Morgunblaðið - 16.02.1964, Side 16
Sunnudagur 16. febr. 1964
18
MORGUNBLAÐIÐ
i
Útgefandi:
F ramk væmdast jóri:
Ritstjórar:
Auglýsingar:
Útbreiðslustjóri:
Ritstjórn:
Auglýsingar og afgreiðsla:
Áskriftargjald kr. 80.00
I lausasölu kr.
Hf. Árvakur, Reykjavík.
Sigfús Jónsson.
Sigurður Bjarnason frá Vigur.
Matthías Johannessen.
Eyjólfur Konráð Jónsson.
Árni Garðar Kristinsson.
Sverrir Þórðarson.
Aðalstræti 6.
Aðalstræti 6. Sími 22480.
á mánuði innanlands.
4.00 eintakið.
UPPRÆTUM
SPILLINGUNA
T’ins og kunnugt er hafa
bankarnir síðustu mán-
uði takmarkað mjög útlán og
hert eftirlit með skuldurum
sínum, jafnframt því sem þeir
hafa gert öflugar ráðstafanir
til að hindra hin svokölluðu
keðjuviðskipti með tékka.
Takmörkun útlána er auðvit-
að fyrst og fremst gerð til að
stemma stigu við áframhald-
andi ofþenslu í efnahagslíf-
inu, en eftirlitið með ávísun-
um miðar að því að tryggja
heiðarleika í viðskiptum.
Ráðstafanir þessar hafa þó
haft meiri þýðingu en þá, sem
áður greinir, því að þetta
aukna aðhald hefur leitt til
þess að upp hefur komizt um
víðtæk fjársvikamál, sem ella
lægju sjálfsagt enn í láginni.
Hér er því í rauninni um að
ræða mjög þýðingarmikla
hreinsun í f jármálalífinu, sem
um langt skeið hefur verið
gruggugt.
Nú ríður á að fylgja fast
eftir þeirri sókn, sem hafin er
til að uppræta spillinguna í
þjóðlífinu og láta ekki staðar
numið fyrr en svipað siðgæði
er orðið ríkjandi hér á landi
og í þroskuðustu lýðræðisríkj
um vestan hafs og austan.
Sjálfsagt næst ekki til allra
þeirra, sem sekir eru, og sum-
ir saklausir eða leiksoppar sér
verri manna kunna að verða
illa úti, en við því er ekkert
að gera. Hér er um slíkt þjóð-
félagsvandamál að ræða, að
einskis má láta ófreistað til að
komast fyrir rætur mein-
semdarinnar.
SKATTSVIKIN
'17'iðreisnarstjórnin gerði sem
' kunnugt er ráðstafanir til
að skattalög yrðu með þeim
hætti, að menn væru ekki til-
neyddir að skjóta undan
skatti eins og raunverulega
átti sér stað hér um langt
skeið. Hér var um heilbrigða
ráðstöfun að ræða, sem menn
vonuðu að yrði til þess að sið-
gæði batnaði í skattamálum.
Því miður hefur reynslan
orðið sú, að menn hafa haldið
áfram víðtækum skattsvik-
um, þótt skattalög væru færð
í réttlátara horf, og enn kveð-
ur svo rammt að þessum af-
brotum, að þjóðarsmán er.
Ríkisstj órnin hefur boðað
aukið eftirlit rneð skattafram
tölúm og er það vel, en þar
dugar ekkert smáræði, held-
ur verður að taka málið mjög
föstum tökum.
Hitt er annað mál, að svo
almenn eru skattsvikin, að í
fyrsta umgangi er ekki unnt
að beita refsingum á borð við
það, sem gert er í öðrum
löndum. Heppilegast hefði
raunar verið að gefa mönnum
upp sakir og taka síðan mjög
þungt á nýjum brotum.
Ekki er hægt að vænta fulls
árangurs af þeim aðgerðum,
sem framundan eru til að
tryggja heiðarleg skattafram-
töl, á einum eða tveimur ár-
um, en ef vel er á málum
haldið ætti að vera unnt að
koma heilbrigðri skipan á
málin innan fárra ára.
FESTA
FRAMUNDAN
'C’ins og kunnugt er hefur
*-J ríkisstjórnin aflað sér
heimildar til þess að draga úr
framkvæmdum ríkisins og
fresta þeim, ef nauðsyn kref-
ur, vegna ofþennslu í efna-
hagslífinu. Þessari heimild er
sjálfsagt að beita til að skapa
á ný festu í íslenzku þjóðlífi.
Menn hafa fengið meira en
nóg af vinnudeilum og óraun-
hæfum kauphækkunum, og
þess vegna er ólíklegt, að enn
á ný muni takast að stofna til
vinnudeilna og koma af stað
hækkunum kaupgjalds og
verðlags.
Viðreisnarstj’órnin hefur ó-
mótmælanlega síðustu mán-
uðina verið í varnarstöðu og
ekki tekizt að hindra áhlaup
stjórnarandstæðinga, sem
miða að því að skapa sem
mesta erfiðleika, en margt
bendir til þess, að þeirri vörn
sé nú lokið og ný sókn sé
framundan.
