Morgunblaðið - 02.10.1963, Page 22

Morgunblaðið - 02.10.1963, Page 22
22 MORGUNBLADIÐ Miðvikudagur 2. okt. 1963 Þórólfur Beck tók að sér hlutverk di Stefano — segir SKOZKA stórblaðið „Scottish Daily Express“ birtir mikla lofgrein um Þórólf Beck sl. mánudag. Daginn áður hafði St. Mirren unnið Celtic 2:1 og fyrirsögn stórblaðsins er „Saints Beck takes on Stefano role“ (Beck hjá St. Mirren tekur að sér hlutverk di Stefano). Grein skozka blaðsins hefst þannig. „Ef Tottie Beck hefði skipt um lið í hálfleik, hefði Celtic unnið leikinn á Paisley. Hinn ungi tslendingur, sterk ari, ákveðnari og þjálfaðri en hann var þegar hann fyrst kom til Mirren, er að verða einn af mestu persónuleikurn Scottish Oaily í skozkri knattspyrnu". Mirren vann leik sinn gegn Celtic með 2:1. Stórblaðið skozka heldur áfram á þessa leið: „Þórólfur Iék hlutverk di Stefano gegn Celtic, kom alls staðar í ljós á vellinum þar sem var opið svæði, 'tilbúin til að leysa Mirren úr erfið- leikum þeirra og oftast að setja Celtic-menn í vandræði með nákvæmum og hnitmið- uðum sendingum. En hefði hann gert sömu hluti fyrir Celtic-menn hefði hann sennilega fengið lakari uppskeru. 1 hinu ágæta liði Mirren átti hann leikbræður, Express sem hlýddu og skildu kallið. Celtic liðið hins vegar, var á köflum svo slakt, svo dauft að jafnvel di Stefano sjálfur hefði ekki getað hjálpað upp á sakimar“. Síðar segir blaðið að Celtic sé að missa alla trú á sjálft sig og leikir þess fari versn andi, en leikir St. Mirren batni með hverjum kappleik. 1 lok frásagnar sinnar til- nefnir blaðið beztu menn í hvoru liði og það eru Þórólf- ur í liði St. Mirren og Billy Mc Neill í Celtic. Þessi grein um Þórólf er ein aðaluppsláttargrein íþrótta í blaðinu eftir síðustu helgi. Rússar með sínum kjarnakonum biðu í fyrsta sinn ósigur í keppni Brelar unnu þá BRETAR unnu Rússa í lands- keppni í frjálsum íþróttum um helgina. Fór keppnin fram í Volgograd (áður Stalingrad). í keppni karla unnu Bretar með 112 stigum gegn 95. í greinum kvenna unnu rússnesku stúlk- urnar með 62—56 en samanlagt unnu Bretar með 168 stigum gegn 161. Þetta er í fyrsta sinn sem Rússar tapa frjálsíþróttakeppm þar sem saman er lögð stigatala í keppni karla og kvenna. Voru rússnesku leiðtogarnir daprir og | Leiðinda gestur EINN stúkugestur á Melavell [inum er KR og Keflavík léku [vakti , almenna athygli og’ I-'einnig furðu vallargesta yfir því hve langt yfir öll takmörk sómasamlegrar framkomu fmenn geta farið á íþróttavell-[ num óáreittir af vallarstarfs-| mönnum og lögreglu — sem reyndar aldrei sézt þar þó þús undir manna komi saman. Ókvæðisorð til leikmanna' dundu án afláts og ókvæðis-1 orð til stúkugesta glumdu' með fárra mín. millibili, vall- argestum til leiðinda, mann-1 inum sem talaði til sárrar skammar og því miður vallar starfsmönnum til lasts, því að jálfsögðu hefðu þeir sjálfir itt að fjarlægja hann eða gera ráðstafanir til að svo yrði gert. En engin hreyfði önd. Svona á ekki — og má ekki' eiga sér stað. Því skyldú enn frekar geta látiðr þkvæðisorð dynja á almanna- færi á íþróttavellinum en í Austurstræti án þess að vera ,teknir“? í frjálsaþróttum telja þetta ískyggilegt árið fyrir Olympíuleiki. Leiðtogar Breta sem annars eru svo Virðulegir og hátíðlegir dönsuðu um völlinn af gleði. Eftir fyrri daginn höfðu Bret- ar forystu í keppni bæði kvenna og karla. Rússneski þjálfarinn Alek- sander Pugatsjevski bendir