Morgunblaðið - 24.11.1963, Blaðsíða 16
16
MOHGUNBLAÐIÐ
i
Sunnudagur 24. nóv. 1963
Otgefandi: Hf. Arvakur, Reykjavík.
Framkvsemdastjóri: Sigfús Jónsson.
Ritstjórar: SígurSur Bjarnason frá Vigur
Matthías Johannessen,
Eyjólfur Konráð Jónsson.
Auglýsingar: Arni Garðar Kristinsson.
tJtbreiðslustjori: Sverrir Þórðarson.
Ritstjórn: Aðalstræti 6.
Auglýsingar og afgreiðsla: Aðalstræti 6. Sími 22480.
Áskriftargjald kr. 80.00 á mánuði innanlands.
t lausasölu kr. 4.00 eintakió.
iLsA IIT/I iN IIR Hf IMI
U 1 r ui ui\ n c . 1IYI1
HEIMUR HARMI
LOSTINN
AHur heimurinn harmar 5r-
lög hins unga og mikil-
hæfa forseta Bandaríkjanna,
John F. Kennedys, sem fall-
inn er í blóma lífsins fyrir
hendi morðingja. Það erhrapa
leg og sorgleg staðreynd að
fjórir forsetar þróttmesta og
glæsilegasta lýðræðisríkis
heimsins skuli hafa mætt slík-
-um örlögum. En þetta er engu
að síður hinn beizki raun-
veruleiki.
John F. Kennedy var að-
eins 46 ára gamall er hann
lézt. Hann var fulltrúi æsk-
unnar meðal forustumanna
heimsins, þeirrar kyn-
slóðar, sem gekk hraust
og glæsileg móti nýjum tíma.
Hugur hans var fullur af nýj-
um hugmyndum um mögu-
leika framtíðarinnar til þess
að skapa þjóð hans og öllu
mannkyni farsæld og ham-
ingju. Hann gekk gunnreifur
móti hinum nýja tíma í ör-
uggri og bjartsýnni trú á
betra, réttlátara og fegurra
mannlíf.
Göngu þessa glæsilega,
. djarfa en raunsæja stjórn-
málamanns er nú lokið. Þjóð
hans drúpir höfðu í sárri
sorg. Fólkið um allan heim,
við hvaða þjóðskipulag sem
það býr, syrgir hinn mikla
stjórnmálamann, sem unni
friði og mannhelgi og ein-
beitti kröftum sínum að því
að létta fargi óttans af hugum
þjóðanna.
Friðarhugsjónin hefur misst
traustan framherja og mann-
kynið allt horfir á bak leið-
toga, sem miklar vonir voru
við tengdar.
Þegar þetta er ritað veit
enginn fyrir víst, hver vann
hið mikla ógæfúverk. En
sumt þykir benda til þess að
rætur þess megi rekja til
átakanna um Kúbu. Ekk-
ert verður samt um
það fullyrt á þessu stigi máls-
ins. Tíminn mun væntanlega
leiða sannleikann í ljós um
það. Hin mikla ógæfa hefur
skeð. Heimurinn hefur misst
glæsilegan leiðtoga, banda-
^ríska þjóðin mikilhæfan for-
seta, tvö lítil börn ástríkan
föður og ung kona er orðin
ekkja. Þannig er lífið. Sorgin
heimsækir alla, háa sem lága,
ríka sem fátæka. Frammi fyr-
ir dauðanum standa allir
jafnir. Við dyr hans stendur
manneskjan auðmjúk og um-
komulaus í einlægri bæn og
von um nýtt og fegurra líf.
Lyndon B. Johnson er nú
forseti Bandaríkjanna. Hann
er þaulreyndur og mikilhæf-
ur stjórnmálamaður. En
hann tekur við miklu og erf-
iðu starfi, ekki síður en Harry
S. Truman, sem tók við er
Franklin Delano Roosevelt
lézt árið 1945, rétt áður en
síðari heimsstyrjöldinni lauk.
Harry Truman reyndist þjóð
sinni farsæll leiðtogi. Hann
tók við forsetaembætti af af-
burðamanni, sem naut ást-
sældar meðal þjóðar sinnar.
Hinn frjálsi heimur óskar
Lyndon B. Johnson blessun-
ar í hinu erfiða og vandasama
starfi hans. íslendingar minn-
ast með þakklæti og gleði
komu hans hingað til lands á
sl. hausti. í þeirri stuttu heim
sókn ávann hann sér traust
og vinsældir fjölda fólks með-
al okkar litlu þjóðar.
STARFSEMI
VARÐBERGS
ITarðberg, félag ungra áhuga
" manna um vestræna sam-
vinnu, hefur haldið uppi víð-
tækri starfsemi í nokkur ár.
Fyrst og fremst hefur þó ver-
ið starfað í Reykjavík og ná-
grenni, en nú hafa Varðbergs
félög verið stofnuð úti um
land og er starfsemin stöðugt
aukin.
Á því leikur enginn vafi, að
Varðberg hefur haft mjög
mikla þýðingu til að opna
augu manna fyrir þeirri
nauðsyn, að íslendingar
standi sem aðrir frjálsir menn
traustan vörð um hugsjónir
lýðræðis og bregðist ekki
samherjum sínum í barátt-
unni við hið austræna ógnar-
vald.
Því miður hafa einstakir
ævintýramenn í íslenzkum
stjórnmálum stundum viljað
fórna íslenzkum hagsmunum
og stuðningi okkar við sam-
eiginlegar hugsjónir lýðræð-
issinna um allan heim fyrir
stundarhagnað í innanlands-
stjórnmálum. Varðbergsmenn
hafa hins vegar hafið þessi
mál upp yfir flokkadrætti og
innanlandsdeilur. Þess vegna
er nú erfiðara fyrir pólitíska
ævintýramenn að nota þessi
þýðingarmiklu mál sér til
framdráttar.