Viðreisnin hefur enn ekki
verið fullkomnuð, þótt margt
gott hafi af henni leitt. Enn
er eftir að^skapa það jafn-
vægi og traust, sem er nauð-
synleg forsenda- heilbrigðs
þjóðlífs og batnandi hags. —
Þetta er það verkefni, sem
vinna verður að næstu mán-
uðina. Ef öfluglega er að því
staðið mun sigur vinnast, því
að fjöldi landsmanna ætlast
til þess, að vandamálin séu
tekin föstum tökum, eins og
sýndi sig, þegar viðreisnarráð
stafanirnar hófust 1960.
Af þessum sökum er fyllsta
ástæða til þess að landsmenn
séu bjartsýnir, þrátt fyrir þau
áföll sem urðu síðari hluta árs
1963.
Meðfylgjandi mynd birtist af
íslenzku stúlkunni Guðrúnu
Högnadóttir í BT fyrir nokkrum
dögum. í texta með myndinni
urinn hafi enn ekki verið ákveð-
inn.
Þá komst frú Kennedy á for-
síðu blaðanna í síðustu viku,
þegar hún snæddi kvöldverð í
veitingahúsi aokkru í Washing-
ton. Hún deildi þar borði með
myndaieikaranum Marlon
kvikmyndaleikaranum Marlon
systur sinni, Lee Radziwill,
Brando og kvikmyndaframleið-
andanum George Egnlund. Varð
fólk furðu lostið að sjá hana í
þessum félagsskap. Blaðafuiltrúi
hennar lýsti því hinsvegar yfir,
að hún hafi verið að ræða við
hina tvo síðarnefndu í sambandi
við kvikmyndun í John F.
Kennedy bókasafninu í Harvard.
En það glyemdist að' segja
En það gleymdist að segja
og hann tók þann kostinn að
bera á móti því að hann hefði
nokkru sinni hitt frú Kennedy,
hvað þá snsett með henni.
segir, að hún hafi fyrir nokkru
sagt upp starfi sínu á skrifstofu
í Kaupmannahöfn og gerzt ljós-
myndafyrirsæta með góðum ár-
angri. Og þó það sé ekiki jafn
arðbær atvinna og salta síld á
íslandi, hafi hún í hyggju að
halda því áfram, því takmark
hennar sé ekki fyrst og fremst
að græða peninga.
Blaðið segir ennfremur að
stúlkan sé engin kveif, og hún
blikni hvorki né bláni við að
slægja þorsk og taka út úr hon-
um innyflin. Uppáhaldsréttur
hennar sé líka þorskaflök „a la
Geysir“, sem hún dýfi ofan í
gróft salt eftir steikingu.
Fyrir nokkrum dögum flutti
Jacqueline Kennedy í sitt eigið
hús með börn sín. Síðan maður
hennar lézt hefur hún búið í húsi
vara-utanríkisráðherrans Aver-
ell Harrimann, sem staðsett er i
hinum sögufræga hluta Washing
ton, Georgetown.
Hljótt er nú um Birgitte Bar-
dot, og hefui lítið um hana
heyrzt síðan frestað var töiku
myndarinnar „Une ravissante
idiote", þar sem hún lék á móti
Jacques fór í með föður sínurn,
og virtist fara vel á með þeim
feðgum. Á sama tíma birtist sv®
meðfylgjandi mynd frá kyrrlát-
um morgni á heimili Vadims,
Húsið sem frú Kennedy flytur
í er andspænis húsi Harrimanns.
Það er gamalt hús frá 1794, á
þremur hæðum. í húsinu eru
tólf herbergi.
Á myndinni sést Jacqueline
Kennedy flutningadaginn. Hún
er klædd í gúmmístígvél og regn
kápu, Yzt til vinstri er hálfsyst-
ir hennar, Janet Auchinloss, og
Caroline Kennedy á milli þeirra.
Heyrzt hafa þær fréttir frá
Þýzkalandi, að Jacqueline hygg-
ist skreppa í heimsókn til Vest-
ur-Berlínar á næstunni, en dag-
Anthony Perkins. Kvikmyndatak
an fór fram í London og var
frestað um eitt ár, vegna þess að
Londonbúar voru svo forvitnir,
að hinir frægu leikarar höfðu
ekki stundlegan frið fyrir þeim.
Aftur á móti er mikið rætt um
fyrrverandi eiginmenn Brigitte,
þá Roger Vadim og Jacques
Charrier. Eitt blaðið birti í vik-
unni heilsíðu um skautaferð,
skömmu áður en hjónaleysin
rjúka af stað til vinnu. Eins og
kunnugt er hafa þau Catherine
Denenuve ekki enn gengið i það
heilaga, -og segja margir að
Vadim sé tregur til, sbr. máls-
háttinn „brennt barn forðast eld
inn“. Hann hefur tvisvar verið
giftur, fyrst Brigitte Bardot og
síðan dönsku leikkonunni Anetta
Ströyberg. Catherine er líka
sem Nicolas, sonur Brigitte og kvikmyndaleikkona.