem urðu á
sumrinu 1961, að þróunin
stefndi í sömu átt og áður
undir svipuðum kringumstæð
um og ef ekki átti að koma
að því að greiða yrði útflutn-
ingsuppbætur var engin leið
til önnur en að endurskrá
gengið með tilliti til hinna
nýju aðstæðna. Þetta var svo
framkvæmt með nýrri gengis
skráningu hinn 1. ágúst. Hið
nýja gengi, miðað við Banda-
ríkjadollar, var ákveðið kr.
43.00, sem samsvaraði 13.6%
hækkun á gengi erlends
gjaldeyris.
Síðari niðurfellingin varð í
lok Skipastólskaflans. Átti máls-
greinin að hljóða svo í heild:
Ef litið er á tímabilið í
heild, hefir aukningin á flot-
anum orðið mjög mikil, þar
sem hann hefir rétt þrefald-
azt frá árslokum 1945. En
hópbyggingar á tiltölulega
stuttum tímabilum og svo aft
ur hlé á milli með tiltöiulega
litlum skipabyggingum hafa
tvímælalaust orðið til þess,
að gæði flotans hafa ekki
orðið hin sömu og orðið hefði
með jafnari endumýjun.
Þá var ennfremur sú villa,
þar sem skýrt var frá aflanum
á þorskveiðum til októberloka,
að hann var sagður 314 þús.
smál., en eins og töflur II og III
sýna, var hann tæplega 279 þús.
smál. á árinu 1961, en hinsvegar
314 þús. smál. árið áður. Hefur
því aflinn á þorskveiðum minnk
að á þessu tímabili um tæplega
19%. Ef tekið er allt árið hefir
aflinn á þorskveiðum minnkað
á árinu um 16%.
Málverkauppboð
Sigurðar Bene-
diktssonar í dag
f DAG kl. 5 heldur Sigurður
Benediktsson uppboð á málverk-
um og vatnslitamyndum í Sjálf-
stæðishúsinu. Verða þar boðnar
upp margar dýrmætar myndir,
þar á meðal 7 málverk eftir Kjar
val, 2 eftir Jón Stefánsson, önnur
frá Þingvallavatni, og danskt
landslag eftir Ásgrím Jónsson.
Þá er á uppboðinu mynd frá
Húsafelli eítir Þorvald Skúlason,
máluð 1932, blámamynd eftir
Gunnlaug Seheving, mynd úr
Dimmuborgum eftir Kristínu
Jónsdóttur, ein úr Borgarfirði
eftir Mugg, mynd frá Reykja-
nestá eftir Svein Þórarinsson, og
Blóm í könnu eftir frú Agnete,
tvær myndir eftir Jón Þorleifs-
— Svivirðileg árás
Framhald af bls 24.
því að víta meirihluta nefndar-^
innar harðlega fyrir slóka fram-
komu.“
Alfreð Gíslason hélt síðan á-
fram að ræða um stjórn Heilsu-
verndarstöðvarinnar og sagði:
„Ég tek fram að ég hef ekki
sannanir fyrir því, að hlutdrægni
hafi átt sér stað af ráðnum hug.“
Freklegar dylgjur og aðdrótt-
anir.
Geir Hallgrímsson, borgarstjóri,
vítti þessar furðulegu og ódrengi
legu aðdróttanir Alfreðis Gísla-
sonar og hinn ósæmilega málflutn
ing hans. Hann minnti á, að fyrir
skömrnu hefði Alfreð á borgar-
stjórnarfundi talað um „annar-
leg sjónarmið", og jafnvel brigzl-
að félögum sínuim í Alþýðubanda
laginu uim þaiu. „Ef Alþýðubanda
lagið þá yfirleitt er til í dag,
sem ég efeki veit,“ eins og borg-
arstjóri kömst að orði, „en hann
á við þá um það. En ég tdk til
andisvara fyrir trúnaðarmenn
borgarinnar, sem hér er ráðizt
að og ekiki hafa aðstöðu til að
bera af sér sakir, úr því að borg-
arfulltrúinn hefur efcki þá sóma-
tilfinningu að hlífast við svo
frefelegum dylgjum og aðdróttun-
um að starflsbræðrum. Það er
heldur etoki hægt að segja í einu
orðinu að engar sannanir liglgi
fyrir, en dylgja í hinu uim, að
m.a. borgarlæknir og landlæknir
hafi bri jðizt hliutverki sínu og
trau. L. Hér er um vítaverða
móðgun :.ð ræða og efcki er til
mikiis að ætlast af manni, sem
grípur til slíkrar illkvittni og
dylgja um feollega sína.“
son og loks má telja mynd er
nefnist Nova Vita og er gerð af
Karli Einarssyni (Dunganon), en
myndir hans eru nú að verða
nokfeuð eftirsóttar. Þá eru á upþ-
boðinu tvær indverskar litmynd-
ir úr eigu Einars Benediktssonar
skálds. Alls eru myndirnar sem
boðnar verða upp 34 talsins og
verða þær til sýnis kl. 10—4 í
dag.
— Öllum verði
Framhald af bls. 1.
Á yfirliti því, sem birtist ann-
ars staðar í blaðinu um skipulag
hinnar nýju stofnunar, má sjá,
hvernig deildaskiptingu hennar
verður hagað og verkefni hverr-
ar deildar fyrir sig. — Á fundi
borgarráðs hinn 27. febrúar sl.
var samþykkt að ráða Svein
Ragnarsson lögfræðing, skrif-
stofustjóra stofnunarinnar, en
hann hefur undanfarin ár gegnt
starfi húsnæðisfulltrúa borgar-
Lnnar og verður það starf nú
augLýst laust tiL umsóknar. Á
sama fundi var Margrét Stein-
grímsdióttir ráðin til að veita
forstöðu þeirri deild skrifstof-
unnar, sem fer með félagsmál,
en hún er útlærð sem „social
worker“.
Auk borgarstjóra kvöddu sér
hljóðs á fundinum í gær, borgar-
fulltrúarnir Alfreð Gíslason (K),
Þórður Björnsson (F) og Guðm.
J. Guðmundsson (K). Lýstu þeir
allir sérstakri ánægju sinni með
þessa nýju skipan félags- og fram
færslumálanna, en þó einkum
stofnun félagsmáladeildarinnar,
og sagði Alfreð Gíslason m. a.,
að fagna bæri þeim skilningi
ráðamanna borgarinnar á þess-
um mikilsverðu málum, sem
þessi nýskipan bæri vott um.
Allir þessir borgarfulltrúar not-
uðu þetta tækifæri þó til að gera
enn einu sinni að umræðuefni
starf Magnúsar Óskarssonar, sem
gegnt hefur starfi félagsmála-
fulltrúa Reykjavíkurborgar um
nokkur undanfarin ár, og beindu
þeirri fyrirspurn til borgarstjóra,
hvaða áhrif þessi nýja skipan
mundi hafa á starf hans. Upp-
lýsti borgarstjóri af því tilefni,
að verksvið hans yrði óbreytt frá
því sem verið hefur, hann mundi
eftir sem áður gegna stárfi fé-
lagsmálafulltrúa í vinnumálum.
Ekki væri gert ráð fyrir, að sú
starfsemi félli undir þessa stofn-
un að svo stöddu, en vissulega
kæmi þó til greina, hvort vinnu-
miðlun og ráðningarskrifstofa
gætu orðið liðir í almennum fé-
lagsmálum. Ennfrerpi' væri til
athugunar, hvort bc. :rndun-
armál ættu ekki líka heima und-
ir þessari stofnun í framtíðinni
að endurskoðaðri löggjöf, sem uú
færi fram.