Varðberg á miklar þakkir
skilið fyrir framlag sitt og
óskar Morgunblaðið þess, að
starfsemi félagsins megi enn
aukast, til stvrktar lýðræðinu
á íslandL
Abu-Simbel hofinn verða flutt
— bjargað frá því að lenda undir vatni
ÞEGAR Egyptar ákváðu að
hefja bygg-ingu Aswan-stífl-
unnar, urðu margir fornleifa
unnendur um allan heim
óttaslegnir. Ástæðan var sú,
að yrði ekkert að gert, færu
hin frægu Abu Simbel-hof,
sem Ramses II lét byggja á
Nílarbökkum, í kaf. Þegar
vatni yrði hleypt á stífluna
úr 500 km. löngu stöðuvatni,
sem verið er að gera sUnnan
hennar.
Mikið hefur verið rætt um
hvernig bjarga megi þessum
3000 ára gömlu hofum, sem
höggvin eru í klett við ána.
Margar tillögur hafa komið
fram, en nú hefur verið tek^
in ákvörðun um framkvæmd
björgunarinnar.
ÞEGAR Egyptar ákváðu að
hefja byggingu Aswan-stíflu
Ráðgert er að saga hin út-
höggnu hof út úr klettinum I
30 tonna hellum, sem síðan
verða settar saman um 200
metrum fyrir ofan núverandi
bakka Nílar. Þegar vatninu
hefur verið hleypt á Aswan
stífluna úr stöðuvatninu, er
gert ráð fyrir að svo mikið
hækki í ánni, að horfin verði
aftur á bökkum hennar.
Það eru sex verktakar, sem
sjá munu um flutning hof-
anna og talið er að verkið
muni kosta um 700 milljónir
ísl. króna. Egypzka stjórnin
setti fyrir nokkru á stofn
nefnd, sem rannsaka átti
möguleikana á því að bjarga
Abu Simbel-horfin á Nílar- bökkum. Þau verða höggvin
sundur og flutt um 200 metra.
hofunum og hefur hún sam-
þykkt tillögu sænskra verk-
fræðinga um tilhögun björg-
unarinnar. Vísinda og menn-
ingarstofnun Sameinuðu þjóð-
anna (UNESCO) hefur einnig
lýst fylgi sínu við tillöguna.
Flutningi hofanna verður að
vera lokið fyrir 1970, þvi að
þá er ráðgert, að hleypt verði
vatni á stífluna úr stöðuvatn-
Nefndin, sem egypzka stjórn
in setti á laggirnar í sambandi
við björgun hofanna, er skip-
uð fimm fornleifafræðingum
frá Hollandi, Póllandi, Frakk-
landi, Bandaríkjunum og
Egyptalandi. Auk þess eiga
sæti í henni tveir arkitektar,
Dani og ítali. Mun nefndin
sjá um skipulagningu svæðis-
ins í kringum staðinn þar sem
hofin verða í framtíðinni, en
hann hefur hún þegar valið.
MÁLVERKABÆK-
UR HELGAFELLS
¥Tt er komin ný málverka-
^ bók með myndum eftir
Gunnlaug Blöndal á vegum
Helgafellsútgáfunnar. Mál-
verkabækur útgáfunnar hafa
lýst stórhug og bjartsýni og
eru ómetanlegt framlag til
kynningar íslenzkrar listar.
í bókum þessum hafa verið
kynnt verk eftir meistara
eins og Ásgrím, Kjarval og
Ásmund Sveinsson. Með bók-
inni um Gunnlaug Blöndal er
stigið spor til kynningar á
einum sérstæðasta persónu-
leika í hópi íslenzkra mál-
ara. Gunnlaugur Blöndal var
umdeildur málari meðan
hann lifði, eins og oft vill
vill verða um listamenn, sem
fara eigin götur. Hann var
djarfur í litameðferð og per-
sónulegur í afstöðu sinni til
verkefnanna. Hann unni ís-
landi og gaf okkur nýja hlut-
deild í fegurð þess og sér-
kennum, séðum með augum,
sem áttu dirfskuglampa
heimsmannsins og hlédrægt
náttúruskyn íslendingsins. í
beztu verkum Gunnlaugs
Blöndals er þetta tvennt sam-
einað á eftirminnilegan hátt.
Listaverkabækur Helga-
fells eru eins og fyrr getur
þakklætisvert brautryðjenda-
verk. Vonandi fylgja margar
á eftir. íslenzkir listamenn
hafa sýnt, að þeir standa und-
ir slíkum verkum, sem hægt
er að senda hvert á land, sem
er. En prentanir myndanna
verður að vanda, þar má ekki
slaka á.
FIMM sýníngar hafa verið
á kvöldvöku Félags íslenzkra
leikara í Þjóðleikhúsinu, og
allar fyrir fullu húsi. Hefur
sýningin vakið óskipta gleði
áhorfenda, enda fjölbreytt og
skemmtileg. Sjötta og sjö-
unda sýning verða annað
kvöld, nrónudag, klukkan
átta og ellefu, og hófst að-
göngumiðasala í gaer. Litlu
eftir að miðasalan hófst var
svo til uppselt á fyrri sýning.
una. Mega leikarar því eig»
von á húsfylli að vanda »
báðum sýningum.
Meðfylgjandi mynd er úr
en það er skemmtiþáttur, sem
einu atriði kvöldvökunnar,
nefnist Skugga-Ketill. Jón
Sigurbjörnsson leikur Ketil,
en Árni Tryggvason Skugga.