á, þrátt fyrir bölsýni og vantrú rúss neskra leiðtoga að rússneskir íþróttamenn og konur hafi að undanförnu haft of erfiða daga bæði með keppni og ferðalög, en Bretar hafi hins vegar mætt mót- herjum af heldur lakara taginu. En hann tók í sama streng og aðrir rússneskir leiðtogar að vel þyrfti að skipuleggja undirbún- ing Olympíuleikanna. Bretar unnu sigur í öllum hlaupagreinum nema 10 km hlaupi og tvöfaldan sigur í vel- flestum þeirra. Brezkt met var sett í 3000 m hindrunarhlaupi þar sem Herriot sigraði á 8.36.2 en Sokolov varð annar á 8.36.6. Slakur árangur varð í mörg- um tæknigreinanna. Þannig vann Kravtsjenko þrístökk með 16.06 og Porter Englandi stang- arstökk með 4.30 og Noskov hafði sömu hæð. Enska knattspyrnan 10. UMFERÐ enku deildarkeppninnar fór fram s.l. laugardag og urðu úrslit þessi: 1. deild. Aston Villa — Sheffield U. 0—1 Burnloy — Arsenal 0—3 Fulham — Bolton 3—1 Ipswich — W.B.A. 1—2 Liverpool — - Everton 2—1 Manchester U. — Leicester 3—1 N. Forest — - Blackburn 1—1 Sheffield W. — Birmingham 2—1 Stoke — Blackpool 1—2 Tottenham - — West Ham 3—0 Wolverhamton — Chelsea 4—1 2. deild. Bury — Manchester City 1—1 Charlton — Plymouth 1—0 Grimsby — Derby 1—2 Leeds — Norwich 4—2 Leyton O. - — Newcastle 1—1 Northampton — Swindon 4—0 Portsmouth — Southamton 2—0 Preston — Huddersfield 2—1 Rotherham — Scunthorpe 2—1 Sunderland — Cardiff 3—3 Swansea — Middlesbrough 2—1 í Skotlandi urðu úrslit m. a. J>essi: St. Mirren — Celtic 2—1 Third Lanark — Rangers 0—5 Staðan er þá þessi: 1. deild (efstu og neðstu liðin). Manchester U. 10 6 2 2 26:11 i Manchester u. 10 6 2 2 26:11 14 W.B.A. 10 6 2 2 18:8 14 Sheffield U 10 5 4 1 19:10 14 Tottenham 9 7 0 2 31:17 14 N. Forrest 10 6 2 2 16:9 14 Stoke 10 2 2 6 13:19 6 Ipwich 9 12 6 9:24 4 Bolton 9 1 1 7 14:19 3 2. deild íefstu og neðstu liðin) Swindon 10 7 2 1 18:8 16 Sunderland 10 6 2 2 16:9 14 Preston 10 5 4 1 23:18 14 Norwich 10 13 6 16:24 5 Plymouth 10 0 4 6 10:21 4 Scunthorpe 10 0 3 7 8:18 3 Sendisveinn óskast hálfan eða allan daginn. Eggert Kristjánsson & Co. hf. T ryggingamiðsta ðin gefur 25 silfurbikara NÝLEGA barst handknattleiks- mönnum óvenju glæsileg og kær komin gjöf. Gísli ólafsson, for- stjóri Tryggingamiðstöðvarinnar h.f. kom á fund formanns Hand- knattleikssambands íslands og hafði meðferðis hvorki meira né minna en 26 verðlaunabikara úr silfri. Vill hann með þessum grip um sýna íslenzkum handknatt- leiksmönnum þakklætisvott sinn og fyrirtækisins, fyrir það for- dæmi, sem handknattleikurinn hefur gefið öðrum greinum í- þrótta, með glæsilegri frammi- stöðu á undanförnum árum. Stjórn H. S. í. hefur nú ákveð ið, að bikar sá, sem keppt er um í I. deild á Meistaramóti íslands innanhúss, skuli eftir næsta keppnistímabil tekinn úr um- ferð, en þá hefur verið um hann keppt í 25 ár. Skal hinn glæsi- legi TM-bikar koma í stað hans, og vera farandgripur. Hinir 25 minni bikarar vinnast aftur á móti til eignar meistara hvers árs. Meðfylgjandi mynd gefur að líta TM-bikarana, sem bíða, tilbúnir og áletraðir, væntan- legra eigenda og handhafa. (Ljósm.: Sveinn Þormóðss.) Sendisveinn óskast hálfan eða allan daginn. Slippfélagið Reykjavík Mýrargötu 2. Sendisveinn óskast hálfan eða allan daginn. — Sími 10265. Prentmót hf. Afgreiðslumaður Viljum ráða reglusaman afgreiðslumann, sem fyrst. Jóhannsson & Smith hf. Brautarholti 4.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.